Morgunblaðið - 16.08.1977, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. AGOST 1977
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjómarfulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Ritstjóm og afgreiSsla
Auglýsingar
hf. Árvakur, Reykjavlk
Haraldur Sveinsson.
Matthlas Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjöm GuSmundsson.
Bjöm Jóhannsson.
Ámi GarSar Kristinsson.
ASalstræti 6. slmi 10100
ASalstraati 6, slmi 22480
Áskriftargjald 1300.00 kr. á mánuSi innanlands.
í lausasölu 70.00 kr. eintakiS.
Umhverfi manna
Nauðsyn þess að umhverfið, sem við lifum og hrær-
umst í, sé aðlaðandi, fagurt og heilsusamlegt, verður leikum
sem lærðum æ Ijósari Þetta kemur m.a. fram í viðtali við formann
umhverfismálaráðs Reykjavíkur, Elínu Pálmadóttur borgarfull-
trúa, sem birt var hér í blaðinu sl laugardag. Það er ekki nóg, að
borgarinn hafi starf við sitt hæfi, er nægi honum til að hafa í sig
og á, heldur þarf hann auk daglegs brauðs, hreint loft, tært vatn
og tengsl við óspjaflaða náttúru landsins — með öðrum orðum
það umhverfi, sem er ómissandi liður í andlegri og líkamlegri
heilbrigði hans — og hamingju yfirleitt.
Sú viðleitni að tryggja borgaranum slíkt umhverfi hefur á
margan hátt vel tekizt að dómi formanns umhverfismálaráðs
Reykjavíkur, Elínar Pálmadóttur. Má þar nefna Hitaveitu Reykja-
víkur, sem var varnarleikur gegn reykmengun í borginni, auk
hagnýts gildis hennar til húshitunar; malbikun allra umferðar-
gatna, er losaði borgarbúa við hið hvimleiða ryk malargatna (í
þurrki) og aurleðju (í vætutíð); græn svæði víða I borginni, m.a. I
Laugardalnum og við Tjörnina, með tilheyrandi trjágróðri og
blómaskrúði; og fólkvanga I nágrenni hennar.
Varðandi útivistarsvæði segir Elín ,,Við höfum tekið frá ósnortin
útivistarsvæði fyrir framtíðina, sem verða milli hverfa, svo sem
Oskjuhlíðina, fjöruna neðan Korpúlfsstaða, meðfram Korpu og
Elliðaárdalinn, en þaðan á svo að vera hægt að komast á
göngubrú í fólkvangana, svo sem Rauðhóla, þaðan i Heiðmörk og
áfram I Bláfjallafólkvang og svo Reykjanesfólkvang, sem endar á
Krisuvíkurbjargi. En tveir síðastnefndu fólkvangarnir hafa verið
stofnaðir með öðrum sveitarfélögum, sem þar eiga land. . . Ég
held að það sé ákaflega mikilvægt í borg eins og Reykjavík að
hlynna að öllu því, sem ungir og gamlir gera saman, en heilu
fjölskyldurnar sér maður una sér í Bláfjöllum. Það sama gildir um
hestamennsku og bátasport. . ."
Elín bendir hins vegar á, að vaxandi byggð, með nútíma
lifnaðarháttum, eigi í vök að verjast vegna ýmisskonar mengunar
lofts, láðs og lagar. Með vaxandi úrgangi aukist þörfin á því að
koma skólpi og óþrifum frá sér — lengra en út í fjöruborðið í því
efni þurfi kostnaðarsamar framkvæmdir. Umhverfismálaráð hefur
komið á stöðugu eftirliti með og mælingum á mengun lofts og
lagar i Reykjavík. Mælingar sýna m.a segir Elín, að við viss
skilyrði sendir Áburðarverksmiðjan frá sér of mikið af köfnunar-
efnistvíildi. Úr slíku þurfi að bæta þegar Sömu heilsuspillandi
efnin mælist í útblæstri bíla við mestu umferðargötur Með
vaxandi umferð þurfi og, í tíma, að hyggja að réttum viðbrögðum.
