Morgunblaðið - 15.07.1977, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15JULÍ 1977
Halldór Kristjánsson:
Ekki vil ég þegja við þessu
Björn Matthíasson
Björn Matthíasson hagfræö-
ingur á ritgerð um bjór i Morgun-
blaðinu i dag — 8. júlí — og á hún
að vera svar við því, sem við Krist-
inn Vilhjálmsson sögðum í tilefni
af þvi sem hann kallaði sannieiks-
korn um bjór. Ef ég man rétt eru
meira en tveir mánuðir siðan
greinar okkar birtust.
Björn krefur okkur Kristin um
svör við því hverjar opinberar
tiikynningar rússneskra stjórnar-
ávarpaður
valda við höfum fyrir því að ekki
hafi haft góð áhrif að greiða fyrir
ölsölu austur þar.
Nú skal ég játa það að ég hef
ekki séð þær með eigin augum en
mér hefur ekki orðið að slysi
hingað til að trúa því sem opin-
berar stofnanir i Sviþjóð og Nor-
egi segja um áfengismál. Ég á hér
við þær stofnanir sem til þess eru
settar að afla fræðslu um áfengis-
mál. Og ég held að það sé líka
meira að marka sem fram kemur
á fjölþjóðlegum læknafundum
þar sem þeir menn hittast sem
hafa það að lífsstarfi að reyna að
likna áfengisneytenduníi en sögu-
sagnir einna og annarra skyndi-
ferðamanna.
En fyrst Björn er nú svona
vandlátur á heimildir og kröfu-
harður þá bið ég hann að segja
okkur hvaða heimild hann hefur
fyrir þeirri fullyrðingu að Finnar
fari ekki að dæmi Svía og banni
milliölið? Eg veit ekki betur en
Leðurjakkar
-Sumartískan 77
Kven- leöurjakkar, gráir, brúnirog grænir.
Þeirkostakr. 17.890. Stutterma skyrtur
meö merkjum kosta kr. 2.125. Buxur úr
svörtu khaki kosta kr. 3.890 og 3.590.
Mikiö úrval af sokkum og nærfötum frá
Marks & Spencer, -mjög hagstætt verö.
gert sé ráð fyrir að finnska þingið
fjalli um það mál á komandi
hausti. Sjálfsagt skilur Björn
finnskuna betur en ég rússnesk-
una og verður nú ekki svarafátt.
En ég áskil mér allan rétt til að
tala um það sem á eftir fer.
Björn fullyrðir að ekki sé neitt
bjórstrið i Noregi og segist lesa
norska pressu nógu vel til að vita
þetta. Mér er alveg sama undir
hvaða pressu hann hefur verið
þessa 2 mánuði. Ég veit að það er
bjórstríð i Noregi.
Héruðum er í sjálfsvald sett
hvort þau leyfa bjórsölu hjá sér.
Víða eru héraðabönn og alltaf
öðru hvoru einhversstaðar verið
að greiða atkvæði um þetta — og
auðvitað stendur barátta á undan
atkvæðagreiðslunni. Eg held að
fremur hafi hallað á bjórmenn
undanfarið miðað við fyrri tíma.
Ef Björn þrætir enn fyrir þessi
átök, skal ég verða mér úti um
heimildir um það hvar slíkar at-
kvæðagreiðslur hafa farið fram
siðustu árin og hver úrslit hafa
orðið. Þó að Björn kunni að kalla
þetta skæruhernað fremur en al-
menna borgarastyrjöld breytir
það ekki því að um bjórinn er
barizt í Noregi.
Björn segir að ég hafi likt grein
sinni við hráka á gólfi. Síðan hef-
ur hann stór orð um það siðleysi
og vikur þá að úthlutun lista-
mannalauna, hvernig sem sam-
hengið er nú þar á milli. Mér
hefði þótt fara vel á því að hann
hefði stutt þessar fullyrðingar tii-
vitnun svo að reyndi á það hvort
lesendur gætu skilað þetta eins og
hann. En hvað um það. Ég skal
rekja aðalatriði þessarar deilu.
Björn sagði að við bindindis-
menn þyrðum ekki að njóta
áfengis og gætum ekki unnt öðr-
um að njóta þess. Hann hélt því
þannig fram að þeir sem væru
bindindismenn væru það af litil-
mennsku, kjarkleysi og öfund-
syki. Ég taldi mig vita betur og
fannst ekki að Björn -væri svo
heilagur eftir þennan dóm sinn að
ekki mætti blaka við honum. Ég
sagði sem satt er að bindindis-
menn eru yfirleitt bindindismenn
vegna þess að þeir vilja ekki eiga
neinn þátt í þvi að breiða út
drykkjusiði. Það fylgir þvi
ábyrgð.
