Morgunblaðið - 22.05.1977, Síða 38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1977
38_______________________
— Alþjóðasamn-
ingur
Framhald af bls. 1.
beita aðferðum, sem raskað geti
umhverfinu, í hernaðarlegum og
fjandsamlegum tilgangi, sem haft
geti víðtækar, langvinnar eða al-
varlegar afleiðingar til að eyða,
valda tjóni eða ganga á hlut ann-
arra aðildarrtkja." Sum hlut-
leysisríki, sem aðild eiga að
samningnum, telja þetta orðalag
of óákveðið og hefðu heldur kosið
að skýrar yrði kveðið að orði,
þannig að tryggt væri að ekki yrði
farið í kringum ákvæði samnings-
ins.
Bandaríkin lögðust gegn orða-
lagsbreytingu fyrstu greinarinnar
á þeirri forsendu að þá yrði mun
erfiðara að fylgjast með þvi að
samningurinn yrði ekki brotinn.
í samningnum er sérstakt
ákvæði þar sem tekið er fram, að
hrófla megi við höfuðskepnunum
í friðsamlegum tilgangi. Dæmi
um slíkt eru loftslagsbreytingar
af mannavöldum til að bæta upp-
skeruskilyrði, breytingar á skýja-
fari, eyðing þoku og ráðstafanir
til að auka og minnka úrkomu.
- Skipasmíðastöð
Framhald af bls. 40
stofu. Vélsmiðja Vestmannaeyja
er nýtt fyrirtæki sem Vélsmiðjan
Völundur hefur stofnað ásamt
starfsmönnum sínum og er hluta-
fé 20 millj. kr, þar sem Völundur
á helming á móti starfsmönnun-
um. Hlutafjárupphæð Skipalyft-
unnar er óákveðin ennþá.
Þessi þrjú fyrirtæki hafa komið
fram sem eitt gagnvart Hafnar-
sjóði vegna lyftunnar, samkvæmt
upplýsingum Gurinlaugs Axels-
sonar forstjóra Völundar. Bygg-
ingarframkvæmdir eru hafnar á
svæðinu, en mannvirki Skipalyft-
unnar verða á Eiðinu í Eyjum.
Byrjað er að grafa fyrir mann-
virkjum og byggja Skipaviðgerðir
500 fm. hús, Vélsmiðja Vest-
mannaeyja 1000 fm. hús og Skipa-
lyftan h.f. 1600 fermetra hús að
gólffleti á tveimur hæðum, en í
því húsi verða skrifstofur, kaffi-
stofa, verzlun, raftækjaverkstæði
og fleira. Reiknað er með um 100
millj. kr. kostnaði við byggingu
fyrrgreindra mannvirkja.
Samkvæmt upplýsingum Gunn-
laugs Axelssonar vantar 4 spil í
lyftuna til þess að hún nýtist til
fulls og geti tekið upp 500
þungatonn, en eins og hún er
tekur hún 300—40'0 þungatonn.
Kvað Gunnlaugur stefnt að því að
hafa til staðar allan nauðsynlegan
tækjabúnað, reiknað hefði verið
með fjárveitingu tíl þess hjá fjár-
veitinganefnd fyrir þinglok, en
ákveðið hefði verið að láta það
bíða haustsins. Gunnlaugur svar-
aði aðspurður að þvi væri ekki að
neita að fram hefði komið ákveð-
in andstaða gegn afgreiðslu máls-
ins til Vestmannaeyja þar sem
aðrir staðir hefðu reynt að spila
inn í dæmið, en nú væri lyftan
komin til Eyja.
Bæjarsjóður áætlar að hefja
afrömmun á bryggjustæði fyrir
athafnir Skipalyftunnar strax eft-
ir næstu áramót, en reiknað er
með að skipalyftan sjálf verði til-
búin eftir ár.
Stefnt er að því að Skipalyftan\
h.f. taki að sér allar tegundir
skipaviðgerða, lengingar og yfir-
byggingar auk venjulegra verk-
efna eins og málningu og slíkt og
þegar fram í sækir er reiknað
með skipabyggingum á Eiðinu.
Undirbúningur er hafinn að upp-
byggingu tæknideildar i þeim
efnum og verið er að kanna mögu-
leika á tækniaðstoð frá kunnum
skipasmiðjum erlendis m.a. i
Friðrikshavn, vinabæ Vest-
mannaeyja.
I samtali við Kristján Eggerts-
son hjá Skipaviðgerðum og Gunn-
laug Axelsson sögðu þeir að menn
væru mjög ákveðnir í að byggja
þetta fyrirtæki upp, þörfin væri
mikil og möguleikarnir einnig ef
allir aðilar sem málið varðar
vinna skipulega og ákveðið að
málinu. Spilar þar til dæmis inn í
hvaða fjárveitingar verða til Vest-
mannaeyjahafnar. Skipalyfta
Vestmannaeyja h.f. verður eini
slippurinn á Suðurlandssvæðinu
sem getur tekið upp minni skut-
togara og skip af þeirri stærðar-
gráðu.
