Morgunblaðið - 15.07.1977, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15 JULI 1977
SÍMAR
28810
24480
bilaleigan
GEYSIR
BORGARTÚNI 24
LOFTLEIDIR
'E 2 1190 2 11 38
BÍLALEIGA JÓNASAR
Armúla 28 — Simi 81315
® 22*0*22’
RAUOARÁRSTÍG 31
\_______________/
Safnað ferð-
um í fjalla-
og ferðabók
FYRIR um það bil 40 árum gaf
Ferðafélag Islands út skírteini
handa þeim, sem ferðuðust með
félaginu. Voru skráðar 1 þetta
skfrteini ýmsar upplýsingar varð-
andi ferðirnar, svo sem vega-
lengdir o.s.frv. Að nokkrum tíma
liðnum féll notkun þessa skírtein-
is niður og hefur ekki verið tekin
upp aftur fyrr en nú, er félagið
hefur gefið út tvær bækur handa
þeim, sem taka þátt I ferðum
félagsins.
Fyrri bókin er nefnd Fjallabók.
Er hún handa þeim, sem iðka
fjallgöngur. Er skráð í hana nafn
fjalls þess, sem gengið er á og
hæð þess en fjallið verður að vera
hærra en 500 metrar. Þeir, sem
hafa fyllt út bókina eftir 10 ferð-
ir, fá sérstaka viðurkenningu frá
félaginu.
Hin bókin er nefnd Ferðabók í
hana skrá menn allar þær ferðir,
sem þeir fara með félaginu og
þegar þeir hafa farið 15 ferðir, fá
þeir viðurkenníngu frá félaginu
eins og þeir, sem útfyllt hafa
Fjallabókina. Geta þeir, sem hafa
áhuga á að fá þessar bækur, vitjað
þeirra á skrifstofu félagsins. Eru
þær afhentar ókeypis.
ÍR
car rental
Úlvarp Reykjavik
FÖSTUDKGUR
15. júlf
MORGUNNINN
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.50.
Morgunstund barnanna kl.
8.00: Kristján Jónsson byrjar
að lesa ævintýrið um „tvan
Tsar og villiúlfinn" 1 þýð-
ingu Magneu Matthfasdóttur.
Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög milli atriða. Spjallað við
bændur kl. 10.05. Morgun-
popp kl. 10.25. Morguntón-
leikar kl. 11.00: Josef Suk og
Alfred Holecek leika
Sónatfnu f G-dúr fyrir fiðlu
og pfanó op. 100 eftir
Antonfn Dvorák./Clifford
Curzon leikur Pfanósónötu f
f-moll op. 5 eftir Johannes
Brahms.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og frétt-
ir. Tilkynningar. Við vinn-
una: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Elenóra
drottning“ eftir Noru Lofts.
Kolbrún Friðþjófsdóttir end-
ar lestur sögunnar f eigin
Þýðingu. (22).
SIÐDEGIÐ
15.00 Miðdegistónleikar.
Sinfónfuhljómsveit Lundúna
leikur „Slæpingjabarinn**,
tónverk eftir Darius
Milhaud; Antal Dorati stj.
Felicja Blumental og
Sinfónfuhljómsveit Lundúna
leika Pfanókonsert f brasil-
fskum stfl op. 105 eftir Hekel
Tavares; Anatole Listoulari
stj.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popp
17.30 „Fjöll og firnindi" eftir
Arna Óla. Tómas Einarsson
kennari les um ferðalög og
hrakninga Stefáns Filippus-
sonar (3).
17.50 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
KVÖLDIÐ
19.35 (Jr atvinnulffinu.
Magnús Magnússon og Vil-
hjálmur Egilsson viðskipta-
fræðingar sjá um þáttinn.
20.00 „Capriccio Italien“
hljómsveitarverk eftir
Tsjaíkovský. Fflharmonfu-
sveitin f Berlfn leikur;
Ferdinand Leitner stjórnar.
20.20 „Aldrei skartar óhófið“
Þorvaldur Ari Arason fjallar
um þjóðskáldið Hallgrfm
Pétursson; sfðari hluti.
21.15 „Zorahayda“, austur-
lenzk helgisögn op. 11 eftir
Johan Svendsen. Ffl-
harmonfusveitin f Ósló leik-
ur; Odd Griiner-Hegge
stjórnar.
21.30 (Jtvarpssagan: „Ditta
mannsbarn“ eftir Martin
Andersen-Nexö. Sfðara
bindi. Þýðandinn, Einar
Bragi, les (9).
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag-
an: „Sagan af San Michele“
eftir Axel Munthe. Þórarinn
Guðnason les (12).