Hér sé í raun um heilbrigðismál að ræða, sem krefjist fyrirbyggj-
andi aðgerða, er geti skilað sér i minni rekstrarkostnaði heil-
brigðiskerfis og fleiri vinnudögum borgarbúa en ella.
Umhverfismálaráð Reykjavíkur hefur unnið þörf störf, bæði í
rannsóknum og skipulagningu, sem hafa munu áhrif á umhverfi
og aðstöðu borgarbúa á komandi árum. í því efni þarf áfram að
stefna að því marki. að íbúar höfuðborgarinnar geti búið að því
bezta, sem fyrirhyggja og framsýni á þessu starfssviði getur
tryggt þeim
Fullorðinsfræðsla
Itilvitnuðu viðtali við Elinu Pálmadóttur borgar-
fulltrúa, er m.a. lítillega komið inn á fullorðinsfræðslu í
höfuðborginni. Námsflokkar Reykjavikur gegna þar mjög mikil-
vægu og vaxandi starfi. í þjóðfélagi örra breytinga þarf hinn
fullorðni borgari, sem þess æskir, að eiga kost á endurnámi eða
viðbótarnámi, til að auka á þekkingu sína og starfshæfni.
Að tillögu Elínar fengu Námsflokkarnir Miðbæjarskólann gamla
til sinnar starfsemi. Þar stunduðu um 1 500 manns ýmisskonar
nám á sl vetri Þar bjó fólk sig undir sjúkraliðanám, störf i iðnaði
og verzlunarstörf, svo dæmi séu nefnd Margir öfluðu sér prófa,
sem krafizt er til frekari menntunar ýmisskonar. Hér er tvímæla-
laust um mjög mikilvægan þátt að ræða í þeirri viðleitni að gera
fólki kleift að frnna störf við sitt hæfi, þótt það leiti fullorðið á
vinnumarkað, eins og reynslan hefur verið með húsmæður
ýmsar. Aukin þekking og endurmenntun kemur og öllum til
tekna, auk þess sem Námsflokkarnir skapa tækifæri til að eyða
tómstundum á heilbrigðan hátt í góðum félagsskap. Það er mjög
mikilvægt í vaxandi borg, þar sem einstaklingarnir einangrast
gjarnan. Fámenn þjóð hefur ekki efni á, hvern veg sem á mál er
litið, að nýta ekki náms- og starfshæfni þegna sinna, hvers og"
eins, hvert sem aldursskeið þeirra er Og heill og hamingja
manneskjunnar er alténd það sem mestu máli skiptir. þegar
þjóðlifið er brotið til mergjar.
FYRSTA SKOFLUSTUNGAN — Birgir tsleifur Gunnarsson, borgarstjóri tekur fyrstu skóflustunguna
af 2. áfanga verkamannabústada í Breiöholti. Viðstaddir eru stjórnarmenn Verkamannabústaðanna og
gestir. Ljósm. Mbl. Öl. K. Magn.
Annar og þriðji áf angi verkamannabústaða:
216 íbúðir í fjölbýlis-
húsum og 60 íbúðir
í raðhúsum
BIRGIR lsleifur Gunnarsson
borgarstjóri tók á laugardag
fyrstu skóflustunguna aö öðr-
um áfanga Verkamanna-
bústaða í Breiðholti í Reykja-
vík. I öðrum áfanga Verka-
mannabústaðanna verða 216
íbúöir í þriggja hæða fjölbýlis-
húsum og í þriðja áfanga, sem
hafizt verður handa um að
byggja ■ framhaldi af öðrum
áfanga, verða 60 íbúðir í rað-
húsum. Rísa hús þessi í Breið-
holti III-Austurdeild og standa
f jölbýlishúsin við Háberg,
Austurberg og Suðurberg en
raðhúsin við Háberg og Hamra-
berg. 1 ávarpi, sem borgarstjóri
flutti af þessu tilefni, árnaði
hann stjörn Verkamanna-
bústaðanna heilla með þann
áfanga, sem nú væri verið að
hefja framkvæmdir við og
sagði verkamannabústaðina
hafa reynzt vel. — Þeir hafa
átt verulegan þátt í að gefa
láglaunafólki tækifæri til að
eignast íbúðir, sagði Birgir ls-
leifur Gunnarsson.
