Morgunblaðið - 09.07.1977, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JULl 1977
25
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Atvinna fyrir stúlku í
Svíþjóð
Nú þegar islenska barnfóstr-
an okkar hættir óskum við
eftir annarri frá 1. sept. '77
sem vildi vera hjá okkur í eitt
ár. Við borgum ferðina til
Stockholm. þar sem við
búum. Skrifið svar á
íslensku. sænsku eða ensku,
með heimilisfangi og síma.
Lars og Inger Nilsson
Tullinge Strand 30 B
1 4600 Tullinge
Sverige.
Takið eftir
Hjón óska eftir aukastarfi.
Margt kemur til greina. Hef
bil til umráða. Uppl. sendist
Mbl. fyrir 13. þ.m. merkt:
Hjón — 61 19.
Járnsmið vantar
að komast í starf þar sem
mikil næturvinna er í fram-
boði í Reykjavík. Upplýsingar
í síma: 75054 eftir kl. 7.00.
ouar
Til sölu
MERCEDES BENS 250 árg.
'71 rauður. Upphaflega flutt-
ur nýr til landsins. Automatic
drive, powerstýring. í fyrsta
flokks standi. Uppl. gefur
Þorgrímur Þorgrímsson í
sima 1 7835.
Vörubíll
Volvo 61 góðar sturtur, góð-
ur pallur. Verð aðeins 400
þús. Góð dekk. Uppl. í sima
92-6519.
Munið sérverzlunina
með ódýran fatnað.
Verðlistinn Laugarnesvegi
82, s. 31330.
Steypum bílastæði
leggjum gangstéttir og
girðum lóðir. Sími 81081
— 74203.
Bamford múgavél
nýendurbyggð 6 hjóla til
sölu Brautarholt, Kjalarnesi.
>; I r. I1-, I.VRI t RÐIR
Sunnud. 10.7. kl. 13
Skálafell ---- Hellisheiði.
Fararstj. Haraldur Jóhanns-
son. Verð 800 kr. frítt f. börn
m. fullorðnum. Farið frá
B.S.I., vestanverðu.
Sumarleyfisferðir:
1. 15.—21. júlí Skaga-
fjörður með Hallgrími Jónas-
syni.
2. 18. — 26. júli Furufjörður
með Kristjáni M. Baldurs-
syni. Verð 1 5700 kr.
3. 14.—21. júlí Grænland
með Sólveigu Kristjáns-
dóttur.
Munið Noregsferðina.
Upplýsingar o'og'arseðlar á
skrifst. Lækjarg. 6, simi
14606
Útivist.
SIMAR, 11798 OG 19533.
Laugardagur 9. júlí kl.
13.00
Esjuganga nr. 14.
Gengið verður frá melnum
austan við Esjuberg. Þátttak-
endur sem koma á eigin
bílum þangað, borga 1 00 kr.
skráningarskjal, en þeir sem
fara með bílnum frá Um-
ferðamiðstöðinni greiða kr.
800.— Allir fá viður-
kenningarskjal að göngu
lokinni. Fararstjóri: Einar H.
Kristjánsson.
Sunnudagur 10. júli
Kl. 09.30 Gönguferð
á Hvalfell (848 m) og að
Glym, hæsta fossi landsins.
Fararstjóri: Jörundur
Guðmundsson. Verð kr.
1 800 gr. v/bílinn.
Kl. 13.00. Gönguferð
um Breiðdal að Kald-
árseli. Létt ganga. Farar-
stjóri: Þorgeir Jóelsson. Verð
kr. 1000 gr. v/bilinn. Farið
frá Umferðarmiðstöðinni að
austanverðu.
Ferðafélag íslands.
I.
KFUM - KFUK
Almenn samkoma i húsi
félaganna við Amtmannsstig
2B, sunnudagskvöld kl.
20.30. Björgvin Jörgensen
talar. Allir velkomnir.
Hjálpræðisherinn
Sunnudag kl. 1 1.00 Helgun-
arsamkoma kl. 20.30 Hjálp-
ræðissamkoma. Brigader
Ingibjörg talar.
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
Fiskiskip
Höfum til sölu 59 rúml. eikarbát Smíðað-
ur 1 957, endurbyggður 1 973, með 425
h.a. Caterpillarvél frá 1973.
SKIPASALA-SKIPALEIGA,
JÓNAS HARALDSSON, LÖGFR. SÍMI: 29500
Saab-eigendur
Saab verkstæðið Skeifunni 1 1 verður
lokað vegna sumarleyfa frá og með 18.
júlí til 16. ágúst.
Garðar Eyland.
Vinningur í happdrætti
Blindrafélagsins
kom upp á miða númer
11633
en EKKI 1 1653 eins og auglýst var í
blaðinu í gær.
B/indrafé/agid.
