Morgunblaðið - 15.07.1977, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 15 JULÍ 1977
Frá flóöunum í Frakklandi á dögunum: Ökumaður og
farþegar bíða eftir hjálp.
Ný Grœnaborg
við Eiríksgötu?
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
tillögur skipulagsnefndar borgar-
innar varðandi fyrirhugaða bygg-
ingu dagvistarstofnunar Sumar-
gjafar við Eiriksgötu, sem skal
rfsa í stað Grænuborgar er
va-nlanlega verður rifin.
Gert er ráð fyrir að reka þarna
dagvistarstofnun með nýstárlegu
sniði, þannig að þar verði um að
ræða blandaðan rekstur dag-
heimilis og leikskóla. Áformað er
að dagvistarstofnun þessi rísi við
hliðina á garði Listasafns Einars
Jónssonar og framan við Ás-
mundarsai. Hins vegar er ljóst að
leikrými fyrir börn verður
nokkuð takmarkað, þar sem þjóð-
Fjögur inn-
brot í Borgar-
nesi upplýst
AÐFARARNÖTT s.l. sunnudags
var brotist inn á fjórum stöðum i
Borgarnesi og stolið þar pening-
um og vörum.
Innbrotin voru framin í Verzl-
kirkjan á hornlóðina við Freyju-
götu og áform munu uppi um að
þar risi biskupsstofa.
Samkvæmt fundargerð borgar-
ráðs sl. þriðjudag hefur borgar-
lögmanni verið falið að annast
samningsgerð við þá aðila sem
málið varðar, m.a. við forsvars-
menn Listasafns Einars Jóns-
sonar. Eftir því sem Morgun-
blaðið hefur fregnað hefur komið
til tals, í þvi skyni að auka leik-
svæði hinnar nýju dagvistarstofn-
unar, að leita samninga um að
garðurinn kringum safnhús
Einars Jónssonar verði að ein-
hverju leyti opnaður fyrir
börnum stofnunarinnar.
unina Stjörnuna, Shellstöðina I
Borgarnesi, Verzlun Kaupfélags
Borgfirðinga við Borgarbraut og i
Hótel Borgarnes.
Lögreglurannsókn hófst þegar í
málinu við sýslumannsembættið
og hafa öll innbrotin nú verið
upplýst. Var það aðkomuaðili,
sem hér var að verki. Jafnfrmt
náðust öll þau verðmæti, sem tek-
in voru á fyrrgreindum stöðum og
hefur verið komið til réttra eig-
enda.
„Ett’ann
sjálfur
New York. 14. júll. AP.
AHRIF myrkvunarinnar á
furðu lostinn flugmann mátti
greinilega heyra af samtali
hans við flugturninn á
Kennedy-flugvelli þegar borg-
in myrkvaðist allt f einu.
„Hvar er Kennedy-
flugvöllur?" stamaði flug-
maðurinn þegar ljósin slökkn-
uðu fyrir neðan.
Flugmaðurinn ætlaði að
lenda með margar lestir af
jarðarberjum sem áttu að fara
á markað í New York þegar
honum var snúið til
Philadelphia.
„Hvað á ég að gera með ber-
in?“ spurði hann flugturninn.
„Éttu þau,“ svaraði flugturn-
inn.
Bremsulaus
bíll olli
miklu tjóni
HARÐUR árekstur varð á mótum
Snorrabrautar og Njálsgötu um
ellefuleytið i gærmorgun. Nýleg
fólksbifreið, sem kom upp Njáls-
götu, ók inná Snorrabrautina og
lenti þar í hörkuárekstri við aðra
bifreið. Siðan hélt hún áfram ferð
sinni og skemmdi þrjár kyrr-
stæðar bifreiðar á Snorrabraut-
inni. ökumaður bifreiðarinnar
kvað hemla hennar hafa verið
óvirka og það hefði valdið
árekstrinum og því, að bílinn
rekst á kyrrstæðu bifreiðarnar.
Hins vegar fann bifreiðaeftirlits-
maður ekkert athugavert við bif-
reiðina. Miklar skemmdir urða á
bílunum fimm.
