Morgunblaðið - 05.07.1977, Side 44

Morgunblaðið - 05.07.1977, Side 44
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1977 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JULÍ 1977 25 RISKIR H-INGAR LENGDU RAMARA FH-ingar fjarlægðust enn hættusvæðið á botninum I 1. deildar keppn- inni i knattspyrnu á sunnudaginn, er þeir burstuðu Framara I leik liðanna á Laugardalsvellinum, 4—1. Má segja að FH-ingar hafi leikið Fram sundur og saman I leik þessum, og voru þeir nær þvf að bæta við fimmta markinu en Framarar að skora öðru sinni. Var oft furðulegt öryggisleysi I Framvörninni, og er af það sem áður var, er Framvörnin gaf sjaldan á sér höggstað, og Framarar komust gegnum heilu mðtin án þess að fá á sig mörg mörk. Er ekkert vafamál að fjarvera Jóns Péturssonar setur sinn svip á Framliðið um þessar mundir, en liðið hefur einnig misst Martein Geirsson frá þvl I fyrra, og munar vitanlega um minna en þessa tvo geysilega sterku og útsjónarsömu varnarleikmenn. Fram — FH 1:4 Texti: Steinar J. Lúðvfksson Myndir: Ragnar Axelsson. í leiknum í fyrrakvöld náði FH- liðið oftsinnis að sýna sínar beztu hliðar, og vissulega eru þær góð- ar. FH-ingar hafa ekki i annan tíma leikið betri knattspyrnu, og margt af þvi sem liðið gerði i leiknum var ljómandi fallegt. Sendingar leikmanna voru vel hugsaðar, og þeir gættu þess einn- ig oftast að halda knettinu-m að- eins hæfilega lengi áður en þeir sendu — drógu til sin mann og sendu siðan. Ekki ber þó að neita þvi að það var einn leikmaður FH-liðsins öðrum fremur sem skapaði Frömurum mest vand- ræði. Sá var Ólafur Danivalsson. Með hraða sínum og góðri knatt- meðferð kom hann Framvörninni oftast í mikil vandræði, og tvíveg- is í leiknum var komin hrúga af varnarmönnum kringum hann, en aðrir FH-ingar síðan á auðum sjó. Knattspyrna eins og Ólafur lék á sunnudagskvöldið gleður vissu- lega augað, og það sem meira er —- hún er árangursrik þegar hann á i hlut. FH-liðið leikur annars skemmti- lega kanttspyrnu og það hefur raunar verðskuldað meiri stiga- feng en þvi hefur hlotnazt i sum- ar. Það sem verið hefur megin- galli þessa liðs undanfarin ár, þ.e. nöldur og rifrildi leikmanna, virð- ist nú algjörlega lagt fyrir róða, og það skilar sér síðan i árangri. Takist FH-ingum að halda þessu striki, er ekki vafi á því að þeir verða komnir í hóp toppliðanna í islenzkri knattspyrnu áður en langt um líður. Sem fyrr greinir var vörn Framliðsins afskaplega óörugg í þessum leik. Þegar gengið var út á móti sóknarleikmönnum FH voru hrikalegar glufur skildar eftir í vörninni, og engar „bak- dekkingar". Við þetta bættist svo að Árni Stefánsson var venju fremur óöruggur I markinu, og fékk raunar á sig a.m.k. eitt mark, sem flokka verður undir klaufa- mark. Miðvallarspilarar Fram gerðu of litið af þvi að hjálpa varnarleikmönnunum — virtust ekki trúa því að nein vandræði yrðu með FH-inga. Sóknin var skárri hluti Framliðsins í þessum leik, en einnig þar skorti neist- ann. Hann kom helzt eftir að Kristni Jörundssyni hafði verið skipt inná í seinni hálfleik, í stað Sumarliða Guðbjartssonar sem verið