Ég mun ekki sitja þegjandi hjá
þegar Björn Matthiasson eða aðr-
ir kalla ýmsa göfugustu menn og
beztu drengi sem ég þekki sið-
ferðisleg úrhrök og ómenni, — en
það fólst i orðum Björns — og
dylst þó ekki hugsandi mönnum
sem mælt mál skilja.
Hitt er svo annað mál að ég tel
fullvíst að áróður fyrir áfengis-
neyzlu sé miklu hættulegri en
miðlungshráka á gólfi því að það
er satt sem Sírak segir i sinni
fornu bók að margan hefur vinið
að velli lagt.
En svo aftur sé vikið að Rúss-
unum segir Björn að sendiráðs-
menn þeirra hafi ekki viljað segja
sér að bjórfrelsið hafi gefizt illa
en bætir því svo við að þeir séu
raunar ekki vanir að tala um mis-
tök i landi sínu. Ætli við megum
þá ekki álykta eftir þennan lestur
að sendiráðsmennirnir hafi ekki
kunnað frá neinum ágætum að
segja i sambandi við bjórinn?
Drykkja léttra vina hefur veru-
lega aukizt á fslandi síðustu árin.
Telur Björn að þar með hafi
áfengisnautn Islendinga orðið sið-
legri og meinlausari? Hlýtur það
ekki að vera?
Björn Matthiasson segir að við
Kristinn þyrftum að finna á okk-
ur sjálfum muninn á því að
drekka bjór og brennivín. Þá
fyrst væri von til þess að við hefð-
um eitthvað vit á þessu. Ég held
nú að það verði nær'lagi sem
algáðir menn en ölvaðir álykta
um áfengisnautn. Þeim ölvuðu
finnst að þeir verði skarpari,
öruggari og meira af drykknum,
en það vita nú flestir að er blekk-
ing ein. En svo vil ég biðja Björn
að hugleiða þau ósköp að það er
látið viðgangast að karlemnn séu
kallaðir sérfræðingar í kvensjúk-
dómum.
Þess skai svo getið að lokum að
þegar ég skrifa þessi orð hef ég
ekki fyrri blaðaskrif við hendina.
Ég sá grein Björns í flugvélinni
sem flutti mig til Noregs í morgun
og nú er það mitt síðasta verk i
kvöld að skrifa þessi orð. Ég kann
ekki við að láta líða 2 mánuði án
þess að víkja orði að hrákanum
hjá honum Birni.
Halldór Kristjánsson.
(Aths.: Umrædd grein Björns
Matthiassonar beið lengi birt-
ingar hjá blaðinu eins og fjöldi
annarra greina vegna yfirvinnu-
bannsins í maí og júni).
Nýmæli hjá F.Í.:
Tína f jörugróður
hjá Stokkseyri
FERÐAFÉLAG Islands mun á
sunnudaginn 17. júlí efna til ferð-
ar austur að Stokkseyri og er æti-
unin að ganga á fjörur og tina söl
og annan fjörugróður sem áður
fyrr var hagnýttur til matargerð-
ar. Farið verður frá Reykjavík kl.
10 á sunnudagsmorgni, en um há-
degisbil er stórstraumsfjara und-
an Stokkseyri. Þeir sem hyggjast
fara í þessa ferð þurfa að hafa
með sér ilát til að geyma grösin í
og vera i vatnsheldum skófatnaði.
Leiðbeinandi verður Anna Guð-
mundsdóttir húsmæðrakennari.
í frétt frá F.í er vitnað til bókar
Jónasar Jónassonar, Islenzkir
þjóðhættir, þar sem segir að heilu
lestirnar af fjörujurtum hafi ver-
ið fluttar frá Eyrarbakka og viðar
upp til sveita og menn hafi hag-
nýtt sér þær til matar á ýmsan
hátt. Voru þær etnar hráar eða
soðnar í vatni og hafðar með harð-
fiski, og smjöri, stundum hafi þær
verið þurrkaðar og á sumrin borð-
aðar saman við skyr.
I þessari ferð verður einnig
komið við í Baugsstaðabúinu þar
sem eru til sýnis tæki og búnaður
er notaður var til smjörgerðar á
árunum eftir síðustu aldamót.
Hestamót
Kappreiðar hestamannafélagsins Snæfell-
ings verða að Kaldármelum, laugardaginn
23. júlí.
Góðhestasýning A og B flokki
Góðhestar unglinga
Knapadómar
250 m. Skeið
250 m. Folahlaup
350 m. Stökk
800 m. Stökk
800 m. Brokk.
Þátttaka tilkynnist í síma 93-8392 fyrir
þriðjudag. Stjórnin.