Morgunblaðið - 09.07.1977, Síða 26
26
FJOKÐUNGSMÓT austfirzkra
hcstamanna var, eins og áður hef-
ur komið fram f biaðinu, haldið á
mðtssvæði Hestamannafélagsins
Hornfirðings um sfðustu helgi.
Hefur þegar verið greint frá
helztu úrslitum á mðtinu en hér á
eftir verður gerð nánari grein fyr-
ir sýningu og dðmum kynbðta-
hrossa og gæðinga. Allt bar mðta-
haldið keim af einstöku slagviðri,
sem gekk yfir á laugardag, og
nutu hvorki menn né hestar hins
ágæta mðtssvæðis sem skyldi af
þeim sökum. Undirritaður varð
fyrir nokkrum vonbrigðum með
hross þau, er sýnd voru á mðtinu,
bæði vegna takmarkaðrar þátt-
töku f vissum greinum og nánast
ekkert var um kostagripi. Þarna
kann þó leiðinleg veðrátta yfir
mðtsdagana að hafa ráðið ein-
hverju, en það hefði sjálfsagt
ekki bætt árangurinn til muna þð
sðl hefði skinið f heiði.
A mótinu tók Hestamannafélag-
ið Hornfirðingur i notkun nýtt
mótssvæði og er það i Iandi
Fornustekkja, skammt innan við
Höfn. Þarna hafa hornfirzkir
hestamenn komið upp 800 metra
langri, beinni hlaupabraut auk
sýningarvallar. Á svæðinu eru
einnig í byggingu hesthús, sem
hýsa eiga hesta félagsmanna, og
hafa tvö þeirra þegar risið og það
þriðja er í byggingu. Vígsla vall-
arins fór fram á sunnudag og
gerði það séra Gylfi Jónsson,
sóknarprestur þeirra Hornfirð-
inga, en við það tækifæri fluttu
einnig ávörp Sveinbjörn Dag-
finnsson, ráðuneytisstjóri, Egill
Jónsson, ráðunautur, fyrir hönd
Búnaðarsambands Austur-
Skaftafellssýslu og Albert
Jóhannsson, formaður Landssam-
bands hestamannafélaga. Afhenti
Egill Jónsson félaginu 500 þús-
und krónur að gjöf frá Búnaðar-
sambandi A-Skaftafellssýslu og
Kaupfélagi Austur-
Skaftafellssýslu og skal þeim var-
ið til að rita sögu hornfirzka
hrossastofnsins. Astæða er til að
óska hornfirzkum hestamönnum
til hamingju með þetta nýja mót-
svæði, sem þeir hafa byggt upp á
skömmum tima.
Fátækleg
kynbótasýning
Ýmsum kunna að þykja það
stór orð, þegar sagt er að kynbóta-
sýning mótsins hafi verið fátæk-
leg en það var hún hvað stóðhest-
ana áhrærir. Heldur komu hryss-
urnar betur út, þó engar væru þar
i hópi úrvalshryssa. Vakti það sér-
staka undrun hversu lítið fór fyr-
ir góðhrossum af hornfirzkum
stofni, enda lét Þorkell Bjarnason
hrossaræktarráðunautur þau orð
falla í viðtali, sem birtist síðar í
grein þessari, að Hornfirðingar
væru í kyrrstöðu og þar þyrfti að
koma til nýtt blóð. Hryssur af
Héraði voru helzti vaxtarbroddur-
inn í ræktuninni á mótinu.
Aðeins þrír stóðhestar voru
sýndir á mótinu, einn með af-
kvæmum og tveir í flokki 3ja til 5
vetra. En til samanburðar má
geta þess að á síðasta fjórðungs-
móti í Austfirðingafjórðungi, á
Iðavöllum 1973, voru sýndir 11
stóðhestar, 1 með afkvæmum og
10 í flokki 3 til 5 vetra. Övenju-
margar hryssur voru sýndar með
afkvæmum á þessu móti eða 21.
Tuttugu hryssur voru sýndar í
flokki hryssa 6 vetra og eldri og
14 4ra til 5 vetra.
Sóðhesturinn H-Blesi, 827, frá
Skorrastað i Norðfirði var sýndur
með afkvæmum og hlaut 2. verð-
laun fyrir afkvæmi en 7,50 i eink-
unn. H-Blesi er sonarsonur
Hrafns 583, frá Arnanesi, undan
Ulfi frá Skálateigi í Norðfirði og
Glettu frá Borgarfelli í Skaga-
firði. Afkvæmi H-Blesa eru ung,
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JULl 1977
fcessir voru dæmdir sjö bestu klárhestar með tölti, talið frá vinstri: Náttfari, Sigrúnar Eirfksdóttur, knapi Reynir Aðalsteinsson, Glói, Olafs
Jónssonar, knapi Þorsteinn Egilsson, Sprækur, Guðrúnar Gunnarsdóttur, knapi Ingimar Sveinsson, Kári, Sigurðar Sveinbjörnssonar, knapi
Kagnar Hinriksson, Haukur, Hafdfsar Gunnarsdóttur, knapi Benedikt Þorbjörnsson, Randver, Armanns Guðmundssonar, og Ófeigur, Magnús-
ar Guðjónssonar, knapi Jón Steinbjörnsson.