hafði mjög daufur I dálkinn i leiknum. Framarar með forystu Ekki vantaði að Framarar byrj- uðu leikinn vel á sunnudags- kvöldið. Á 14. minútu náðu þeir skemmtilegri sóknarlotu, sem lauk með því að Sumarliði sendi fyrir markið til Ásgeirs Eliasson- ar sem skallaði knöttinn fyrir fæt- ur Péturs Ormslevs sem var I dauðafæri og skoraði hann auð- veldlega. FH-ingar voru ekki á þvi að leggja árar i bát, þótt á móti blési í byrjun. Þeir náðu smátt og smátt góðum tökum á leiknum og það kom á 30. mínútu að þeir jöfnuðu. Dæmd var aukaspyrna á Fram sem Viðar Halldórsson tók. Sendi hann knöttinn beint á kollinn á Ólafi Danivalssyni sem var inni i vítateig Framara og tókst honum að sneiða knöttinn í markið, án þess að Árni fengi rönd við reist. Stóð þannig 1:1 í hálfleik. FH hafði yfirburði f seinni hálfleik í seinni hálfleiknum hafði FH allan timann yfirburði og skoraði þá þrjú mörk án þess að Fram tækist að svara fyrir sig. Fyrst þessara marka var mark Viðars Halldórssonar sem kom snemma i hálfleiknum. Janus hafði þá brotizt upp kantinn af mikilli harðfylgni og sendi hann síðan fyrir markið. Þórir Jónsson var vel staðsettur og skallaði á mark- ið. Árni missti knöttinn klaufa- lega frá sér og Viðar, sem fylgt hafði vel á eftir, átti ekki í vand- ræðum með að skora 2:1. 3:1 fyrir FH kom síðan skömmu siðar. Andrés Kristjánsson, bak- vörður FH-liðsins, fékk þá knött- inn úti undir endamörkum, þar sem hann var aðþrengdur Fröm- urum. Átti hann fárra kosta völ, en skaut á markið. Árni virtist gjörsamlega óviðbúinn og sló knöttinn inn i eigið mark. Síðasta mark leiksins skoraði svo Helgi Ragnarsson. Þá hafði verið dæmd aukaspyrna á Fram hægra megin á vellinum. Framar- ar mynduðu varnarvegg, en innan við hann voru þó tveir FH-ingar, gjörsamlega óvaldaðir. Þetta sá Viðar Halldórsson sem tók auka- spyrnuna og lyfti hann knettinum yfir Framarana til Helga sem skallaði í markið og innsiglaði sig- ur FH-inga. Undir lok leiksins náði Fram smá fjörspretti, sem Kristinn Jörundsson stóð aðallega fyrir. Fengu þeir þá eitt sinn ágætis tækifæri, er markvörður FH-inga var kominn alllangt út úr mark- inu. Skaut Eggert Steingrimsson að marki, en markvörðurinn varði, aftur hrökk knötturinn til Eggerts, en öðru sinni skaut hann þannig að markvörðurinn náði að bjarga. Hefði honum átt að vera í lófa lagið aó lyfta knettinum yfir markvörðinn og í autt markið sem Var að baki. í STUTTU MÁLI: íslandsmótið 1. deild Laugardalsvöllur 3. júlí (JRSLIT: Fram — FH 1—4 (1-1) Mark Fram: Pétur Ormslev á 14. min. Mörk FH: Ólafur Danivalsson á 30. min., Viðar Halldórsson á 53. min., Andrés Kristjánsson á 58. mín og Helgi Ragnarsson á 70 mín. Áminning: Engin Áhorfendur: Um 600 J:. t * 1«* • # ... ) * ' .fcv., ..........w «tiBHWn 1p /'UPUSTSfl ■? /.* > .