Morgunblaðið - 15.07.1977, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.07.1977, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR 154. tbl. 64. árg. FÖSTUDAGUR 15 JÚLÍ 1977 Prentsmiðja Morgunhlaðsins. New York, 14. júlf. — Heuler AP NEW YORK borg myrkvaðisl þegar eldingu laust niður f aðalorkuver borgarinnar f nótt, Iff f borginni lamaðist að mestu og gripdeildir og fkveikjur fylgdu f kjölfarið f nokkrum fátækustu hverfunum. Lögreglan handtók að minnsta kosti 2.000 fyrir rán og gripdeildir. 1 sumum hverfum voru margar götur þaktar glerbrotum úr rúðum verzlana. Kveikt var f á mörg hundruð stöðum f sumum hlutum Bronx, Brooklyn og Manhattan. Sumir slökkviliðsmenn urðu fyrir skothrfð frá leyniskyttum þegar þeir reyndu að slökkva eldana. Abraham Beame borgarstjóri lýsti yfir neyðarástandi og skoraði á ferðamenn og borgarbúa að vera ekki á götum úti. Hann krafðist skýringa á þvf hvers vegna rafmagnið hefði farið af þar sem þvf hefði verið lýst yfir þegar sams konar myrkvun varð 1965 að slfkt gæti ekki komið fyrir aftur. Myrkvunin þá stóð f 10 tfma og þá voru borgarbúar yfirleitt rólegir gagnstætt þvf sem nú varð uppi á teningnum. ORSÖK ÓKUNN Starfsmenn orkufyrirtækisins Con Ed gátu enga skýringu á þvi gefið hvers vegna fullkominn táekjabúnaður sem á að koma í veg fyrir myrkvun, bilaði. Charles Luce, forstjóri Con Ed, kvað or- sökina yfirnáttúrlega. Bilun varð í tæki, sem gegnir því hlutverki að vernda orku- kerfið gegn eldingum, og Joyce Tucker, aðstoðarframkvæmda- stjóri Con Ed, sagði: „Við vitum ekki af hverju það verkaði ekki.“ Talsmenn fyrirtækisins segja að bilun í spenni og gifurlegt álag hafi lamað kerfið. Rúmum 15 tímum eftir að ljósin slokknuðu hjá um 10 milljónum manna i borginni og norðurút- borgunum sagði Beame blaða- mönnum að hann teldi það algert hneyksli að rafmagnið væri ekki komið á. Hann sagði að ennþá væri óljóst hvenær rafmagnið kæmist á aftur og gagnrýndi Con Ed fyrir „stór- fellda vanrækslu". Um miðjan dag var sagt að rafmagn væri Framhaid á bls. 15 Gata í Brooklyn eftir rán og skemmdarverk næturinnar. New York lömuð eftir ógnamótt 2.000 teknir Spenna eftir árás í Kóreu Washington, 14. júlf. Reuter. AP. CARTER forseti sagði bandarisk- um öldungadeildarmönnum f dag að Bandaríkjastjórn vildi ekki árekstra við Norður-Kóreumenn sem skutu f dag niður bandarfska flutningaþyrlu þegar hún villtist yfir hlutlausa beltið f Kóreu. Þrfr af áhöfninni féllu en sá fjórði var tekinn til fanga. Spenna hefur aukizt við atburð- inn, en blaðamenn heyrðu Carter segja öldungadeildarmönnum: „Við erum að reyna að segja þeim að áhöfninni urðu á mistök þegar hún fór yfir vopnlausa svæðið.“ Carter sagði einnig að suður- kóreskir hermenn hefðu hleypt af viðvörunarskotum til að gefa bandarisku flugmönnunum til kynna að þeir væru að villast yfir vopnlausa svæðió. Þegar Carter ræddivið öldunga- deildarmennina talaði hann um „vopnaviðskipti", en seinna sagði talsmaður hans, Jody Powell, að ekki væri vitað hvort bandarísku flugmennirnir hefðu hleypt af skotum eða hvort þeir hefðu verið vopnaðir. Fréttum um þetta ber ekki saman. Þyrlan var af gerðinni Chinook og fór frá Pyiong-Taek, um 50 km. sunnan við Seoul, áleiðis til Pang- nung á austurströnd Suður- Kóreu, um 25 km. suður af vopn- lausa svæðinu til að ná í bygging- Framhald á bls. 18. New York þegar borgarljósin slokknuðu. Myndin er tekin frá Brooklyn-brúnni. Björgvin Björgvinsson í New York: „Hörmungarástand — en allir reyna að bjargast sem bezt” MORGUNBLAÐIÐ hafði í gærkvöldi samband við nokkra íslendinga í New York og nágrenni og fékk þá til að skýra frá ófremdarástandinu, sem varð vegna rafmagnsleysisins. Ógerlegt var að ná sambandi við fóik á stórum svæðum, — til dæmis var algjörlega sambandslaust við Manhattan þar sem er heízta við- skipta- og athafnasvæðið. Hér fara á eftir frásagnir Björgvins Björgvinssonar, Ingva S. Ingvarssonar og Þorsteins Ingólfssonar. Björgvin Björgvinsson er starfsmaður Flugleiða á Kennedyflugvelli og þar náðum við sambandi við hann í gær- kvöldi. „Ástandið er nú farið að skána og ég held að rafmagn sé komið á um það bil hálfa borg- ina. Þetta hafa verið ógurleg vandræði, ekki sizt vegna þess að vatnsleysi hefur bætzt ofan á rafmagnsleysið, en víða er raf- knúnar vatnsdætur, sérstaklega i háhýsum." „Flugvellinum var lokað klukkan hálftfu i gærkvöldi", hélt Björgvin áfram, „og hann var ekki opnaður fyrr en klukk- an sex í morgun. Þegar lokað var biðu hér tvær flugvélar brottfarar og þær fóru ekki fyrr en á sjöunda timanum i morgun. Farþegarnir tóku þessu furðu vel, og yfirleitt er það nú svo, að þegar óvænt verður vandræðaástand þá tek- ur fólk þvi með stillingu og er samtaka um að gera það bezta úr öllu. Að sjálfsögðu var eng- an mat að fá hér á vellinum, en það var búið að flytja mat í aðra vélina þegar ósköpin dundu Framhald á bls. 15

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.