Morgunblaðið - 05.07.1977, Page 30
38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLl 1977
+ Bróðir okkar og fósturbróðir, SIGMUNDUR R. FINNSSON. Lést 28 maí s I í Melbourne Ástralíu . Steina Finnsdóttir Flosi Finnsson Bergman Júllusson.
+ AÐALHEIÐUR BJÖRNSDÓTTIR frá Ferjubakka. andaðist 3 júlí Börn og tengdabörn.
+ Maðurinn minn og faðir okkar LÚÐVÍK GUÐMUNDSSON, Arnarhrauni 26, Hafnarfirði, lést sunnudaginn 3 þ m Bára Marsveinsdóttir og börnin.
+ Eiginmaður minn og faðir okkar; KRISTJÁN ÁRNI GUÐMUNDSSON, Höfða. Njarðvfk lézt 1 júlí Guðmunda Ingvarsdóttir, og börn.
+ GUÐMUNDUR BARÐARSON vélstjóri ísafirði. Verður jarðsettur frá ísafjarðarkirkju þriðjudaginn 5 júlí kl 14 00 Þeim sem vilja minnast hins látna er bent á Krabbameinsfélag íslands Bárður Guðmundsson Sigríður Jensdóttir Snjólaug Guðmundsdóttir Guðbrandur Brynjúlfsson Hólmfríður Guðmundsdóttir Ole Linbquist
+ Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HALLDÓR MAGNÚSSON. SuSurgötu 124. Akranesi. verður jarðsunginn frá Akraneskirkju, þriðjudaginn 5 júlí kl 2 Þeim, sem vilja minnast hins látna, er vinsamlega bent á Krabbameins- félagið Helga Ásgrímsdóttir, börn tengdabörn barnabörn, og barnabarna- barn.
+ STEiNUNN SALOME SIGURÐARDÓTTIR frá Bolungavik, lést að Elliheimilinu Grund 2 júlí Ólafur Magnússon, Magnús H. Ólafsson.
+ Móðir okkar og stjúpmóðir KRISTÍN HELGADÓTTIR frá Vorsabæ. Seljavegi 7, Selfossi. andaðist að Landakotsspítala laugardaginn 2 júli 1 977 Helga Jasonardóttir Helgi Jasonarson Guðmundur Jasonarson ÞórSur Jasonarson Sigríður Jasonardóttir Stefán Jasonarson
+ Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, EYJÓLFUR EYJÓLFSSON vélstjóri, Aðalgötu 14. Keflavik. Verður jarðsunginn frá Keflavikurkirkju miðvikudaginn 6 júlí kl. ' ^ Sigurbjörg Daviðsdóttir Erla Eyjólfsdóttir Magnús Hannesson Hafsteinn Eyjólfsson Sigrún Kristjánsdóttír Bragi Eyjólfsson Elisabet Ástvaldsdóttir barnabörn og barnabarnabörn.
Anna Sólveig Þórólfs
dóttir—Minning
F. 31. desember 1904
D. 23. júní 1977
í dag er til moldar borinn Anna
Sólveig Þórólfsdóttir. Enginn veit
sína ævina fyrr en öll er. Þessi
orö komu mér i hug, er mér var
tilkynnt lát systur minnar. Kvöld-
ió áður sátum vió í hlýlegri Ibúð
þeirra Veigu og Helga að Fells-
múla 12 og nutum alúðar og gest-
risni þeirra hjóna, sem ávellt ein-
kenndi heimili þeirra. Við syst-
urnar röbbuðum saman í eldhús-
inu á meðan Veiga hitaði kaffið,
en menn okkar sátu inni í stof-
unni, sem prýdd er fegurstu
myndum, er Veiga hafði kúnst-
bróderað, enda var hún ákaflega
mundarleg i verkum sínum og
vandvirk mjög. Næsta verkefni
hennar var að fá smíðuð innskots-
borð en hún hafði þegar lokið við
að kúnstbródera á allar plöturnar.
Anna Sólveig var fædd að Gröf á
Vatnsnesi 31. des. 1904, og var
elst okkar þriggja systra. Foreldr-
ar okkar voru Guðríður Anna
Teitsdóttir og Þórólfur Jónsson.
Árið 1914 fluttu þau til Reykja-
vikur og settust að i Viðey, en þar
var blómlegt atvinnulif á þeim
tima. Ung að árum fór Veiga að
vinna óg vann hún mest við fisk-
vinnu. Var hún harðdugleg, vel-
virk og samviskusöm og vel metin
af vinnuveitendum sínum. Árið
1945 giftist Veiga Helga Þorgils-
syni fiskmatsmanni i Sandgerði,
og bjuggu þau þar til ársins 1969,
er þau fluttu til Reykjavikur og
keyptu sér þá ibúð að Fellsmúla
12. Einn son eignuðust þau hjón,
Þór málara, búsettan í Keflavik,
ásamt konu sinni Cornelíu
Gróa Olafsdóttir
—Minningarorð
Fa>dd 31. október 1902
Dáin 23. júni 1977
Gróa Ólafsdóttir var fædd að
Torfastöðum í Fljótshlið 31.
október 1902.