* - •• Álbert Guðmundsson virðist umkringdur Skagamönnum á þessari mynd, en skot hans fðr þó í gegnum vörnina og I mark lA. Hörður Hilmarsson, sem er til vinstri á myndinni hafði skallað á Guðmund Þorbjörnsson, nr. 10, sem síðan lagði knöttinn fyrir Albert er skoraði sfðasta mark leiksins. Skagamennirnir eru Arni Sveinsson, Guðjón Þórðarson. Jón Gutiqlaugsson og Jón Askelsson, en Albert Guðmunds- son ber í þann síðastnefnda. Valurvann ÍAístórgóðum lei k tvegg jaf rá bærra I i ða ÞAÐ KOM ef til vill ekki á óvart að Valur skyldi vinna lið ÍA á Skipaskaga á sunnudaginn, I leik tveggja jafnra toppliða hefði það allt eins getað gerst. En að Valur skyldi vinna 4:1, eru úrslit sem fæstir hafa trúlega átt von á, munurinn er meiri en hægt var að reikna með. Akranes hafði t.d. unnið leikinn I fyrri umferðinni á heimavelli Vals I Reykjavfk með 2 mörkum gegn engu. Knattspyrnuna er erfitt að reikna út og f leiknum á Akranesi náði Valsliðið að sýna sfnar beztu hliðar og stórhættulegar sóknarlotur I byrjun seinni hálfleiksins gerðu út um leikinn. Valur er nú f efsta sæti 1. deildarinnar með 16 stig, en lA er f öðru sæti ásamt Vfkingi með 15 stig. Enn er staðan I 1. deildinni galopin og það reyndar f báða enda, en á Akranesi var það spurningin um topp en ekki botn. Hefði lið heimamanna unnið þennan leik hefðu þeir verið konmir með tveggja stiga forskot f deildinni og þremur stigum meira en Valur. Valsliðið hefði þvf verið í erfiðri stöðu ef leikurinn hefði tapast og trúlega of langt frá ÍA til að takast mætti að verja Islandsbikarinn. — En það stóð aldrei til að tapa þessum leik, sagði ágætur Valsmaður að leiknum loknum. — Við komum hingað til að vinna, þó svo að sigurinn yrði stærri en þeir bjartsýnustu í okkar hópi höfðu þorað að vona. ÍA—Valur 1:4 Texti og myndir: Agúst I. Jónsson. Ur leik Fram og FH. Arni Geirsson og Rúnar Gfslason bítast um knöttinn, en MagnúsTeitsson bíður átekta. Leikurinn á Akranesi á sunnu- daginn er bezti leikur, sem undir- ritaður hefur séð í 1. deildinni í ár. Bæði lið áttu góðan dag og ekki hefði þurft mikið til að leik- urinn hefði þróast í aðra átt, en raunin varð. Fyrri hálfleikurinn var tiltölulega rólegur, liðin þreif- uðu fyrir sér, reyndu að finna veikleikana i liði andstæðing- anna. Létu boltann vinna ailan timann og bæði lið léku mjög skipulagða knattspyrnu. Vals- menn léku undan golunni í fyrri hálfleiknum, sem síðan varð nær engin í þeim síðari. Átti liðið meira í leiknum, en þó hefði eng- inn getað sagt neitt við þvi að ÍA hefði leitt 2:1 i hálfleik og það hefði í rauninni verið eðlilegt miðað við tækifærið, sem Krist- inn Björnsson átti í lok hálfleiks- ins, en þá sýndi Sigurður Dagsson hver stólpamarkvörður hann er og varði skot Kristins af stuttu færi. En staðan i leikhléi var 1:1 og lítum á mörk fyrri hálfleiksins. Tvö falleg mörk á tfu mfnútum Eftir misheppnaða hornspurnu Valsmanna á 4. mínútu leiksins brunaði Pétur Pétursson fram völlinn, gaf á Jón Alfreðsson við miðlinu, sem hélt áfram inn á vallarhelming Vals. Er hann nálg- aðist vitateiginn renndi hann út á Kristinn Björnsson, sem skildi varnarmenn Vals eftir og gaf vel fyrir markið. Þar var Pétur Pétursson fyrir og skoraði örugglega með skoti frá markteig. Staðan orðin 1:0 og sannkölluð óskabyrjun fyrir ÍA. Vildu Vals- menn meina að Kristinn hefði verið rangstæður er knötturinn var gefinn á hann, en undirritað- ur var ekki í