Morgunblaðið - 09.07.1977, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JULI 1977
37
Svo mörg voru þau orð um
orkumátin og virkjanirnar. Það
hafa sjálfsagt margir velt þeirri
spurningu fyrir sér hvernig það
sé f Krlsuvík, hvort ekki megi
nýta alla þessa orku, sem þar
virðist vera og það væri ekki úr
vegi að fá einhvern til að rifja
upp hvernig þeim málum er
háttað þar, hvort það væri raun-
hæft og hvað það væri sem helzt
stæði í vegi fyrir þvf.
En frá orkumálum er horfið að
húsbyggingu tannlæknadeildar
háskólans og varpar bréfritari
hér að neðan fram spurningum
um það:
0 Hvað kostar
að flytja
götuna?
„Nýlega var frá því skýrt
opinberlega, að framkvæmdir
væru hafnar við hús tannlækna-
deildar háskólans, sem rfsa á
neðan við Hringbraut á móts við
Landsspftalann. Húsið verður að
flatarmáli tæpir 11 þúsund fer-
metrar. Þá er og ráðgert að færa
Hringbrautina niður að tann-
læknahúsinu. Þessar fram-
kvæmdir eiga að taka 6—7 ár.
I tilefni af þessari fregn væri
ekki óeðlilegt að almenningur
yrði upplýstur um eftirfarandi
m.a.:
1. Hvaða aðilar tóku ákvörðun
um þessar framkvæmdir?
2. Hver er áætlaður kostnaður
við þessar framkvæmdir og
hvernig skiptist hann milli rfkis
og borgar? Hver er áætlaður
kostnaður vegna húsbyggingar-
innar annars vegar og flutnings
götunnar hins vegar?
Tannleysingi.“
# Svar til
Ævars Kvaran:
„I sambandi við athuga-
semd Ævars Kvarans við bréfi
mfnu þann 28. júnf s.l. langar mig
að svara honum f eitt skipti fyrir
öll, því ekki er útskýring hans öll
f samræmi og þvf illa brynvarin
nýjum árásum. En fyrst vildi ég
taka fram, að í bréfi mfnu þann
28. beindi ég ekki aðeins orðum
mfnum tif félagsmanna anda-
trúarinnar, heldur einnig til
almennings sem aðhyllist
kenningar þær sem Kvaran lýsti
svo einkar vel.
Það er einnig annað atriði.
Kvaran telur mig ekki vita um
það sem ég fjallaði um, en það er
hann sem hefur engan vitnisburð
um það. Ég hefi lesið og kynnt
mér mikið andatrúna en Biblfuna
hef ég lfka lesið og þar hef ég lært
hvað andatrúin er í raun og veru.
1 útskýringum Kvarans kemur
fram að andatrúarmenn afneita
frelsara sfnum, Jesú, og segja að
hver sé sinn frelsari. Biblían
segir og svarar þannig Ævari vel:
Hver sem afneitar syninum
afneitar mér, þe.a.s. Guði. Þess
vegna segir Ævar þá óbeint: Við
trúum ekki á Guð. Ég er ekki með
mfnar kenningar hér á blaði,
heldur kenningar skapara okkar
og þá tel ég mig hafa sterkari
grundvöll en andatrúarmenn, því
Guð sagði: Framar ber að hlýða
Guði en mönnum.
Viljið þér, Kvaran þvf útskýra
eða gera atlögu að orði Guðs sem
segir: Eigi skal heldur nokkur
finnast hjá þér... eða sá er fari
með galdur eða spár eða fjöl-
kynngi eða töframaður eða
spásagnamaður eða sá er leitar
frétta af framliðnum, þvf að hver
er slfkt gjörir er Guði andstyggi-
legur, 5. Mós. 18. 10—13. Einnig
er gott að athuga þessa ritningar-
staði: Efesusbr. 6. 10—16, Tímót.
3. 16—17, og Jesaja 8. 19—21. Það
væri skrftið ef verk smiðsins
segðu: Vér erum ekki af honum
gerð.
Einar Ingvi Magnússon."
Þessir hringdu . . .
