Morgunblaðið - 05.07.1977, Page 24
32
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5, JULÍ 1977
j atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna |
Lagerstarf
Iðnfyrirtæki í Kópavogi vill ráða mann til
lagerstarfa. Góð vinnuaðstaða og þægi-
legur vinnutími.
Þeir sem hafa áhuga á þessu starfi leggi
uppl. um aldur og fyrri störf inn á augl -
deild Mbl. fyrir 12. júlí n.k. merkt:
„Lagerstörf — 6095".
Verzlunarstarf
Starfskraftur óskast í matvöruverzlun í
Vesturbæ. Til greina kemur bæði hálfs-
dags og heilsdags vinna.
Þarf að geta byrjað strax.
Starfsreynsla æskileg. Tilboð sendist
Mbl. fyrir 8. þ.m. merkt: „Áreiðanlegur
— 2430".
Kennarar
Skólanefnd Bolungarvíkur óskar að ráða
vel lærða og samviskusama barnakenn-
ara til starfa við grunnskólann.
Gott húsnæði í boði
Við sama skóla eru einnig lausar til um-
sóknar stöður íþróttakennara og kennara í
handavinnu drengja og teikningu.
Uppl. veita formaður skólanefndar séra
Gunnar Björnsson í síma 94-7135 og
skólastjóri Gunnar Ragnarsson í síma 94-
7288.
Forstjóri
Félagsheimilið Stapi YtriiNjarðvík óskar
eftir að ráða forstjóra.
Uppl. veitir núverandi forstjóri, Kristbjörn
Albertsson í síma 92-2526 eða 92-
2812.
Verkstæðisstörf
Hafnarfjarðarbær óskar að ráða menn til
starfa á vélaverkstæði. Verkefni eru
blönduð, viðhald bifreiða og vinnuvéla,
einnig smíðar. Uppl. gefur verkstjóri í
Áhaldahúsinu við Flatahraun, sími
53444.
Óskum að ráða
starfskraft til afgreiðslustarfa í veitingasal.
Vaktavinna
Sími 28470 — 25640.
Bmuðbær
Veitingahús
Múrverk
Múrari óskast út á land strax.
Uppl. í síma 25440 á skrifstofutíma.
Skrifstofustarf
Óskum eftir að ráða starfskraft á skrif-
stofu. Um er að ræða heils dags starf,
góð vélritunarkunnátta og enskukunnátta
nauðsynleg.
Upplýsingar á skrifstofunni í dag og á
morgun kl. 2 — 5.
| Ármú/a 1A.
Aðalbókari
Flugleiðir h/f óska eftir að ráða til starfa
aðalbókara. Um er að ræða ábyrgðar —
og trúnaðarstarf, sem krefst frumkvæðis
og verkstjórnar. Viðskiptafræði- eða sam-
bærileg menntun er nauðsynleg auk
starfsreynslu. Umsóknareyðublöð fást á
aðalskrifstofu félagsins og á söluskrifstofu
Lækjargötu 2 og skulu hafa borist starfs-
mannahaldi fyrir 11. þ.m. Farið verður
með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Flugleiðir h / f.
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raöauglýsingar
tilkynningar
Lokað
Bifreiðaverkstæði okkar verður lokað
vegna sumarleyfa frá 11. júlí n.k. til 2.
ágúst 1977.
VÖKULL h. f.
Ármúla 36
Frá Bændaskólanum
á Hvanneyri
Hér með tilkynnist, að nemendur verða
ekki innritaðir á fyrsta ár Búvísindadeildar
í haust. Næst verður nemendum veitt
innganga í deildina haustið 1978.
Skólastjóri.
Auglýsing til
búfjáreigenda
á Suðurnesjum.
Landgræðslugirðing hetur nú verið gerð
frá Vogum að Grindavík og er hún austan
Grindavíkurvegar. Allt svæðið vestan
girðingarinnar er hér með yfirlýst land-
græðslusvæði. Öll lausaganga búfjár á
þessu svæði er bönnuð.
Heimilt er að hafa búfé á afgirtum svæð-
um. Komist búfénaður út fyrir afgirt
svæði, verður honum smalað á kostnað
eigenda.
Bann þetta gildir allt árið.
Gunnarsholti, 1. júlí 1977
Landgræðs/a ríkisins
®BARMAVL\AFÉIA(.ID SIIMARGJÖF
FORNH AG A 8. - SlMI J7J7 J
Fóstrur
Leikskólinn Hlíðarborg, óskar að ráða
fóstrur 1. sept.
Upplýsingar veitir forstöðukona í síma
20096.
Orðsending
Viðskiptavinum Sjóklæðagerðarinnar h.f.
er vinsamleqast bent á lokun verksmiðj-
unnar vegna sumarleyfa frá 18. júlí n.k.
til 1 5. ágúst.
Pantanir óskast lagðar inn sem allra fyrst
svo afgreiðsla geti farið fram fyrir þann
tíma.
Sjóklæðagerðin h. f.,
Skúlagötu 51,
Sími 11520.
Frá happdrætti
Lionsklúbbs Reykjavíkur
Ósótt er Hitachi litsjónvarpstæki sem upp
kom á happdrættismiða númer
3117.
Er handhafi miðans beðinn að sækja
tækið hið fyrsta að Teiknistofunni Ármúla
6.
Til leigu
á næstunni er húsnæði fyrir iðnað eða
skrifstofur í húsi Sjóklæðagerðar íslands
h.f. við Skúlagötu 51. Húsnæðið er á
annarri hæð og skiptist í tvo sali 210 fm.
og 164 fm.. Ennfremur í kjallara ca 50
fm. geymsla.
Upplýsingar gefur Sverrir Sigurðsson í
síma 1 1 304.
Lager eða iðnaðarhús-
næði
Til leigu er 400 fm. iðnaðarhúsnæði á
jarðhæð. Leigist í einu eða tvennu lagi.
Uppl. ísíma: 82579.
Skrifstofuhúsnæði
í steinhúsi í gamla miðbænum er til leigu
skrifstofuhúsnæði. Rúmgott og sólríkt.
Einnig hentugt fyrir teiknistofu.
Uppl. í síma 24030 kl. 1 —5 e.h.
Iðnaðarhúsnæði til sölu
Tilboð óskast í verzlunar- og iðnaðarhús-
næðið að Höfðatúni 4. Ca. 900 fm. lóð
með byggingarleyfi. Upplýsingar í síma
21578.