Morgunblaðið - 10.05.1977, Qupperneq 40
Al (íLVS1 NíiASÍMINN ER:
22480
Blor£miWníní>
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 1977
Árangurslít-
ill sáttafundur
Viðræður SÍS og ASÍ hefjast í dag
Vestmannaeyjar:
Stöðva bátana vegna
yfirvinnubannsins
STUTTUR og árangurslftill sátta-
fundur var haldinn f gær. Aðal-
samninganefndir aðila vinnu-
markaðarins sátu f gær tvær
klukkustundir á fundi, en sfðan
hófust viðræður f hópum um að-
ferðir við afgreiðslu sérkrafna.
Björn Jónsson, forseti ASÍ, kvað
Iftið hafa gerzt á samningafund-
inum, en hins vegar kvað hann
Alþýðusambandið hafa fengið í
gær svar við tilmælum þess um að
viðræður hæfust milli Alþýðu-
sambandsins og Sambands ís-
lenzkra samvinnufélaga.
Fyrsti viðræðufundurinn verð-
ur í dag kl. 14 i Sambandshúsinu.
Á baknefndarfundi Alþýðusam-
bandsins siðastliðinn laugardag
var samþykkt að kjósa sérstaka
viðræðunefnd til þess að ræða við
stjórn Sambandsins og lýsti bak-
nefndarfundurinn yfir því að svo
virtist sem Sambandið ætti ekki
lengur samleið með vinnuveitend-
um. í viðræðunefnd Alþýðusam-
bandsins voru kjörnir.til viðræðn-
anna: Jón Ingimarsson, Jón
Veruleg fækkun hefur orðið á
umferðaróhöppum og slysum í
Reykjavik fjóra fyrstu mánuði
ársins, ef miðað er við sömu mán-
uði tvö árin á undan. Fjóra fyrstu
mánuði þessa árs hafa orðið 817
umferðaróhöpp f Reykjavík og f
þeim hefur slasast 51. Sömu mán-
uði f fyrra voru óhöppin 1073 og
tala slasaðra 70 og fjóra fyrstu
mánuði ársins 1975 voru óhöppin
1100 að tölu og fjöldi slasaðra
115.
Þessar tölur fékk Morgunblaðið
í gær hjá Óskari Ólasyni, yfirlög-
regluþjóni umferðarmála í
Reykjavík. Kvað Óskar mjög
gleðilega þróun hafa orðið í um-
feröinni í Reykjavík á síðustu
misserum, umferðaróhöppum
hefði fækkað verulega og sömu-
leiðis slysum. Sagði Óskar að
margt hjálpaðist þarna að, en það
mikilvægasta væri eflaust að öku-
menn virtust sýna meiri aðgæzlu í
umferðinni en áður.
/
Geir og Olafur
hætta við utan-
ferðir vegna
kjaradeilunnar
VEGNA kjaradeilunnar hafa þeir
Geir Ifallgrfmsson og Ólafur Jó-
hannesson hætt við utanferðir f
vikunni að þvf er segir í frétt frá
rfkisstjórninni.
Forsætisráðherra hefur ákveðið
að hætta við fyrirhugaða þátttöku
í fundí leiðtoga Atlantshafs-
bandalagsríkjanna í London 10.
og 11. mai og leiðtogafundi
EFTA-ríkjanna i Vinarborg 13.
maí. Ólafur Jóhannesson hefur
hætt við þátttöku í síðarnefnda
fundinum af sömu ástæðu og for-
sætisráðherra.
Einar Ágústsson, utanríkisráð-
herra, sem er erlendis, mun sitja
þessa fundi fyrir Islands hönd
ásamt embættismönnum.
Helgason, Guðjón Jónsson, Guð-
mundur J. Guðmundsson, Björn
Þórhallsson, Björn Jónsson og
Kolbeinn Friðbjarnarson. For-
stjóri Sambandsins, Erlendur
Einarsson, sagði í viðtali við
Morgunblaðið í gær að ályktun
Sambándsstjórnarinnar hefði ver-
ið stefnuyfirlýsing og hefði hún
alls ekkert á móti þvi að ræða við
nefnd ASÍ og skýra fyrir henni
ályktunina. Umsagnar Erlends er
nánar getið á bls. 2 í blaðinu i dag.
Viðræður við landssambönd
innan ASÍ tóku síðan við af fundi
aðalsamninganefndanna i gær
klukkan 16. Rætt var um sérkröf-
ur verzlunarmanna, verkamanna,
félaga innan Sambands bygging-
armanna, félaga innan Málm- og
skipasmiðasambandsins, rafiðn-
aðarsambandsins og Iðjufélag-
anna. Ráðgert var síðan að fleiri
hópar ræddu sérkröfumeðferð ár-
degis í dag. Á samningamönnum
mátti í gær heyra að sérkröfurnar
væru erfiðar viðfangs, þar sem
Framhald á bls. 24.
Þegar litið er á aprilmánuð
einan, kemur í ljós að umferðar-
óhöpp urðu 209 á móti 180 árið
1976 og 250 árið 1975. í apríl í ár
slösuðust 7 manr.s í umferðinni á
Framhald á bls. 24.
