Morgunblaðið - 22.05.1977, Side 3

Morgunblaðið - 22.05.1977, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1977 3 Flótti undan Kötluhlaupi, mðluð um 1945. Sumarsýning opnuð í Ásgrímssafni I DAG verður 44. sýning Ás- grímssafns opnuð. Eins og ævinlega á sumarsýningum safnsins er sýnt 50—60 ára yfir- lit yfir myndlist Ásgrims Jóns- sonar, og eru þá m.a. hafðir í huga erlendir gestir sem safnið skoða á sumrin. Skýringartexti á ensku fylgir hverri mynd. Vatnslitamyndum hefur ver- ið komið fyrir á heimili Ás- gríms, ásamt nokkrum þjóð- sagnateikningum, en i vinnu- stofu hans er sýning á oliumál- verkum. Leitazt var við að velja sem fjölþættust verk, og eru m.a. nokkrar myndir úr Reykja- vik. En meginuppistaða sýning- arinnar er landslagsmyndir frá ýmsum stöðum á landinu. Ásgrímssafn hefur látið prenta kynningarrit á ensku, dönsku og þýzku um Ásgrim Jónsson og safn hans. Einnig kort i litum af nokkrum mynd- um í eigu safnsins. Ásgrimssafn, Bergstaðastræti 74, verður opið alla daga i júnf, júlf og ágúst, nema laugardaga, frá kl. 1.30—4. Aðgangur er ókeypis. Stúlka hlaut hæstu einkunn í Bændaskólan- um á Hvanneyri BÆNDASKÓLANUM á Hvann- eyri var slitið laugardaginn 14. maf sl. Lauk þar með 87. starfsári skólans. Skólsstjórinn, Magnús B. Jónsson, greindi frá starfi skól- ans f vetur, afhenti prófskfrteini og ávarpaði nemendur, en einnig fluttu ávörp við athöfnina þeir Haukur Júlfusson, kennari og sr. Ólafur Jens Sigurðsson. I haust leið hófu 67 nemendur nám við bændadeildir skólans. Af þeim luku nú 62 búfræðiprófi. Hæstu einkunn hlaut Anna Sig- marsdóttir frá Desjamýri i Borg- arfirði eystra, 9,1. Hlaut hún verð- laun Búnaðarfélags tslands fyrir ágætan námsárangur. Þá veKti bændaskólinn nokkrum nemend- um öðrum viðurkenningar fyrir ágætan námsárangur og um- gengni um ibúðir sínar. Skeifu Morgunblaðsins fyrir bezta árangur í tamningu hesta hlaut Hreggviður Eyvindsson, en Sigurþór Gislason frá Meðalfelli f Kjós hlaut verðlaun Félags tamn- ingamanna fyrir góða ásetu. Félagslif hefur verið mjög öfl- ugt í skólanum í vetur. Nemendur efndu m.a. til skemmtana á fjór- um stöðum í Borgarfirði og á Snæfellsnesi, þar sem boðið var upp á leik, söng og fleira. Þá efndu þeir til kvöldvöku á Dvalar- heimili aldraðra í Borgarnesi. Sönglíf var þróttmikið undir stjórn Ólafs Guðmundssonar, iþróttir stunduðu nemendur ríku- lega svo og þjáifun í meðferð hesta. Nemendur tóku virkari þátt í stjórn skóla og heimavistar i vet- ur, en áður hefur verið. Gat skóla- stjóri þess í ræðu sinni, að sú skipan hefði gefið mjög góða raun, og að haldió yrði áfram á þeirri braut. Aðsókn að bændaskólanum hef- ur farið mjög vaxandi á síðustu árum. Önnur tiðindi úr starfi Bænda- skólans á Hvanneyri eru helzt þau, að skólinn gekkst á liðnu hausti fyrir tveimur námsskeið- um fyrir fóöur- og fræsölumenn verzlunarfyrirtækja, en með til- komu hinna nýju skólamann- virkja á Hvanneyri er ætlunin að efla námskeiðahald svo og aðra þætti endurmenntunar bænda og starfsmanna þeirra. Þá hefur Bændaskólinn á Hvanneyri í vet- ur efnt til fræðslufunda fyrir bændur í samvinnu við búnaðar- sambönd Borgarfjarðar, Snæfell- inga, Vestfjarða og Stranda- manna. Á þessum fundum fluttu auk kennara og ráðunauta nem- endur búvisindadeildar Bænda- skólans erindi, og er það liður í þjálfun þeirra og námi. Alls stunda nú 17 nemendur nám við búvísindadeild og munu 8 þeirra væntanlega ljúka búfræðikandi- datsprófi í júní n.k. ferðatímann Notið bezta Dragiö ekki að panta. Flestar Utsýnarferöir eru aö seljast upp Costa Brava: VERO FRÁ KR. 61.200 í 3 VIKUR BROTTFÖR: Jún: 10. Júl: 1., 15. og 29. Ág: 12., 26. Sept: 2., 9. Costa del Sol VERÐ FRA KR. 62.700 í 3 VIKUR BROTTFÖR: Maí: 29. Jún:19. Júl: 3., 1 7., 24. og 31. Ág: 7.. 14., 21. og 28. Sept: 4., 11., 1 8. og 25. Okt: 9 Italía Lignano: VERÐ FRÁ KR.: 63.400 í 3 VIKUR BROTTFÖR: Jún: 1. Júl: 6., 13., 20. og 27. Ág.: 3., 10., 1 7., 24. og 31. Sept.: 7. BROTTFÖR 31. MAÍ Napoli — Capri —- Sorrento — Pompei — Róm — Assisi — Flórenz — Siena — Pisa — Ravenna — Feneyjar — Lignano. Einstakt taekifæri til að kynnast markverðustu stöðum og fágætum listfjársjóðum ítaliu, undir leiðsögn kunnugs fararstjóra. 5 sæti laus. AUSTURSTRÆT117, SIMI26611 FerSaskrifstofan

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.