Morgunblaðið - 05.07.1977, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 05.07.1977, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5, JÚLÍ 1977 39 Minning: Sigþrúður Arinbjörns- dóttir á Kollabúðum F. 20. marz 1895. D. 2. júnf 1977. VEGNA mistaka við birtingu minningargreina um hina látnu, hér I blaðinu eru grein- arnar birtar hér aftur — og beðizt afsökunar á mistökun- um. Sigþrúður var fædd á Hríshóli í Reykhólasveit. Foreldrar hennar voru hjónin Guðrún Jónsdóttir og Arinbjörn Jónsson. Guðrún var norðan úr Strandasýslu. Höfðu þau kynnst þegar Arinbjörn var í Vonarholti. Hann var sonur Jóns bonda í Vogbotnskoti við Króks- fjörð og síðar á Hyrningsstöðum, Björnssonar I Berufirði Magnús- sonar. Ekki var hún nema fimm ára þegar hún fór í fóstur til afasyst- ur sinnar, Kristlnar Björnsdóttur á Kinnarstöðum og manns henn- ar, Jóns bónda Hákonarsonar. Eftir aðeins tvö ár hallaði svo undan hjá þeim gömlu hjónunum, að hún varð að fara I annað fóstur og annað, bæði að Miðjanesi og á Skáldsstöðum. Fóstrinu lauk þar vegna veikinda húsmóðurinnar, Guðbjargar Stefánsdóttur. Frá tólf til sautján ára aldurs var Sig- þrúður á Kambi I Reykhólasveit, en þá réðist hún að Kollabúðum. Húsbændur þar voru hjónin Sesselja Einarsdóttir og Kristján Sigurðsson. Börnin á Kollabúðum voru Guðrún og Sigurður og svo fósturbróðir þeirra, Jónas Andrésson bróðursonur Kristjáns bónda. Þær voru frænkur, Sesselja húsfreyja og Sigþrúður. Einar á Kollabúðum Sumarliða- son, faðir Sesselju, og Sigþrúður Sumarliðadóttir, móðir Arin- björns, voru systkini. Efalítið hef- ir þessi náni skyldleiki átt sinn þátt I þeim ævilöngu tryggðum sem tókust með aðkomustúlkunni og heimilinu á Kollabúðum. Þar er skemmst frá að segja, að hún var óslitið hjá því Kollabúða- fólki frá 17 ára aldri 1912 og allt þar til hún fór frá Kollabúðum sjúk og þrotin að kröftum I júlí- mánuði 1968, 73 ára að aldri. Þessi 56 ár voru drjúgur og við- burðaríkur tími. Fyrst var hún efalítið vinnukona eins og gerðist og gekk þá til sveita. Snemma fór heilsa Sesselju húsfreyju að bila og líka átti Guðrún á Kollabúðum við þungbær veikindi að etja. Hún þjáðist af liðagigt. Árið 1926 orti Lárus skáld Þórðarson I Börmum sveitarrímu. Það ár og reyndar annað til var Kollabúða- fólkið I Skógum. Þá sagði Lárus: Jafnan glæðir góðvilja/ grundin hæða linna./ Sjúk þ^ mæðist Sesselja/ sem er gæðakvinna. Þá þegar, 1926, hafa líkamleg bágindi hennar verið byrjuð. Þau hafa verið misjafnlega aðgangs- hörð, en gæfa hennar og alls Kollabúðaheimilisins var að Sig- þrúður var ætið hennar önnur hönd. Sigþrúður var um langan aldur burðarás heimilisins. Kristján var forstands- og sinnu- bóndi. Hann var hugsunarsamur, velviljaður, tilfinninganæmur og um leið kappfullur. Sigurður son- ur hans varð umsvifamikill og at- orkusamur I búskapnum. Kolla- búðir eru „erfið jörð“. Þar var mikill og langsóttur engjahey- skapur. Þar eru langar og mann- frekar smalamennskur, veður oft hörð og reyndi mikið bæði á karla og konur. Á þessum vettvangi var Sigþrúður allt I öllu. Heimili fóstursystkinanna sem að heiman fóru, Guðrúnar og Jónasar, voru ætíð I nágrenninu og ætíð nátengd Kollabúðaheimil- inu. Jónas bjó ýmist I Skógum eða á Múlakoti, (Múla I Þorskafirði). Hann missti tvær konur, en sú þriðja ól upp með honum börnin sem hann hafði eignast. Þegar á reyndi var heimili hans eins og grein á