Morgunblaðið - 05.07.1977, Blaðsíða 46
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JULt 1977
UNNU SIGUR
setti
I
MARGIR BEZTU
LÉTU SIG VANTA
OG SOVÉTMENN
Sovétmenn sigruðu Bandarfkja-
menn f landskeppni f frjálsum
íþróttum sem fram fór f Sochi f
Sovétríkjunum um helgina.
Hlutu Sovétmenn alls 207 stig
gegn 171 stigi Bandarfkjamanna.
Skiptust stigin þannig að f karla-
keppninni fengu Sovétmann 118
stig gegn 105, en f kvennakeppn-
inni hlutu Sovétmenn 89 stig
gegn 66. Þetta var f fimmtánda
sinn sem Bandarfkjamenn og
Sovétmenn heyja landskeppni f
frjálsum íþróttum og jafnframt
12. sigur Sovétmanna.
Eins og svo oft áður vantaði
mikið á að Bandaríkjamenn gætu
teflt fram sínu bezta liði. Margt af
bezta frjálsíþróttafólki Banda-
ríkjanna er nú á keppnisferðalög-
um viða um heim og tekur ýmis
mót fram yfir landskeppnína við
Sovétmenn. Meðal þeirra sem
létu sig vanta í keppnína að þessu
sinni voru kúluvarpararnir A1
Feuerbach og Terry Albritton,
grindahlauparinn Edwin Moses
og heimsmethafinn i hástökki
Dwight Stones. Voru Sovétmenn
ekki síður óánægðir með það að fá
ekki beztu Bandaríkjamennina til
keppni heldur en Bandarikja-
menn sjálfir og lét þjálfari sov-
ézka liðsins, Nikolai I. Politiko,
svo um rnælt eftir keppnina, að
nauðsyn bæri til þess að færa
keppnina í það horf sem eitt sinn
hefði verið — þegar báðar þjóðir
lögðu metnað sinn í að tefla fram
sinum sterkustu liðum. Hann
kvað einnig óliklegt að ef svo
héldi sem horfði að Sovétmenn
sendu sitt sterkasta lið til Banda-
ríkjanna þegar landskeppnin fer
fram þar að ári.
Að venju náðist þó mjög góður
árangur í flestum keppnisgrein-
um landskeppninnar, en eina
metið sem var sett var í stangar-
stökki, en Vladimir Trofimenko
setti nýtt Sovétmet með því að
stökkva 5,59 metra. Sigraði hann i
keppninni, en annar varð Banda-
rikjamaðurinn Larry Jesse.
Keppni var hin skemmtilegasta
i mörgum greinum, sérstaklega
þó i 800 metra hlaupi kvenna og í
3000 metra hindrunarhlaupi. í
fyrrnefndu greininni kom ung
bandarisk stúlka, Julie Brown,
mjög á óvart með því að veita
hinum sterku Sovétstúlkum
harða keppni. Var það ekki fyrr
en rétt á marklínunni sem Taty-
anu Kazankinu, Ólympíumeistara
í greininni, tókst að merkja sigur.
Timi hennar var 2:00,7 mín., en
bandariska stúlkan hljóp á 2:00,8
min. í 3000 metra hindrunar-
hlaupi barðist sá Bandaríkja-
mannanna sem álitinn var lélegri
fyrirfram harðri baráttu um sig-
urinn við Sovétmanninn Vladimir
Filonov. Sigraði Sovétmaðurinn
mjög naumlega á 8:29,5 mín. —
frábærum tíma.
Það var helzt í spretthlaupun-
um og boðhlaupunum sem Banda-
rikjamenn urðu sigursælir. Þann-
ig unnu þeir tvöfaldan sigur í 200
metra hlaupi karla, og 110 metra
grindahlaupi, auk þess sem sveit
þeirra hafði yfirburði í 4x400
metra boðhlaupi. í millivega-
lengdahalupunum var oftast um
harða baráttu að ræða, en í löngu
hlaupunum og köstunum höfðu
Sovétmenn jafnan betur og höl-
uðu inn mörg stig.
í stangarstökkskeppni tugþrautarinnar mátti sjá furSulag tilþrif hjá mörgum keppendanna Þama ar þa8 Björn
Blöndal. KR, sem far sitjandi yfir ránna. Ekki alveg samkvæmt formúlu þairra stóru.
Ljósm. K.Ó.
Slakur árangur í tugþraut-
arkeppni íslandsmeistaramótsins
Meistaramót tslands f tugþraut
sem fram fór á Laugardalsvellin-
um um helgina var heldur sviplít-
ið. Veður til keppni var heldur
slæmt, sérstaklega á laugardag-
inn, og var auðséð að Elfas Sveins-
son, sem fyrirfram mátti heita
öruggur sigurvegari f þrautinni,
gafst strax upp við að keppa að
góðum árangri. Elfas er nú greini-
lega f góðu formi og við hagstæð
skilyrði er ekki ólfklegt að hon-
um takist að hnekkja tslandsmeti
Stefáns Hallgrfmssonar f tug-
þrautinni þegar f sumar.
— Þetta var bara æfing, sagði
Elías eftir keppnina á sunnudag-
inn, enda greinilegt að hann lagði
sig ekki fram til annars en að
sigra og var langt frá sinu bezta í
Sigurður P.
unglinga-
öllum greinum þrautarinnar. Alls
hlaut hann 6709 stig, sem ekki er
árangur til þess að hrópa húrra
fyrir. Annar í þrautinni varð Þrá-
inn Hafsteinsson, HSK, með 6525
stig og Hafsteinn Jóhannesson,
UBK, varð í þriðja sæti með 6138
stig. Björn Blöndal, KR, var lengi
i fremstu röð i þrautinni, en hann
var óheppinn í spjótkastinu —
gerði þar öll sín köst ógild og var
þar með úr leik. Tveir aðrir kepp-
endur, Stefán Jóhannsson, Á og
Valbjörn Þorláksson, KR, hættu
einnig keppni I þrautinni.
