Morgunblaðið - 09.07.1977, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 09.07.1977, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JULI 1977 Miðstjórn ASÍ; Kjarabætumar varð- Erlendir ferðamenn I Reykjavfk f gær. Ferðamannastraumurinn: Svipaður og var í fyrra Lakari nýting hjá stærstu hótelunum CJTLENDINGUM, sem komu til landsins f júnfmánuði, fjölgaði Iftið eitt miðað við sama mánuð f fyrra, eða f 10.271 núna á móti 9.962 f fyrra, og útlendingar sem komu til landsins fyrri hluta þessa árs, þ.e. 6 fyrstu mánuðina, eru einnig lftið eitt fleiri en á sama tfmahili f fyrra eða 27.551 á móti 26.983 í fyrra. Engu að sfður segja forráða- menn stærstu hótelanna f Reykjavfk, að ekki sé eins góð nýting hjá þeim f fyrrasumar og horfur eru á þvf að útkoma sumarsins verði eitthvað lak- ari. Samkvæmt upplýsingum Em- ils Guðmundssonar hjá Hótel Loftleiðum var herbergjanýt- ing Loftleiðahótelsins lakari nú, bæði í maí og júní, en í sömu mánuðum f fyrra og allt útlit er fyrir að júlímánuður verði einnig lakari, en hins veg- ar lítur ágúst allvel út. Að sögn Emils er nú áberandi hversu minna er af sjálfstæðum ferða- löngum, þ.e. einstaklingum sem koma utan víð skipulagðar hóp- ferðir, og einnig hefur nú verið minna af ráðstefnuhópum en áður. Hins vegar kvað Emil Hótel Esju vera með betri nýt- ingu, bæði í mai og júní, en í fyrra, en það kæmi aðallega tii af þvi að Esja hefði fengið stóra, þýzka ferðamannahópa í þessum mánuðum. Konráð Guðmundsson, hótel- stjóri á Hótel Sögu, tók í sama streng. Hann kvað verulegar gloppur vera í nýtingunni ef litið væri á sumarið i heild, en tók fram að dálítið erfitt væri að meta aðstæður nú, þar sem hótel hans væri með 30% meira herbergjaframboð en í fyrra. Þó taldi hann að júli og ágúst myndu koma út með svipaða nýtingu og í fyrra þrátt fyrir þessa aukningu, en nýtingin i júni og mai hefði hins vegar verið lakari nú i ár heldur en á sama tima í fyrra, þrátt fyrir sama herbergjaframboð, þar sem aukningin kom ekki til sög- unnar fyrr en um sl. mánaða- mót. Samkvæmt upplýsingum Helgu Ingólfsdóttur hjá Flug- leiðum virðast sumarflugleiðir félagsins ætla að gefa góða raun í sumar, þó sérstaklega hin nýjasta þeirra — Parísar- flugið. Þar lofa bókanir mjög góðu alveg út þennan mánuð svo og þær ferðir sem þegar hafa verið farnar frá París og hingað til lands og vélarnar hafa verið fullsetnar í fyrstu ferðunum. DUsseldorf-leiðin kemur einnig vel út og er vel bókað í þær í þessum mánuði, en einnig virðist Frankfurt- leiðin vera að taka við sér þrátt fyrir hæga byrjun. Helga gat þess einnig, að fyrr í sumar hefðu Flugleiðir staðið fyrir leiguflugi til Sviss og borga í Þýzkalandi, og hefðu i þessum ferðum komið um 2700 manns. Um hinar almennu leiðir áætl- unarflugsins í Evrópu sagði Helga, að vel horfði með flugið til Kaupmannahafnar og Osló, svo og til Glasgow og London en Stokkhólmur væri einna lakast- ur í þessu efni. ar og verndaðar MORGUNBLAÐINU hefur borizt ályktun miðstjórnar ASl, þar sem lýst er fyllsta samþykki við kjara- samningana, sem undirritaðir voru 22. júnf, og telur að verka- lýðshreyfingin hafi náð með þeim mikilvægum áfanga f fram- kvæmd þeirrar stefnu, sem mörk- uð var á sfðasta þingi ASl. I ályktuninni er bent á nauðsyn þess, að verkalýðssamtökin haldi vel vöku sinni að samningum loknum, og beiti áhrifavaldi sfnu til að verja og vernda þær beinu og óbeinu kjarabætur, sem knúð- ar hafa verið fram, fyrir öllum hugsanlegum aðgerðum af opin- berri hálfu, sem rýra kynnu ávinning verkafólks af samning- unum. Bendir miðstjórnin sér- staklega á nauðsyn sterks aðhalds í verðlagsmálum og felur fulltrú- um sinum í verðlagsnefnd að fylgja þar fram þeim sjónarmið- um og hindra eftir mætti að launahækkunum verði veitt út í almennt verðlag í ríkara mæli en brýnasta nauðsyn krefur. Þá vekur miðstjórnin athygli á að ýmsir mikilvægir hópar launa- fólks eigi enn eftir að semja um kjör sin, svo sem BSRB og BHM og Samband bankamanna, og tel- ur afar mikilvægt að þeir kjara- samningar sem enn standa opnir verði gerðir á grundvelli þeirrar launajöfnunarstefnu, sem ASl hefur markað í