Morgunblaðið - 09.07.1977, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JULÍ 1977
19
Svart útlit
í Rhódesíu
mm
Tveir sovézkir landhelgis-
brjótar fyrir sænskum rétti
Þetta eru sovézku togararnir
tveir, sem teknir voru ad veid-
um innan sænsku fiskveiði-
markanna á Evstrasalti á
þriðjudaginn var. Skipstjórarn-
ir neituðu að hverfa frá borði
þar til þeir hefðu fengið til
þess leyfi hjá sovézka sendiráðinu, en við komuna til Landskrona, þar sem mál þeirra er til meðferðar,
voru afli og veiðarfæri gerð upptæk. Samanlagður afli skipanna var aðeins hálft tonn. Lfklega verður
skipstjórunum gefinn kostur á að taka veiðarfærin með sér úr höfn, með því að setja tryggingu.
Þetta er f fyrsta sinn sem sænska landhelgisgæzlan tekur sovézka togara innan markanna.
Spánn:
Efnahagsáætlun lögð fyrir
stjórnina á mánudaginn
Salisburv — 8. júlf — Reuter.
EKKI ER búizt við miklum
árangri af síðustu tilraun-
Pakistan:
Herinn
kom i veg
fyrir vopn-
uð átök
Islamabad, 8. júlf—Reuter.
VALDATAKA hersins f Pakistan
kom f veg fyrir vopnuð átök á
milli stjórnmálaflokkanna, sam-
kvæmt heimildum, nátengdum
hernum. Samkvæmt þeim hafa
flutningabflar, hlaðnir vopnum,
sézt aka til stærri borga, og um
það bil 300 vélbyssur höfðu verið
fjarlægðar úr vopnabúri hersins,
til dreifingar á meðal stuðnings-
manna þjóðarflokksins, flokks
Ali Bhutto, fyrrum forsætisráð-
herra, f Lahore.
Herma heimildir innan Þjóðar-
bandalagsins, sem er bandaleg
níu stjórnarandstöðuflokka, að
áform hafi verið uppi um að berja
andstöðu þeirra niður með vopna-
valdi. Mjög óróasamt var orðið
síðustu vikur í Lahore, og sló oft í
brýnu milli stuðningsmanna
stjórnmálaaflanna tveggja og
beittu menn þá gjarnan hnífum.
Valdamesti maður herforingja-
stjórnarinnar, Zia-ul-Haque hers-
höfðingi, sagði f dag að valdataka
hersins hefði orðið til þess að ná
Bhutto ofan úr skýjunum og nið-
ur á jörðina. I ræðu, sem hann
hélt í musteri í Rawalpindi, itrek-
aði Haque, að herinn ætlaði sér
aðeins 90 daga til að koma á eðii-
legu ástandi í landinu og afhenda
síðan stjórnina lýðræðislega kjör-
inni ríkisstjórn.
Ali Bhutto og helztu leiðtogar
flokks hans eru enn í stofufang-
elsi í sumarbústað hans nálægt
Islamabad.
Spánskir
svara
fyrir sig
Madrid 8. júlf — Reuter.
SPANSKI kommúnistaflokkur-
inn svaraði f dag fyrir sig, með
þvf að birta grein til varnar leið-
toga sfnum, Santiago Carillo, sem
hefur sætt harðri gagnrýni Sovét-
manna fyrir kenningar sfnar um
evrópkommúnisma.
Manúel Azcarate, einn af helztu
kannimönnum spánska kommún-
istaflokksins og meðlimur fram-
kvæmdanefndar hans, sagði að
gagnrýni Sovétmanna sýndi, að
stalinisminn væri enn lifandi f
Sovétrfkjunum, og að f Moskvu
sæju menn raunveruleikann með
„forsögulegum" augum.
Gagnrýni sovéska utanrikis-
málaritsins „Nýir tímar“ á bók
Carillos, „Evrópukommúnisminn
og ríkið“, kallaði á hörð andsvör
frá kommúnistaflokknum á
Spáni, Italíu og i Frakklandi, sem
litu á hana sem árás á evró-
kommúnismastefnur sinar.
í þessari viku neita „Nýir tim-
ar“ að gagnrýni blaðsins hafi ver-
ið beint að einhverjum einstökum
kommúnistaflokki.
Azcarate sagði að ekki færi á
milli mála að gagnrýni „Nýrra
tíma“ beindist að spánska
kommúnistaflokknum og öðrum
vestrænum flokkum, sem haldið
hafa fram evrókommúniskum
sjónarmiðum. En vopn Sovét-
manna hefðu snúizt í höndum
þeirra og nú nyti Carillo stuðn-
ings fleiri kommúnista á Spáni en
nokkru sinni fyrr.
um Breta og Bandarfkja-
manna til að koma á samn-
ingum um meirihluta-
stjórn f Rhódesfu á næsta
ári.
