Morgunblaðið - 22.05.1977, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAl 1977
27
Fyrrum læknir
Amins
telur hann
haldinn
sárasótt
IDI AMIN OG FYRRVERANDI LÆKNIR HANS, JOHN KIBUKAMUSOKE
Fyrir fjórum árum flúði
John Kibukamusuke, einn af
lfflæknum Idi Mains Dada
Ugandaforseta, land ( ofboði
þegar honum barst njósn af þv(
að hann væri kominn (skyggi-
lega ofarlega á dauðalista harð-
stjórans. Læknirinn er nú próf-
essor við háskólann í Zambíu.
Hingað til hefur hann ekki
viljað tjá sig opinberlega um
samskipti sfn og kynni af
Amin, en nýlega birtist viðtal
við hann f brezka blaðinu
Observer. Kibukamusuke kveð-
ur ástæðuna fyrir því að hann
kýs nú að rjúfa þögnina vera
„tómlæti heimsins" gagnvart
óöldinni i Uganda, og hann
beinir þv( til Sameinuðu
þjóðanna og Breta, að þegar í
stað verði gerðar ráðstafanir til
að binda enda á martröðina.
Læknirinn gerir heilsufar
Amins meðal annars að um-
ræðuefni, og segir, að yfir-
gnæfandi Kkur bendi til þess
að hin makalausa hegðun harð-
stjórans, stórmennskubrjálæði
og gjörsamlega óútreiknanleg
uppátæki eigi rætur að rekja til
geðtruflunar, sem algeng sé
hjá sjúklingum með sárasótt á
hástigi, svo og geðklofa.
„Eins og fjölmargir Uganda
menn fagnaði ég í fyrstu valda-
töku Amins. Övinsældir
Obote—stjórnarinnar höfðu
farið sívaxandi, og um þetta
leyti gat enginn ímyndað sér
hvílik grimmd átti eftir að
verða staðreynd í Úganda,“
segir Kibukamusoke. „Bjart-
sýni setti svip sinn á upphaf
hins nýja lýðveldis, og það var í
þeim anda, sem ég féllst á að
gefa mér tíma frá starfi mínu
sem forseti læknadeildarinnar
við háskólann i Makerere til að
líta eftir heilsufari Amins.“
„Um þessar mundir var litið
á hann sem hetju, og i fyrstu
sýndi hann af sér verulega
djörfung, ekki aðeins með því
að sleppa pólitiskum föngum
Obotes, heldur var hann einnig
umburðarlyndur gagnvart
stuðningsmönnum hans. . . .
Það var ekki fyrr en siðar að
morðsögur komust á kreik.“
„Við læknarnir meðhönd-
luðum hann í upphafi vegna
ýmiss konar lasleika, þar á
meðal þvagsýrugiktar, sem
smám saman fór að há honum
minna. Við athuguðum hvort
hann væri með sárasótt, en
niðurstaðan var sú áð sýnin
voru neikvæð. Sú niðurstaða
tók þó ekki af allan vafa —
skýringin gat verið sú að sjúk-
dómurinn væri kominn á hástig
eða að hann hafði þegar fengið
meðhöndlun vegna sjúk-
dómsins. Við höfðum ekki tæki-
færi til að kanna þetta nánar
með ónæmisrannsóknum af þvi
að hann neitaði því að hafa
nokkurn tíma sýkzt.“
„Siðan hef ég komizt að þvi,“
heldur Kibukamusoke áfram,
„að israelskur geðlæknir, að
nafni Marcel Assaed, hafði
meðhöndlað hann vegna sára-
sóttar á árunum 1969—71
þegar hann starfaði sem ráðu-
nautur við heilbrigðis-
stofnunina í Úganda. Þessi
staðreynd gæti skýrt þau
sálsýkiseinkenni sem koma
fram í stórmennskubrjálæði
Amins, en slíkt er ekki óþekkt
hjá þeim, sem þjást af sára-
sótt.“
„Eftir að hafa fylgzt náið með
Amin er ég ekki i nokkrum
vafa um að hann er geðsjúkur,
og sá sjúkleiki hefur ágerzt
síðan hann komst til valda árið
1971. Læknar, sem önnuðust
hann áður, höfðu komizt að
sömu niðurstöðu. Okkur þóttu
einkennin geta bent til þess að
um væri að ræða geðklofa, en
það var útilokað að fella um
það fullnaðarúrskurð,'* segir
prófessorinn. Siðan ræðir hann
nánar um geðsýkiseinkenni
Amins, og skýrir á vísindalegan
hátt það ástand, þegar sjúkling-
urinn fær hinar óliklegustu
hugmyndir, sem hann sér sig
knúinn til að tjá sig um. Hann
segir, að reynt hafi verið að
gefa Amin lyf, sem venjulega
eru gefin geðklofasjúklingum,
þegar sá gállinn var á honum,
en lyfjagjöfin hafi hins vegar
ekki komið að gagni þar sem
Amin hafi ekki viljað taka þau
reglulega. Hann rekur síðan
hvernig hið sjúklega hugar-
ástand forsetans hafi smám
saman farið að hafa æ alvar-
legri afleiðingar. Meðal annars
tekur hann sem dæmi morð á
föngum, sém fram hafi farið
sem formleg athöfn og minni á
villimannlegar trúariðkanir.
Fangarnir hafi verið látnir raða
sér upp og síðan hafi þeir einn
af öðrum verið þvingaðir til að
dauðrota þann, sem næstur
stóð, svo ekki hafi þurft að
skjóta nema þann siðasta í röð-
inni, og bendi allar líkur til
þess að þessi morð hafi verið
framin eftir beinni skipun
Amins.
Þá segir prófessorinn frá
morðinu á Michael Ondoga,
sem verið hafði utanríkisráð-
herra í stjórn Amins. Þegar
líkið fannst kom í ljós við
krufningu að lifrin hafði þegar
verið numin brott. Það er göm-
ul trú hjá Kakwa—ættflokk-
num, sem Arriin er af, að morð-
ingi skuli éta lifrina úr fórnar-
Framhald á bls. 22
Ertu að byggja? Þarftu að bæta?
MJÖG VÖNDUÐ GÓLFTEPPI
Viltu breyta?
Verð frá kr. 1.800 ferm
Málning og
málningarvörur
Frá helstu framleiðendum
Við veitum
magnafslátt
Það
munar
um minna
ALLAR DEILDIR
Á SAMA STAÐ
VINYL GÓLFDÚKUR
Verð frá kr. 1.400 ferm.
KORK GÓLFFLÍSAR
^ Verð frá kr. 2.780 ferm.
VINVL VEGGFÓÐUR Nýir litir
Verð frá kr. 600 rúllan
Vandaður CONDAKT-pappír — litaúrval mikið.
Teppi í bíla — Rya og Escerona —
Vönduð teppi í sérflokki.
LEÐURLÍKI, breidd 138 cm.
Glæsilegir litir
Lítið við í LITAVERI
því það hefur ávallt borgað sig.
Hreyfilshúsinu, Grensásvegi 18
J