Aður en fyrsta skóflustungan
að öðrum áfanganum var tekin
sýndi stjórn Verkamanna-
bústaðanna gestum íbúðir í
fyrsta áfanganum í Seljahverfi.
Eyjólfur K. Sigurjónsson, for-
maður stjórnarinnar, sagði að
hafizt hefði verið handa við
jarðvegsvinnu vegna fyrsta
áfangans i april 1974 en alls
hefðu verið byggðar í þessum
áfanga 308 ibúðir og alls væri
söluverð þeirra 1,8 milljarðar
króna. Hefði 124 íbúðum verið
úthlutað á sl. ári og það, sem af
væri þessu ári hefði 96 íbúðum
verið úthlutað en þeim, sem
eftir væru yrði úthlutað fram
að áramótum. Fram kom hjá
Eyjólfi að 1020 umsóknir hefðu
borizt um þessar 308 íbúðir.
Um fjármögnum verka-
mannabústaðanna sagði Eyjólf-
ur að 20% af verði ibúðanna
kæmi frá eigendum en hitt
væru lán til nokkuð langs tima
og kæmi 35% af verði íbúðar-
innar frá Húsnæðismálastofn-
un rikisins og 45% frá
Byggingarsjóði verkamanna,
sem m.a. væri fjármagnaður
með framlagi Reykjavikurborg-
ar. Fjögurra herbergja íbúð í
fyrsta áfanganum kostaði 7,8
milljónir en þriggja herbergja
íbúðir miili 6 og 6,5 milljónir.
t 3. áfanga verkamannahústaðanna, sem hafizt verður handa um að
hyggja að loknum 2. áfanga, verða reistar 60 fbúðir t raðhúsum.
Verða raðhúsin á tveimur hæðum og 4 til 5 herbergja með eldhúsi
og baði. Þessi teikning sýnir útlit húsanna.
Unnið er nú að frágangi slðustu ibúðanna i 1. áfanga verkamanna-
bústaðanna i Seljahverfi. Við uppsteypu þar voru notuð stálmót og
verða þau einnig notuð við 2. áfanga en uppsteypa á húsunum
verður boðin út á næstunni.
Eyjólfur sagði það skoðun
sína að ekki væri rétt að taka
nein heljarstökk varðandi
breytingar á byggingarformi
verkamannabústaðanna en
hins vegar teldi hann tímabii
hefðbundnu blokkabygging-
anna liðinn. Þeir áfangar, sem
nú væri verið að hefjast handa
við tækju mið af þessu og lögð
væri áherzla á að íbúarnir væru
meira út af fyrir sig í sinum
íbúðum. Fjölbýlishúsin verða
þriggja hæða með sameiginlegu
stigahúsi en gengið er inn í
hverja íbúð af svalagangi. I
fjölbýlishúsunum verða 12
íbúðir í hverju húsi, 36 ein-
staklingsibúðir, 72 tveggja her-
bergja og 108 þriggja herbergja
ibúðir. Eyjólfur sagði að þeir í
stjórn verkamannabústaðanna
teldu ekki rétt að byggja 4 her-
bergja íbúðir f fjölbýlishúsum
og því hefði verið ákveðið að
byggja raðhús, sem hentuðu
fyrir stórar fjölskyldur. Gert er
ráð fyrir að fyrstu íbúðirnar i 2.
áfanga verði afhentar öðru
hvoru megin við áramótin
Framhald á bls. 28