Grunaður um
innbrot í sum-
arbústaði á
Þingvöllum
LÖGREGLAN á Selfossi handtók
nú í vikunni mann nokkurn, sem
grunur leikur á að hafi brotizt inn
i nokkra sumarbústaði i Heið-
bæjarlandi í Þingvallasveit. Mál
þetta er í rannsókn hjá Rann-
sóknarlögreglu ríkisins og hefur
maðurinn verið úrskurðaður í
gæzluvarðhald í þágu rannsóknar
málsins.
— fþróttir
Framhald af bls. 31
man, Bretlandi sigraði í 200
metra hlaupi á 23,15 sek.,
Sharon Clyear Bretlandi sigr-
aði i 100 metra grindahlaupi ?
13,34 sek., Ritva Mesto, Finn-
landi sigraði i kúluvarpi, varp-
aði 15,95 metra og Tessa Sand-
erson, Bretlandi sigraði i spjót-
kasti, kastaði 60,84 metra, sem
er frábært afrek.
— Spenna...
Framhald af bls. 1
arefni. Byggingarefnið átti að
nota við smíði eftirlitsstöðvar í
fjöllunum suður af vopnlausa
svæðinu.
Þyrlan virðist hafa orðið fyrir
skothrið frá Norður-
Kóreumönnum þegar hún fór yfir
beltið, en flugmanninum tókst að
lenda. Ahöfnin fór út til að
athuga skemmdirnar, en flugu af
stað þegar Norður-Kóreumenn
nálguðust. Þá var aftur skotið á
þyrluna og hún hrapaði.
— Athugasemd
Framhald af bls. 2
það andstætt þeirri skoðun sem
þekktustu fisksjúkdómafræðing-
ar Dana hafa látið í ljósi, en þeir
töldu fráleitt að dreifa seiðum af
sýktum stofni i helztu veiðiár
landsins, er málið var borið undir
þá á liðnum vetri. Haft er eftir hr.
Bregnballe að ætti hann veiðiá
hér myndi hann kaupa laxaseiði
frá Laxalóni. Getur hann djarft
úr flokki talað og haldið þvi fram
að engin áhætta fylgi kaupum á
seiðum frá Laxalóni, þar sem
hann hvorki á veiðiá né getur
keypt seiði úr Laxalóni. Þess má
geta að norsk yfirvöld hafa lýst
þvi yfir, að ekki komi til greina að
leyfa flutning til Noregs á fiski úr
eldisstöð þar sem smitandi nýrna-
veiki hafi verið staðfest.
3. Maður þessi, F. Bregnballe,
er kynntur sem forstöðumaður
við tilraunastöð danska rfkisins i
fiskeldi, en mun ekki hafa fengizt
við fisksjúkdómarannsóknir sér-
staklega, eins og skýrsla hans ber
vott um. Kann það að vera
skýringin á því að hann telur sig
geta eftir fárra daga heimsókn á
Islandi og lauslega skoðun á laxa-
seiðum í Laxalóni fellt dóm um
smitandi nýrnaveiki, sem Danir
þekkja þó ekki af eigin raun svo
og um aðgerðir íslenzkra stjórn-
valda til að hamla gegn útbreiðslu
sjúkdómsins.
Það vekur nokkra undrun
margra að hr. Bregnballe skuli
telja sig þess umkominn að kveða
upp jafn hvatvislegan dóm á jafn
veikum grunni og raun er á.
Staðreyndin i þessu máli er þvi
miður sú, að smitandi nýrnaveiki
hefur verið staðfest svo ekki
verður um deilt í fiskeldisstöð-
inni að Laxalóni. Yfirlýsing hins
útlenda manns breytir þar engu
um. Fyrir stöðina i Laxalóni er
sjúkdómur þessi mikið áfall og
því nokkur vorkunn þótt reynt sé
nú að grípa í eitthvert hálmstrá.
Vandinn i málinu er hins vegar
sá, hvernig takast megi að upp-
ræta þennan sjúkdóm í Laxalóni,
svo að hann dreifist ekki með
seiðum i veiðiár víðs vegar um
landið eða í aðrar eldisstöðvar og
valdi þar tjóni, því aðstaðan að
Laxalóni er erfið.
