Morgunblaðið - 22.05.1977, Page 38

Morgunblaðið - 22.05.1977, Page 38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1977 38_______________________ — Alþjóðasamn- ingur Framhald af bls. 1. beita aðferðum, sem raskað geti umhverfinu, í hernaðarlegum og fjandsamlegum tilgangi, sem haft geti víðtækar, langvinnar eða al- varlegar afleiðingar til að eyða, valda tjóni eða ganga á hlut ann- arra aðildarrtkja." Sum hlut- leysisríki, sem aðild eiga að samningnum, telja þetta orðalag of óákveðið og hefðu heldur kosið að skýrar yrði kveðið að orði, þannig að tryggt væri að ekki yrði farið í kringum ákvæði samnings- ins. Bandaríkin lögðust gegn orða- lagsbreytingu fyrstu greinarinnar á þeirri forsendu að þá yrði mun erfiðara að fylgjast með þvi að samningurinn yrði ekki brotinn. í samningnum er sérstakt ákvæði þar sem tekið er fram, að hrófla megi við höfuðskepnunum í friðsamlegum tilgangi. Dæmi um slíkt eru loftslagsbreytingar af mannavöldum til að bæta upp- skeruskilyrði, breytingar á skýja- fari, eyðing þoku og ráðstafanir til að auka og minnka úrkomu. - Skipasmíðastöð Framhald af bls. 40 stofu. Vélsmiðja Vestmannaeyja er nýtt fyrirtæki sem Vélsmiðjan Völundur hefur stofnað ásamt starfsmönnum sínum og er hluta- fé 20 millj. kr, þar sem Völundur á helming á móti starfsmönnun- um. Hlutafjárupphæð Skipalyft- unnar er óákveðin ennþá. Þessi þrjú fyrirtæki hafa komið fram sem eitt gagnvart Hafnar- sjóði vegna lyftunnar, samkvæmt upplýsingum Gurinlaugs Axels- sonar forstjóra Völundar. Bygg- ingarframkvæmdir eru hafnar á svæðinu, en mannvirki Skipalyft- unnar verða á Eiðinu í Eyjum. Byrjað er að grafa fyrir mann- virkjum og byggja Skipaviðgerðir 500 fm. hús, Vélsmiðja Vest- mannaeyja 1000 fm. hús og Skipa- lyftan h.f. 1600 fermetra hús að gólffleti á tveimur hæðum, en í því húsi verða skrifstofur, kaffi- stofa, verzlun, raftækjaverkstæði og fleira. Reiknað er með um 100 millj. kr. kostnaði við byggingu fyrrgreindra mannvirkja. Samkvæmt upplýsingum Gunn- laugs Axelssonar vantar 4 spil í lyftuna til þess að hún nýtist til fulls og geti tekið upp 500 þungatonn, en eins og hún er tekur hún 300—40'0 þungatonn. Kvað Gunnlaugur stefnt að því að hafa til staðar allan nauðsynlegan tækjabúnað, reiknað hefði verið með fjárveitingu tíl þess hjá fjár- veitinganefnd fyrir þinglok, en ákveðið hefði verið að láta það bíða haustsins. Gunnlaugur svar- aði aðspurður að þvi væri ekki að neita að fram hefði komið ákveð- in andstaða gegn afgreiðslu máls- ins til Vestmannaeyja þar sem aðrir staðir hefðu reynt að spila inn í dæmið, en nú væri lyftan komin til Eyja. Bæjarsjóður áætlar að hefja afrömmun á bryggjustæði fyrir athafnir Skipalyftunnar strax eft- ir næstu áramót, en reiknað er með að skipalyftan sjálf verði til- búin eftir ár. Stefnt er að því að Skipalyftan\ h.f. taki að sér allar tegundir skipaviðgerða, lengingar og yfir- byggingar auk venjulegra verk- efna eins og málningu og slíkt og þegar fram í sækir er reiknað með skipabyggingum á Eiðinu. Undirbúningur er hafinn að upp- byggingu tæknideildar i þeim efnum og verið er að kanna mögu- leika á tækniaðstoð frá kunnum skipasmiðjum erlendis m.a. i Friðrikshavn, vinabæ Vest- mannaeyja. I samtali við Kristján Eggerts- son hjá Skipaviðgerðum og Gunn- laug Axelsson sögðu þeir að menn væru mjög ákveðnir í að byggja þetta fyrirtæki upp, þörfin væri mikil og möguleikarnir einnig ef allir aðilar sem málið varðar vinna skipulega og ákveðið að málinu. Spilar þar til dæmis