Morgunblaðið - 05.07.1977, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JULl 1977
33
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
til sölu. 6 rúllur, neta og
linuútbúnaður. Sími 53918
á verzlunartíma. og 51 744 á
kvöldin.
er fluttur að Ármúla 28, simi
37033. Kaupi allan brota-
málm langhæsta verði. Stað-
greiðsla.
2ja—3ja herb. íbúð
með húsg. óskast til leigu i
Keflav. eða Njarðv. fyrir
Ameriskt par. Uppl. i S.
7882 Keflavikurflugv., biðja
um Ralph eða Lisu.
T1I leigu
200 fm iðnaðarhúsnæði ná-
lægt Hlemmtorgi. Lyfta i hús-
inu. Tilb. merkt: Gott
húsnæði — 2429 sendist
Mbl. fyrir 12.7.
Keflavík — Suðurnes
Til sölu m.a
Sandgerði
einbýlishús á tveimur hæð-
um 2ja hæða hús, ásamt bil-
skúr i einu lagi eða hvor hæð
fyrir sig. Laust strax. Enn-
fremur einbýlishús, fullgerð
og I smiðum.
Keflavík
til sölu Viðlagasjóðshús, ein-
býlishús, raðhús, parhús,
glæsilegar hæðir, gott úrval
3ja og 4ra herb. ibúða.
íbúðir og hús i smiðum.
Njarðvik (Ytri)
glæsileg 4ra herb. ibúð. Allt
sér.
Njarðvik (Innri)
einbýlishús og hæðir.
Vogar
fokheld einbýlishús ofl.
Eigna og verðbréfasalan,
Hringbraut 90, Keflavik, sími
92-3222. Friðrik Sigfússon
fasteignaviðskipti.
Til sölu
Chevrolet Vega árgerð '73.
Upplýsingar i sima 75501.
Munið sérverzlunina
með ódýran fatnað.
Verðlistinn Laugarnesvegi
82, s. 31330
Emma auglýsir
Sængurgjafir, skirnarkjólar,
ungbarnanærföt, bleiur,
gallabuxur, peysur, flauelis-
buxur, skyrtur, skotapils,
mittisblússur.
Póstsendum.
Emma
Skólavörðustig 5. Simi:
12584
Húseigendur — Iðn-
aðarmenn
Framleiði Oregonpine stiga.
Kynnið ykkur sérstaklega
hagstætt verð.
Haukur Magnússon, sími
50416.
Verslun
Fatamarkaður Trönuhrauni
6. Hafnarfirði. við hliðina á
Fjarðarkaup. Seljum þessa
viku allar flauels og gallabux-
ur. Flauels og gallajakka á
2500 kr. stk. Ath. þetta til-
boð stendur aðeins þessa
viku.
Fatamarkaðurinn, Trönu-
hrauni 6, Hafn. við hliðina á
Fjarðarkaup.
Verzlun
Fatamarkaður Trönuhrauni
6, Hafnarfirði, við hliðina á
Fjarðarkaup, Seljum á mánu-
dag og þriðjudag 4 og 5. júlí
allar flauels og gallabuxur.
Flauels og gallajakka á 2500
kr. stk. Ath. þetta tilboð
stendur aðeins í 2 daga. Opið
kl. 9 — 7 báða dagana.
Fatamarkaðurinn, Trönu-
hrauni 6, Hafn. við hliðina á
Fjarðarkaup.
óskar eftir starfskrafti.
Nauðsynl. Handlagni. góð
kunnátta í íslensku ensku og
vélritun. Vinnutími: Heill eða
hálfur dagur. Tilboð merkt:
Laý-out — 2428 sendist
Mbl. fyrir 1 2.7.
Filadelfia
Almenn samkoma i kvöld kl.
20.30
rERBAFÍLAG
ÍSLANDS
0L0UG0TU3
SÍMAR. 11798 og 19533.
Miðvikudagur 6. júlí
kl. 08.00 Þórsmerkurferð.
Farmiðar á skrifstofunni.
Kl. 20.00 Kvöldganga á
Ulfarsfell. Verð kr. 600 gr.
v/bílinn. Fararstjóri: Þórunn
Þórðardóttir. Lagt af stað frá
Umferðarmiðstöðinni að
austanverðu.
Feðir um helgina.
Þórsmörk, Landmannalaug-
ar, Hveravellir. Gist í húsum.
Einhyrningsflatir-
Fljótsgljúfur. Gist í tjöldum.
Upplýsingar á skrifstofunni.
Sumarleyfisferðir í júlí
9- júli. Hornvík
Hornbjarg, 9. dagar.
Flogið til ísafjarðar, siglt með
bát frá Boluhgarvík I Hornvik.
Dvalið þar í tjöldum. Göngu-
ferðir um nágrennið. Farar-
stjóri: Hallvarður S. Guð-
laugsson.
16. júli. Gönguferð frá
Hornvík í Hrafnsfjörð.
