Morgunblaðið - 16.08.1977, Page 12

Morgunblaðið - 16.08.1977, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. AGUST 1977 Rætt við starfsmenn w a Grundartanga „Þetta kemur hvort eð er“, sagði Jðn Sæm- undsson og hélt áfram að losa fleygana, sem höfðu festst. „Járnblendiverksmiójan veitir fólki í nágrenninu aukin atvinnutækifæri" Tilkoma járnblendiverksmiðjunnar kemur vissulega til með að hafa breyt- ingar í för með sér fyrir byggðina í nágrenninu. Persónulega var ég fyrst algjörlega á móti þcssum framkvæmd- um en sem komið er þá er mér alveg sama. ví þetta kemur hvort eð er. Bændur eru sumir að hætta búskap hér í nágrenninu og margir vilja rekja það til byggingar verksmiðjunnar. Ég held þó að aðalástæðan sé einfaldlega að flestir eru þessir bændur orðnir gamlir menn. Fólk á mínum aldri hefur ekki áhuga á búskap. Verksmiðjan veitir hins vegar ungu fólki hér fleiri at- vinnutækifæri, sagði Jón Sæmundsson frá Galtaiæk í Skilmannahreppi, er blaðamenn Morgunblaðsins hittu hann og nokkra aðra starfsmenn við störf á Grundartanga að máli fyrir skömmu. „Mengunin gerir grasið aðeins grænna“ Þau eru æði mörg handtökin, sem liggja að baki byggingar verksmiðju eins og þeirrar, sem nú er að rísa á Grundartanga, þvi þó margt megi vin- na með stórvirkum vinnuvélum, þarf mannshöndin að gripa inn í nær alis staðar. Vinnuvélar verða ekki hreifðar eða steypumót reist nema mannshönd- in komi þar nærri. Nú eru við vinnu á Grundartanga tæplega 150 manns og þar af vinna um 40 eingöngu að hafnar- gerðinni á vegum Hafnamálastjórnar- innar. Gert er ráð fyrir að starfsfólk við byggingu járnblendiverksmiðjunn- ar verði flest upp úr áramótum en þá verða rúmiega 200 manns að störfum þar auk starfsmanna við hafnargerð- ina. Fyrrnefndur Jón Sæmundsson var að vinna með loftpressu í skurði, sem geyma á holræsislögn frá verksmiðju- húsinu, þegar við tókum hann tali. Það var reyndar ekki auðvelt að koma boð- um til Jóns um að við vildum ræða við hann fyrir hávaða í loftpressunni og því til viðbótar var Jón brynjaður eyrnaskjólum. Eins og áður gat var Jón einn þeirra heimamanna, sem mót- mæltu byggingu járnblendiverksmiðj- unnar á þessum stað en hefur nú snúizt hugur. Við spurðum Jón, hvort hann hefði trú á þvi að jafn mikil mengunar- hætta væri af verksmiðjunni og sumir vildu álíta? — Það er ómögulegt að segja um hvort þessi verksmiðja hefur einhverja „Þetta verður viát full- komnasta járnblendiverk- smiðja í heiminum,“ sagði Guðmundur Guðmundsson (til vinstri) og Magnús Magnússon hafði séð járn- blendiverksmiðju í Grikk- landi, sem var mesti meng- unarstaður í Evrðpu. Björn Hermannsson bryggjusmiður og félagar hans voru að smíða bráða- birgðabryggju þar sem dýpkunarskip gæti lagzt að. mengun i för með sér. En satt bezt að segja hafa menn frekar lítið fengið að heyra um þessi mál nema þar hafi verið á ferðinni æsingamenn. Menn slá þessu bara upp I grin og segja að mengunin geri grasið aðeins grænna. Eins og ég sagði áðan þá kemur verk- smiðjan til með að bjóða upp á aukna atvinnumöguleika fólks hér í nágrenn- inu og það getur ekki verið til annars eii góðs. Ég er bjartsýnn á að tilkoma þessarar verksmiðju verði til góðs fyrir okkur en náttúrlega verður henni bölv- að í sand og ösku ef þetta fer illa, sagði Jón að lokum. „Starfsfólk og þjónusta frá Akranesi“ Háir staflar af krossviðarflekum, sem bersýnilega biðu þess að gegna sínu hlutverki, urðu til að vekja athygli okkar. Tveir menn í brúnum samfest- ingum og auðvitað með hjálma á höfði, því enginn má sjást á ferli á athafna- svæðinu nema vera með hjálm, voru í óða önn að leita að .einhverju innan um flekana. Forvitni blaðamannsins rak okkur til að spyrja til hvers þessir flekar væru notaðir. — Þetta eru fleka- mót, sem notuð eru til að steypa upp mannvirki hér. Við köllum þau doka- mót en það nafn er dregið af fyrirtæk- inu, sem framleiðir bitana, sem kross- viðarplöturnar eru festar á. En aðal- kosturinn við þessi mót er hvað þau auka mikið byggingarhraðann. — Sá sem svarar heitir Elías Jóhannesson en

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.