Kollabúðaheimilinu. Guð- rún bjó á Múlakoti með Sigvalda manni sínum. Hún var sárþjáð og farlama meðan hún var enn á besta aldri og naut vissulega samúðar og umhyggju frá Kolla- búðum. Guðrún varð skammlíf. Að henni látinni bjó Sigvaldi á Kollabúðum og ól þar upp Guð- nýju dóttur þeirra Guðrúnar, en hana fóstraði Arnfriður frænka hennar. Þær Guðrún voru syst- kinabörn. í þessari fjölskyldu- hvirfingu mátti líta á að Sigþrúð- ur væri einskonar miðpunktur um áratugi. Hún var ýmist önnur hönd húsfreyju, eða staðgengill I veikindum hennar. Þrúða á Kollabúðum, en svo nefndum við sveitungarnir hana löngum, var allt I senn, húsmóðir, hjúkrunarkona og þó sjálfs- mennskukona frekar en hjú. Hún mun hafa getað ráðið mörgu þvl sem hún vildi, svo miklu vörðuðu störf hennar. Hún var þolgóð og hún dreifði ekki kröftunum út fyrir þessa fjölskylduhvirfingu sem hún hafði tengst böndum ætt- ar, samvista og vináttu. Enn verð- ur að nefna til sögunnar heimilis- manna á Kollabúðum, mann sem aldrei varð nema stórt barn, Hall- dór Guðmundsson. Þá sá ég sjálf- ur með eigin augum, þegar Þrúða kom með hann langt til blindan, úr augnlækningaferð að sunnan, hvílika nákvæmni og umhyggju hún sýndi þessu ellimóða og bjargarvana olnbogabarni. Ég hafði séð Þrúðu þegar erill var mestur, eins og I leitum á haustin. Ég leit upp til hennar þvi hún bar með sér ötulleik og festu. Nú sá ég I henni liknarsysturina og sá hana jafnframt I þvi hlutverki sem hún var án efa stærst i. Það er sögn kunnugra, að Sig- þrúður hafi að upplagi verið hneigð til handiðna. Henni hafi látið betur skapandi handavinna en hversdagsstörf. Hún hafi verið hugkvæm og lagvirk og henni hafi unnist með afbrigðum vel. Ég var ekki nákunnugur Kolla- búðaheimilinu, til þess var of langt og fáförult i milli. En aldrei sá ég né vissi til annars en að geðprýði og skapstyrkur ein- kenndu hana. Saman fóru i fasinu kapp og íhygli. Hún gat minnt á klett sem haggast ekki þó um hann skoli. Sesselja á Kollabúðum var fædd 2. nóv. 1868. Hún var þvi meira en hálfnuð með 100. æviár- ið i júlí 1968, þegar Sigþrúður varð svo veik að hún varð að fara á sjúkrahús og átti ekki aftur- kvæmt til heimilis að Kollabúð- um. Þá hafði hún rækt hlutverk sitt þar í 56 ár og var orðin 73 ára. Síðustu 10 árin, i það minnsta, hafði Sesselja notið óslitinnar hjúkrunarumönnunar frá hendi Sigþrúðar, að þvi er gagnkunnugt fólk segir. Mörgu er haldið á lofti sem minna er í sniðum en afrek Sig- þrúðar. Ekki var mikið á munun- um að hún entist til að hjálpa frænku sinni þar til yfir lauk. Sesselja lést 7. október og vantaði 3 vikur og 5 daga til að lifa í öld. Saga Sigþrúðar er fyrst og síð- ast tengd Kollabúðum. Fljótfarið er yfir það sem er þess utan. Hún komst aftur til nokkurrar heilsu miðað við aldurinn. Hún átti heimili með Jóni bróður sínum sem orðinn var einn sins liðs. Að honum látnum varð Sigurgeir sonur hans einkum til að halda i hönd með henni. Vikið er að því snemma í þessu skrifi, að Þrúða var i bernsku í fóstri á Miðjanesi. Það var hjá Steinunni ömmu minni og Jóni afa mínum. Amma dó áður en ég fæddist og afi fór áður en ég man eftir. Ég vissi lítt að hér hafði hún átt sín léttu bernskuspor og kannske líka þung spor foreldra- lauss tökubarns. En einn góðan veðurdag var hún svo komin með Jóni bróður sínum. Hún kom til að minnast horfinna stunda og til að ganga á vit fornra kynna. Mér til