inn í hvaða fjárveitingar verða til Vest- mannaeyjahafnar. Skipalyfta Vestmannaeyja h.f. verður eini slippurinn á Suðurlandssvæðinu sem getur tekið upp minni skut- togara og skip af þeirri stærðar- gráðu. Cary Grant og Eva Marie Saint, á æsilegum flótta niður höggmyndina af Jefferson bandarfkjaforseta, utanf Mt. Rush- more f Norður Dakota. GAMLA BÍÓ: NORTH BY NORTHWEST Hitchcock unnendum og reyndar öllum kvikmyndahús- gestum, er það óblandið ánægjuefni að Gamla Bió er nú nýbyrjað að endursýna NORTH BY NORTHWEST, sem af mörgum er talin ein besta mynd hins margslungna leik- stjóra — og er þá mikið sagt. Og ekki skemmir það fyrir að filmu eintakið er spánnýtt. Söguþráður N.B.N., er svo hraður og margsnúinn, að næst- um útilokað er að gera honum skil í fáeinum orðum, þó það verði reynt hér. Söguhetjan er tilbúinn njósn- ari, sem skapaður er af banda- rísku leyniþjónustunni. Þó hann sé ekki til, þá hefur leyni- þjónustan gert úr h^num imynd; gefið honum háfnið Kaplan, bókað hann inná allmörg hótel viðsvegar um Bandaríkin, þar sem hann hefur skilið eftir sig föt ofl. persónulega muni. Allt er þetta gert til að slá ryki i augu land- ráðamanna, njósnahrings sem starfar fyrir erlent ríki. En þegar svo þessi njósnahringur tekur óbreyttan borgara (Gary Grant), fyrir gervinjósnarann Kaplan, vandast málið. Grant flækist inní svo ótrú- lega rás atburðanna, að hann getur ekki einu sinni beðið lög- regluna ásjár. Martröðinni linnir ekki við það að Grant hrífst af fallegri stúlku, (Eva Marie Saint), sem vinnur fyrir landráðamennina. Eftir hin margvislegustu ævintýri, bráðfyndin jafnt sem banvæn, þá kemst upp um njósnahringinn og hið marg- slungna og leyndardómsfulla mál skýrist. Atriði úr hinu magnaða atriði á akrinum, sem fyrír löngu löngu er talið sfgilt. Bréfedélkur Pósthólf 200 — Kvikmyndasíðan Kæra Kvikmyndasfða Mjög gott væri ef þú gætir gefið mér svör við eftirfarandi spurningum.: a) 1. Hver er hæsta upphæðin sem vitað er að greidd hafi verið fyrir kvikmyndarétt bók- ar, b) Hvað fékk Peter Benchley fyrir JAWS?, c) Hver er hæsta upphæðin^sem greidd hefur verið fyrir frum- samið kvikmyndahandrit? 2. Hver samdi kvikmynda- handritið eftir bókinni JAWS? 3. Þegar kvikmyndir eru aug- lýstar og kynntar, er alltaf sagt hver leikstjórinn sé, framleið- andinn, og leikararnir, auðvit- að. Svo er alltaf eitthvað fyrir- tæki, (t.d. Universal e. Paramount), sem sagt er að þessi mynd sé frá. Hvaða hlut- verki gegna þessi fyrirtæki? Framleiða þau, dreifa, eða hvað? 4. Hvað er Steven Spielberg gamall? Hvaða myndum hefur hann stjórnað utan JAWS, gæturðu birt mynd af honum? 5. Hvað getur þú frætt mig um Zanuck og Brown, framleið- endur JAWS? 6. Hvaða myndum hefur John Guillermin stjórnað, utan KING KONG og THE TOWERING INFERNO? 7. Hver samdi kvikmynda- handritið eftir bókinni THE GODFATHER? 8. Hverjar voru mest sóttu myndirnar í USA 1975? En á Islandi ‘76? P.S. Hvaðan færð þú svör við öllum þeim spruningum sem lagðar hafa verið fyrir þig? (Vonast eftir svari). Ungur áhugamaður, (Ólafsfirði). SVÖR: 1. a) Þessarri spurningu er erfitt að svara sökum þess að viðkomandi tölur er erfitt að fá og birtast sjaldan í blöðum eða timaritum. Hitt er þó víst að kvikmyndaréttur bókanna ALL THE PRESIDENTS MEN, AIRPORT OG THE MARATHON MAN, seldist fyrir einhverjar hæstu tölur sem vitað er um. b) Ég veit það ekki fyrir víst, einhversstaðar á bilinu 50— 100 þús. dala. Þegar að kvikmyndarétturinn var seldur, hafði bókin ekki slegið