Keldum, 14. júlí 1977.
Fh. Fisksjúkdómanefndar
Páll A. Pálsson
— Evrópuráð
Framhald af bls. 2
Að þvi er Ingvar Gíslason sagði
hefur islenzka þingnefndin tak-
markaða fjármuni og tíma til að
sitja alla fundi og ráðstefnur ráðs-
ins.
Einar Agústsson utanrikisráð-
herra hefði þó þrisvar heimsótt
ráðið í Strasbourg og flutt þar
ræður. Sagði Ingvar enn fremur
að islenzka nefndin reyndi af
fremsta megni að fylgjast með
ýmsum menningarmálum á veg-
um Evrópuráðs eins og náttúru-
vernd og byggingarvernd.
Þegar Czerntz var spurður
hverja hann áliti vera afstöðu
Carters Bandaríkjaforseta til
mannréttindabaráttu þeirrar,
sem nú er efst á baugi víða og
m.a. eitt af meginmálum Evrópu-
ráðs, sagði Czerntz að hann áliti
afstöðu Carters mjög jákvæða og
mest væri um vert að stórveldin
ræddu slík mál friðsamlega og á
jafnréttisgrundvelli. Mannrétt-
indabaráttan væri nú orðin einn
stærsti liður alþjóðlegra stjórn-
mála.
Starfsemi Evrópuráðs er þri-
skipt, má þar fyrst nefna þingið,
þá ráðherranefndina, en í henni
eiga sæti utanrikisráðherrar að-
ildarríkjanna sem hafa neitunar-
vald varðandi allar ályktanir
þingsins, sem lita má á sem
áskoranir á nefndina. Þriðji angi
starfsemi Evrópuráðs er fram-
kvæmdanefndin, sem er eitt aðal-
verk raðsins. Þar eru tekin til
umfjöllunar hin ýmsu menning-
armál og hefur verið lögð sérstök
áherzla á milliríkjasamvinnu í
sambandi við skólarannsóknir.
Island er aðili að Viðreisnar-
sjóði Evrópuráðs („Resettlement
Fund“), sem var stofnaður i því
skyni að hjálpa flóttafólki. Hefur
Island þegið töluvert fé úr þess-
Ég á við vanda að stríða, og ég vil ieysa hann að
vilja Guðs, en það virðist ókleift. Getið þér hjálpað
mér?
Fyrst er þar til að taka, að þér vitið, að Guð veit
um þennan vanda. Honum er líka umhugað um, að
þér finnið réttu úrræðin. Og hann mun hjálpa yður
að finna þau.
Vandi yðar snertir tvö atriði, að þér séuð fús til að
láta af yðar vilja og löngun og lúta Guði, og siðan að
taka leiðsögn hans, og fara eftir henni. Hið fyrra
gerið þér með því að koma til hans í nafni Krists og
biðja hann aó fyrirgefa yður syndir yðar og gefa
yður hjarta, sem gefur sig honum fullkomlega á
vald. Biðjið síðan Guð að leiðbeina yður greinilega
um það, hvernig vandi yðar veröi leystur. Þessi
leiðbeining gæti veitzt yður, meðan þér eruð að
biðja eða þér eruð að lesa í Biblíunni. Guð kann
einnig að senda einhvern á yðar fund, sem beinir
yður á réttan veg, undir leiðsögn heilags anda.
Kannski virðist yður þetta ósköp fræðilegt og
vélrænt. En í raun og veru erum við að „taka Guð á
orðinu“. Við setjum von okkar á hann og vegsömum
þannig orð hans. Svo segir í Orðskviðunum 3,5—6:
„Treystu Drottni af öllu hjarta, en reiddu þig ekki á
eigið hyggjuvit. Mundu til hans á öllum þínum
vegum, þá mun hann gjöra stigu þína slétta“. Veg-
samið Guð með því að viðurkenna orð hans og lifa í
samræmi við það, og hann mun vissulega veita yður
umbun fyrir trú yðar.
um sjóói, þó ekki hafi það verið til
styrktar flóttamönnum, heldur
svo dæmi sé tekið við vegalegn-
ingu á Vestfjörðum og fleira, að
því er Ingvar Gislason sagði. Enn-
fremur sagði hann að aðild
íslands í Evrópuráði væru sam-
skipti við sjóð þennan einn
stærsti liðurinn.