aðstöðu til að dæma um það. Lýsingin á þessu marki gæti einnig verið lýsing á fleiri sóknarlotum liðanna í þessum leik, hreint spil upp allan völl og ekkert dútl. Valsmenn sóttu meir i fyrri hálfleiknum eins og áður sagði og það var Guðmundur Þorbjörns- son, sem jafnaði með stórkostlegu marki á 9. minútu leiksins. Fékk hann knöttinn rétt við miðlínu á vallarhelmingi ÍA, lék á Jón Gunnlaugsson og er hann nálgað- ist vitateig ÍA hægra megin reið þrumuskot af frá honum. Snún- ingur var á knettinum og skrúfað- ist hann i samskeyti markhorns- ins fjær. Hreyfði Jón Þorbjörns- son markvörður IA hvorki legg eða lið og sagði eftir leikinn að hann hefði misreiknað skotið og talið að knötturinn færi framhjá. Hvað um það, staðan orðin jöfn og Valsmenn fögnuðu Guðmundi ákaft og þökkuðu honum þetta skemmtilega einstaklingsfram- tak. Valsmenn taka völdin Strax á fyrstu minútu seinni hálfleiksins átti Guðjón Þórðar- son gott skot á mark Vals, en Sigurður varði vel. Hlutirnir fóru nú að gerast hraðar og flest það sem var spennandi hinum megin á vellinum. Á 3. minútu hálfleiks- ins reyndi Atli skot á mark ÍA í þröngri stöðu. Knötturinn fór I Jón Gunnlaugsson skauzt þaðan í þverslá tA-marksins, þaðan hrökk knötturinn út í markteiginn. Hver skyldi hafa verið staddur þar, jú enginn annar en Ingi Björn Albertsson, sem eins og áður finn- ur lykt af marftækifærum í milu- fjarlægð. Átti Ingi ekki í neinum erfiðleikum með að skora í tómt ÍA-markið. Á 12. mínútu hálfleiksins skor- aði Atli síðan sjálfur eftir að hann hafði gefið á Guðmund i góðu færi. Skot Guðmundar fór í síðu Guðjóns Þórðarsonar hans og það- an fyrir fætur Atla, sem skoraði úr þröngu færi, renndi hann knettinum eftir marklinunni endilangri og i hliðarnetið. Bæði þessi mörk Vals manna komu eft- ir að knötturinn hafði „klafsað“ i leikmenn ÍA-liðsins og e.t.v. nokk- uð ódýr, en það verður ekki af Valsmönnum tekið að sóknarlotur þeirra voru I þessi skipti mjög laglegar. Síðasta mark leiksins kom siðan á 27. minútu hálfleiksins. Ingi Björn gaf fyrir frá hægri, Hörður Hilmarsson skallaði fyrir fætur Guðmundar Þorbjörnssonar, sem lagði knöttinn fyrir Albert. L:g- lega gert hjá Valsmönnum og há- punkturinn þrumuskot Alberts, sem lenti i stöng og þaðan í net- inu. En meðal annarra orða, hvað var Akranesvörnin að hugsa með- an Valsmenn léku sér fyrir fram- an þá? Skagamenn klúóra I lokin Er hér var komið sögu tóku Valsmenn að slaka á og Skaga- menn sóttu mun meira það sem eftivr leksins. Áttu þeir Pétur Pétursson og Kristinn Björnsson bráðgóð færi, sem þeir klúðruðu. Hefðu þeir á siðustu mínútunum hæglega getað gert 2 mörk og lagað stöðu sina, en ekki tókst framherjunum snjöllu að koma knettinum framhjá Sigurði Dags- syni. Töpuðu Skagamenn því þessum leik með þriggja marka mun og er þetta fyrsti tapleikur Skagamanna á heimavelli í sum- ar. Víkingum hafði einum tekizt að ná þar jafntefii. Einnig er það athyglisvert að þetta er i fjórða skiptið i sumar, sem Skagamenn fá á sig mark i leik í 1. deildinni. Það var fyrst og fremst vörn Skagamanna, sem brást i þessum leik, eða kannski