framkvæmd. Er skorað á alla aðila sem enn hafa ekki lokið kjarasamningum að tryggja framgang launajöfnunar- stefnunnar á sama hátt og aðild- arfélög ASÍ hafa gert fyrir sitt leyti. Frystihúsakonur hætta kl. 5 á föstu- dögum á Akranesi VERKAKONUR sem vinna í fyrstihúsum á Akranesi sam- þykktu á fundi i félagi sínu nú í vikunni, að þær mundu ekki vinna eftirvinnu á föstudögum framvegis í sumar og gildir þessi samþykkt fram til 1. október, að sögn forráðamanns félagsins. Hættu konurnar vinnu i frysti- húsinu í gær kl. 5. Ekki eru hlið- stæður fyrir slíkri samþykkt inn- an verkalýðsfélagsins á Akranesi, enda hefur starf frystihúsa- kvenna þá sérstöðu, að þar er um nokkuð óreglulega vinnu að ræða. Ufsablokkin hækkaði mest í Bandaríkjunum Hækkun varð á öllum tegundum nema 4x15 punda þorskflökum HÆKKUNIN á þorskblokk á Bandarfkjamarkaði f júnfbyrjun varð 10 sent, úr 95 f 105 sent pundið, á ýsublokk og steinbfts- blokk varð hækkunin 5 sent, karfablokkin hækkaði um 6 sent, ufsablokkin um 13 sent og iöngu- hlokkin um 5 sent. Af 176 millj- ónum punda á Bandarfkjamarkað f fyrra, voru 38 milljón pund þorskblokk. Þá hækkuðu þorsk- flök, 4x15 pund, úr 114 sentum f 123 sent, en þessi pakkning er Iftilf jörlegt magn, en 10x5 punda pakkningin hefur staðið f óbreyttu verði; 109,5 sent, frá þvf f febrúar. Samtals voru þorsk- blokkin og þorskflökin 93 mill- jónir punda af 176 milljón punda heildarmagninu. Ysuflök í pakkningu 3x18 pund hækkuðu úr 114 sentum í 118,50, en þessi pakkning er lítilfjörlegt magn af íslenzkum fiski á Banda- ríkjamarkaði. Steinbítsflök hækk- uðu úr 112 sentum f 121 sent og karfaflök í 10x5 punda pakkning- um hafa hækkað um 2—3 sent almennt. Eins og sagði i Mbl. i gær er meðaltalshækkunin á þeim fisk- tegundum, sem teljast til verð- jöfnunarflokka, 4,75 sent pundið; úr 88,25 sentum í 93 sent og þýðir þessi hækkun 1600—1700 milijón króna tekjuauka á ári, ef miðað er við gengi dollara nú og útflutn- ingarmagnið i fyrra. Nú fást, sem fyrr segir 105 sent fyrir þorskblokkina á Bandarfkja- markaði, fyrir ýsuflokkina fæst sama verð, fyrir steinbftsblokkina 90 sent, fyrir karfablokkina 74 sent, fyrir ufsablokkina 65 sent og fyrir löngublokkina 80 sent. Innbrot með lagi Náttfara I FYRRINÓTT var farið inn í íbúðarhús við Sunnuflöt í Garðabæ og þaðan stolið tveimur ávísanaheftum og ein- hverjum öðrum verðmætum svo sem peningum. Innbrotið var framkvæmt á líkan hátt og hjá Náttfara í fyrrasumar. Þjófurinn fór inn um svaladyr og framdi þjófnaðinn á meðan íbúar hússins voru í fasta- svefni. Er sérstök ástæða fyrir fólk að gæta vel að umbúnaði svalahurða og glugga og hafa á þeim góðar krækjur. Sumarsýning í Sólon íslandus 1 DAG kl. 3, verður opnuð í sýningarsalnum Sólon Islandus sumarsýning, þar sem um 20 islenzkir listamenn sýna mynd- verk af ýmsu tagi. Sýning þessi stendur yfir allt til ágústloka, og eru öll verkin til sölu. Sýn- ingarsalurinn Sólon Islandus er opinn frá kl. 2—6 daglega og frá kl. 2—10 um helgar. Lokað er á mánudögum. Á meðfylgjandi mynd má sjá hluta þess hóps listafólks sem á verk á sumarsýningunni. Þau eru: Sigurður örlygsson, Kol- brún Björgólfsdóttir, Sigurður Eyþórsson, Ásrún Kristjáns- dóttir, Magnús Kjartansson og Þorbjörg Þórðardóttir. (Ljósm. Emilia). Atvinnuleysió: Færri á skrá, en f leiri dagar UM StÐUSTU mánaðamót voru alls 172 vinnufærir menn á at- vinnuleysisskrá á landinu öllu á móti 441 f sama mánuði f fyrra. Atvinnuleysisdagar f mánuði nú voru hins vegar 3.753 á móti 3.643 f fyrra. I kaupstöðum landsins voru alls 126 skráðir atvinnulausir á móti 356 í fyrra, en atvinnuleysisdagar í mánuði voru 2.484 en 2.272 í júní í fyrra. I Reykjavík voru 81 á skrá í stað 302 i fyrra og i Hafnarfirði voru 19 á skrá í stað 29 f fyrra, en annars staðar var atvinnuleysi minna. I 13 kaupstöðum var eng- inn á skrá. I kauptúnum með yfir 1000 íbúa voru 27 á skrá í júnf á móti 51 í fyrra og atvinnuleysisdagar i mánuði 722 á móti 628 i fyrra, en f minni kauptúnunum voru 19 á skrá nú á móti 34 í fyrra og at- vinnuleysisdagar i mánuði 547 f stað 743 í fyrra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.