Cary Grant og Eva Marie Saint, á æsilegum flótta niður
höggmyndina af Jefferson bandarfkjaforseta, utanf Mt. Rush-
more f Norður Dakota.
GAMLA BÍÓ: NORTH
BY NORTHWEST
Hitchcock unnendum og
reyndar öllum kvikmyndahús-
gestum, er það óblandið
ánægjuefni að Gamla Bió er nú
nýbyrjað að endursýna NORTH
BY NORTHWEST, sem af
mörgum er talin ein besta
mynd hins margslungna leik-
stjóra — og er þá mikið sagt. Og
ekki skemmir það fyrir að
filmu eintakið er spánnýtt.
Söguþráður N.B.N., er svo
hraður og margsnúinn, að næst-
um útilokað er að gera honum
skil í fáeinum orðum, þó það
verði reynt hér.
Söguhetjan er tilbúinn njósn-
ari, sem skapaður er af banda-
rísku leyniþjónustunni. Þó
hann sé ekki til, þá hefur leyni-
þjónustan gert úr h^num
imynd; gefið honum háfnið
Kaplan, bókað hann inná
allmörg hótel viðsvegar um
Bandaríkin, þar sem hann
hefur skilið eftir sig föt ofl.
persónulega muni. Allt er þetta
gert til að slá ryki i augu land-
ráðamanna, njósnahrings sem
starfar fyrir erlent ríki. En
þegar svo þessi njósnahringur
tekur óbreyttan borgara (Gary
Grant), fyrir gervinjósnarann
Kaplan, vandast málið.
Grant flækist inní svo ótrú-
lega rás atburðanna, að hann
getur ekki einu sinni beðið lög-
regluna ásjár. Martröðinni
linnir ekki við það að Grant
hrífst af fallegri stúlku, (Eva
Marie Saint), sem vinnur fyrir
landráðamennina.
Eftir hin margvislegustu
ævintýri, bráðfyndin jafnt sem
banvæn, þá kemst upp um
njósnahringinn og hið marg-
slungna og leyndardómsfulla
mál skýrist.
Atriði úr hinu magnaða atriði á akrinum, sem fyrír löngu löngu
er talið sfgilt.
Bréfedélkur
Pósthólf 200 — Kvikmyndasíðan
Kæra Kvikmyndasfða
Mjög gott væri ef þú gætir
gefið mér svör við eftirfarandi
spurningum.:
a)
1. Hver er hæsta upphæðin
sem vitað er að greidd hafi
verið fyrir kvikmyndarétt bók-
ar, b) Hvað fékk Peter
Benchley fyrir JAWS?, c)
Hver er hæsta upphæðin^sem
greidd hefur verið fyrir frum-
samið kvikmyndahandrit?
2. Hver samdi kvikmynda-
handritið eftir bókinni JAWS?
3. Þegar kvikmyndir eru aug-
lýstar og kynntar, er alltaf sagt
hver leikstjórinn sé, framleið-
andinn, og leikararnir, auðvit-
að. Svo er alltaf eitthvað fyrir-
tæki, (t.d. Universal e.
Paramount), sem sagt er að
þessi mynd sé frá. Hvaða hlut-
verki gegna þessi fyrirtæki?
Framleiða þau, dreifa, eða
hvað?
4. Hvað er Steven Spielberg
gamall? Hvaða myndum hefur
hann stjórnað utan JAWS,
gæturðu birt mynd af honum?
5. Hvað getur þú frætt mig um
Zanuck og Brown, framleið-
endur JAWS?
6. Hvaða myndum hefur John
Guillermin stjórnað, utan
KING KONG og THE
TOWERING INFERNO?
7. Hver samdi kvikmynda-
handritið eftir bókinni THE
GODFATHER?
8. Hverjar voru mest sóttu
myndirnar í USA 1975? En á
Islandi ‘76?
P.S. Hvaðan færð þú svör við
öllum þeim spruningum sem
lagðar hafa verið fyrir þig?
(Vonast eftir svari).
Ungur áhugamaður,
(Ólafsfirði).
SVÖR:
1. a) Þessarri spurningu er
erfitt að svara sökum þess að
viðkomandi tölur er erfitt að
fá og birtast sjaldan í blöðum
eða timaritum. Hitt er þó víst
að kvikmyndaréttur bókanna
ALL THE PRESIDENTS
MEN, AIRPORT OG THE
MARATHON MAN, seldist
fyrir einhverjar hæstu tölur
sem vitað er um. b) Ég veit það
ekki fyrir víst, einhversstaðar
á bilinu 50— 100 þús. dala.