Karl Czerntz er fæddur i
Austuríki árið 1910. Hann er
lærður ljósmyndari og auglýs-
ingateiknari. Hann er sósialdem-
ókrati og hefur verið á þingi i
Austurríki siðan 1945. Hann þyk-
ir góður ræðumaður. og duglegur
stjórnandi. Czerntz var fangelsað-
ur af nazistum árið 1937 og var
flóttamaður frá árinu 1938 til
striðsloka. Hann var kjörinn for-
seti Evrópuráðs árið 1975.
— Hrygningar-
stöðvar
Framhald af bls. 2
—Ég held að það hafi nú komið
í ljós, að Jakob Jakobsson hafði
rétt fyrir sér er hann sagði að stór
hrygningarsvæði síldarinnar við
Surtsey hafi farið forgörðum I
gosinu þar, og einnig hefur gosið i
Heimaey skemmt einhverja staði,
þannig að fiskistofn getur farið
mjög illa án þess að um beina
ofveiði sé að ræða, sagði Eyjólfur.
Þá sagði hann að sildin hrygndi
á fingerðum malarbotni. Þar legði
hún hrognin i köku, og þyrfti þvi
að vera sífellt vatnsstreymi i
gegnum kökuna og undir, ef svo
væri ekki fengju þau hrogn, sem
væru neðst i kökunni, ekkert
súrefni og eyðilegðust.
Um hrygningu sumargotssíldar-
innar á þessu sumri sagði Eyjólf-
ur að hrygningin ætti nú að vera
langt komin og þeim hefði virzt
sem mest af sildinni ætlaði að
hrygna við Hrollaugseyjar og við
Ingólfshöfða. Hrygningarsvæðið
við Ingólfshöfða væri nálægt tog-
svæði báta og því væri ekki
ósennilegt að þvi þyrfti að loka
næsta sumar þegar síldin hrygndi
Þá. t T ~----
— 48% hækkun
Framhald af bls. 32
1976 er 38.16%. Hækkun
útsvara frá 1976 nemur
48%. Hæstu gjaldendur í
umdæminu af einstakling-
um eru Leó F. Sigurðsson
útgerðarmaður á Akureyri
með um 9.9 millj. kr„ Stef-
án Óskarsson trésmíða-
meistari í S-
Þingeyjarsýslu um 5 millj.
kr. og Ólafur Ólafsson lyf-
sali Húsavík með um 4.3
millj. kr.
Gjaldhæsta félagið er Kaupfél-
ag Eyfirðinga með alls 98.3 millj.
kr„ en heildargjöld Kaupfélags
Eyfirðinga og útibúa þess nema
um 123 millj. kr. Johns Manville
greiðir 46.5 millj. kr. i gjöld,
Slippstöðin h.f. 29.4 millj. kr„ Út-
gerðarfélag Akureyrar 26,5 millj.
kr. og SlS, verksmiðjur, 26.5
millj. kr.
— Landsstjóri
segir af sér
Framhald af bls. 5.
Stjórnmálaskýrendur i Ástralíu telja
afsögn Sir Johns benda til þess að
þingkosningar fari fram siðar á þessu
ári eða snemma á þvi næsta. en þá er
meira en ár eftir af þvi kjörtimabili,
sem nú stendur yfir. Segja þeir, að
hinn nýi landsstjóri sé til þess fallinn
að lægja þær öldur, sem undanfarið
hafi risið á stjórnmálavettvangi. og
virðist svo sem stjórnarandstæðingar
séu almennt sömu skoðunar.
Bréf Torfa -
leiðrétting
I FRÉTT hér í blaðinu í gær um
fyrirhugaða þriggja binda útgáfu
á safni bréfa frá og til Torfa
Bjarnasonar skólastjóra, misritað-
ist tala þeirra bréfa sem hverju
bindi er ætlað að geyma. Þau
verða um 200 talsins auk ritgerða
eftir Torfa.