Foreldrar hennar voru hjónin
áð Torfastöðum, Aðalheiður Jóns-
dóttir frá Arngeirsstöðum í
Fljótshlið og Ólafur Sigurðsson
frá Snotru í Austur-Landeyjum.
í æsku var Gróa tekin í fóstur
af vinum foreldra okkar. Hún ólst
þvi ekki upp á fæðingarheimili
sínu meó okkur systkinum sínum.
Þrátt fyrir þetta var hún ætið
okkur öllum ástrik systir og
reyndist svo alla stund. Hún var
ávallt hæglát og prúð og reynjiist
því hugþekk öllum er henni
kynntust.
Gróa var sérlega vel verki farin.
Hún stundaði langa stund sauma-
vinnu hjá klæðskerum og var þar
sem annars staðar eftirsótt sakir
verkhæfni sinnar og jafnframt
sakir hennar hæglátu og hugljúfu
framkomu.
Eiginmaður hennar var Sig-
urður Andrésson, skipstjóri,
þekktur ágætismaður. Sambúð
þeirra var alla stund hin ánægju-
legasta. Þess urðu þeir varir er
urðu gestir þeirra, þar var gott að
koma.
Eina dóttur eignaðist Gróa,
áður en hún giftist. Þeim hjónum
varð ekki barna auðið. Dóttur-
dóttir hennar tóku þau unga í
fóstur. Umhyggja þeirra og ástúð
við þessa telpu var slik, að lær-
+
Faðir minn,
KJARTAN SVEINSSON,
fyrrverandi skjalavörSur,
Ásvallagótu 67. Reykjavik.
lézt að kvöldi 1 júli.
Sveinn Kjartansson.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar. tengdafaðir og afi,
JÓN SIGURÐSSON
Hringbraut 59
Reykjavfk
verður jarðsunginn frá Frikirkjunni i Reykjavik miðvikudaginn 6 júli kl
1 30 Þeim sem vilja minnast hins látna, er vinsamlega bent á
Styrktarfél vangefínna
Guðrún Einarsdóttir
Halldóra Jónsdóttir Hilmar Karlsson
Gunnar Jónsson Guðriður Ágóstsdóttir
SigurSur Jónsson Ágústa K. IMagnúsdóttir
og barnabörn.
+
Móðir mín
UNNUR AÐALHEIÐUR BALDVINSDÓTTIR,
Laufásveg 45 B
er látin
Fyrir hönd vandamanna
Regina Gisladótfir.
Útför
ARNÞRÚÐAR G. REYNIS
fer fram frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 7 júli kl 13.30
Þeim, sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag íslands.
Einar Reynis og börn.
Ingólfsdóttur, syni þeirra Þórólfi
og fóstursyni. Veiga bar ávallt
mikla umhyggju fyrir heimili
sinu og fjölskyldu, og átti þaó hug
hennar allan. Blessun guðs fylgi
minningu hennar, og fjölskyldu
hennar sendi ég innilegar samúð-
arkveðjur. Lilla
dómsríkt var að kynnast því. Þar
lá sannarlega ekki eftir hlutur
Sigurðar, þar var sem um besta
föður væri að ræða.
Mann sinn missti Gróa fyrir
rúmu ári. Við systkinin vissum að
heilsa þessarar kæru systur okkar
var þrotin, og að umskiptin gat
þvi borið brátt að eins og raunin
varð.
Hún lést á Landakotsspitala 23.
júni síðastliðinn, á75. aldursári.
Nú þegar okkar kæra systir er
flutt yfir á nýtt tilverusvið, vakna
allar ógleymanlegu minningarnar
frá æviárunum, sem við geymum
sem helgan dóm í hugum okkar.
Vissulega er okkur sár söknuður i
sinni.
Nú færist óðum aldurinn yfir
okkur systkinin, svo óvíst má telja
hversu aðskilnaðurinn varir
lengi.
Við þökkum systur okkar af
alhug alla hennar systurlegu
ástúð, er hún ætíð sýndi okkur,
allt frá bernskudögum. — Guð
blessi hana og geymi.
Við þökkum Guði fyrir allt,
fyrst fyrir okkar góðu og
skilningsríku foreldra og alla
handleiðslu gegnum æviárin.
Farðu svo vel
til fegri heima
minning þín geymist
f muna klökkum.
Ung og heílbrigð
aftur við hittumst
að okkar jarðvistar
enduðu skeiði.
Systkinin.
S. Helgason hf. STEINIttJA
llnholti 4 Stmar 74677 og U2S4