Þegar að kvikmyndarétturinn
var seldur, hafði bókin ekki
slegið í gegn, og reyndar varð
hún hvergi nærri jafn-vinsæl
og myndin. Benchlay fékk aft-
ur á móti sex stafa tölu, (eins
og þeir segja fyrir ,,vestan“),
fyrir næstu bók sína, THE
DEEP, sem nú hefur verið
kvikmynduð með Robert
Shaw, Jaculine Bisset og Eli
Wallach í aðalhlutverkunum.
Myndin er gerð af Columbia og
verður frumsýnd núna, á 17.
júní, af öllum dögum. c). Að
nokkru leiti hef ég svarað
þessu í lið a), þó hef ég fyrir
satt að enn hafi enginn slegið
út verðinu sem William Gold-
man fékk fyrir handritið THE
HOT ROCK, en það samdi
hann næst á, eftir metað-
sóknarmyndinni BUTCH
CASSIDY AND THE
SUNDANCE KID. THE HOT
ROCK var siðan kvikmynduð
af Fox, með George Segal,
Robert Redford, Zero Mostel
ofl. góðum mönnum í aðalhlut-
verkum — en allt kom fyrir
ekki, myndin kolféll. Það er
víst érfitt að tryggja sig gegn
tapi.
Þess má og geta í þessu sam-
bandi, að eftirsóttustu og hæst
launuðustu handritahöfundar
vestra um þessar mundir eru
vafalaust þeir William Gold-
man, Robert Rowne og Paddy
Chayefsky.
2. Peter Benchley í samvinnu
við Carl Gottlieb.
3. Hlutur þessara fyrirtækja
er margþættur. Fyrst og
fremst sjá þau um dreifingu
fullgerðra mynda, bæði milli
kvikmyndahúsa I Bandarikj-
unum, sem utanlands. Þá sjá
þau um að útvega nauðsynlegt
fjármagn eða lánsfjártraust,
til að mögulegt sé að gera þær
myndir sem þau hafa ákveðið
að framleiða og fjármagna. Þá
eiga þau öll utan United
Artists, heljarmikil kvik-
myndaver í Hollywood, og þar
var tekið megnið af framleiðsl-
unni fram yfir seinna strið.
Stóru kvikmyndarisarnir átta,
eru öll í eigu annarra risafyrir-
tækja, nema Columbia, M.G.M.
og 20th Century-Fox. Jafnvel
þau þrjú eru stór á mæli-
kvarða bandaríkjamanna,
komst 20th— Fox t.d. í fyrra, á
listann yfir 500 stærstu fyrir-
tækin vestan hafs og birtur er
árlega af timaritinu FOR-
TUNE.
Árið 1976 var hlutur fyrir-
tækjanna af kvikmyndamark-
aðnum sem hér segir. Tölurnar
i sviga eru fyrir árið 1975.
(Heimild: VARIETY: 1:
WARNER BROS (6), 2:
UNITED ARTISTS (5), 3:
20TH entury-FOX (2), 4:
UNIVERSAL (1), 5:
PARAMOUNT (4), 6:
COLUMBIA (3), 7: BUENA
VISTA (7), 8: A.I.P. (8).)
SÆBJORN VALDIMARSSON
(Ath. að myndir M.G.M. eru
taldar með myndum U.A.).
4. Spelberg er kornungur, rétt
liðlega þritugur. Á undan
JAWS hafði hann aðeins leik-
stýrt einni kvikmynd, THE
SUGARLAND EXPRESS,
(framl. af Zanuck/ Brown).
Auk þess hafði hann gert
nokkrar sjónvarpsmyndir, og
a.m.k. ein þeirra, DUEL, var
það vel gerð að henni var
dreift til sýningar í kvik-
myndahúsum, (þ. á m. Laug-
arásbió)
5. Richard Zanuck og David
Brown kynntust fyrst hjá
bandaríska risakvikmynda-
fyrirtækinu 20th Century-Fox.
Þar hélt faðir Richards, Darryl
F., lengstum um stjórnvölinn,
enda einn af stofnendum fyrir-
tækisins. Og er Zanuck fjöl-
skyldan enn langstærsti hlut-
hafinn i kvikmyndaverinu.
Darryl sagði af sér árið 1970,
bæði fyrir aldurssakir og eins
vildi hann koma syni sínum í
toppsætið. Þá hafði Brown ver-
ið einn lang-valdamesti maður
Fox um árabil. Richard stjórn-
aði svo um tæpl. tveggja ára
skeið, með David Brown sem
sér næst valdamesta mann. Þá
var þeim báðum ýtt útí kuld-
ann, eftir langt og harðsnúið
valdatafl.
Þá var þeim félögum boðið
til Warner Bros, sem þeir voru
hjá um tíma, eða uns þeir
fengu mjög gott (ilboð frá
M.C.A., (fósturfyrirtæki
Universal). Það stóð í sam-
bandi við gerð myndarinnar
THE STING, og allar götur sið-
an hafa þeir félagar starfað
Framhald á bls. 22