Morgunblaðið - 05.07.1977, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JULÍ 1977
3
Þunginn ver ður
á Evrópufram-
bjóðendunum
— segir Ineke Bakker, frkvstj. FIDE
t kveðjuhófi, sem Skáksamband tslands hélt Ineke Bakker á
laugardag, gat Einar S. Einarsson, forseti S.I., þess að heimsókn
Bakker hefði verið mjög ánægjuleg og hún veitt mikilsverðar
upplýsingar um. Alþjóðaskáksambandið og starf þess. 1 hófinu
færði Uinar henni að gjöf bókina Chess in Iceland eftir prófessor
Willard Fiske en bókin fjallar um skákiðkun á lslandi fram til
ársins 1905. Ljósm: Sigurjón Jóhannsson.
„NEI, ég hef ekki rekið augun I
neitt, sem mælir á móti þvl að
aðalstöðvar Alþjóðaskáksam-
bandsins geti verið á Islandi,"
sagði Ineke Bakker, aðalfram-
kvæmdastjóri FIDE, er Mbl.
ræddi við hana á laugardag t
lok einkaheimsóknar hennar
hingað til lands. „En vísast er
slfku heldur ekki til að dreifa í
Júgóslavíu," bætti hún svo
strax við og brosti. Það var
greinilegt, að hún ætlaði ekki
að láta nein þau orð falla, sem
hægt væri að túlka sem stuðn-
ing hennar við annan fram-
bjóðandann til forsetastarfs
FIDE frekar en hinn.
Mbl. spurði Ineke Bakker,
hvort hún teldi forsetakjörið á
næsta ári myndi endurspegla
þau mismunandi viðhorf, sem
uppi eru um, að forsetaembætt-
ið og aðalstöðvarnar verði
áfram i Evrópu, eða að nú sé
tímabært að flytja þær um set.
Ég held að það fari ákaflega
mikið eftir þeim frambjóðend-
um sem koma frá Evrópu, og
þunginn verði á þeim,“ svaraði
hún. „Þessar raddir um að
flytja aðaðstöðvar FIDE um set
eru ekki nýjar. Siðast þegar dr.
Euwe var endurkosinn forseti
FIDE, það var 1974, heyrðust
þessar raddir og þá bauð Rafael
Mendez frá Puerto Rico sig
fram á móti dr. Euwe, en hann
hlaut mun færri atkvæði en ég
held að hann hafi sjálfur átt
von á.“
Þegar Mbl. spurði Ineke
Bakker, hvort hún teldi að þeir
evrópskir frambjóðendur, sem
tilkynnt hafa framboð sitt,
Svetosar Gligoric og Friðrik
Ölafsson, myndu njóta þess
fylgis, sem til þyrfti, brosti hún
við og sagði: „Þeir eru báðir
ágætir og hæfir menn." Ekki
sagðist Bakker eiga von á þvi að
fleiri framboð kæmu fram i
Evrópu, en að öðru leyti kvaðst
hún ekkert geta eða vilja segja
um forsetamálið sjálft.
Mbl. bar undir Ineke Bakker
þá gagnrýni, sem fram hefði
komið á FIDE þess efnis að
Alþjóðaskáksambandið væri
komið á pólitískar villigötur og
hefði vanrækt málefni skák-
manna sjálfra.
„Alþjóðaskáksambandið hef-
ur unnið ötullega að því siðustu
árin að hjálpa til við þróun
skákarinnar sem víðast. Ég
held að árangur þess starfs
megi sjá í því, að nú eru skák-
samböndin innan FIDE 97 tals-
ins, en voru 72 eða 76 árið 1970.
Dr. Euwe hefur iagt ríka
áherzlu á þetta starf.
Um pólitíkina er það að segja,
að við höfum reynt að láta hana
hafa sem minnst áhrif á störf
Alþjóðaskáksambandsins. En
það gefur auga leið, þar sem 97
ólik skáksambönd eiga i hlut,
að ýmsir pólitískir tilburðir
geta komið upp.
