Morgunblaðið - 15.07.1977, Side 12

Morgunblaðið - 15.07.1977, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15 JULI 1977 Nýr borgari fæddur eymd ( landi þar sem 40 af 80 milljón íbúum eru innan við 15 ára. Ljósmynd- irnar tók Daniel Dely ( Bangladesh milljónir íbúa. Þar búa því um 1000 manns á fermílu. Og enn fleiri búa í suður- hluta landsins. 90% lands- manna lifa á landbúnaði, og oft koma hvirfilvindar, flóð, ofsarigningar og önn- ur óáran og þá er voðinn vís. Einnig er landið mjög lágt, um einn metri yfir sjávarmáli og því er þar víða blautt og loftslag rakt og óhollt. Eftir stríðið milli Bangla- desh og Pakistan 1971, var ákaflega mikið af börnum í Frakkinn Daniel Dely, sem lengi dvaldi á tslandi, og Nazama frá Bangladesh. Ljósm. Friðþjófur. Frá íslandi til hjálp- arstarfs í Bangladesh Ýmislegt hefur drifið á daga Frakkans Daniels Dely síðan hann var á Ís- landi á árunum 1974 og 1975, vann við offsetprent- un í Odda og stundaði ljós- myndun. Frá því sagði hann fréttamanni er hann leit inn á skrifstofu Mbl. og í fylgd með honum Nazma frá Bangladesh. En hann hefur einmitt verið í því fjarlæga landi og unnið að hjálparstarfi á vegum sam- takanna „Les Amis des Börnin læra að vefa teppi, sem þau geta svo selt á mörkuðunum og séð fyrir sér. A meðan á fræðslunni stendur fá þau fæði, fatnað og læknishjáip. Enfants du Monde“ sem mætti kalla á íslenzku Alþjóðlega barnavini. Nazma hefur aftur á móti verið við nám í París í frönskum bókmenntum, en ætlar eftir íslandsferðina heim til Bangladesh til að leggja fram sinn skerf og kynna heiminum ástandið þar, svo fólki verði ljós hinn gífurlegi munur á hag fólksins í fátæku löndun- um og hér. Nazma upplýsti í upphafi samtalsins, að heimaland hennar, Bangladesh, væri eitt af þéttbýlustu löndum heims, svipað að stærð og ísland, en með um 80 landinu, sem voru vægast sagt illa stödd og til viðbót- ar þéttbýlinu er um helm- ingur íbúanna innan við 15 ára aldur, eða 40 milljónir. Þess vegna var það, sem Barnavinirnir töldu brýna þörf á að reyna að koma á einhvern hátt til hjálpar. Daniel Delay var að koma frá íslandi 1975 og hafði ráðgert að setja upp ljósmyndasýningu hér, þegar hann komst í kynni við samtökin í París. Hann hafði áhuga á að fara til Bangladesh og mynda. En þá vantaði einmitt fljótt einhvern til að sjá um skipulag og rekstur á hjálpar- starfinu þar, og hann var fyrr en varir búinn að ákveða að leggja hönd á plóginn við það. Jafnframt var hann gripinn og þjálfaður 1 að vinna með smásjá að sýklagrein- ingu á sjúkrahúsum fyrir börn, því slíkir starfskraftar eru ekki tiltækir f Bangladesh. Barnavinirnir hófu hjálparstarf fyrir börn í Viet Nam á sínum tíma, og siðar í Kóreu og Bangla- desh, og starfa enn á tveimur siðasttöldu stöðunum. Þetta er sjálfeignarstofnun, sem safnar fé til hjálparstarfsins með frjálsum framlögum. 1 Frakklandi eru deildir í flestum héruðum og frönsku samtökin eru í samvinnu við tilsvarandi kanadísk samtök og alþjóðlegar hjálparstofnanir, svo sem Unicef og Unesco. Þau reyna að beita sér þar sem þörfin er mest. — I Bangladesh er mjög mikið af munaðarlausum börnum, út- skýrði Daniel. Fæst börn ganga i skóla eða fá nokkra fræðslu og mörg eru mjög illa haldin af næringarskorti og sjúkdómum. Við reynum því að taka þau af götunni i skóla og kenna þeim, þjálfa þau f einhverju, sem þau geta svo lifað af, t.d. skógerð eða teppavefnaði, sem þau geta selt á markaðinum. Sem sagt að kenna þeim að lesa og skrifa, og þjálfa þau í einhverri iðn, svo þau geti séð fyrir sér og komizt af sjálfs- dáðum til að læra meira. Það er ekki ætlunin aðeins að gefa og ala þau upp til að lifa á hjálparstarfi, heldur styðja þau til sjálfshjálp- ar. En oft eru þessi börn svo veik, að fyrst þarf að næra þau og koma þeim til heilsu. Oftast hafa þau orma í