9 dagar.
16. júlí. Sprengisand-
ur-Kjölur. 6 dagar. Gist í
húsum.
23. júli. Arnarfell-
Nýidalur-Vonarskarð.
Gist i húsum.
23. júli. Lakagígar-
Landmannaleið. Gist i
húsum og tjöldum.
Nánari upplýsingar á skrif-
stofunni.
Ferðafélag íslands.
Ferð um Fimmvörðuháls
og i Þórsmörk.
Allar nánari upplýsingar á
farfuglaheimilinu. Laufásvegi
41. Simi 24950.
^FARFUGLAR
Ferðir i júlí
8 —10. Fimmvörðuháls
8 —10. Þórsmörk
15 —17. Hagavatn
22.—24. Þórsmörk
20. — 1. ág. syðri Fjallbaks-
vegur
29. — 1. ág. Þórsmörk.
Allar nánari upplýsingar á
Farfuglaheimilinu, Laufás-
vegi 41, simi 24950.
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raöauglýsingar
Til sölu Ford 4550
traktorsgrafa árgerð 1974. Vélin kom
seinast á árinu og í mjög góðu ásigkomu-
lagi.
Upplýsingar í síma 66614.
húsnæöi óskast
Skrifstofuhúsnæði óskast
Óskum eftir að taka á leigu ca. 50 fm.
skrifstofuhúsnæði í Ármúla — Síðumúla-
svæðinu eða þar í grennd.
Upplýsingar í síma 44210, á daginn eða
41025, eftir kl. 6.
Útboð
Tilboð óskast í lagningu 4. áfanga dreifikerfis Hitaveitu
Akureyrar. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Hitaveitu
Akureyrar, Hafnarstræti 88, Akureyri, frá og með 6. júli
197 7, gegn 10 þús. kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofum Akureyrarbæjar, Geislagötu
9, Akureyri, mánudaginn 18. júli 1977 kl. 14.
• Akureyri 2. júlí 1977.
Hitaveita Akureyrar.
Hansína Karlsdóttir
Túnsbergi—Minning
„Kynslóðir koma, kynslóðir
fara“. Einstaklingar koma og
hverfa af leiksviði lífsins. Maður
kemur í manns stað segja menn,
það er rétt að vissu marki, en þó
er það ætíð svo, að í hvert sinn,
sem kær samferðamaður hverfur
bak við tjaldið mikla, finnum við,
sem eftir stöndum, að líkt er sem
ljúfur tónn I hljómkviðu lífsins
hafi þagnað og einn kær dráttur í
samfélagsmyndinni hafi máðst og
horfið. Það skarð sem verður í
hópinn við andlát kærs vinar
verður því i raun og veru aldrei
bætt.
Þessar staðreyndir eru mér
ofarlega í huga nú, þegar Hansína
Karlsdóttir mágkona mín hverfur
af hérvistarsviðinu. Hún andaðist
að kvöldi 26. mai á heimili sinu
Ketilsbraut 17 í Húsavík.
Hansina var fædd 27. marz 1904
í Túnsbergi í Húsavík. Hún var
dóttir merkishjónanna Önnu
Mariu Árnadóttur og Karls
Einarssonar. Túnsberg höfðu þau
hjónin reist, er þau hófu búskap,
og var það á sinni tið eitt með
reisulegustu húsum þorpsins.
Hansina var elzt þriggja systkina,
yngri systkinin voru Arnfríður,
nú látin, og Þórhallur, velþekktur
skipstjóri og aflamaður, búsettur
I Húsavfk. Hansína ólst upp á
ágætu heimili foreldra sinna
ásamt systkinum sinum sínum en
með þeim var ávallt mjög kært.
Túnsbergshjónin voru börnum
sinum ágætir foreldrar. Anna
Maria var í senn fyrirmyndar hús-
freyja og góð og ástrik móðir
börnum sinum, hins sama ástrfkis
nutu þau hjá föður sinum.
Heimilið var vel bjargálna svo
börnin skorti aldrei neitt I
uppvextinum, enda var almæli að
ekki sæju aðrir búum sínum
betur borgið en Karl.
Bernska og æska Hansinu leið
við leik og störf i foreldrahúsum,
því snemma var þeim systkinum
kennt að taka hendi til verka. Svo
sem öll heilbrigð ungmenni átti
hún að sjálfsögðu sína dagdrauma
og æskuþrár. Útþráin laðaði og
seiddi og átján ára hlýddi hún
kalli hennar, hleypti heimdragan-
um og hélt til Vesturheims
sumarið 1923. Það þurfti tölu-
verðan kjark og einbeitni til þess
að yfirgefa skjólið i foreldra-
húsum og takast þessa ferð á
hendur svo sem ferðum var þá
háttað, enda þótt hún ætti til
frændfólks að hverfa, þegar
vestur yfir hafið kæmi.
