Morgunblaðið - 15.07.1977, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 15 JULl 1977 7
r 1
Tíminn tekur
undir orð
Morgunblaðsins
Dagblaðið Tíminn fjall-
ar f gær f þættinum Á
víðavangi um forystu-
grein Morgunblaðsins
sfðastliðinn sunnudag,
þar sem rætt var m.a.
um samstarf Sjálfstæð-
isflokks og Framsókn-
arflokks f rfkisstjórn.
Eftir að hafa birt
nokkrar tilvitnanir í
þessa forystugrein þar
sem m.a. voru færð rök
að þvf, að Sjálfstæðis-
flokkurinn og Fram-
sóknarflokkurinn hefðu
þeim skyldum að gegna
að Ijúka þvf starfi, sem
þessir tveir flokkar
tóku að sér, að koma
efnahagsmálum þjóðar-
innar á réttan kjöl og að
þvf starfi yrði ekki lok-
ið fyrr en verðbólgan
væri komin á svipað
stig og f nágrannalönd-
um og þessir tveir
flokkar ættu þvf enn
verk að vinna, segir
Tíminn: „Undir þessi
orð Morgunblaðsins ber
að taka og leggja
áherzlu á það annars
vegar að fyrir höndum
eru enn margir áfangar
f baráttunni við land-
læga verðbólgu og hins
vegar, að stjórnarfars-
lega virðast ekki vera
horfur á stjórnarsam-
starfi annarra flokka.
Að þessu leyti eru að-
stæður þvf enn svipaðar
því sem var við mynd-
um núverandi rfkis-
stjórnar, en eins og
menn muna var hún
mynduð eftir að gjör-
kannaðar höfðu verið
aðrar leiðir til stjórnar-
myndunar."
Vilja aukin
áhrif
sérfræðinga
Þjóðviljinn fjallar f
forystugrein f gær um
þær umræður, sem orð-
ið hafa um fiskverndar-
mál og ágreining sjáv-
arútvegsráðuneytis og
Hafrannsóknastofnun-
ar f því sambandi og
varpar fram spurningu
um, hver hlutur hvers
aðila eigi að vera í
ákvörðunum um fisk-
verndarmál og kemst að
eftirfarandi niður-
stöðu: „Engu að sfður
skal þvf haldið fram, að
þegar um er að ræða
mál sem varða ekki af-
komu plássa eða lands-
hluta eða ákveðinna
greina atvinnuvega
næstu tvö eða f jögur ár-
in, heldur sjálfan til-
verugrundvöll þessa
samfélags, auðlindir
hafsins, þá sé rétt að
auka umboð og áhrif
hinna sérfróðu. Treysta
þann lagalega grund-
völl sem eftirlit fiski-
fræðinga með veiðum
byggir á, kveða skýrar á
um umboð Hafrann-
sóknastofnunar og gera
það um leið vfðtækara.
Vitanlega yrði hinn
lagalegi rammi smfðað-
ur af öllum málsaðilum
f sameiningu en ef vel
til tækist um þá smfð
kynni að vera fundin
leið til að forðast háska-
leg áhrif, sem sveiflur á
hinni pólitfsku loftvog f
kjördæmum hafa á
verndun auðlinda okk-
ar.“
Höfundur þessara
orða er Arni Bergmann
og gengur þessi stefna
Þjóðviljans þvert á yfir-
lýsingu Lúðvfks Jóseps-
sonar fyrrverandi sjáv-
arútvegsfaðherra sem
hann gaf í viðtali við
Vfsi fyrir skömmu, þar
sem hann tók eindregna
afstöðu með Matthfasi
Bjarnasyni f deilum
hans og Hafrannsókna-
stofnunar um nýlegar
ákvarðanir þeirrar
stofnunar. Það sem er
þó öllu merkilegra er
það, að með þessum orð-
um tekur Þjóðviljinn
undir þau sjónarmið
sem bersýnilega móta
mjög þjóðfélagskerfið
austan járntjalds, að
alls konar sérfræðingar
og kerfismenn skuli
ráða. Arni Bergmann
vill auka völd sérfræð-
inga en minnka áhrif
hinna lýðræðislega
kjörnu fulltrúa fólks-
ins. Þessi afstaða Þjóð-
viljans lýsir þeim and-
lýðræðislega hugsunar-
hætti, sem alltaf skýtur
upp koHinum f röðum
þeirra Alþýðubanda-
lagsmanna þegar þeir
gæta ekki að sér.
Það er orðið of mikið
um það, að menn tali af
fyrirlitningu um stjórn-
málamenn og starf
þeirra. Þannig talar
Þjóðviljinn um „háska-
leg áhrif sem sveiflur á
hinn pólitfsku loftvog f
kjördæmum" kunni að
hafa á verndun auð-
linda okkar, en hvað er
þarna um að ræða? Þeg-
ar stjórnmálamenn tak-
ast á um mismunandi
viðhorf, hvort sem er til
verndunar fiskstofna
eða f öðrum málefnum,
er lýðræðið að verki.
hið lýðræðislega þjóð-
skipulag. Menn geta
verið þeirrar skoðunar,
að þessi þingmaður
fyrir þetta kjördæmi
hafi rangt fyrir sér, að
hann sé bara að berjast
fyrir hagsmunum sfns
kjördæmis og svo fram-
vegis og svo framvegis,
en niðurstaðan er eftir
sem áður sú, að þarna
er hið lýðræðislega
þjóðskipulag að verki,
með þessum hætti er
það virkt, með þessum
hætti fá áhrif fbúa á
hinum ýmsu landshlut-
um eða manna sem
starfa f hinum einstöku
atvinnugreinum að
koma fram og skipta
nokkru máli f sambandi
við endanlegar ákvarð-
anir. Svona er lýðræðið.
Það er hins vegar ekk-
ert lýðræði f þvf fólgið
að afhenda sérfræðing-
um, sem enga ábyrgð
bera gagnvart kjósend-
um, ákvörðunarvald f
hinum veigamestu mál-
um þjóðarinnar, það er
beinlfnis fáránlegt. En
það er auðvitað þessi
hugsunarháttur sem
þarna gægist fram sem
gerir það að verkum, að
lýðræðissinnar eiga af-
ar erfitt með að treysta
þeim fögru orðum sem
hinir svokölluðu
Evrópu-kommúnistar
láta falla, þegar þeir
lýsa þvf yfir, að þeir séu
reiðubúnir að starfa
innan ramma hins lýð-
ræðislega þjóðfélags.
Það á einnig við um Al-
þýðubandalagsmenn
hér, sem telja sig raun-
ar nú orðið hafa verið
orðna Evrópu-
kommúnista fyrir
nokkrum áratugum.
Hjá þessum mönnum
gægist alltaf fram við
og við einskær fyrirlitn-
ing á starfsháttum hins
lýðræðislega þjóðskipu-
lags.
HILLUVEGGIR, LÖKKUÐ FURA EÐA BRÚNBÆSUÐ.
ÓTRÚLEGA HAGSTÆTT VERÐ
Opið til kl. 10 í kvöld
Drumarkaðurinn Itf.
krmúla 1A S: 86112.
JÓNAS ÞÓRIR
leikur á
rafmagnsorgelið og
LINDA WALKER
syngur
Sumarhúsasýnmg
við Sundaborg
Synum föstudag, laugardag, sunnudag
og mánudag frá kl. 2—7 alla daga ^gfíd •„
Húsin eru tilbúin tH flutnings og íbúðar strax yglKO^
GÍSU JÓNSSON & CO. H.f
Sundaborg, sími 86644