maga og þeim þarf að ná burtu i sjúkrahúsi, ef þau eiga svo að þrífast á fæðunni. — Við erum með hjálparstarf i höfuðborginni, Dacca, i Chittagong i suðurhlutanum og í Þó að Bangladesh sé heitt land, er þeim oft kalt sem sofa úti á götunum á vetrum. Vöggustofa ( hjálparstofnun Móður Teresu ( Dacca. Þar skilja fátækar mæður oft börn sin eftir á götum, þegar þær geta ekki séð fyrir þeim lengur. Þessi unglingur leitaði hjálpar hjá Barnavinum i Dacca og var orðinn pattaralegur eftir tvo mánuði. Mirpur, sem er inni i landi. Það er þó nokkuð mismunandi á hvað er lögð áherzla og fer eftir þeirri hjálp, sem þörf er fyrir. — 1 Dacca rekum við til dæmis munaðarleysingjastofnun fyrir ungbörn. I svo stórri borg er algengt að mæður skilji börn sín eftir, þegar þær hafa ekkert að lifa á. Þessi börn eru þá venjulega vannærð og sjúk. I rauninni er þetta verkefni Móður Theresu, systurinnar frægu, sem hefur hjálparstarf í Calcutta, en kom líka til hjálpar í Dacca. Og við styðjum að þvi. Þá er í Dacca viðamikið verkefni við að kenna stúlkum störf. Þannig er i Bangla- desh að fátækar fjölskyldur gifta oft burtu dætur sínar mjög ungar til að fækka þeim munnum sem þarf að fæða. Oft koma fjölskyld- urnar sér saman um þetta, en enginn opinber stimpill er á hjónabandinu. Eftir að börn eru fædd, yfirgefur maðurinn svo heimilið og konan getur á engan hátt séð fyrir sér. Því er svo mikil þörf á að kenna þessum konum að sauma eða prjóna eða vinna að einhverju, sem aflað getur tekna fyrir þær. Og börnunum eru lika kennd einhver iðn. í borginni Mirpur er þetta mest flóttamannahjálp. Þar er mikið af fólki af Biharastofni, sem ekki er tekið við i samfélag Bangalanna og sem Pakistanmenn vilja ekki taka við heldur. Þetta er því eins og nokkrus konar flóttafólk í landi sinu. Jafnframt vill Ali Bhutto ekki sleppa Bangölum, sem eru þar. Að visu hafa orðið skipti með samningum, en aðeins á liðsforingjum og öðru eftir- sóknarverðu fólki, en ekki á al- mennum borgurum. Nú er þó samband landanna skárra, svo kannski á þetta fólk einhverja von, segja þau Dely og Nazama. En í borginni Chittagong, þar sem fólk lifir nær eingöngu á fiskveið- um og engin vinna er fyrir aðra en fiskimennina, er verkefnið brýnast að kenna stúlkum störf. — Eftir stríðið var mikið af stúlkum í Bangladesh, sem fæddu börn eftir að hafa verið nauðgað af hermönnum. Þær eru þvi einar með börn sin, auk stúlknanna, sem eiginmenn hafa yfirgefið. Þessar stúlkur eru alveg bjargar- lausar i landi eins og Bangladesh. — Vandamál þessa fólks eru margvísleg, og sum þannig að fólk hér á erfitt með að skilja þau, sagði Daniel. Til dæmis kom 16 ára gömul móðir eitt sinn með fársjúkt og vannært barn til okk- ar. Ég sá að það þurfti umsvifa- laust að fá læknishjálp. Þegar ég bað hana um að koma með mér i sjúkrahúsið, þorði hún því ekki vegna þess að hún hafði ekki beð- ið manninn sinn um leyfi og hann var í burtu. Loks féllst hún á að spyrja tengdamömmu sina, en hún þorði þá ekki heldur að bera ábyrgð á svo stórri ákvörðun. Niðurstaðan varð sú, að móðirin kæmi aftur með barnið daginn eftir og þá með leyfi, en við sáum hana ekki aftur. En barnið var mjög langt leitt. — Við reynum sem sagt að miða hjálpina við aðstæður hverju sinni. Auk þess sem ég vann að þeim verkefnum, sem við erum byrjuð á, fór ég um vestur- hluta landsins, þar sem mikil fátækt er, til að athuga hvernig hægt er að verða að liði þar. Víða þarf fólk að fá aðstoð til að byrja á einhverju nýju starfi en getur svo haldið þvi áfram, ef það kemst i gang. En auk þess sem við reynum að hjúkra og kenna, þá klæðum við og fæðum það fólk, sem hjá okkur er. Og við höfum safnað fatnaði til að gefa því. Þó heitt sé I Bangladesh, þá er oft kalt á nóttunni á veturna fyrir þá,

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.