% Um þroskaþjálfa
N.N.: hafði samband við Vel-
vakanda nýlega og vildi fjalla
aðeins um málefni þroskaheftra
barna, og nefndi m.a. að skortur
væri svo mikill á hælisvist fyrir
vangefin börn og þroskaheft, að
foreldrum þeirra þætti stundum
erfitt að koma með ábendingar
eða umkvartanir af ótta við að
barnið myndi missa pláss sitt þar.
Vildi þessi N.N. fá upplýsingar
um störf og nám þroskaþjálfa og
sagði að sér virtist af tali við
kunningjafólk sitt, sem ætti
þroskahefta dóttur, sem þjálfun
barna á þessum hælum væri ekki
nógu markviss og það væri verið
of mikið með börnin á ferðinni.
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
A Ölympiumótinu í Haifa
sfðastliðið haust kom þessi staða
upp f skák Timmans, Hollandi,
sem hafði hvítt og átti ieik, og
Hug, Sviss.
28. Rd5H og svartur gafst upp.
Hann verður mát eftir 28. ...
Dxcl 29. Re7+ — Kg7 30. Dd4+
— Kh6 31. Hh3.
Það var einmitt góðkunningi
okkar, Jan Timman, sem hlaut
hæsta vinningshlutfall fyrsta
borðs manna á mótinu.
Velvakandi þekkir nú takmark-
að til þessara mála, en veit þó að
þroskaþjálfaskólinn er I mótun,
enda mjög nýr, og þessi stétt er
rétt að verða til, ef svo má segja
og er að þreifa sig áfram, og sjálf-
sagt vinna þroskaþjálfar, eins og
aðrir er starfa að málefnum van-
gefinna, fórnfúst starf sem ber að
styðja og efla.
HOGNI HREKKVISI
endursýnir
Nki úrvalsmyndir næstu nki daga.
Hver mynd aðeins sýnd í einn dag
20th CENTURY-FOXp-esems
Laugardagur 9. júli,
HOMBRE
Sígildur vestri með Paul Newman
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð innan 1 4 ára.
Sunnudagur 10. júli,
MASH
Allir þekkja þessa ógleymanlegu
mynd með Elliott Gould og
Donald Sutherland.
Sýnd kl. 3. 5. 7 og 9.
Bönnuð innan 1 2 ára.
Mánudagur 11. júlí
Hraðakstursmyndin fræga með
Barry Newman
Sýnd kl. 5, 7 og 9
Bönnuð innan 1 2 ára
Þriðjudagur 12. júli
FRENCH
CONNECTION I
Hin æsispennandi lögreglumynd
með Gene Hackman
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð innan 14 ára.
Miðvikudagur 13. júli
PATTON
+ Stórmyndin um hershöfðingjann
fræga með George C. Scott.
Kjk Sýnd kl. 5 og 8.30.
Bönnuð innan 14 ára.
Ih Cenlury foi prtitnti
<21<01U2I< KAllL
C. S00TT/ MAL1)1< N inwl»ATTOX
IBWIN AUfKS (wduchon o(
Fimmtudagur 14. júli ^
POSEIDON SLYSIÐ
Stórslysamyndin mikla með Gene Hackman.
Sýnd kl. 5 og 9. Bönnuð innan 1 2 ára.
Föstudagur 15. júli
önnur ofsaspennandi lögreglumynd
með Roy Scheider.
Sýnd kl. 5. 7 og 9.
Bönnuð innan 1 6 ára.
From the producet of Bullitt and The French Connection
Laugardagur 16. júli
TORA!
TORA!
TORA!
Hin ógleymanlega stríðsmynd
um árásina á Pearl Harbor.
Sýnd kl. 5 og 9.
Sunnudagur 1 7. júli
BUTCH
CASSIDY
OG THE
SUNDANCE
KID
PAIIL
NEWMAN
ROBERT
REDFORD
KATHARINE
ROSS
Einn besti vestri siðari ára með
Paul Newman og Robert Redford
Sýnd kl. 3. 5, 7.1 5 og 9.30.
Bönnuð innan 14 ára.
Nú er tækifærið að sjá gamlar og góðar myndir.