Morgunblaðið - 09.07.1977, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JULl 1977
7
Hugarfars-
breyting er
þjóðarnauðsyn
I athyglisverðri grein
á SUF-siðu Tfmans f
gær segir m.a. orðrétt:
„Þeir Islendingar,
sem fæddir eru eftir lok
seinni heimsstyrjaldar,
þekkja ekki annað en
þann söng að vinna sé
þrældðmur. Þessi söng-
ur er leifarnar af bar-
áttu erfiðisvinnumanna
frá fyrri hluta aldarinn-
ar þegar menn rétt
skrimtu þrátt fyrir hóf-
lausa vinnu vegna lágs
kaups. Þessir tfmar eru
sem betur fer horfnir,
en enn eimir sterkt eft-
ir af þessum áróðri.
Þeir, sem telja það köl 1-
un slna að rffa niður og
leggja f rúst fslenzka
þjóðfélagskerfið, hafa
ósleitilega unnið að þvf
að telja almenningi trú
um að öll vinna sé arð-
rán og kúgun. Þessir
menn, sem að þessum
málflutningi standa,
kalla sjálfa sig komm-
únista og greinast f ótal
sértrúarsöfnuði eins og
aðrir ofsatrúarhópar.
Þvf er ekki að leyna að
þeim hefur tekizt vel
upp f áróðri sfnum.
Hvar sem komið er f
þessu þjóðfélagi finnst
maður sem er sár-
óánægður með það að
þurfa að vinna og er sf-
fellt hamrandi á þvf
hvað vinnuveitandinn
hagnist á sér, hvort sem
maðurinn vinnur hjá
opinberri stofnun eða
einkaaðila. Afleiðing
þessarar óánægju er, að
afköst verða slæm og
illa er mætt til vinnu.
Það er þjóðarnauðsyn
að hugarfarsbreyting
verði f þessum málum.
Allir stjórnmálamenn
eru sammála um, að
þjóðarframleiðsluna
þarf að auka, en hvern-
ig verður það gert með
sama vinnuafli án þess
að bæta skipulagningu
og fá meiri afköst frá
hverjum manni?“
Mikilvægur
hluti skóla-
náms
„Ungu fólki þarf að
kenna að vinna og láta
það skilja að það er
þáttur f þjóðfélagslegri
skyldu að skila vinnu
sinni af heiðarleik og
leggja sig fram við
starfið. Þegar það við-
horf verður rfkjandi og
annað undantekning,
þá verður samstaða
þessarar þjóðar meiri
og hún verður fær um
að standast samanburð
við aðrar þjóðir um Iffs-
þægindi þegnanna.
Við Islendingar erum
þó heppnari en aðrar
þjóðir með uppeldi
barna okkar, þar sem
hvert barn fær að kynn-
ast erfiðisvinnu ein-
hvern tfma á ævinni og
þá einkum f skólafrfum
sfnum. Það er reyndar
ekki rökrétt að kalla
þetta skólafrf, þetta er
ef til vill mikilvægasti
hluti skólanámsins á
þessu landi.
Þegar talað er um
betri afköst hér, þá er
alls ekki átt við lengri
vinnutfma, heldur
þvert á móti verði dag-
vinna ráðandi en kapp-
kostað að allir vinni sitt
og skili þvf vel. Þá yrði
hugsanlega Iftil sem
engin þörf á eftirvinnu.
Talsmenn lengri frfa
og stutts vinnutfma
ættu að fara hægt f sak-
irnar. Of langur frftfmi
skapar fleiri vandamál
en hann leysir. Ef ekki
er nógu vel að staðið,
mun hann valda auk-
inni óreglu og upplausn
f þjóðfélaginu. Mjótt er
mundangshófið og erf-
itt að fullyrða um hvað
sé óhóflegur vinnutfmi
og hvað sé hæfileg hlé,
það verður hæg og róleg
þróun að skera úr um.
Með þessum orðum er
ekki verið að ráðast
gegn verkalýðspólitfk.
Heldur er verið að
leggja áherzlu á gffur-
legt mikilvægi vinnunn-
ar fyrir þegnana og
þjóðfélagið. Vinna
hvers og eins er þáttur f
þvf að vernda sjálfstæði
fslenzku þjóðarinnar."
Rax tók þessa mynd af
grunninum undir nýtt og
glæsilegt biðskýli, sem á
að reisa á Hlemmi. 1 nótt
var ætlunin að Sandey II
kæmi upp í Rauðarár-
víkina með grús af hafs-
botni, en eftir reynslu-
siglingu í gær var ákveð-
ið að hætta ekki á það
vegna þess að lágflæði er
og grýttur botn, svo skip-
ið fer í Sundahöfn með
farminn, er verður flutt-
ur þaðan í grunninn.
Jleéöur
Íí 1 ffámorgun LITUR DAGSINS: Grænn. Táknar vöxt. Eink- um vöxt hins andlega lffs.
tTmmá m, ,-..Æ fc \ ,
GUÐSPJALL DAGSINS:.
Lúkas 5, I.—11.:
Jesús kennir af skipi.
DÖMKIRKJAN Messa kl 11
árd. Séra Þórir Stephensen.