að framherjar Vals voru of góðir fyrir þá. Eini varnarmaður ÍA, sem stóð sig eins og hann á að sér var Jóhannes Guðjónsson, aðrir voru nokkuð frá sínu bezta. í framlínunni var Pétur Pétursson yfirburðamaður, en fór illa með góð færi. Jón Þor- björnsson stóð sig vel i markinu og verður ekki sakaður um mörk- in. Guðmundur beztur f frfðum flokki Þeir áttu flestir góðan leik á Akranesi leikmenn Vals á sunnu- daginn, en þvi verður þó vart á móti mælt að Guðmundur Þor- björnsson hafi átt beztan leik. Hann ógnaði vörn IA gffurlega með hraða sínum og leikni og setti gæzlumann sinn alveg út af iaginu. Atli og Albert voru einnig „upp á fjóra“ í þessum leik, stór- hættulegir leikmenn. í vörninni var Guðmundur Kjartansson bezt- ur og fór illa með einn fyrri félaga, Kristin Björnsson. Hörður Hilmarsson átti nú sinn bezta leik á sumrinu, vann vel og skilaði boltanum eins og hann á að sér. Sigurður Dagsson brást hvergi í markvörzlunni og að lokum skal þess getið að Bergsveinn Alfons- son lék þarna sinn 299. leik með Val í 1. deildinni. Mun það vera einsdæmi að einn og sami leik- maðurinn leiki svo marga í 1. deild hér á landi. Leikinn dæmdi Rafn Hjaltalín og fórst það vel úr hendi. Flautaði hæfilega mikið og þó einstaka dómar orkuðu tvimælis þá var heildin góð hjá Rafni og hann getur verið ánægður með sinn hlut í þessum spennandi og skemmtilega leik. ístuttumáli: islandsmótið 1. deild, Akranes- völlur 4. júlí. Akranes — Valur 1:4 Mörk Vals: Guðmundur Þor- björnsson á 9. mínútu, Ingi Björn Albertsson á 48. min, Atli Eðvaldsson á 57, minútu og Al- bert Guðmundsson á 72. minútu. Mark ÍA: Pétur Pétursson á 4. mínútu. Áminning: Jóni Alfreðssyni var sýnt gula spjaldið eftir að hafa brotið gróflega á Atla Eðyalds- syni, ljótt brot hjá Jóni. Áhorfendur: 1696. VIKINGUR ENN ÍTOPPTRÍÓINU VÍKINGAR spiluðu aldrei slíku vant léttleikandi knattspyrnu fyrstu mínútur ieiksins gegn Þór á laugardaginn. Réðu Víkingar lögum og lofum á vellinum í byrjuninni og léku þá skemmtilegri knattspyrnu en áður á sumrinu. Þór náði tveimur upphlaupum fyrsta stundarfjórðunginn og ótrúlegt en satt, þá tókst liðinu að skora úr þeim báðum. Víkingar voru tveimur mörkum undir þrátt fyrir góðan leik. Víkingsliðið gafst þó ekki upp við þetta mótlæti, barðist vel fyrir stigi eða stigum og uppskeran varð þrjú mörk og sigur, 3:2. Leikur þessi var fjörugur á að horfa, að vísu datt knattspyrnan niður er leið á leikinn, en tæki- færi áttu bæði lið, sem ekki nýtt- ust og spennandi augnablik mörg. Ekki voru þau öll meðmæli með knattspyrnunni, því mikil harka hljóp i leikinn og í seinni hálf- leiknum voru leikmenn, sérstak- lega Þórs, sýknt og heilagt að þrasa um þetta eða hitt atvikið. Hafði dómarinn lítil tök á leikn- um og á hann ekki hvað minnsta sök á hvernig leikurinn þróaðist. Þór gerði fyrra mark sitt á 12. minútu. Ljót mistök urðu I vörn- inni og þeir Róbert og Helgi Helgason misstu knöttinn yfir sig. Árni Gunnarsson brunaði fram- hjá þeim og skoraði framhjá Dið- rik markverði, sem einn var til varnar. Þremur mínútum síðar skoraði Árni aftur, enn var hann á