í gegn, og reyndar varð hún hvergi nærri jafn-vinsæl og myndin. Benchlay fékk aft- ur á móti sex stafa tölu, (eins og þeir segja fyrir ,,vestan“), fyrir næstu bók sína, THE DEEP, sem nú hefur verið kvikmynduð með Robert Shaw, Jaculine Bisset og Eli Wallach í aðalhlutverkunum. Myndin er gerð af Columbia og verður frumsýnd núna, á 17. júní, af öllum dögum. c). Að nokkru leiti hef ég svarað þessu í lið a), þó hef ég fyrir satt að enn hafi enginn slegið út verðinu sem William Gold- man fékk fyrir handritið THE HOT ROCK, en það samdi hann næst á, eftir metað- sóknarmyndinni BUTCH CASSIDY AND THE SUNDANCE KID. THE HOT ROCK var siðan kvikmynduð af Fox, með George Segal, Robert Redford, Zero Mostel ofl. góðum mönnum í aðalhlut- verkum — en allt kom fyrir ekki, myndin kolféll. Það er víst érfitt að tryggja sig gegn tapi. Þess má og geta í þessu sam- bandi, að eftirsóttustu og hæst launuðustu handritahöfundar vestra um þessar mundir eru vafalaust þeir William Gold- man, Robert Rowne og Paddy Chayefsky. 2. Peter Benchley í samvinnu við Carl Gottlieb. 3. Hlutur þessara fyrirtækja er margþættur. Fyrst og fremst sjá þau um dreifingu fullgerðra mynda, bæði milli kvikmyndahúsa I Bandarikj- unum, sem utanlands. Þá sjá þau um að útvega nauðsynlegt fjármagn eða lánsfjártraust, til að mögulegt sé að gera þær myndir sem þau hafa ákveðið að framleiða og fjármagna. Þá eiga þau öll utan United Artists, heljarmikil kvik- myndaver í Hollywood, og þar var tekið megnið af framleiðsl- unni fram yfir seinna strið. Stóru kvikmyndarisarnir átta, eru öll í eigu annarra risafyrir- tækja, nema Columbia, M.G.M. og 20th Century-Fox. Jafnvel þau þrjú eru stór á mæli- kvarða bandaríkjamanna, komst 20th— Fox t.d. í fyrra, á listann yfir 500 stærstu fyrir- tækin vestan hafs og birtur er árlega af timaritinu FOR- TUNE. Árið 1976 var hlutur fyrir- tækjanna af kvikmyndamark- aðnum sem hér segir. Tölurnar i sviga eru fyrir árið 1975. (Heimild: VARIETY: 1: WARNER BROS (6), 2: UNITED ARTISTS (5), 3: 20TH entury-FOX (2), 4: UNIVERSAL (1), 5: PARAMOUNT (4), 6: COLUMBIA (3), 7: BUENA VISTA (7), 8: A.I.P. (8).) SÆBJORN VALDIMARSSON (Ath. að myndir M.G.M. eru taldar með myndum U.A.). 4. Spelberg er kornungur, rétt liðlega þritugur. Á undan JAWS hafði hann aðeins leik- stýrt einni kvikmynd, THE SUGARLAND EXPRESS, (framl. af Zanuck/ Brown). Auk þess hafði hann gert nokkrar sjónvarpsmyndir, og a.m.k. ein þeirra, DUEL, var það vel gerð að henni var dreift til sýningar í kvik- myndahúsum, (þ. á m. Laug- arásbió) 5. Richard Zanuck og David Brown kynntust fyrst hjá bandaríska risakvikmynda- fyrirtækinu 20th Century-Fox. Þar hélt faðir Richards, Darryl F., lengstum um stjórnvölinn, enda einn af stofnendum fyrir- tækisins. Og er Zanuck fjöl- skyldan enn langstærsti hlut- hafinn i kvikmyndaverinu. Darryl sagði af sér árið 1970, bæði fyrir aldurssakir og eins vildi hann koma syni sínum í toppsætið. Þá hafði Brown ver- ið einn lang-valdamesti maður Fox um árabil. Richard stjórn- aði svo um tæpl. tveggja ára skeið, með David Brown sem sér næst valdamesta mann. Þá var þeim báðum ýtt útí kuld- ann, eftir langt og harðsnúið valdatafl. Þá var þeim félögum boðið til Warner Bros, sem þeir voru hjá um tíma, eða uns þeir fengu mjög gott (ilboð frá M.C.A., (fósturfyrirtæki Universal). Það stóð í sam- bandi við gerð myndarinnar THE STING, og allar götur sið- an hafa þeir félagar starfað Framhald á bls. 22

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.