Morgunblaðið - 05.07.1977, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JULÍ 1977
Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guömundsson.
Fréttastjóri Björn Jóhannsson.
Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6, sfmi 10100.
Auglýsingar Aðalstræti 6, sími 22480.
Áskriftargjald 1300.00 kr. á mánuði innanlands.
í lausasölu 70.00 kr. eintakið.
Skipulag orku-
mála í endurskoðun
Efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinnar, atvinnuöryggi og
lífskjör grundvallast á hyggilegri nýtingu þeirra auðlinda láðs
og lagar, sem forsjónin hefur falið okkur í hendur, til varðveizlu
og afkomu. Fyrstu þúsund árin í þjóðarsögunni voru einkum
nýttar auðlindir fiskstofna og gróðurmoldar, sem enn er gert.
Sýnt er hinsvegar að þessar auðlindir hafa nýtingarmörk, sem
ekki má fara yfir. Það var ekki fyrr en á okkar öld sem þriðja
auðlindin, sem felst í orku fallvatna og jarðvarma, kemur til sögu
sem áhrifavaldur um lífskjör þjóðarinnar. Þessi áhrifavaldur,
hyggilega nýttur, hefur vaxandi hlutverki að gegna í sókn
þjóðarinnar til sambærilegra lífskjara við iðnvædd velmegunar-
þjóðfélög Vestur-Evrópu og Norður-Ameríku.
Mikilvægi orkumála í þjóðarbúskap okkar í bráð og lengd
verður ekki í efa dregið. Með hliðsjón af því sætir nokkurri furðu,
hve orkubúskapur okkar skipar lítið rúm í almennri málefnalegri
umræðu .í þjóðfélaginu Af og til má þó líta eftirtektarverðar
ritsmíðar um þetta efni. Þar á meðal er greinaflokkur um skipulag
raforkumála eftir Þorvald Garðar Kristjánsson, forseta efri deildar
Alþingis, sem byggður er á erindi hans um sama efni á aðalfundi
Sambands islenzkra rafveitna, og birzt hefur hér í blaðinu
undanfarið
Þorvaldur víkur m.a. að ráðstefnu um skipulag orkumála. sem
SÍR efndi til á árinu 1972. Ðar var mörkuð sú meginstefna, að
orkuvinnslufyrirtæki séu sameign sveitarfélaga og ríkis en orku-
dreifing yfirleitt í höndum sveitarfélaga eða samtaka þeirra. Gert
var ráð fyrir skiptingu landsins í landshlutafyrirtæki og samstarfi
þeirra varðandi orkuvinnslu og samrekstur. Svipað sjónarmið
kemur fram í niðurstöðum fulltrúafundar Sambands íslenzkra
sveitarfélaga árið 1 973. Þessi stefnumörkun Sambands íslenzkra
rafveitna og Sambands íslenzkra sveitarfélaga kemur heim og
saman við áður sett lög um Landsvirkjun og Laxárvirkjun, sem
eru sameign ríkis og viðkomandi sveitarfélaga Þá minnir Þorvald-
ur á ýmsar samþykktir landshlutasamtaka sveitarfélaga, sem
ganga í sömu átt. Það er með tilliti til þessara óska og með
hliðsjón af heildarendurskoðun á skipulagi orkumála, sem Gunn-
ar Thoroddsen orkuráðherra hefur skipað orkunefndir fyrir hina
ýmsu landshluta, til þess að gera tillögur um skipan þessara
mála. Hlutverk nefndanna er að gera tillögur um, hvern veg
staðið verði að framtíðarskipan orkumála i hverjum landshluta
fyrir sig. Þá hefur ráðherra skipað nefnd til að endurskoða orkulög
og gera tillögur um heildarskipulag og yfirstjórn orkumála í
landinu
Það sem mestu máli skiptir varðandi skipulag raforkumála er að
stuðla að sem beztri hagnýtingu orkulinda landsins, svo að
fullnægt verði orkuþörfinni með innlendum orkugjöfum og með
sem lægstu og jöfnustu verði. Til þess að ná þessu marki, og
samræma hagræn og félagsleg sjónarmið á þessum vettvangi,
þarf í senn að auka stjórnunaráhrif og ákvörðunarvald landshluta,
bæði á orkuframleiðslu og orkudreifingu, — og koma á sterkari
heildarstjórn til markvissrar stefnumótunar og um framkvæmdir í
orkumálum. Landshlutafyrirtæki, er tryggja valddreifingu og áhrif
heimaaðila á þennan þýðingarmikla þátt í daglegu lífi þjóðarinn-
ar, þurfa á engan hátt að koma í veg fyrir samtengingu
orkusvæða, orkuflutning frá einu svæði til annars, eftir þörfum og
hagræði, eða vissa samstjórn eða samstarf um skipulag og
stefnumörkun.
