Morgunblaðið - 22.05.1977, Síða 27

Morgunblaðið - 22.05.1977, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAl 1977 27 Fyrrum læknir Amins telur hann haldinn sárasótt IDI AMIN OG FYRRVERANDI LÆKNIR HANS, JOHN KIBUKAMUSOKE Fyrir fjórum árum flúði John Kibukamusuke, einn af lfflæknum Idi Mains Dada Ugandaforseta, land ( ofboði þegar honum barst njósn af þv( að hann væri kominn (skyggi- lega ofarlega á dauðalista harð- stjórans. Læknirinn er nú próf- essor við háskólann í Zambíu. Hingað til hefur hann ekki viljað tjá sig opinberlega um samskipti sfn og kynni af Amin, en nýlega birtist viðtal við hann f brezka blaðinu Observer. Kibukamusuke kveð- ur ástæðuna fyrir því að hann kýs nú að rjúfa þögnina vera „tómlæti heimsins" gagnvart óöldinni i Uganda, og hann beinir þv( til Sameinuðu þjóðanna og Breta, að þegar í stað verði gerðar ráðstafanir til að binda enda á martröðina. Læknirinn gerir heilsufar Amins meðal annars að um- ræðuefni, og segir, að yfir- gnæfandi Kkur bendi til þess að hin makalausa hegðun harð- stjórans, stórmennskubrjálæði og gjörsamlega óútreiknanleg uppátæki eigi rætur að rekja til geðtruflunar, sem algeng sé hjá sjúklingum með sárasótt á hástigi, svo og geðklofa. „Eins og fjölmargir Uganda menn fagnaði ég í fyrstu valda- töku Amins. Övinsældir Obote—stjórnarinnar höfðu farið sívaxandi, og um þetta leyti gat enginn ímyndað sér hvílik grimmd átti eftir að verða staðreynd í Úganda,“ segir Kibukamusoke. „Bjart- sýni setti svip sinn á upphaf hins nýja lýðveldis, og það var í þeim anda, sem ég féllst á að gefa mér tíma frá starfi mínu sem forseti læknadeildarinnar við háskólann i Makerere til að líta eftir heilsufari Amins.“ „Um þessar mundir var litið á hann sem hetju, og i fyrstu sýndi hann af sér verulega djörfung, ekki aðeins með því að sleppa pólitiskum föngum Obotes, heldur var hann einnig umburðarlyndur gagnvart stuðningsmönnum hans. . . . Það var ekki fyrr en siðar að morðsögur komust á kreik.“ „Við læknarnir meðhönd- luðum hann í upphafi vegna ýmiss konar lasleika, þar á meðal þvagsýrugiktar, sem smám saman fór að há honum minna. Við athuguðum hvort hann væri með sárasótt, en niðurstaðan var sú áð sýnin voru neikvæð. Sú niðurstaða tók þó ekki af allan vafa — skýringin gat verið sú að sjúk- dómurinn væri kominn á hástig eða að hann hafði þegar fengið meðhöndlun vegna sjúk- dómsins. Við höfðum ekki tæki- færi til að kanna þetta nánar með ónæmisrannsóknum af þvi að hann neitaði því að hafa nokkurn tíma sýkzt.“ „Siðan hef ég komizt að þvi,“ heldur Kibukamusoke áfram, „að israelskur geðlæknir, að nafni Marcel Assaed, hafði meðhöndlað hann vegna sára- sóttar á árunum 1969—71 þegar hann starfaði sem ráðu- nautur við heilbrigðis- stofnunina í Úganda. Þessi staðreynd gæti skýrt þau sálsýkiseinkenni sem koma fram í stórmennskubrjálæði Amins, en slíkt er ekki óþekkt hjá þeim, sem þjást af sára- sótt.“ „Eftir að hafa fylgzt náið með Amin er ég ekki i nokkrum vafa um að hann er geðsjúkur, og sá sjúkleiki hefur ágerzt síðan hann komst til valda árið 1971. Læknar, sem önnuðust hann áður, höfðu komizt að sömu niðurstöðu. Okkur þóttu einkennin geta bent til þess að um væri að ræða geðklofa, en það var útilokað að fella um það fullnaðarúrskurð,'* segir prófessorinn. Siðan ræðir hann nánar um geðsýkiseinkenni Amins, og skýrir á vísindalegan hátt það ástand, þegar sjúkling- urinn fær hinar óliklegustu hugmyndir, sem hann sér sig knúinn til að tjá sig um. Hann segir, að reynt hafi verið að gefa Amin lyf, sem venjulega eru gefin geðklofasjúklingum, þegar sá gállinn var á honum, en lyfjagjöfin hafi hins vegar ekki komið að gagni þar sem Amin hafi ekki viljað taka þau reglulega. Hann rekur síðan hvernig hið sjúklega hugar- ástand forsetans hafi smám saman farið að hafa æ alvar- legri afleiðingar. Meðal annars tekur hann sem dæmi morð á föngum, sém fram hafi farið sem formleg athöfn og minni á villimannlegar trúariðkanir. Fangarnir hafi verið látnir raða sér upp og síðan hafi þeir einn af öðrum verið þvingaðir til að dauðrota þann, sem næstur stóð, svo ekki hafi þurft að skjóta nema þann siðasta í röð- inni, og bendi allar líkur til þess að þessi morð hafi verið framin eftir beinni skipun Amins. Þá segir prófessorinn frá morðinu á Michael Ondoga, sem verið hafði utanríkisráð- herra í stjórn Amins. Þegar líkið fannst kom í ljós við krufningu að lifrin hafði þegar verið numin brott. Það er göm- ul trú hjá Kakwa—ættflokk- num, sem Arriin er af, að morð- ingi skuli éta lifrina úr fórnar- Framhald á bls. 22 Ertu að byggja? Þarftu að bæta? MJÖG VÖNDUÐ GÓLFTEPPI Viltu breyta? Verð frá kr. 1.800 ferm Málning og málningarvörur Frá helstu framleiðendum Við veitum magnafslátt Það munar um minna ALLAR DEILDIR Á SAMA STAÐ VINYL GÓLFDÚKUR Verð frá kr. 1.400 ferm. KORK GÓLFFLÍSAR ^ Verð frá kr. 2.780 ferm. VINVL VEGGFÓÐUR Nýir litir Verð frá kr. 600 rúllan Vandaður CONDAKT-pappír — litaúrval mikið. Teppi í bíla — Rya og Escerona — Vönduð teppi í sérflokki. LEÐURLÍKI, breidd 138 cm. Glæsilegir litir Lítið við í LITAVERI því það hefur ávallt borgað sig. Hreyfilshúsinu, Grensásvegi 18 J

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.