T résmíðameistarar
— Trésmiðir
Vegna sumarleyfa verða mælingarstofur
félaganna lokaðar 18 júlí til 2. ágúst.
Mfiistarafé/ag húsasmiða.
Trésmiðafélag Reykjavíkur.
húsnæöi öskast
Skrifstofuhúsnæði
Bókaforlag óskar að lelgja eða kaupa húsnæði, ca. 100—200
ferm., eða stærra — með lageraðstöðu og góðum aðkeyrslu-
möguleikum. Húsnæðið, sem að mestu er ætlað undir skrif-
stofur, má vera óinnréttað, eða jafnvel einungis tilbúið undir
tréverk. Vinsaml. sendið upplýsingar afgr. Mbl. merktar:
„Skrifstofuhúsnæði — 6116"
— Hjálparsjóður
æskufólks
Framhald af bls. 23
sinn I júní 1975 og skipti það með
sér verkum þannig, að Ingi Krist-
insson varð formaður, Eiríkur
Stefánsson ritari og séra Guðjón
gjaldkeri.
Það liggur ljóst fyrir, að ekki
gat verið um að ræða verulega
starfsemi sjóðsins, meðan svo var
háttað um stjórn hans sem hér
hefur verið greint frá. Og svo,
þegar þriggja manna stjórn er
loks mynduð, eru þeir allir nýlið-
ar og litt kunnugir starfsviðinu.
Olli það erfiðleikum. Er þessa get-
ið til skýringar á því, að ýmislegt
hefur ekki gengið svo liðlega sem
æskilegt hefði verið.
Enn skeði það, að séra Guðjón
fluttist burt af landinu á siðast
liðnu sumri. Leið þá enn langur
tími, þar til annar kom í hans
stað, en hann er nú fenginn og er
séra Guðmundur Óskar Ólafsson,
prestur í Nesprestakalli.
Þess höfum við stjórnarmenn
orðið varir, að sumir vinir
Magnúsar heitins, einkum út um
land, hafa fundið breytingu, sem
þeim féll ekki. Nú kom enginn i
fjáröflunarferð fyrir Hjálparsjóð
æskufólks. Ekki mundi hann
lengi verða starfi sinu vaxinn, ef
ekki væri reynt að auka hann og
efla. Þetta var okkur i stjórn
sjóðsins ljóst, en það lá einnig í
augum uppi, að fjáröflunarað-
ferðir Magnúsar voru engum okk-
ar færar, og bar margt til, þótt
ekki verði hér greint. Hins vegar
var litazt um eftir nýjum leiðum,
en þá gerðist það, sem öllum kom
á óvænt að Hjálparsjóður æsku-
fólks hlaut arf. Mun verðmæti
hans vera milli 11 og 12 millj. kr.
Sá, sem arfleiddi, var einhleypur
maður að nafni Guðmundur Guð-
jónsson. Með arfleiðsluskrá hafði
hann ánafnað Hjálparsjóði æsku-
fólks 40% af eign sinni. Bókfærð
eign sjóðsins er nú rúml. 24 millj.
kr. Má það teljast allgott sem
stendur, en nú eru verðbólgutím-
ar og mun því vandséð, hvort
tekst að láta sjóðinn halda fullu
gildi jafnframt þvi sem hann ræk-
ir skyldur sínar samkvæmt skipu-
lagsskrá.
Ekki eru likur til þess að aítur
verði tekin upp fjáröflunaraðferð
Magnúsar með ferðum viðs vegar
um landið, en Hjálparsjóður
æskufólks þiggur fúslega og með
þökkum fjárhagsaðstoð frá öllum
þeim, sem vilja honum vel og
meta hjálparstörf hans, hvort
heldur það eru gjafir í sérstöku
tilefni, áheit eða í einhverju öðru
formi. Má geta þess hér, að stund-
um hafa borizt gjafir alveg óvænt.
Var hin stærsta frá 10 ára stúd-
entum M.R. vorið 1974. Nam sú
gjöf kr. 320 þús.
Það er rétt að láta þess getið
hér, að Magnús lét eitt sinn gera
minningarkort fyrir sjóðinn og
dreifði þeim viðs vegar um land-
ið, voru það einkum bókaverzlan-
ir, sem fengu þau til sölu. Enginn
listi hefur fundizt yfir það, hvar
þessi kort hafa lent og mun ekki
hafa borizt uppgjör eða skilagrein
frá þeim — ekki öllum a.m.k.
Væri vel, ef úr því yrði bætt fyrr
en síðar.
Siðast liðin tvö ár hafa einkum
borizt beiðnir um aðstoð í sam-
bandi við skólanám unglinga, þar
sem einhverjir verulegir erfið-
leikar hafa verið i vegi. Höfum
við vissu fyrir því, að sú hjálp,
sem þar hefur verið veitt, hefur í
mörgum tilfellum skilað góðum
árangri, ef svo má að orði komast.