ósegjanlegrar ánægju þá var ekki beiskju eöa sárindi að merkja i þessum endurfundum. Koma Sigþrúðar minnti mig meira á komu Péturs Jónssonar frá Stökkum, þegar hann kom um iangan veg á efstu árum til að heilsa bernskustöðvunum hér á Miðjanesi. Hann þaut útfyrir tún- garð og settist með stein fyrir sæti og annan stein fyrir borð, sömu steinana og hann sat við í bernskuleikjunum. Að þessu búnu var honum ekkert lengur að vanbúnaði að fara í ferðina löngu. Mér datt ferðin sú arna hjá Pétri í hug og að likt væri á komið með Sigþrúði og honum. Ég fyllt- ist þakklæti að fá að sjá og lifa fögnuð af þessu tæi og yfir þvi að eiga heima þar sem svona ljúfar minningar ríktu. Hversu mörg eru þau sumar- dvalarbörnin á Kollabúðum öll ár Sigþrúðar þar, sem eiga þar góðs að minnast og eiga þar margt gott henni að þakka? Nú rækir þar enginn hlutverk fóstru. Nú er „Fólkslaust á Kollabúðum" eins og Guðmundur Ingi Kristjánsson skáid á Kirkjubóli segir I einu kvæði sinu sem hann las á sam- komu hér austurfrá. Síðast sá ég Þrúðu á skírdags- móti Barðstrendingafélagsins fyr- ir rúmu ári. Þá hnykkti mér við að sjá hve illa hún var komin í höndunum. Þær voru orðnar af- skræmdar af gigtinni. En glaðleg virtist mér hún í bragði og hress*í lundinni og gott er að muna hana þannig. Svo var það í vor á kynningar- degi gigtlækninga, að alþjóð voru sýndar i sjónvarpi hart leiknar höndur, sem enn bjástruðu við sitt daglega brauð. Þar gat að líta höndur Þrúðu á Kollabúðum. Þær báru fram þar og þá þann vitnis- burð, sem ekki verður með neinu. móti hrakinn. Ég fer nærri urn hversu nærgöngular tilfinningar fylgja þvi að rekast óforvarandi á mynd af umkomuleysi sinna eigin handa. Það er svo osk mín, von og bæn, að nú réttist úr iðnu hönd- unum hennar Þrúðu. Það ætti hún sannarlega skilið. Þessi sundarlausu minninga- brot tók ég saman á jarðarfarar- daginn hennar, 10. júní. Á Kolla- búðum er grafreitur heima í túni. Þar hvila margir sem Sigþrúður átti lengst samleið með. Víst hefði verið við hæfi að hún léti þar staðar numið að leiðarlokum. En henni var ekki umhugað um það og henni var ekki að skapi að láta stjana við sig, hvorki lífs né liðna. En þeir sem voru I Fossvogs- kirkju á fjórða tímanum í dag, þeir voru þar að kveðja heil- steypta manndómskonu eftir góða og langa samfylgd. Játvarður Jökull Júlfusson Föstudaginn 10. júní síðastlið- inn fór fram útför Sigþrúðar Arinbjarnardóttur frá Kollabúð- um. Þrúða en svo var hún alltaf nefnd í daglegu tali, var fædd 20 mars 1895 á Hrishóli i Reykhóla- sókn. Arinbjörn faðir hennar mun þá hafa búið á Hríshóli og siðar i Berufirði. Hann var fædd- ur 1961, sonur Jóns bónda á Hyrn- ingsstöðum og Hamarlandi, fædd- ur 1935, Björnssonar bónda i Berufirði, fæddur 25. janúar 1789 á Skerðingstöðum, Magnússonar, fæddur í september 1770, bónda á Hofsstöðum, 1816, Magnússonar. Frá Birni Magnússyni í Berufirði er kölluð Berufjarðarætt. Móðir Arinbjarnar, kona Jóns á Hyrningsstöðum, var Sigþrúður systir Sumarliða gullsmiðs á Kollabúðum Sumarliðadóttir, fædd um 1799, Brandssonar bónda í Hlið í Þorskafirði, fæddur 1768, Árnasonar bónda þar, Jóns- sonar bónda í Skáleyjum, 1703—1733, Árnasonar á Stakka- bergi, Jónssonar skálds í Rauðs- eyjum Guðmundssonar. Guðrún kona Arinbjarnar og móðir Sig- þrúðar var dóttir Jóns bónda i Arnkötludal í Strandasýslu, fædd- ur 1825, Jónatanssonar bónda á Ásmundarnesi, fæddur 