Morgunblaðið - 22.05.1977, Side 1

Morgunblaðið - 22.05.1977, Side 1
114. tbl. 64. árg. SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1977 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Vill adstod gegn Hanoi-st j ór ninni FYRRVERANDI þingmadur f Hanoi, Nguyen Kong Hoan, sem nvlega flúði f fiskibáti til Japans, hefur skorað á Bandarfkjamenn að veita Vfetnömum, sem vilja steypa stjórn kommúnsta af stóli, hernaðarlega aðstoð. Tveir menn, sem flúðu með Hoan og voru eins og hann stuðningsmenn „Stóra Minhs“ hershöfðingja og „þriðja aflsins" á Saigon-þinginu gamla, Tran Van Son og Tran Van Thung, styðja þessa áskorun. Mennirnir skýrðu New York Times nýlega frá miklum von- brigðum, sem þeir hefðu orðið fyrir eftir sigur kommúnista í Víetnam. Þeir sögðu að kommún- istar hefðu komið á ógnarstjórn, en kváðust þó sjálfir hafa sloppið tiltölulega vel miðað við aðra stjórnmálamenn, þar sem þeir hefðu verið andstaeðingar Thieus hershöfðingja. Hoan kvað Víetnama ekki hafa gert sér grein fyrir því hvers virði frelsi væri fyrr en nú eftir sigur kommúnista og sagði að nú vildu þeir verulega hernaðaraðstoð til að endurheimta frelsi sitt. Hoan kvaðst tala fyrir hönd meirihluta vfetnömsku þjóðarinnar og sagði að „þrátt fyrir 30 ára stríð væru Víetnamar reiðubúnir að grípa til vopna, jafnvel kjarnorkuvopna, til að reka kommúnista burtu.“ Hoan og stuðningsmenn hans kváðust gera ráð fyrir því að 200.000 fyrrverandi embættis- menn og herforingjar væru enn i „endurskólun" í vinnubúðum. Alþjóðasamnmgur um að beita ekki náttúru- öflum í hernaðarskyni Genf, Reuter. UTANRÍKISRÁÐHERRAR So- vétrfkjanna og Bandaríkjanna, Andrei Gromyko og Cyrus Vance, hafa undirritað samning um að beita ekki náttúruöflunum f hernaðarskyni. Samningurinn er f tfu greinum, og girðir fyrir þann möguleika að rfkin megi raska veðurfari f fjandsamlegum til- gangi. Þannig skuldbinda þau sig til að hrófla ekki við eldfjöllum, sjávarstraumum, vindum og úr- komu. Tilgangur samningsins er að koma f veg fyrir að náttúruöfl- in geti orðið mönnum að vopni f hernaði á meðan slfkt er aðeins hugsanlegur möguleiki. Þessi samningur er fyrsta merki um áþreifaniegan árangur Genfarviðræðnanna um takmörk- un vopnabúnaðar, en þær hafa farið fram með hléum undanfarin fjögur ár. Stjórnmálafræðingar telja, að undirritun samningsins um bann við beitingu náttúruaflanna í hernaði sé til marks um það, að þrátt fyrir einarða stefnu Carters forseta í mannréttinda- og af- vopnunarmálum séu bæði Sovét- menn og Bandaríkjamenn stað- ráðnir í því að halda áfram til- raunum til að draga úr ófriðar- hættu í heiminum. Enda þótt þátt- ur þessara tveggja stórvelda sé mikilvægastur eru samtals 30 þjóðir aðilar að samningnum. í fyrstu grein samningsins hafna aðildarríkin „tilraunum til að AÐ KVÖLDI. Tólf þúsund sektir fást ekki greiddar WASHINCTON SOVÉZKA sendiráðið í Washington á ógreiddar fleiri stöðumælasektir en nokkurt annað sendiráð f borginni eða 12.270. Embættismenn i Washington gera ráð fyrir því að 80 af hundraði stöðumælasekta diplómata verði aldrei greidd. Ógreiddar stöðumæla- sektir erlendra sendiráðs- manna þrjá fyrstu mánuði ársins í Washington voru 37.905. ísraelsmenn eiga ógreiddar 4.885 stöðumælasektir, Nígería 1225 og Perú 1084. Yfirleitt nemur hver sekt rúmum 20 dollurum og samkvæmt þvi skulda Rússar um 251.000, ísraelsmenn rúmlega 100.000 Nfgería rúmlega 25.000 og Perú rúmlega 22.000. Heildarverðmæti ógreiddra stöðumælasekta diplómata i höfuðborg Bandarikjanna er komin yfir eina milljón dollara eða tæplega 200 milljónir íslenzkra króna. Leynisamkomulag heimilar írum útfærslu í 50 mflur ÍRAR, Bretar og aðrar aðildarþjóðir Efnahags- bandalags Evrópu hafa rétt til að lýsa einhliða yfir 50 sjómílna fiskveiðilög- sögu samkvæmt leynilegu samkomulagi, sem hinar níu aðildarþjóðir EBE sam- þykktu einróma. Anthony Crosland, fyrrum utan- ríkisráðherra Breta, staðfesti samkomulag Foreldrar í Svíþjóð á móti kynlífsfræðslu Stokkhólmur. Reuter. YFIR 