Þorvaldur leggur áherzlu á það í erindi sínu að efla verði
Orkustofnun sem rannsóknaraðila virkjunarkosta og ráðgjafarað-
ila stjórnvalda. Raunverulegir valkostir þurfi að vera fyrir hendi
við ákvarðanatöku um virkjunarframkvæmdir og aðra hagnýtingu
orkulinda Það á að vera hlutverk Orkustofnunar að gera rök-
studdar tillögur um framkvæmdir innan ramma þjóðhagsáætl-
unar um orkubúskap landsins í næstu framtíð Þá telur Þorvaldur
að setja beri Orkustofnun þingkjörna stjórn, er treysti betur tengsl
hennar við fjárveitingar- og löggjafarvaldið Og að efla beri
Orkusjóð með því að tryggja honum fasta tekjustofna.
Hér á landi standa nú yfir meiri og víðtækari orkuframkvæmdir
en nokkru sinni fyrr í sögu þjóðarinnar sem fagna ber. Á sama
tíma hafa komið í Ijós margvíslegir gallar á skipulagi orkumála
sem brýn þörf er úr að bæta Skipanir nefnda er gera eigi tillögur
um skipulag þessara mála, bæði fyrir einstaka landshluta og
landið í heild, eru því tímabærar Er þess að vænta að allt kapp
verði lagt á að störfum þeirra Ijúki sem fyrst svo löggjafarvaldið
geti tekið þessi þýðingarmiklu mál til gaumgæfilegrar endurskoð-
unar. Orkubúskapur okkar skiptir það miklu máli fyrir framtið og
lifskjör þjóðar og einstaklinga, að hann verður að hafa sess í
öngvegi viðfangsefna líðandi stundar, samhliða varðveizlu fisk-
stofnanna
N(J um miðjan júnímán-
uð voru liðin 25 ár frá þvf
að Loftleiðir hðfu reglu-
bundið áætlunarflug
milli fslands og Banda-
ríkjanna. Þá voru einnig
liðin 30 ár frá upphafi
milliiandaflugs, félags-
ins.
Af þessu tilefni fðru
blaðamaður og Ijðsmynd-
ari Morgunblaðsins til
fundar við Alfreð Elías-
son forstjðra, einn stofn-
anda félagsins, og inntu
hann eftir nokkrum
atriðum úr sögu Loft-
Ieiða.
Alfreð sagði að upphaf-
ið að millilandaflugi
félagsins hefði verið á
þann veg að hann hefði
farið til Bandaríkjanna
árið 1946 og keypt þar
herflugvél af gerðinni C-
54. Verktakafyrirtæki í
New Haven hefði svo
tekið að sér að breyta
innréttingu vélarinnar.
Það fyrirtæki varð gjald-
þrota skömmu síðar, svo
afhending vélarinnar
dróst mjög á langinn.
Alfreð keypti þá þrjá
Grunman flugbáta fyrir
Loftleiðir á meðan á bið-
inni stóð, og flutti þá
hingað til lands.
Herflugvélin var loks
afhent í júní 1947 og kall-
aðist þá DC-4 Skymaster.
Þessi flugvél flaug síðan
til íslands um Winnipeg,
12. júní, og var skírð
Hekla. Þessi ferð
Millilanda
hófst með
gerdri herf
Rætt við Alfreð
Eliasson í tilefni
af 30 ára afmæli
millilandaflugs
Loftleiða
Heklunnar var fyrsta
millilandaflug Loftleiða.
Hún fór síðan í fyrsta
áætlunarflugið til Kaup-
mannahafnar á þjóð-
hátíðardaginn og flaug
síðari hluta ársins til
ýmissa staða í Evrópu og
Suður-Ameriku. Þann 3.
ágúst sama ár flaug
Alfreð henni í fyrsta sinn
til Parísar, en það er
fyrst nú 30 árum síðar að
Flugleiðir hefja reglu-
bundið áætlunarflug
þangað, og mun Flug-
félag íslands annast það.
Alfreð kvað Loftleiðir
hafa fengið leyfi til
áætlunarflugs til Banda-
ríkjanna árið 1948, en þá
fór Skymastervélin
Hekla fyrstu ferðina með
farþega frá íslandi til
Bandarikjanna. Það var
þó ekki fyrr en árið 1952
að reglulegt áætlunar-
flug til Bandaríkjanna
hófst á vegum Loftleiða.
Árið áður höfðu yfirvöld
skipt flugleiðum hér-
lendis á milli flug-
félaganna tveggja, og
þótti stjórn Loftleiða
mjög að sér kreppt með
þeirri skiptingu. Var því
ákveðið að hætta öllu
innanlandsflugi, en beina
öllum kröftum að auknu
millilandaflugi. í fyrstu
var flogið einu sinni í
viku til Bandaríkjanna,
en eftir að Loftleiðir
höfðu kynnt hin lágu far-
gjöld sin á flugleiðinni
yfir Atlantshafið í árs-
byrjun 1953, jókst mjög
áhugi fólks á að fljúga
Alfrei