Ég held einnig að FIDE hafi
orðið nokkuð ágengt i þvi að
vinna að hagsmunamálum
skákmanna sjálfra á siðustu ár-
um, en þær raddir voru vissu-
lega sterkar áður, sem héldu
því fram að FIDE hefði van-
rækt þá hlið starfans. Dr. Euwe
var sjálfur heimsmeistari i
skák áður fyrr, þannig að hann
hefur haft næma tilfinningu
fyrir þessu, en þaó er með þetta
eins og annað; það getur reynzt
erfitt að fá fram breytingar,
þegar margir eiga i hlut og
íhaldssemin er sterk í mörg-
um.“
— Hvert telur þú brýnasta
verkefni FIDE nú?
„Ég tel að það þurfi enn að
bæta aðstöðu keppnisskák-
mannanna, og koma á einhverj-
um föstum reglum um móts-
hald og annað; reglum, sem
ekki aðeins myndu gilda á
FIDE-mótum, heldur öllum
skákmótum, sem haldin yrðu.
Og hér á ég ekki aðeins við
aðbtTnaðinn og verólaun, sem
margt hefur áunnizt i á síðustu
árum, heldur sýnist mér ljóst,
að núverandi tímamörk þurfi
einnig athugunar við. Nú erum
við með 40 leiki á 2'A tíma og ég
held að fimm tima lota sé full-
mikið af þvi góða, Einnig þykir
mér fullmikið að skákmenn
skuli þurfa að tefla kannski
fimm til sex umferðir án hvild-
ar. Þessi mál öll þarf að athuga
gaumgæfilega og siðan breyta
þeim til betri vegar.“
Ineke Bakker hefur starfað
sem aðalritari FIDE siðan 1970.
Mbl. spurði hana, hvort hún
væri sjálf mikil skákmann-
eskja. „Hvernig á ég, sem alltaf
er í sambandi við stórmeistara
skákarinnar, að geta haldið þvi
fram að ég geti eitthvað teflt?“
sagði hún og brosti. „En mér er
óhætt að segja, að ég kunni
mannganginn.“
Jón hafði 5
vinninga eft-
ir 7 umferðir
JÖN L. Árnason, Islandsmeistari
i skák, tekur um þessar mundir
þátt í mjög fjölmennu skákmóti I
Philadelphiu i Bandaríkjunum,
en mót þetta nefnist W'orld Open.
Jón teflir í aðal flokknum og
eru keppnedur 365 alls og er teflt
eftir Monrad-kerfi. Jón hefur
staðið sig ágætlega, hlotið 5 vinn-'
inga úr 7 fyrstu skákunum. I sjö-
undi umferð tapaði hann fyrir
Bandarikjamanni að nafni Valvo
á mjög klaufalegan hátt, lék illa
af sér i ágætri stöðu. 1 öðrum
skákum Jóns fóru leikar svo að
hann bar sigur úr býtum í fjórum
skákum en gerði jafntefli i tveim-
ur. Efstu menn hafa 6 vinninga.
Sá háttúr er hafður við fram-
kvæmd mótsins að tefldar eru
tvær skákir á dag og þær tefldar
til þrautar og getur taflmennskan
tekið allt að 10 klukkustundir á
dag. Er þetta því mjög þreytandi
mót. Tefldar verða 9 umferðir og
átti að tefla tvær þær síðustu í
gærkvöldi og nótt og hafði blaðiö
ekki fengið fregnir af lyktum
þeirra.
Fíkniefnamálin:
Rannsókn
er vel á
veg komin
RANNSÓKN á hassinál-
unum þremur, sem Fíkni-
efnadómstóllinn og fíkni-
efnalögreglan hafa unnið
að undanfarna daga er vel
á veg komin.
Nú sem stendur sitja finim ung-
ir menn í gæzluverðhaldi vegna
rannsóknar þessarra mála en
voru niu þegar flest var. Tveimur
var sleppt úr gæzlu um helgina.
Myndtölvan komin
um borð í Sigurð
Bylting segja skipstjórnarmenn
MYNDTÖLVAN I gangi um borð í Sigurði. Þeir sem eru á myndinni eru f.v. Jóhann Jóelsson vélstjóri á
Sigurði, ögmundur Friðriksson, frkvstj. hjá Friðrik A. Jónssyni, Jan Boye Wall, sölustjóri Simrad á
Norðurlöndum og Zakarias Bacher, tölvusérfræðingur, en hann stjórnaði vinnuhópnum sem fann þetta
tæki upp.