800 sænskir foreldrar hafa skotið máli sfnu til mann- réttindadómstóls Evrópu í því skyni að koma í veg fyrir að börnum þeirra verði spillt með þvf að setja fyrir þau skólabæk- ur um kynlff, sem séu öfga- kenndar og ofbjóði siðferðis- kennd, en bækur þessar hafi hlotið náð fyrir fræðsluráði sænska rfkisins. Kynlífsfræðsla hefur verið veitt i sænskum skólum í tvo áratugi, en foreldrarnir, sem hreyfa mótmælum, halda þvi fram að námsbækur þær, sem nú eru notaðar, séu klámkennd- ar og því ekki við hæfi barna. Sænsk stjórnvöld hafa ekki svarað mótmælum foreldranna. Þvi hafa þeir snúið máli sinu til mannréttindadómstólsins og segja, að Mannréttindasáttmáli Sameinuðu þjóðanna kveði af- dráttarlaust á um að foreldrar geti af trúarlegum ástæðum krafizt þess að vera hafðir með I ráðum um barnafræðslu. Segja foreldrarnir, að í sænskum námsbókum sé ýtt undir þá skoðun að kynvilla sé eðlileg og stuðli bækurnar að því að útbreiða hana. Þá segja þeir, að i bókunum sé reynt að vekja ótímabæra kynhvöt, sem haft geti alvarlegar afleiðingar. þetta 30. október í fyrra, að því er brezka blaðið The Guardian hefur skýrt frá. í brezka stjórnarráðinu gengur samkomulagið undir nafninu „Annexe VI“, og heimilar það öllum aðildarrikjum Efnahags- bandalagsins að færa fisk- veiðilögsögu sína einhliða út þannig að „útfærslan feli ekki í sér mismunun aðildarrikja“, á meðan heildarstefna EBE í fisk- veiðimálum hefur ekki verið samþykkt. Það hefur ekki gerst ennþá í upphafi Annexe VI segir að með einni undantekningu, megi niu aðildarriki EBE ekki grípa til eigin aðgerða til fiskverndunar fyrr en samkomulag hefur náðst um fiskveiðistefnu bandalagsins. Undantekningunni er lýst þannig að ef samkomulag hefur ekki náðst á milli EBE landanna um sameiginlega fiskveiðistefnu, né bandalagið geti gert sameigin- legar bráðabirgðaráðstafanir, þá geti einstök aðildarriki gripið til bráðabirgðaráðstafana, sem ekki fela í sér mismunun aðildarþjóða, til að tryggja vernd fiskstofna á ákveðnum svæðum við strendur sínar. Áður en til slikra ráðstafana er gripið, verða aðildarríkin að leita samþykkis framkvæmdanefndar- innar, en við hana verður að ráðg- ast á öllum stigum málsins. írska stjórnin segist hafa not- fært sér þetta samkomulag til að færa fiskveiðilögsögu sina út i 50 milur. Segist stjórnin hafa upp- fyllt það skilyrði að hafa fram- kvæmdanefndina með i ráðum á þann hátt að við hana var ráðgast og hún vöruð við fyrirætlunum stjórnarinnar. Framkvæmdanefndin er hins vegar ekki sammála írum um þetta atriði og hefur lagt útfærslu íra fyrir Evrópudómstólinn á þeirri forsendu að hún feli i sér mismunun rikja EBE. Varúð: kaffi er hættulegt! TORONTO — Ný rannsókn hef- ur leitt í Ijós að samband er á milli kaffineyzlu og geðtrufl- ana þannig að þeir sem drekka mikið kaffi eru þunglyndari en þeir sem drekka lftið kaffi. Rannsóknin var gerð á 83 geðsjúklingum og sýndi að þeir sjúklingar sem drukku mikið kaffi höfðu meiri áhyggjur og notuðu meira af róandi lyfjum en þeir sem drukku Iftið kaffi. Læknar frá Michigan-háskóla gerðu þessa rannsókn og skýrðu frá niðurstöðum hennar í ritgerð sem þeir sendu banda- ríska geðvísindafélaginu. Læknarnir komust að þeirri niðurstöðu, að þeim mun meira sem fólk neytti koffíns, hvort heldur í kaffi, tei, coca cola og öðrum gosdrykkjum eða i pill- um, þeim mun meiri likindi væru á því að sjúklingurinn þjáðist af geðtruflunum. Samkvæmt rannsókninni er mikil koffín-neyzla talin vera um 750 milligrömm eða meira á dag. í venjulegum kaffibolla eru um 100 milligrömm af koffíni, þótt það sé breytilegt, þannig að ráðlegt er að drekka ekki mikið meira en sjö kaffi- bolla á dag ef menn vilja forð- ast geðrænar truflanir. Hér er átt við heildar koffin- neyzluna svo menn ættu að vara sig á þvi að drekka of mikið af coca cola eða tei í viðbót. í hverjum tebolla eru milli 50 og 75 milligrömm af koffíni svo að teið er hættu- ntinna geðheilsu en kaffi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.