Morgunblaðið - 15.07.1977, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUK 15.JUM 1977
3
Veggmyndir Kjarvals fluttar í
hús Listasafnsins við Tjömina?
Ein af fáum myndum sem til eru af Kjarval við vinnu sfna f
vinnustofu sinni f Austurstræti, og sjást þar vef myndirnar sem
prýda veggina.
KOMIÐ hefur til greina aó
myndir þær sem meistari
Kjarval málaði á veggi vinnu-
stofu sinnar f Austurstræti
verði ffuttar þaðan og komið
fyrir f húsi Listasafns Islands
við Frfkirkjuveg — gamla
Glaumbæ sem nú er verið að
endurreisa. Hefur Reykjavfk-
urborg ritað menntamálaráð-
herra bréf, þar sem þessar hug-
myndir eru reifaðar og málinu
vfsað til hans.
A siðasta borgarráðsfundi
gerði Páll Líndal borgarlög-
mönnum grein fyrir þeim hug-
myndum sem fram hafa komið
um varðveizlu þessara mynda
meistara Kjarvals. Að sögn Páls
byggði hann mál sitt að mestu á
álitsgerð þeirra Daviðs Odds-
sonar, borgarfulltrúa, og Knúts
Hallssonar, deildarstjóra i
menntamálaráðuneytinu, um
það hvernig varðveizlu mynd-
anna yrði bezt hagað.
Sem kunnugt er eru þessar
myndir nokkuð teknar að
skemmast, en að mati færustu
sérfræðinga er þó enn unnt að
gera við þær og einnig er vel
framkvæmanlegt að taka þær
niður og flytja úr núverandi
húsnæði i Austurstræti.
Páll sagði, að að mati margra
hefði verið æskilegast að mynd-
irnar fengju að standa á sfnum
upphaflega stað í vinnustofu
meistarans í Austurstræti, en
við athugun hefði þó komið i
Ijós, að á því væru ýmsir ann-
markar, meðal annars þeir að
óliklegt þætti að almenningur
gerði sér sérstaka ferð til að
skoða myndirnar i vinnustof-
unni og þær myndu þannig eft-
ir sem áður standa i eins konar
„einskis manns Iandi“. Hins
vegar má geta þess að Frank
Ponsi, listfræðingur og sá sem
mest hefur unnið að viðgerðum
á verkum Kjarvals, lét þau orð
falla I Morgunblaðinu á sínum
tima að bezt væri að varðveita
myndirnar á sinum uppruna-
lega stað.
Að sögn Páls Lindals voru
ennfremur kannaðir ýmsir
möguleikar á þvi að flytja verk-
in. Meðal annars var athugað
hvort koma mætti þeim fyrir á
Kjarvalsstöðum, og beindist þá
athyglin aðallega að kjallara
hússins, en niðurstaðan reynd-
ist sú að húsnæðið væri ekki
heppilegt. Páll sagði að um
þetta leyti hefði komið til sög-
unnar forstöðumaður Lista-
safns Islands, Selma Jónsdóttir,
en þá hafi einmitt verið að kom-
ast skriður á húsnæðismál
safnsins og hafin endurbygging
á gamla Glaumbæ með það fyr-
ir augum að Listasafnið fengi
þar inni. Hafi þá komið fram sú
hugmynd, að ekki væri útilokað
að finna mætti veggmyndunum
veglegan sess í nýja Listasafn-
inu.
Páll sagði að i ljósi þessa hafi
verið afráðið að skrifa mennta-
málaráðuneytinu bréf og vísa
málinu til þess, þannig að það
gengi frá samningum við eig-
anda myndanna, sem eru erf-
ingjar Kjarvals, ef það yrði of-
an á að myndirnar skyldu varð-
veittar. Hins vegar sagði Páll að
það væri opinn möguleiki að
borgarsjóður stæði ásamt rík-
inu undir kostnaði við viðgerð
myndanna, ef af yrði.
Ný íslandsbók
sem mun vekja athygti
Kostar aðeins kr.
3.240
með söluskatti
^ Frábærlega vel
unnin og litprentuð
með nær 80 úrvals-
myndum 1 7 Ijós-
myndara, innlendra
og erlendra.
0 Fjölskrúðug náttúra
landsins, fuglalífið,
atvinnulífið, borgin og
sveitin — með enskum
texta eftir Harald J. Hamar
og Hauk Böðvarsson.
0 Enn ein úrvalsbókin frá
ICELAND REVIEW, sem allir
munu girnast — heima og er-
lendis Handhæg og glæsileg
gjöf — og óþrjótandi ánægja
þeim, sem kunna að meta
góðar myndireða vilja varðveita
minninguna um nútíðar ísland
Nú spyrja afíir um bækurnar frá
lceland Review
Sími 81590, Pósth. 93, Stóragerði 27, Reykjavík.