„Mesta þakklætið er fólgið í því
að hafa fengið að taka þátt í þessu”
sagði Ingólfur Guðbrandsson söngstjóri eft-
ir síðustu hljómleika Pólýfónkórsins á Ítalíu
FYKIK helgina var lokið við að
setja niður fullkomnasta fiski-
leitartæki sem sett hefur verið f
íslenzkt fiskiskip, en það er CD
myndtiilvan frá Simrad, sem nú
trónar á brúargólfi aflaskipsins
Sigurðar RE. Myndtölvan, sem
notuð er við nótaveiði er nú kom-
in í um 30 skip í heiminum og
hefur vakið gífurlega athygli,
enda er um algjöra byltingu i
fiskileitartækni að ræða, að sögn
skipst jórnarmanna.
Það var á sjávarútvegssýn-
ingunni „Norfishing" í Þránd-
heimi, árið 1974, sem CD mynd-
tölvan var kynnt. Tölva hafði þá
aldrei áður veríð notuð við fiski-
leit eða köstun á fisk sem gengur i
torfum, og var því eftirvænting
manna mikil að sjá tölvuna í notk-
un um borð í fiskiskipi.
Það kom fram á blaðamanna-
fundi um borð i Sigurði, á laugar-
dag, aó nú þremur árum eftir að
myndtölvan var kynnt væri hægt
Velta SHELL
6.753 milljónir
VELTA Olíufélagsins Skejungs
(Shell) á siðasta ári varð 6.753
milljónir króna, en ekki um 8
milljarðar, eins og sagði i frétt í
sunnudagsblaðinu. Tekjur um-
fram gjöld reyndust 96 milljónir
króna og afskriftir fastafjármuna
um eitt hundrað milljónir.
að fullyrða með vissu, að tækið
hefði staðizt allar prófanir með
prýði. Myndtölvan hefði verið
reynd um borð í rannsóknarskip-
um, togurum og nótaskipum og
eftirspurn eftir henni ykist nú
sifellt.
CD myndtölvan samanstendur
af tölvu, myndskjá og stjórnborði,
og er viðbótartæki við asdisktæki
af gerðunum Simrad SU, ST og
SQ, sem þegar eru i fjölmörgum
fiskiskipum á íslandi. Kostirnir
við myndtölvuna eru að nú koma
upplýsingar asdiktækisins fram á
algjörlega nýjan hátt, og til þess
að allar upplýsingar komi rétt
fram, er logg og giróáttaviti skips
tengd inn á tölvuna. Skipstjórarn-
ir fá nákvæmt yfirlit um það sem
gerizt undir yfirborði sjávar. Þeir
fá nákvæmar upplýsingar um
stöðu skipsins miðað við torfuna,
sem á að kasta á eða skoða. Þá er
hægt að fylgjast með nót og torfu
i köstun frá einni sekúndu til
annarar, með þvi einu að horfa á
skjáinn og því er engin hætta á að
menn taki lengur rangar ákvarð-
anir.
Ennfremur sýnir tölvan hve
djúpt i sjónum torfan er, hve stór
hún er og hvar þykkust. Þá sýnir
myndtölvan i hvaða átt torfan
stefnir, hraða hennar o.fl. Þá er
hægt að velja um 3 svið við leitun
og köstun, auk þess sem hægt er
að sigla i 8 km. radius út fyrir
leitarsvið tölvunnar, en það er allt
Framhald á bls. 31
„SUMIR hlutir verða ekki endur-
teknir“, sagði Ingólfur Guð-
brandsson, söngstjóri, er hann
ávarpaði Polyfónkórinn eftir sfð-
ustu tónleikana, en þeir voru
haldnir I kirkjunni f Lignano á
Italfu í fyrrakvöld. „Við höfum
sungið okkar síðasta amen“, hélt
Ingólfur áfram, „og frammistaða
ykkar í kvöld var slfk að það
þyrfti að leita víða um heim til
þess að heyra annað eins. Við
ykkur vil ég aðeins segja, takk
fyrir. Mesta þakklætið er fólgið i
því að hafa fengið að taka þátt f
þessu."
Áheyrendur að þessum siðustu
tónleikum kórsins i italíuferðinni
voru fjölmargir og fögnuðu þeir
vel kórfélögum, einsöngvurum.
hljómsveit og stjórnanda, en við-
Framhald á bls. 31