BATAR, sem landa hjá
Fiskiðjunni í Vestmanna-
eyjum, fengu að fara út
aftur í gær eftir stöðvun á
föstudag og í dag stöðvar
Vinnslustöðin sína báta
fram yfir helgina. „Við
komum tii með að haga
seglum eftir vindi í yfir-
vinnubanninu,“ sagði
Hjörtur Ilermannsson,
yfirverkstjóri Fiskiðjunn-
ar,“ og það er ekki hægt án
einhverra takmarkana.“
„Þetta er enginn vinnu-
tími, þegar ekki má byrja
fyrr en klukkan átta og allt
þarf að vera komið úí úr
húsinu klukkan fimm,“
sagði Stefán Runólfsson,
framkvæmdastjóri
Vinnslustöðvarinnar.
Að sögn Stefáns leggja 15—20
bátar upp hjá Vinnslustöðinni og
hefur heldur lifnað yfir afla tog-
bátanna. Þá afla togararnir vel og
er Klakkur farinn á veiðar eftir
AÐ KRÖFU enska bankans
Williams and Glyn’s Bank Limi-
ted, verður flutningaskipið Suðri
selt á nauðungaruppboði í Rotter-
dam f Hollandi 1. júnf n.k. Upp-
hæðin, sem bankinn nefnir til
skuldar á reikningi eiganda
skipsins, Jóns M. Franklfn, er
tæpar 180 milljónir króna auk
vaxta og kostnaðar. „Þetta er allt
í lausu loft ennþá,“ sagði Magnús
Ármann hjá Gunnar Guðjónsson
sf. skipamiðlun. „Það var gert
samkomulag við bankann f janú-
ÞAÐ BLÆS ekki byrlega fyrir
þeim skipsmönnum á Brendan. í
gær voru þeir enn að dúlla f logni
út af Gróttu og virðist lftil breyt-
ing verða á strax, því veðurstofan
spáir áframhaldandi logni næstu
tvo dagana. Þessa mynd tók
Ól.K.M. af Brendan út af Gróttu
um helgina.
að landa 130 tonnum og Vest-
mennaey kom inn í gær með 160
tonn. Þá sagði Stefán að nú væri
alversti tíminn með mannskap.
Aðkomufólk má heita allt farið og
fermingar og annað í gangi hjá
heimafólki.
Hjörtur Hermannsson sagði að
nú væru bátar komnir á spærling
og aðrir að skipta yfir í humar og
þetta létti á frystihúsinu. Hjá
Fiskiðjunni leggja upp 23 bátar.
ar út af 25—26 milljón króna
gjaldfallinni afborgun af þessu
láni, en sfðan kom krafa frá bank-
anum um viðgerð á skipinu og nú
er með öllu óljóst, hvernig þessu
reiðir af.“
Þetta samkomulag, sem gert
var í janúar, var háð þvi skilyrði
bankans að skipið færi í skoðun.
Að skoðun lokinni setti bankinn
fram kröfur um að skipið færi I
viðgerð og að gert yrði við þrjú
tjón á þvi, þar af það stærsta frá
því að skipinu hlekktist á í Horna-
firði í nóvember sl. Viðgerð þess-
ari á að ljúka nú í mánaðarlok.
Krían
komin
„KRÍAN er komin“, sagði Sel-
tjarnarnessbúi, sem hafði sam-
band við Mbl. f gær. „Ég stóð
úti við á laugardag og þá sá ég
krfur koma af hafi. Ég er ekki
f neinum vafa um þetta,“ bætti
maðurinn við.
AFMÆLIS- og minningar-
greinar, sem eiga að birtast í
Morgunblaðinu n.k. sunnudag,
verða að berast eigi sfðar en á
miðvikudagskvöld.
Vegna yfirvinnubannsins er
einnig óhjákvæmilegt að tafir
verða á birtingu á ýmsu efni,
greinum o.fl.
Ljósm. Mbl. Ól.K.M.
A fyrsta sáttafundi sjómanna og útvegsmanna f gær. Frá vinstri
eru: Agúst Flygenring, Kristján Ragnarsson, formaður Ll(J, Björn
Guðmundsson, en andspænis þeim við borðið sitja fulltrúar sjó-
manna, Jónas Þorsteinsson, forseti Farmannasambandsins, og Ósk-
ar Vigfússon, formaður Sjómannasambandsins. Lengst til hægri
situr Jónas Ilaraldsson, skrifstofustjóri LtU, og f gættinni er
Ingimar Einarsson, framkvæmdastjóri Félags fslenzkra botnvörpu-
skipaeigenda.
Fyrsti fundur
með sjómönnum
og útvegsmönn-
um var í gær
FYRSTI samningafundur sjó-
manna og útvegsmanna var
haldinn f húsakynnum Lands-
sambands fslenzkra útvegs-
manna f gær klukkan 14. Fund-
urinn var stuttur, aðeins um
hálf klukkustund og urðu aðil-
ar ásáttir um að vfsa deilunni
til sáttasemjara rfkisins, sem
þegar var gert að fundinum
loknum.
Morgunblaðið hefur áður get-
ið krafna sjómanna, en þær
voru afhentar útvegsmönnum
síðastliðinn fimmtudag. Sjó-
mannafélögin hafa enn ekki
aflað sér verkfallsheimildar og
fyrir helgi sagði Óskar Vigfús-
son að það yrði ekki fyrr en
eftir að ljóst væri á hvern hátt
útvegsmenn tækju undir kröf-
ur sjómanna.
Það er nú á valdi sáttasemj-
ara að boða til næsta fundar
með deiluaðilum.
U mf er ðar sly s-
um fækkar veru-
lega í Reykjavík
Beðið um uppboð
á Suðra 1 Hollandi