1769, dá- inn 1840, Hálfdánarsonar. Móðir Guðrúnar var Ingibjörg Jónsdótt- ir af Snæfellsnesi. Kona Jónatans á Ásmundarnesi og móðir Jóns I Arnkötludal var Guðríður Guð- mundsdóttir bónda í Húsavík, dá- inn 1801, Arnfinnssonar á Hey- dalsá Brynjólfssonar. En móðir Jónatans var Kristin Þorsteins- dóttir frá Kvenhóli í Dalasýslu, Iilugasonar. Guðrún móðir Þrúðu dó 1898, þegar Þrúða var þriggja ára. Þá hætti Arinbjörn búskap sinn og var I húsmennsku og vistum og mun hafa haft sum barna sinna með sér. Ekki hefi ég getað aflað mér fullrar vissu fyrir þvi, hvar Þrúða var frá 3 til 9 ára aldurs, þó minnir mig að ég hafi heyrt að hún hafi verið með föður sínum á Kinnarstöðum fyrstu árin eftir að móðir hennar dó. En 9 ára gömul fer hún að Miðjanesi til Jóns og Steinunnar og er hjá þeim til ellefu ára, 1904 til 1906. Svo fer hún að Kambi þegar hún er tólf ára og er þar til sextán ára, 1907 til 1912. Þar næst fer hún að Kollabúðum, þar sem varð svo að mestu óslitið heimili hennar siðan um 55 ára skeið. Einn vetur i kringum 1920 er hún á ísafirði og nam þar fatasaum, það mun þó ekki hafa verið algengt með ung- ar stúlkur í þá daga og ekki hvað sist fátækar almúgastúlkur. Þetta nám hefur verið Þrúðu ómetan- legt veganesti, þá var ekki hlaup- ið út i næstu búð eftir nýjum klæðnaði. Þrúða var einstaklega lagin og listræn f sér. Það var alveg sama á hverju hún snerti, það lék allt i'höndunum á henni, sem byggðist fyrst og fremst á samviskusemi og virðingu fyrir verkinu og einstakri trúmennsku hvort heldur hún vann fyrir sjálfa sig eða aðra. Enda var lífs- starf hennar óslitið þjónustu- og liknarstarf. Fljótlega eftir að hún kom að Kollabúðum til Sesselju frænku sinnar og Kristjáns bónda þar, fór heilsu Sesselju að hraka og börn hennar enn ung og féll því meiri ábyrgð í hlut Þrúðu en ella hefði orðið. Þjónustubrögð voru mikil á Kollabúðum, þar var oft margt í heimili. Enda hús- bændurnir einstakar gæðamann- eskjur, hvort heldur áttu hlut að máli menn eða málleysingjar. Eft- ir að húsmóðirin verður alveg rúmföst og svo síðar þegar Guð- rún dóttir hjónanna veikist lika, segir sig sjálft að vinnudagur Þrúðu hefur oft verið langur. Það hefur ekki verið mældur timi í átta stundum þar, en öll innan- hússtörf leysti hún með prýði af hendi og hjúkraði þeim er sjúkir voru svo vel að ekki varð á betra kosið og sýnir það betur en orð fá lýst fórnfýsi hennar til að veita þeim lið, sem hjálparþurfa voru. Þrúða var trúuð kona, hún glataði aldrei sinni sinlægu barnatrú.Mér finnst eiga vel við hana áttunda versið fertugasta sálmi Davíðs:Mig langar tii að gjöra þinn vilja, minn guð. Og þitt lög- mál er innst i minu hjarta.“ Svo sannarlega reyndi hún að starfa eftir þvi lögmáli, að gera alltaf rétt, vera sönn og trú köllun sinni. Það má segja að hún hafi alið upp fósturson. Þvi að á Kolla- búðum var maður sem gekk aldr- ei heill til skógar og var ekki eins og annað fólk í daglegri um- gengni og þurfti á sumum sviðum að umhirðu sem barn. Þennan mann annaðist Þrúða alla tið og reyndist honum sem umhyggju- söm móðir. Einu sinni spurði ég þennan mann, hvort Þrúða væri ekki vond við hann og svaraði hann þá: „Hún Þrúða er aldrei vond við neinn, hún er alltaf góð við alla." Þetta tel ég vera göð meðmæli, þetta voru meðmæli I fyllstu einlægni frá þakklátu hjarta. Þrúða átti fjögur systkini, sem öll náðu fullorðins aldri, þau