Morgunblaðið - 15.07.1977, Síða 32
u<;lysin<;asímin\ er:
22480
2H*rjjitnMaíiiS>
At'ííLÝSIMíASÍMINN ER:
22480
FÖSTUDAGUR 15 JÚLÍ 1977
Schmidt kansl-
ari kemur í dag
HELMUT Schmidt kansl-
ari Vestur-Þýzkalands og
kona hans Hannelore
Schmidt, koma í opinbera
heimsókn til tslands í dag.
Kanslarinn og föruneyti
lenda í Keflavík laust fyrir
kl. 19, eh kl. 20,30 heldur
Geir Hallgrímsson forsæt-
israæðherra kvöldverðar-
boð fyrir kanslarann og
föruneyti hans að Hótel
Sögu.
Friðunartil-
lögumar fyrir
ríkisstjórn-
ina í dag
TILLÖGUR sjávarútvegsrádherra
um frekari friðun þorskstofnsins
verða væntanlega lagðar fyrir rfk-
isstjórnina á fundi í dag. Sam-
kvæmt heimildum sem Morgun-
blaðið hefur aflaðsér munu tillög-
urnar verða lagðar fram í breyttri
mynd frá þvf sem upphaflega var
áformað vegna óska sjómanna og
útvegsmanna. Tillögurnar munu
upphaflega hafa verið á þá leið að
stöðva þorskveiðar f eina viku
kringum verzlunarmannahelgina
og samtals um einn mánuð fram
til áramóta. Við það gátu sjómenn
og útvegsmann ekki sætt sig,
fyrst og fremst vegna þess, að
stöðvun þorskveiða þýddi að
þeirra mati atvinnuleysi um
skeið.
Nýbreytni
í vaxtamál-
um — til-
kynnt í dag
f DAG mun Seðlabank-
inn væntanlega birta til-
kynningu um nýbreytni
f vaxtamálum, sem
bankinn hefur að undan-
förnu haft f undirbún-
ingi. Bankaráð Seðla-
bankans var á fundi sfð-
degis í gær, þar sem
fjallað var um þessi mál
og er búizt við endan-
legri ákvörðun í dag.
A laugardeginum er dagskrá
þannig háttað m.a. að kanslarinn
mun eiga viðræður við islenzka
ráðamenn í Stjórnarráðinu, viðtal
við forseta Islands og laust fyrir
hádegi verður fiogið til Vest-
mannaeyja. Þar mun kanslarinn
fara um borð i varðskip og siðan
verður siglt í kring um Eyjarnar
og fuglalíf skoðað. Að lokinni
hringsiglingu um Eyjar verða eld-
stöðvarnar á Heimaey skoðaðar,
en síðan verður aftur haldið til
Reykjavikur þar sem kanslarinn
mun skoða Stofnun Árna Magnús-
sonar. Síðdegis verður blaða-
mannafundur með kanslaranum i
Ráðherrabústaðnum, en á laugar-
dagskvöld býður kanslarinn til
kvöldverðar á Hótel Loftleiðum.
Frá íslandi halda gestirnir að
morgni sunnudags.
Frú Hannelore Schmidt mun
fara í sérstaka skoðunarferð i
Þjóðminjasafnið og Listasafn ís-
lands.
Finnska flugkonan Kuorti, sem fyrir skömmu nauðlenti eins hreyfils sjóflugvél liðlega 100 mflur
vestur af tslandi og var bjargað af Björgunarsveit Varnarliðsins og hafrannsóknaskipinu Árna
Friðrikssyni lenti f fyrradag f Reykjavfk á sams konar flugvél, sem hún er að flytja frá Bandarfkjun-
um til Finnlands. Myndin var tekin á Loftleiðahótelinu áður en Kuorti hélt áfram ferð sinni.
Ljósmynd Mbl. Kristinn.
Mokafli togaranna:
Júlíus Geirmundsson hefur
landað 600 tonnum á 3 vikum
Islcnzku togararnir hafa
fiskað mjög vel að undan-
förnu á svæðinu frá Hala
og austur undir Þverál.
Hafa tsafjarðartogararnir
t.d. verið að koma inn með
mjög góðan afla sfðustu
daga og f gær landaði
Júlíus Geirmundsson 110
lestum eftir þriggja daga
útivist og er togarinn þá
búinn að landa yfir 600
tonnum á þrem vikum.
Hafa fáir eða engir fslenzk-
ir togarar fengið svo mik-
inn afla á jafn skömmum
tfma hin sfðari ár, en þó
fékk Guðbjörg frá Isafirði
700 tonn á einum mánuði í
vetur. Einn ísafjarðartog-
aranna, Guðbjartur, var
kominn með 140 tonn f gær
eftir nokkuradaga útivist,
þá landaði Páll Pálsson 137
tonnum í fyrradag og vitað
var að Bessi frá Súðavfk
var kominn með mjög
góðan afla. Uppistaðan f
afla togaranna er þorskur.