Brezkir og bandarfskir
erindrekar eru nú í Salis-
bury þar sem þeir ræða við
fulltrúa stjórnar Ian
Smiths, en þangað komu
þeir frá Zambfu, þar sem
þeir ræddu við fulltrúa
stjórnarinnar þar, svo og
blökkumannaleiðtogans
Joshua Nkomo og Robert
Mugabe. Nkomo krefst
þess að Þjóðernisfylking-
unni, sem hann veitir for-
stöðu, verði falin myndun
bráðabirgðastjórnar og
fengin yfirráð yfir öryggis-
sveitum landsins, en Smith
segir aftur á móti, að fylk-
ingin sé „mesti óvinur
þjóðarinnar“ og komi ekki
til greina að ganga að slfk-
um kröfum.
Það er verkefni sendinefnd-
anna frá Bretlandi og Bandarikj-
unum að reyna að fá þessa aðila
til að samræma sjónarmið sín, en
ákaflega litlar líkur eru á að tak-
ast megi að finna slikan umræðu-
grundvöll við núverandi aðstæð-
ur.
Höfðu nefndirnar meðferðis
til Salisbury drög að stjórnarskrá,
þar sem meðal annars er kveðið á
um mannréttindi, lýðræðislega
kjörna ríkisstjórn og skipan
dómsmála.
Madrid — 8. júlí. Reuter.
ADOLFO Suarez, forsætis-
ráðherra Spánar, átti í dag
fund með þeim ráðherrum
sfnum, er fara með efna-
hags- viðskipta- og ferða-
mál, um efnahagsaðgerðir
og viðnám gegn verðbólgu,
en stefnt er að því að
leggja fram áætlun um
lausn þessara mála á rfkis-
stjórnarfundi á mánudag-
inn, að því er forsvarsmað-
ur stjórnarinnar skýrði frá
í dag.
1 borginni Valladolid á
Norður-Spáni hafa sorp-
hreinsunarmenn verið f
verkfalli í viku, og hefur
þar komið til átaka milli
verkfallsmanna og lög-
reglu, sem unnið hefur að
þvf að fjarlægja rusl á al-
mannafæri.
Lögreglan í Valencia notaði i
gær gúmmíkúlur og reyksprengj-
ur til að dreifa um þúsund manns,
sem kröfðust þess að hin ríkis-
reknu verkalýðsfélög yrðu leyst
upp, en þegar frjáls starfsemi
verkalýðsfélaga var leyfð i apríl-
mánuði s.l. voru engar ráðstafanir
gerðar varðandi ríkisreknu félög-
in, sem Franco stofnaði á sinum
tíma.
Skotið á
Rhódesíu
Salisbury 8. júli—Reuler
TVÆR herstöðvar Rhódesfuhers
urðu fyrir árásum með sprcngju-
vörpum og vélbyssum f fyrrinótt,
samkvæmt upplýsingum her-
stjórnar Rhódesfu. t tilkynningu
frá herstjórninni segir, að um
klukkan tfu f gærkvöldi hafi verið
ráðizt á herstöðina f Chirundi, og
kom skothrfðin yfir landamærin
frá Zambfu.
Þá var skotió á landamæravarð-
stöð skömmu seinna, í það sinn
frá Mózambique. Ekki hefur verið
skýrt frá neinu mannfalli.
Rhódesiumenn svöruðu skothrió-
inni f bæði skiptin. Ekki var skýrt
frá því hvort herir þessara landa
eða rhódesiskir skæruliðar gerðu
árásirnar.
Jámbraut-
arslys
í Svíþjóð
Uddevalla, Svíþjóð —8. júlf—
Reuter
FARÞEGALEST og vöru-
flutningalest rákust á rétt
hjá Uddevalla í dag með
þeim afleiðingum að tveir
menn létu lífið. Enn er
ekki vitað hvernig á því
stóð, að lestirnar voru á
sama spori.
Areksturinn átti sér stað árla
morguns og var aðeins einn far-
þegi í farþegalestinni. Slapp hann
ómeiddur, en tveir járnbrautar-
starfsmenn voru fluttir í sjúkra-
hús. Svo illa voru lestirnar farnar
eftir áreksturinn að sex klukku-
stundir tók að losa lik mannanna
tveggja úr brakinu.
Flugturn til Concorde: „New York gefur ykkur leyfi til að lenda núna.
Concorde-bannið framlengt
New York — 7. júlí. Reuter.
FLUGVALLAYFIRVÖLD f
New York og New Jersey
ákváðu f dag, að bann við lend-
ingum Concorde-þotunnar yrði
I gildi, þar til niðurstaða frek-
ari rannsókna á afleiðingum
hávaðans frá hinu hljóðfráa
flugfari liggur fyrir. Þá hafa
flugumferðarst jórar á Kenn-
edy-flugvelli sent frá sér yfir-
lýsingu sama efnis.
Forsvarsmaður flugvallar-
yfirvalda gaf f skyn f dag, að
endanlegrar ákvörðunar varð-
andi lendingarleyfi Concorde
væri vart að vænta fyrr en 1
september, en til hliðsjónar við
þá ákvörðun yrðu hafðar upp-
lýsingar um lendingar á Dulles-
flugvelli við Washington, sem
enn væru ekki tiltækar. Þotur
af Concorde-gerð hafa lent þar
reglulega f tilraunaskyni frá
þvf f maf f fyrra.