IlATEIGSKIRKJA Messa kl 11
árd. Séra Arngrfmur Jónsson.
NESKIRKJA Guðsþjónusta kl.
11 árd. Séra Guðmundur Öskar
Olafsson.
HALLGRlMSKIRKJA Messa
kl. 11 árd. Séra Ragnar Fjalar
Lárusson.
LANDSPÍTALINN Messa kl
10 árd. Séra Karl Sigurbjörns-
son.
Arbæjarprestakall
Guðsþjónusta í Árbæjarkirkju
kl. 11 árd. (síðasta messa fyrir
sumarleyfi). Séra Guðmundur
Þorsteinsson.
FRtKIRKJAN Reykjavík
Messa kl. 11 árd. Organisti Sig-
urður tsólfsson. Séra Þorsteinn
Björnsson.
FtLADELFlUKIRKJAN A1
menn guðsþjónusta kl. 8 sfðd.
Einar J. Gfslason.
BÚSTAÐAKIRKJA Messa kl
11 árd. Fermdur verður Jón
Frosti Tómasson (Karlssonar,
New York, pt. Hólavallagata 7,
Rvík). Organisti Birgir As Guð-
mundsson. Séra Ólafur Skúla-
son.
GRENSASKIRKJA Vegna við-
gerðar Safnaðarheimilisins og
sumarleyfa falla messur niður
næstu tvær vikur. Séra Halldór
S. Gröndal.
LAUGARNESKIRKJA Messa
kl. 11 árd. (Ath. Þetta er siðasta
messa fyrir sumarleyfi).
Sóknarprestur.
ELLI- OG hjúkrunarheimilið
Grund Messa kl. 10 árd. Séra
Guðmundur Öskar Ölafsson
messar.
KÓPAVOGSKIRKJA Messa kl.
11 árd. Séra Arni Pálsson.
HAFNARFJ ARÐARKIRKJA
Messa kl. 10 árd. Séra Gunnþór
Ingason.
FRlKIRKJAN Hafnarfirði
Messa kl. 2 siðd. Séra Magnús
Guðjónsson.
NJARÐVtKURPRESTAKALL
Guðsþjónusta f Stapa kl. 11 árd.
Séra Páll Þórðarson.
KEFLAVlKURKIRKJA Guðs-
þjónusta kl. 2 siðd. Séra Páll
Þórðarson.
GRINDAVlKURKIRKJA
Messa kl. 11 árd. Sóknarprest-
ur.
GAULVERJABÆJARKIRKJA
Messa kl. 2 siðd. Barnaguðs-
þjónusta eftir messu. Sóknar:
prestur.
SKALHOLTSDOMKIRKJA
Messa kl. 5 siðd. Sóknarprestur.
REYNIVALLAPRESTAKALL
Messað i Saurbæjarkirkju kl. 2
síðd. Séra Birgir Ásgeirsson.
HALLGRlMSKIRKJA i
Saurbæ. Guðsþjónusta kl. 2
siðd. Séra Kristján Búason
dósent prédikar. Sóknarprest-
ur.
AKRANESKIRKJA Messa kl.
10.30 árd. Séra Björn Jónsson.
PLAST
ÞAKRENNUR _
Sterkar og endingagóðar q ^
Hagstætt verð.
cSd NýborgE
Ármúla 23 — Sími 86755
FERÐAMENN
Flytjum ferðamannabíla til og frá flestum við-
komuhöfnum okkar. Fastar áætlunarferðir. Leit-
ið upplýsinga á skrifstofunni.
H.F. E/MSKIPA FÉLA G ÍSLANDS
Pósthússtræti 2, sími 27100
GRUNDTVIGS
H0JSKOLE ar .
FREDERIKSBORG j^ooHai,,^'
Danskur lýðháskóli (35 km. fyrir norðan Kaup-
mannahöfn) með sérstökum deildum í norrænum
greinum og þ/óðfé/agsfræði, sálfræði, skapandi
greinar. 35 greinar eru kenndar innan skólans.
-fí
frá spnt fí
m
frá
/7 m á n fr ó
jan.
Hringið eða skrifið
eftir stundaskrá
forstander Sv. Erik Bjerre
tlf. 03-268700 - 3400 Hillerod
Þessi bátur er til sölu
ef viðunandi boð fæst. Báturinn er af gerðinni Shetland 536. Skrokkur
bátsins er tvöfaldur með polyutheran á milli laga (ósökkvanlegur). í
bátnum er talstöð, útvarp, hiti, eldunaraðstaða og allir nauðsynlegir
mælar. 75 hp. Chrysler-vél er í bátnum og einnig fylgir vagn af
Falcon-gerð. Ástana og útlit nánast sem nýtt. Einn tiaustasti bátur
flotans. Uppl. í síma 31 206 í dag og næstu daga.
Hafið þér ónæðí
af flugum?
Við kunnum ráð
við því
Shelltox
FLUGIMA'
FÆLAIM
Á afgreiðslustöðum engar fiugur i því herbergi
okkar seljum við næstu 3 mánuðina.
SHELL flugnafæluspjaldið. Spjaldið er lyktarlaust,
Spjaldið er sett upp og og fæst í tveim stærðum.
Olíufélagið Skeljungur hf
Shell