LJósmynd: Sigurgeir I Lyjum.
„Efast ekki um að kolmunna-
veiðarnar gangi vel í sumar”
— segir Magni Kristjánsson skipstjóri á
Berki—Fleiri skip til veiða á næstunni
— VEIÐARNAR hafa gengið
ágætlega og við erum búnir að fá
eitthvað yfir 400 tonn af kol-
munna í 5 hölum, sagði Magni
Kristjánsson skipstjóri á Berki
NK þegar Morgunblaðið ræddi
við hann í gær en þá var Biirkur
að kolmunnaveiðum 28—30 milur
austur af Bjarnarey.
I samtalinu við Morgunblaðið
sagði Magni, að þeir hefðu togað í
frá 2—5 klukkustundir og væri
gott að eiga við kolmunnann,
nema hvað hann héldi sig all-
nærri botni.
— Við ætlum að vera hér áfram
við veiðarnar og reyna að fylla
skipið og ég efast hreint ekki um
að þessar veiðar eigi eftir að
ganga vel í sumar. Fyrst og
fremst vantar fleiri veiðiskip á
miðin og um leið leitarskip, en
það er ákaflega erfitt fyrir eitt
skip að stunda þessar veiðar, því
þá getur maður ekki fyigzt ná-
kvæmlega með hvar beztu lóón-
ingarnar er að finna.
Morgunblaðið frétti í gær að
eitt skip, Víkingur AK, myndi
halda á kolmunnamiðin úti fyrir
Austfjörðum um helgina og Fiski-
félag Íslands er nú að reyna fá
leigða tvo báta með svokallað tví-
lembingstroll.
Már Elísson fiskimálastjóri
sagði þegar Morgunblaðið ræddi
við hann, að þeir hefðu góðar
vonir um að fá leigða tvo báta í
Vestmannaeyjum. Fleiri bátar
hefðu reyndar staðið til boða, en
Fiskifélagið vildi ekki ráða skip
til þessara veiða nema þvi aðeins
að þau gætu verið a.m.k. einn
mánuð á kolmunnaveiðum með
tvílembingsvörpuna.
Bauð á 3. hundrað
uppboðsgestum í kaffi
Bóndi í Reykhólasveit hélt
uppboð að heimili sínu
Miðhúsum 14. júlí.
MAGNUS Ingimundarson, fyrr-
um hreppstjóri í Bæ I Reyk-
hólasveit, er nú að bregða búi
vegna aldurs og hélt hann upp-
boð að heimili sfnu að Kletti f
Geiradal í gær. 1 upphafi lýsti
sýslumaður Barðstrendinga,
Jóhannes Árnason, uppboðs-
skilmálum og síðan ávarpaði
Magnús uppboðsgesti og bauð
þá velkomna og að þeir skyldu
gera sig heimakomna og þiggja
hjá sér og konu sinni kaffi sem
borið var fram af miklum
rausnarskap.
Uppboðið hófst stundvfslega
kl. 2 og mátti þá sjá bændur og
búalið úr fjðrum sýslum, þ.e.
Isafjarðar-, Stranda—, Dala- og
Austur-Barðastrandarsýslu.
Þegar flest var mun fólksfjöldi
hafa verið á 3. hundrað og
minnti uppboðsstaður á hinar
gömlu góðu sveitaskemmtanir
þar sem fólk hitti gamla kunn-
ingja sfna og rabbaði saman.
Þegar undirritaður yfirgaf upp-
boðsstað milli 11 og 12 f gær-
kvöldi hafði uppboðið staðið
þindarlaust frá kl. 2 og engin
þreytumerki sáust á fólki eða
uppboðshaldara. Var uppboði
þá ekki nærri lokið en þá höfðu
selzt á 4. hundrað númer. Svona
uppboð eru að verða afarsjald-
gæf og virðast heyra til liðinni
tfð.
Á uppboðinu voru vinnuvél-
ar, búsáhöld og húsgögn, en
býlið Klettur fer f eyði að svo
stöddu. Þar voru um 200 f jár.
—Sveinn
Norðurlandskjördæmi eystra:
48% hækkun útsvara
frá 1976-3777 mfflj-
ónir kr. í opinber gjöld
Sjá nánar á bls. 14.
HEILDARFJÁRHÆÐ
áiagðra gjalda í Norður-
landskjördæmi eystra 1977
eru 3777 milljónir króna
hjá 11.769 einstaklingum
og 713 félögum. Heildar-
hækkun á álagningu sfðan
Framhald á bls. 18