auðum sjó og vippaði knettinum nú laglega yfir Diðrik. Kom mark þetta óvænt og allur :ðdragandi þess var mjög um- deildur. Kn tturinn var sendur innfyrir vörn Víkinga, en þar var Sigþór Ómarsson illilega rang- stæður, eina 10 metra fyrir innan. Veifaði línuvörður rangstöðu og Víkingarnir hættu allir sem einn. Sigþór gerði enga tilraun til að ná knettinum, heldur hljóp hann frá honum. Árni Gunnarsson tók hins vegar á sprett innfyrir Vikingana og skoraði eins og áður er lýst. Eftir að hafa ráðfært sig við linu- vörð dæmdi dómarinn markið gilt og staðan þvi 2:0, en illa voru Vikingar sáttir við þennan dóm. Víkingur— Þór 3:2 Texti: Ágúst I. Jónsson. Mynd: Ragnar Axelsson. Sagði dómarinn að Sigþór hefði engin áhrif haft á leikinn, þar sem hann var. Jóhannes Bárðarson minnkaði muninn á 31. mínútunni með góðu skoti af um 20 metra færi. Virtist Samúel markvörður fyrst ekki sjá knöttinn og síðan mis- reikna stefnu hans. Lenti boltinn á miðju markinu uppi undir slá, en Samúel var kominn of langt til vinstri. Vel gert hjá Jöhannesi, en óþarfi hjá Samúel. Litlu munaði að Jóhannes jafnaði á siðustu minútu hálfleiksins, er hann átti skot í stöng. Á 22. minútu seinni hálfleiksins jafnaði Gunnar Örn með góðu skoti I samskeytin eftir óbeina aukaspyrnu i miðjum vitateigi Þórs. Var þetta laglegt mark hjá Gunnari og timi til kominn að þrumuskot hans hittu á ramm- ann, en Gunnar skaut mikið í þessum leik og voru flest skota hans rétt utan við stengur eða ofan við slá. Sigurmarkið skoraði siðan Róbert Agnarsson á 72. min- útu leiksins, Gunnlaugur tók aukaspyrnu vinstra megin, gaf inn að markteig, þar sem Róbert gnæfði yfir aðra leikmenn. Skalli hans fór yfir Samúel, sem hefði átt að ná knettinum. Töldu Þórs- arar að Samúel hefði verið hindr- aður, en ekki var svo að sjá úr tjaldi blaðamanna. Það sem eftir var leiksins var mikið um leiðinda hörku í leikn- um og þras og mótmæli við dóm- ara. Sigur Víkinga var sanngjarn I þessum leik, en segja má að þeir hafi sloppið með skrekkinn eftir hina ógæfulegu byrjun. Vikingar eru nú komnir með 15 stig í 1. deildinni, jafn mörg og Akranes, einu stigi á eftir Val. Er þetta mikla baráttulið því sannarlega enn með í keppninni um íslands- meistaratitilinn. Beztu menn liðs- ins að þessu sinni voru bakverð- irnir Ragnar og Magnús, en Jó- hannes Bárðarson var einnig drjúgur mjög með baráttu sinni. Þórsliðið saknaði að þessu sinni Jóns Lárussonar og munar um minna fyrir liðið. Beztur að þessu sinni var Sigþór Ómarsson og þáttur Árna Gunnarssonar var ekki lítill i byrjun leiksins. I stuttu máli: íslandsmótið 1. deild, Laugardais- völlur 2. júli. Víkingur — Þór 3:2 (1:2) Mörk Víkings: Jóhannes Bárðar- son á 31. min, Gunnar Örn Krist- jánsson á 67. minútu, Róbert Agn- arsson á 72. mínútu. Mörk Þórs: Árni Gunnarsson á 12. og 15. minútu. Áminningar: Gunnari Austfjörð og Árna Gunnarssyni, báðum Þór, var sýnt gula spjaldið í leiknum. Áhorfendur: 220. Sigurður Lárusson og Helgi Helgason virðast skelfdir á svip á þessari mynd, hvers vegna vitum við ekki.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.