Morgunblaðið - 22.05.1977, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1977
3
Flótti undan Kötluhlaupi, mðluð um 1945.
Sumarsýning opnuð
í Ásgrímssafni
I DAG verður 44. sýning Ás-
grímssafns opnuð. Eins og
ævinlega á sumarsýningum
safnsins er sýnt 50—60 ára yfir-
lit yfir myndlist Ásgrims Jóns-
sonar, og eru þá m.a. hafðir í
huga erlendir gestir sem safnið
skoða á sumrin. Skýringartexti
á ensku fylgir hverri mynd.
Vatnslitamyndum hefur ver-
ið komið fyrir á heimili Ás-
gríms, ásamt nokkrum þjóð-
sagnateikningum, en i vinnu-
stofu hans er sýning á oliumál-
verkum. Leitazt var við að velja
sem fjölþættust verk, og eru
m.a. nokkrar myndir úr Reykja-
vik. En meginuppistaða sýning-
arinnar er landslagsmyndir frá
ýmsum stöðum á landinu.
Ásgrímssafn hefur látið
prenta kynningarrit á ensku,
dönsku og þýzku um Ásgrim
Jónsson og safn hans. Einnig
kort i litum af nokkrum mynd-
um í eigu safnsins.
Ásgrimssafn, Bergstaðastræti
74, verður opið alla daga i júnf,
júlf og ágúst, nema laugardaga,
frá kl. 1.30—4. Aðgangur er
ókeypis.
Stúlka hlaut
hæstu einkunn
í Bændaskólan-
um á Hvanneyri
BÆNDASKÓLANUM á Hvann-
eyri var slitið laugardaginn 14.
maf sl. Lauk þar með 87. starfsári
skólans. Skólsstjórinn, Magnús B.
Jónsson, greindi frá starfi skól-
ans f vetur, afhenti prófskfrteini
og ávarpaði nemendur, en einnig
fluttu ávörp við athöfnina þeir
Haukur Júlfusson, kennari og sr.
Ólafur Jens Sigurðsson.
I haust leið hófu 67 nemendur
nám við bændadeildir skólans. Af
þeim luku nú 62 búfræðiprófi.
Hæstu einkunn hlaut Anna Sig-
marsdóttir frá Desjamýri i Borg-
arfirði eystra, 9,1. Hlaut hún verð-
laun Búnaðarfélags tslands fyrir
ágætan námsárangur. Þá veKti
bændaskólinn nokkrum nemend-
um öðrum viðurkenningar fyrir
ágætan námsárangur og um-
gengni um ibúðir sínar.
Skeifu Morgunblaðsins fyrir
bezta árangur í tamningu hesta
hlaut Hreggviður Eyvindsson, en
Sigurþór Gislason frá Meðalfelli f
Kjós hlaut verðlaun Félags tamn-
ingamanna fyrir góða ásetu.
Félagslif hefur verið mjög öfl-
ugt í skólanum í vetur. Nemendur
efndu m.a. til skemmtana á fjór-
um stöðum í Borgarfirði og á
Snæfellsnesi, þar sem boðið var
upp á leik, söng og fleira. Þá
efndu þeir til kvöldvöku á Dvalar-
heimili aldraðra í Borgarnesi.
Sönglíf var þróttmikið undir
stjórn Ólafs Guðmundssonar,
iþróttir stunduðu nemendur ríku-
lega svo og þjáifun í meðferð
hesta.
Nemendur tóku virkari þátt í
stjórn skóla og heimavistar i vet-
ur, en áður hefur verið. Gat skóla-
stjóri þess í ræðu sinni, að sú
skipan hefði gefið mjög góða
raun, og að haldió yrði áfram á
þeirri braut.
Aðsókn að bændaskólanum hef-
ur farið mjög vaxandi á síðustu
árum.
Önnur tiðindi úr starfi Bænda-
skólans á Hvanneyri eru helzt
þau, að skólinn gekkst á liðnu
hausti fyrir tveimur námsskeið-
um fyrir fóöur- og fræsölumenn
verzlunarfyrirtækja, en með til-
komu hinna nýju skólamann-
virkja á Hvanneyri er ætlunin að
efla námskeiðahald svo og aðra
þætti endurmenntunar bænda og
starfsmanna þeirra. Þá hefur
Bændaskólinn á Hvanneyri í vet-
ur efnt til fræðslufunda fyrir
bændur í samvinnu við búnaðar-
sambönd Borgarfjarðar, Snæfell-
inga, Vestfjarða og Stranda-
manna. Á þessum fundum fluttu
auk kennara og ráðunauta nem-
endur búvisindadeildar Bænda-
skólans erindi, og er það liður í
þjálfun þeirra og námi. Alls
stunda nú 17 nemendur nám við
búvísindadeild og munu 8 þeirra
væntanlega ljúka búfræðikandi-
datsprófi í júní n.k.
ferðatímann
Notið bezta
Dragiö ekki að panta. Flestar Utsýnarferöir eru aö seljast upp
Costa Brava:
VERO FRÁ KR. 61.200 í 3 VIKUR
BROTTFÖR:
Jún: 10. Júl: 1., 15. og 29.
Ág: 12., 26. Sept: 2., 9.
Costa del Sol
VERÐ FRA KR. 62.700 í 3 VIKUR
BROTTFÖR:
Maí: 29. Jún:19.
Júl: 3., 1 7., 24. og 31.
Ág: 7.. 14., 21. og 28.
Sept: 4., 11., 1 8. og 25. Okt: 9
Italía Lignano:
VERÐ FRÁ KR.: 63.400 í 3 VIKUR
BROTTFÖR:
Jún: 1.
Júl: 6., 13., 20. og 27. Ág.: 3.,
10., 1 7., 24. og 31. Sept.: 7.
BROTTFÖR 31. MAÍ
Napoli — Capri —- Sorrento — Pompei —
Róm — Assisi — Flórenz — Siena — Pisa —
Ravenna — Feneyjar — Lignano.
Einstakt taekifæri til að kynnast markverðustu
stöðum og fágætum listfjársjóðum ítaliu, undir
leiðsögn kunnugs fararstjóra. 5 sæti laus.
AUSTURSTRÆT117, SIMI26611
FerSaskrifstofan