Þegar vestur kom settist
Hansína að i Winnipeg, þar
kynntist hún ungum og glæsileg-
um manni, Hannesi Jakobssyni,
ættuðum af Svalbarðsströnd,
bundust þau tryggðum og gengu í
hjónaband 10. marz 1928. Næstu
fimm árin var heimili ungu hjón-
anna I Chicago. Á þeim árum
fæddust þeim tvö börn, frum-
burður þeirra dó skömmu eftir
fæðinguna. Síðara barnið var
hraustur drengur, sem dafnaði
vel við ástríki foreldra sinna.
Kreppan alræmda, sem gekk
yfir Bandarikin eftir 1930, olli því
að atvinna f iðngrein Hannesar,
húsamálningu, varð naum og
stopul og það sparifé, sem hjónin
höfðu dregið saman, tapaðist.
Varð þá afkoma þeirra svo erfið,
að þau brugðu á það ráð að
Hansfna hyrfi heim til Húsavíkur
með drenginn, en Hannes dveldi
áfram í Chicago unz hann hefði
unnið fyrir fargjaldi sinu heim til
íslands. Reyndi nú enn á kjark
Hansinu að takast á hendur ferð
með drenginn unga austur yfir
Atlantshaf um hávetur. Þegar
heim kom hvarf Hansína til sins
gamla heimilis i Túnsbergi til
föður síns, sem orðinn var ekkju-
maður, og veitti heimili hans for-
stöðu næstu misseri. Mann sinn
heimti hún heim að vestan tæpu
ári siðar en hún kom heim.
Dvöldu þau hjónin i Túnsbergi
þar til árið 1948 að þau fluttu í
hús sem þau reistu sér að Ketils-
braut17.
Árið 1956 fluttu þau Hansína og
Hannes suður i Ytri-Njarðvik og
stundaði Hannes iðju sina á
Keflavikurflugvelli um árabil.
Jafnan dvöldu þau þó heima á
Húsavík hluta af hverju sumri.
Eftir að hjónin fluttu að vestan
varð þeim fjögurra barna auðið,
en þrjú þeirra dóu stuttu eftir
fæðingu. Af sex börnum þeirra
lifðu því aðeins tvö, Karl Hannes,
sveinninn, sem fæddist vestan
hafs og nú er búsettur á Húsavík,
starfsmaður hjá Kaupfélagi Þing-
eyinga, kvæntur Herdísi Arnórs-
dóttur og eiga þau þrjú börn. Og
Helen, einnig búsett á Húsavik,
kona Ólafs Erlendssonar fram-
kvæmdastjóra Sjúkrahúss Húsa-
vikur, þau eiga tvær kjördætur.
Af framanskráðu sést að harma-
élin sneiddu ekki hjá garði
Hansinu og Hannesar. Og enn
kvaddi sorgin dyra hjá Hansínu,
er maður hennar varð bráðkvadd-
ur 14. janúar 1962. Þessi áföll bar
hún með æðruleysi, hún bar ekki
harma sina á torg þó hjartasárin
blæddu.
Eftir lát Hannesar dvaldi Han-
sina i Reykjavtk um skeið og vann
á Hótel City. Árið 1964 flutti hún
heim til Húsavikur og vann
allmörg ár á Hótel Húsavík, eða
svo lengi sem hún hélt fullri
starfsorku. Heimili hennar var þá
á Ketilsbraut 17 hjá Helen dóttur
hennar.
Mér virtist Hansina i sumum
tiifellum fremur seintekin, en
gulltrygg var hún vinum sinum
og ættingjum. Hún hafði sig ekki
mikið í frammi í félagsmálum, en
var góður liðskraftur þar sem hún
kom við sögu I þeim efnum, eins
og t.d. i Slysavarnadeild kvenna í
Húsavik, en þar var hún gjaldkeri
um skeið. Hún helgaði sig heimili
sinu og vinnustöðvum, var afar
vandvirk og kröfuhörð við sjálfa
sig um þau verk, sem hún hafði
með höndum. Ég held að með
réttu hafi mátt segja, að þar hafi
aldrei sézt blettur eða hrukka,
sem hún hafði verið að verki.
Söngrödd góða hafði Hansína
og söng lengi i kirkjukór Húsa-
víkur, af þvi söngstarfi hafði hún
áreiðanlega mikla nautn og gleði.
Hin siðari ár var heilsa hennar
mjög veil en heilsuleysið bar hún
með æðruleysi og hetjulund.
Ég, sem þessar linur skrifa, á
Hansínu mikla þakkarskuld að
gjalda fyrir ómetanlega hjálp
hennar i langvinnu veikindastríði
konu minnar. Langtímum saman
var það hún, sem hélt uppi
heimili okkar, þótt heilsa hennar
sjálfrar væri biluð. Hún var mér
ætið frá okkar fyrstu kynnum
sem góð systir. Þannig vil ég
minnast hennar og kveðja hana.
Ástvinum hennar votta ég
samúð mina.
Þórir Friðgeirsson