Úrslit urðu þessi:
Elías Sveinsson, KR 6709 stig.
(11,1 — 6,44 — 13,45 — 1,89 —
61,3 — 15,9 — 44,59 — 3,60 —
57,32 — 4:57,3)
Þráinn Hafsteinsson, HSK 6525
stig. (12,1 — 6,17 — 13,34 — 1,83
— 55,3 — 16,5 — 43,64 — 3,30 —
56,00 — 4:35,6)
Hafsteinn Jóhannesson, UBK
6138 stig. (11,7 — 6,33 — 11,51 —
1,89 — 56,6 — 16,3 — 37,24 —
3,60 — 48,73 — 5:25,2)
Ásgeir Þór Eiríksson, ÍR 5721
stig. (12,3 — 5,72 — 13,41 — 1,79
— 56,6 — 16,8 — 35,07 — 3,00 —
44,53 — 4:48,9)
Þorsteinn Þórsson, UMSS 5562
stig. (12,2 — 6,12 — 10,93 — 1,83
— 56,3 — 16,9 — 28,39 — 2,90 —
43,52 — 4:52,5)
Vésteinn Hafsteinsson, HSK 5196
stig. < 12,6 — 5,38 — 11,66 — 1,73
— 57,9 — 20,6 — 36,68 — 2,70 —
43,75 — 4:34,5)
Halldór Matthíasson, Á 4729 stig.
(12,7 — 5,19 — 8,52 — 1,60 —
60,2 — 17,5 — 26,46 — 2,70 —
41,§5 — 4:23,6).
met í 10.000 metra hlaupinu
Sigurður P. Sigmundsson, hinn
ungi langhlaupari úr FH, náði
prýðisárangri í 10.000 metra
hlaupi íslandsmeistaramótsins
sem fram fór um helgina. Setti
Sigurður nýtt unglingamet í
greininni, hljóp á 33.00,0 mín., og
bætti því eldra metið sem var í
eigu íslandsmethafans, Sigfúsar
Jónssonar, ÍR, mjög verulega, þar
sem það var 33.34,6 mín. Er sig-
urður greinilega í mikilli framför
og virtist ná þessum ágæta
árangri án þess að leggja verulega
Siguröur P. Sigmundsson og Gunnar Þ. Sigurösson. nýir unglingamathafar f
4x800 matra boðhlaupi og Sigurður satti ainnig unglingamet I 10 km hlaupi.
hart að sér. Mikla keppni hafði
hann heldur ekki í hlaupinu, þar
sem Ágúst Gunnarsson, UBK,
sem varð í öðru sæti, hljóp á
34.12,8 mín., sem mun vera hans
bezti tími á þessari vegalengd.
Þriðji í hlaupinu varð Óskar Guð-
mundsson, FH, á 36.22,8 mín. og
fjórði varð ungur piltur úr
Breiðabliki, Jóhann Sveinsson,
sem hljóp á 38.55,0 mín. og setti
þar með nýtt piltamet.
Sigurður P. Sigmundsson eign-
aðist einnig annað unglingamet
um helgina, þar sem hann var f
sveit FH sem varð íslandsmeist-
ari í 4x800 metra hlaupi. Hljóp
sveitin á 8:16,3 mín., en gamla
unglingametið sem sveit úr ÍR
átti var 8:29,8 min. Auk Sigurðar
voru I sveitinni þeir Óskar Guð-
múndsson, Einar P. Guðmunds-
son og Gunnar Þ. Sigurðsson.
Sveit ÍR varð í örðu sæti í hlaup-
inu á 9:02,2 mín. og B-sveit FH
varð i þriðja sæti á 9:33,8 mín.
Íslandsmeístari i 3000 metra
hiaupi kvenna varð svo hin korn-
unga og skemmtilega Thelma
Björnsdóttir, UBK, sem hljóp á
11:35,6 mín., án þess að leggja
hart að sér. önnur I hlaupinu
varð Ingunn Sighvatsdóttir, HSK,
á 12:23,0 mín.
Þórdís Gfsladóttir — náði ágætum árangri.
Þórdís meistari
í fimmtarþrautinni
Þórdfs Gfsladðttir, IR, varð islandsmeistari f fimmtarþraut kvenna
þetta árið, en keppni fór fram á Laugardalsvellinum um helgina. Náði
Þórdfs ágætum árangri, 3288 stigum, sem er nýtt meyjamet. tslands-
methafinn f greininni, Ingunn Einarsdóttir, ÍR, var ekki meðal kepp-
enda, þar sem hún kom ekki til landsins úr keppnisför sinni til
útlanda fyrr en á laugardaginn.
Aðeins tvær stúlkur luku keppninni, Þórdís og Marfa Guðnadóttir,
HSH, sem einnig náði mjög þokkalegum árangri 2861 stig. Afrek
Þórdfsar f einstökum greinum þrautarinnar voru: 100 metra grinda-
hlaup 15,5 sek., kúluvarp 8,28 metrar, hástökk 1,69 metrar, langstökk
4,82 metrar og 800 metra hlaup 2:35,6 mfn. Afrek Marfu voru, talin f
sömu röð: 18,3 — 8,87 — 1,60 — 4,84 — 2:52,1.