voru þessi: Óskar Arinbjarnarson bóndi á Sveinungseyri. Hann drukknaði á Breiðafirði 1954. Guðbjörg Arinbjarnardóttir, dáin um 1940, átti við langvarandi van- heilsu að stríða. Jón Arinbjarnar- son, vann við skrifstofustörf og eitthvað mun hann hafa fengist við verslun annað slagið. Jónina Arinbjarnardóttir, fyrrverandi húsfreyja á Hyrningsstöðum, sem er ein eftirlifandi og dvelur á elliheimilinu á Fellsenda I Dala- sýslu, 89 ára að aldri. Tveir bræð- ur þeirra dóu mjög ungir, þeir hétu Jóhannes og Kristinn. Þrúða var mjög vel gefin kona, feikilega mikið lesin og minnug. Hafði mik- ið yndi af söng og annarri klass- iskri músik. Hún var mjög listræn i sér, það var sama á hverju hún snerti, það lék allt í höndunum á henni. Eftir hana liggja heil ógrynni hjá ættingjum og vinum af handavinnu. Saumuðum dúk- um, púðum og teppum og allavega útprjóni. Hvert einasta handtak hnitmiðað og vandað, hvert nál- spor sérstætt listaverk. Það hlýt- ur að vera hverjum og einum, sem til heimilisástæðna þekkti, hrein ráðgáta hvernig hún fór að því að afkasta svo miklu magni og ekki hvað sist eftir að ævi tók að halla, þvi þá þjáði hana oft langtimum saman liðagigt og einkum í hönd- um og voru þær allar orðnar krepptar og hnýttar. Samt hélt hún áfram við útsaum með sama snilldarhandbragðinu, þar til stuttu áður en hún lést. Þrúða var glaðlynd og létt I samræðum og átti gjarnan til góð- lega glettni en þó græskulausa. Þrúða giftist aldrei og var aldrei við karlmann kennd. Þegar Guð- björg systir hennr dó, lét hún eftir sig ungan son, sem Þrúða tók að sér, en hann lifði aðeins fá ár eftir lát móður sinnar og var það Þrúðu mikill harmur, sem og raunar allra á Kollabúðum, því allir reyndust honum með af- brigðum vel. Ég sem þessar línur rita er systursonur Þrúðu og hefi henni vissulega margt að þakka frá fyrstu tíð og við systkinin öll ásamt móður okkar. En þvi miður er ég ekki maður fyrir því að gera því skil sem verðugt er. Þrúða unni Kollabúðum heitt. Hverri hæð og laut, hverri lind og iæk. Sá í fjarlægðarbláma á löngum og dimmum vetrarkvöldum hilla undir sólroðin ský vorboðans. Og vonin um grænkandi dalinn stytti henni skammdegiskvöldin. Svo þegar sumarið bræddi vetrar- klæðin af holtum og börðum og fyrstu blómin breiddu úr blóm- krónum sinum fylltist sál hennar fögnuði. Hún unni allri fegurð, það eru ófá þau blóm sem hún saumaði myndir af. Þegar Kristján heitinn féll frá, sem hafði verið svo lengi hús- bóndi hennar, tók Sigurður sonur hans við búsforráðum hjá honum og annaðist jafnframt Sesselju frænku sína, sem þá var að verða hundrað ára. En Þrúðu entist ekki heilsa og varð að hverfa suð- ur til að leita sér lækninga og átti ekki afturkvæmt aftur véstur sök- um vanheilsu. Það hafa ábyggi- lega verið henni þung spor þegar hún þurfti að kveðja Sesselju í hinsta sinn. Fyrst eftir að hún flutti hér suður, bjó hún hjá Jóni bróður sínum á milli þess sem hún var á sjúkrahúsum, uns hann andaðist. Eftir það flutti hún á elliheimilið Grund og þar andaðist hún. Með þessum fátæklegú orðum minum vil ég flytja frænku minni þakkir okkar allra systkinanna og móður okkar fyrir allt það sem hún var okkur og reyndist okkur frá fyrstu tið. Við flytjum hénni hér með okkar hinstu kveðjur. Far þú f friði fridur Guðs þig blessi hafðu þökk fyrir allt «k allt. Guðmundur A. Jónsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.