Sjö bestu alhliða gæðingarnir á Fjórðungsmótinu að Fornustekkjum, talið frá vinstri: Skúmur, Sigfinns
Þorsteinssonar, Sprettur, Ingimars Sveinssonar, Glói, Harðar Valdimarssonar, knapi Reynir Aðalsteins-
son, Valur, Benedekts Þorbjörnssonar, Austri, Atla Vilbergssonar, Léttir, Björns Hallgrímssonar, knapi
Ragnar Hinriksson, og Faxi.
aðaleinkunn. Kolskeggur er und-
an Hrafni, 583, frá Árnanesi og
Hrafnhildi frá Hafnarnesi en hún
er útaf Skugga, 201, frá Bjarna-
nesi og Blakk, 129, frá Árnanesi.
Hrafnhildur var sýnd með af-
kvæmum á mótinu og hlaut 2.
verðlaun. Þriggja vetra hesturinn
var Kjarni frá Egilsstöðum, jarp-
ur, eign Armanns Guðmundsson-
ar á Egilsstöðum. Kjarni fékk
einkunnina 7,50 fyrir byggingu
og 7,60 fyrir hæfileika og 7,55 í
aðaleinkunn. Faðir Kjarna er
Þjálfi, Armanns Guðmundssonar,
undan Gusti frá Finnsstöðum.
Móðir Kjarna er alsystir Kol-
skeggs, 901, frá Hafnarnesi en
það er Hrefna, 4497, frá Hafnar-
nesi, undan Hrafni, 583, og Hrafn-
hildi frá Hafnarnesi.
Eins og einkunnir stóðhestanna
bera með sér voru hér ekki á
ferðinni áberandi getuhestar en
báðir voru þeir klárhestar. Það
hlýtur að vera nokkurt undrunar-
efni að hvorki koma fram fleiri
stóðhestar á móti, sem haldið er i
Hornafirði og að þeir, sem sýndir
voru, skuli ekki vera betri en
raun ber vitni.
Fjórðungsmót austfirzkra hestamanna:
Eru dagar homfirzku
góðhrossanna á enda?
þau elstu 6 vetra en flest 4ra og 5
vetra, enda hesturinn sjálfur að-
eins 9 vetra. H-BIesi hefur verið
notaður á litlu svæði og þær
hryssur, sem leiddar hafa verið
undir hann, margar hæfileikalitl-
ar og ekki merkilegar að bygg-
ingu. Áhrif H-Blesa hafa því verið
jákvæð að mörgu leyti. Stærð af-
kvæmanna er góð, þau eru frið og
útlit þeirra gott, einkum er háls-
bygging fínleg og falleg og reising
af þeim sökum góð. Afturbygging
afkvæmanna er stundum full
grönn og ekki veigamikil. Vilji er
fyrir hendi I hrossunum, klár-
gangur er höfuðgangur, brokkið
rúmt og nokkurt tölt með léttum,
heldur góðum fótaburði. Skeið er
ekkert. Hvatti Þorkell Bjarnason
hrossaræktarráðu autur til þess
að H-Blesi yrði notaður víðar en í
Norðfirði á næstunni, þannig að
tækifæri gæfist til að reyna betur
á hæfileika hans. H-Blesi er
dreyrrauður, blesóttur og eigandi
hans er Þórður Júlíusson, Skorra-
stað.
Tveir stóðhestar voru sýndir
sem einstaklingar, annar 5 vetra
og hinn 3 vetra. Sá eldri var Kol-
skeggur, 901, frá Hafnarnesi
brúnn eign Þrúðmars Sigurðsson-
ar, Miðfelli í Nesjum. Kolskeggur
fékk einkunnina 7,70 fyrir bygg-
ingu, 7,32 fyrir hæfileika og 7,511
Óvenjumargar
hryssur
með afkvæmum
sýndar
Efst I flokki hryssa með af-
kvæmum varð Mön frá Flatey,
eign Bergs Þorleifssonar, Flatey
og hlaut hún fyrstu verðlaun og
einkunnina 8,04. Mön er undan
Eldi, 538, frá Fornustekkjum og
Bleik, 2904, frá Flatey, sem er
undan Nökkva, 260, frá Hólmi.
Meðal afkvæma Manar eru
hlaupahesturinn Þjálfi, Sveins K.
Sveinssonar og stóðhesturinn
Skór, Sigurbjörns Eiríkssonar,
Stóra-Hofi, en einnig var sýndur
með hryssunni bleikur tveggja
vetra foli óvanaður. Var folinn,
sem er ljósbleikur, allálitlegur
nema hvað hann var helzt til of
þykkur að framan. I dómsorðum
Manar segir að hún sé góð kyn-
bótahryssa og synir hennar séu
miklir hæfileikahestar með öllum
gangi.
Stjarna frá Arnanesi, eign Guð-
jóns Jónssonar, Arnanesi, var
dæmd önnur bezta afkvæma-
hryssan og hlaut 1. verðlaun og
einkunnina 7,88. Stjarna er und-
an Jarpi, 474, frá Hólum en i
móðurætt er hún útaf Brjáni, 144,
frá Dilksnesi. Þriðja varð Skjóna
frá Jaðri, eign Guðbjargar Þóris-
dóttur með einkunnina 7,83 og 1.
Tveir stóðhestar voru sýndir sem einstaklingar á mótinu. Sá fremri er Kjarni frá Egilsstöðum, eigandi og
knapi er Armann Guðmundsson, en hinn er Kolskeggur, Þrúðmars Sigursðsonar, knapi Benedikt
Þorbjörnsson.