22.40 Áfangar. Tónlistarþáttur
sem Ásmundur Jónsson og
Guðni Rúnar Agnarsson
stjórna.
23.30 Fréttir. Dagskrárlok.
L4UG4RD4GUR
16. júlf
morgunn“------
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.50.
Morgunstund barnanna kl.
8.00: Kristjáns Jónsson held-
ur áfram að lesa ævintýrið
um „Ivan Tsar og villiúlf-
inn“; Magnea Matthfasdóttir
fslenzkaði(2). Tilkynningar
kl. 9.30. Létt lög milli atriða.
Óskalög sjúklinga kl. 9.15:
Kristfn Sveinbjörnsdóttir
kynnir. Barnatfmi kl. 11.10;
Þetta vil ég heyra. Börn velja
efni til flutnings í samráði
við stjórnandann, Guðrúnu
Birnu Hannesdóttur.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar. Tónleikar.
SÍÐDEGIÐ
13.30 Laugardagur til lukku.
Svavar Gests sér um þátt f
tali og tónum. (Fréttir kl.
16.00, veðurfregnir kl.
16.15).
17.00 Létt tónlist.
17.30 „Fjöll og firnindi" eftir
Árna Óla. Tómas Einarsson
kennari les um ferðalög og
hrakninga Stefáns Filippus-
sonar (4).
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDIÐ
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Allt f grænum sjó. Stolið,
stælt og skrumskælt af
Hrafni Pálssyni og Jörundi
Guðmundssyni.
19.55 Vor f Vestur-Evrópu.
Jónas Guðmundsson sér um
annan slfkan þátt f tali og
tónum.
20.30 Atriði úr óperunni
„Ævintýrum Hoffmanns"
eftir Jacques Offenbach.
Flytjendur: Rita Streich,
Rudolf Schock og fl. ásamt
kór og hljómsveit Rfkisóper-
unnar í Berlfn: Wilhelm
Schiichter stj.
21.10 „Friðjón kemur f heim-
sókn“, smásaga eftir Hrafn
Gunnlaugsson. Höfundurinn
les.
21.30 Hljómskálamúsik.
Guðmundur Gilsson kynnir.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Danslög.
23.55 Fréttir. Dagskrárlok.
Úr atvinnulífinu kl. 19.35
Um rannsóknir
1 KVÖLD er á dagskrá
útvarpsins þátturinn (Jr
atvinnulífinu, í umsjá
þeirra viðskiptafræðinga
Magnúsar Magnússonar
og Vilhjáltns Egilssonar.
Þegar blm. ræddi við
Vilhjálm í gær sagði
hann að í þættinum í
kvöld yrði rætt við þá
Pétur Sigurjónsson frá
Rannsóknastofnun iðnað-
arins og Hákon Ólafsson
frá Rannsóknastofnun
byggingariðnaðarins.
Sagði Vilhjálmur að fjall-
að yrði um starfsemi þá
sem þessar stofnanir
hafa með höndum og þau
vandamál sem þær eiga
við að glíma. Ennfremur
sagði hann að rætt yrði
um stöðu rannsókna-
starfsemi hér á íslandi
samanborið við slíka
starfsemi í öðrum lönd-
um.
Þátturinn Úr atvinnu-
lífinu hefst kl. 19.35.
,,Aldrei skartar óhófid” kl. 20.30:
Ævisaga séra
Hallgríms
endurskodud
ÞORVALDUR Ari Ara-
son flytur í kvöld síðasta
erindi sití um Hallgrím
Pétursson.
Þegar blm. ræddi við Þorvald
í gær sagði hann að hann myndi
í kvöld flytja endurskoðað ævi-
ágrip Hallgríms. Sagði hann að
það væru margir mjög áberandi
gallar á þeim æviágripum, sem
hirigað til hefði verið farið éftir
í umfjöllun um Hallgrim. Þor-
valdur sagði að hann myndi
m.a. fjalla um það af hverju
Hallgrímur hætti við að yrkja
Samúelssálma og hóf að yrkja
Passíusálmana, sagði hann að
það hefði verið vegna þess að
Hallgrimur hefði, að Þorláki
biskupi fósturbróður sínum
látnum, eygt möguleika á
prent’in verka sinna.
Það er margt fleira sem Þor-
valdur segir frá í þessu erindi,
en í stuttu máli má segja að
hann komist að þeirri niður-
stöðu að "Guðriður kona Hall-
grims hafi ekki verið siður
kristin en hann og hafi hún
mjög hvatt hann til dáða. Erfið-
leikar þeirra hjóna hafi verið
meiri en af er látið og sigrar
Hallgríms stærri.
Erindi Þorvaldar er á dag-
skrá kl. 20.20.