En aðstoð i mörgum öðrum tilfell-
um kentur einnig til greina.
Eitt sinn, er Magnús var spurð-
ur um tilgang sjóðsins, svaraði
hann:
,,Þvi miður eru til heimili hér í
Reykjavik og viðar á landinu, sem
ekki eru fær um að rækja uppeld-
ishlutverk sitt eða skyldur — eru
raunar ekki heimili nema að
nafninu til. Þar er þörf björgun-
arstarfs”.
Ekki er ætlunin að Hjálparsjóð-
ur æskufólks komi i stað lögboð-
innar, opinberrar aðstoðar, held-
ur þar sem slíka aðstoð er ekki að
fá eða hún fullnægir ekki. Hins
vegar má ekki líta svo á, að þess-
um sjóði beri skylda til að gjalda
jákvæði við hverri beiðni um að-
stoð. I hverju einstöku tilfelli
verður stjórnin að meta kringum-
stæður og kemur þar margt til
greina.
Umsóknir um styrk úr þessum
sjóði þurfa að berast stjórninni
með nokkrum fyrirvara og þeim
þarf að fylgja umsögn og með-
mæli barnaverndarnefnda,
félagsráðgjafa, skólastjóra eða
viðkomandi prests. Oft eru það
þessir aðilar, sem senda umsókn-
irnar ásamt með nánari skýring-
um. Enda er nauðsynlegt að gera
ljósa grein fyrir þörf þess, er æsk-
ir aðstoðar og ástæðum öllum.
Fræðslustjórum út um landið hef-
ur verið kynnt starfsemi sjóðsins
og getur i mörgum tilfellum verið
heppilegt að hafa samband við þá.
I reikningum sjóðsins fyrir s.l.
ár eru bókfærð hjálparframlög til
ýmissa kr. 477 þús. en áreiðanlega
verður það drjúgum meira á
þessu ári.
Að lokum skal þess getið, að
bókfærsla Hjálparsjóðs æsku-
fólks er falin löggiltum endur-
skoðanda. Þá vil ég þakka öllum,
sem hafa látið sér annt um þessa
sérstæðu stofnun, gefið fé eða
veitt margháttaða fyrirgreiðslu
einkum i sambandi við ferðir
Magnúsar Sigurðssonar, hins sér-
stæða og fórnfúsa manns, sem
fyrst sá Hjálparsjóð æskufólks i
hugsýn, en hafði þrek og þolin-
mæði til að hrinda þeirri hugsjón
i framkvæmd.
F.h. stjórnar Hjálparsjóðs æsku-
fólks.
Eiríkur Stefánsson,
Karfavogi 32. RvCk.
— Greinargerð
I i amhalil af hls 29
1. Ragnar Júllusson formaður Út-
gerðarráðs Reykjavikurborgar lagði
fram skriflega skýrslu um ferð sina
með togaranum Bjarna Benediktss til
Þýskalands.
Skýrslan var rædd itarlega.
Páll Guðmundsson upplýsti að það
sem eftir honum var haft í dagblaðinu
Timanum 28 og 29. júnf s I. væri ekki
rétt eftir sér haft
Ragnar Júliusson óskaði bókað:
Ég fagna þvi að Páll Guðmundsson
ypplýsti á fundinum að það sem eftir
honum er haft i Timanum 28 og 29
júni er ekki rétt eftir haft Ég harma að
leiðrétting hafi ekki verið birt Von mín
er sú að Tíminn sjái sér fært að birta
hið rétta á forsíðu blaðsins
2 Lögð fram skýrsla vegna ferðar
Ragnars Júliussonar og Sigurjóns
Péturssonar til Noregs.
Fleira ekki tekið fyrir Fundargerðin
lesin upp og samþykkt
Fundi slitið kl 14
Ragnar Júlíusson
Einar Thoroddsen
Gunnar Hafsteinsson
Páll Guðmundsson
Sigurjón Pétursson
Björgvin Guðmundsson
Gústaf B. Einarsson.
— Minning
Helga
Framhald af bls. 23
það fljótlega gleymt og grafið, og
ný visa á hraðbergi.
Guðmund mann sinn missti
Helga fyrir nokkrum árum, eftir
erfiða sjúkdómslegu, og var það
henni mikið áfall, svo og öðrum,
sem hans höfðu notið.
Ég vil nota þetta tækifæri til að
þakka þessarri heiðurskonu það,
sem hún hefur gefið mér unguni
af hug sinum og hjarta. Kæra
þökk frænka min, og megi ævi-
kvöld þitt verða milt eins og vor-
kvöldin í Melasveitinni.
Hafsteinn Snæland.