Morgunblaðið - 16.08.1977, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGUST 1977
Frá íslandsmótinu ígolfi#sem laukíGrafarholt
Fastirliðir
eins og venju-
lega eftirein-
vígialdarinnar
ÍSLANDSMÓTIÐ í golfi, sem lauk á velli GR í Grafarholti á laugardaginn, var
fjölmennasta golfmót, sem haldið hefur verið hérlendis. 226 kylfingar mættu til
leiks og var mikil keppni í flestum flokkanna og úrslit óráðin um hin ýmsu sæti þar
til á síðasta keppnisdegi. I mestaraflokki karla varð Björgvin Þorsteinsson Islands-
meistari, fastir liðir eins og venjulega sagði einhver, en Björgvin hefur sigrað á
fimm síðustu Islandsmótum í golfi.
Veðurguðirnir fóru ómjúkum
höndum um kylfingana meðan
landsmót þeirra stóð yfir. ‘Yfir-
leitt var rok eða rigning og ósjald-
an hvort tveggja i einu. Mótið fór
þó mjög vel fram og varla hægt að
segja að snuðra hafi nokkurs stað-
ar hlaupið á þráðinn. Hófst mótið
á þriðjudag með sveitakeppni og
þá kepptu einnig öldungarnir, eða
þeir kylfingar sem eru 52 ára eða
eldri. Vegna hins míkla þátttöku-
fjölda varð að ræsa fyrstu menn
út snemma á morgnana og þannig
voru t.d. fyrstu keppendur úr
þriðja flokki komnir út klukkan 6
á laugardagsmorgun — áður en
fyrstu hanar gólu — og inn komu
þeir fyrstu með 18 holur að baki
nákvæmlega klukkan 9.08 eða um
það bil sem fólk almennt var að
fara á fætur.
Margt skemmtilegt skeði í
þessu tsiandsmóti, m.a. fór Hrólf-
ur Hjaltason holu í höggi á 16
braut síðasta keppnisdaginn.
Verður nú vikið að keppninni í
hverjum flokki fyrirsig.
parinu. Enn voru þeir jafnir eftir
fjórar holu, en á 5. braut fékk
Ragnar tvö víti og fór brautina á 8
höggun meðan Björgvin fór á 5.
Þrjú högg til Börgvins og á næstu
tveimur bætti hann 2 höggum við
og Ragnar þurfti nú að sækja heil
5 högg. Fæstir áttu von á að hon-
um tækist það, töldu Islandsmótið
búið, Björgvin Islandsmeistara.
Fyrri 9 holurnar lék Björgvin á 40
höggum, Ragnar á 44.
Ragnar var þó ekki á því að gefa
sig og sýndi mikla keppnishörku á
næstu holum. 10. braut lék Ragn-
ar á 4, Björgvin á 5 og enn saxaði
Ragnar á andstæðing sinn á
næstu þremur holum. Fór 11.
braut á 2. höggum, Björgvin á 4, á
12. tók Ragnar enn eitt högg og á
13. tók hann forystuna i keppn-
inni er hann lék á 4 höggum, en
Björgvin notaði 6. Var staðan nú
allt í einu orðin þannig að Ragnar
var kominn með eins höggs for-
skot og allt gat gerzt.
Björgvin setti laglega niður
langt „pútt“ á 14. braut, fékk
,,birdie“ meðan Ragnar var á par-
inu og staðan orðin jöfn. S:gði
Ölafur Bjarki Ragnarsson faðir
Ragnars og kylfusveinn hans að
þetta hefði verið vendipunktur-
inn í keppninni. Þessu hefðu þeir
feðgar alls ekki reiknað með.
Ragnar týndi síðan bolta í skurð á
15. braut, en báðir léku þeir þó
brautina á 6 höggum, þar sem
Björgvin „þrípúttaði".
16. holan var jöfn hjá þeim fé-
lögum, en höggið sem færði
Björgvin Islandsmeistaratitilinn
kom á 17. brautinni. Gott teigskot
hans lenti þrjá metra frá holu,
meðan Ragnar lenti utan brautar
10 metra frá flöt. Björgvin lék
brautina á 3, Ragnar á 4. Síðustu
holu fóru báðir á4 höggum, þann-
ig að seinni níu lék Ragnar á 35
höggum, en Björgvin á 39. Skor
þeirra síðasta dag varð því það
sama, 79 hjá báðum frekar slakt,
enda gífurleg spenna í þessu „ein-
vígi aldarinnar.“ Björgvin ís-
EINVÍGI
ALDARINNAR
Fyrsta dag keppninnar í meist-
araflokki karla tóku þeir forystu
Svan Friðgeirsson og Atli Arason,
en Björgvin Þorsteinsson og
Ragnar fylgdu þó í humátt á eftir.
Eftir tvo daga hafði Björgvin tek-
ið forystu í keppninni, sem hann
sleppti ekki eftir það, en Ragnar
lét Akureyringinn sannarlega
hafa fyrir hlutunum nú eins og i
fyrra.
Atli fylgdi þeim þó lengi vel
eftir og var í þriðja sæti er kom að
fjórða og siðasta degi keppninnar
í meistaraflokki. Lék hann þá
með Ragnari og Björgvin í „holli“
en þoldi greinilega illa spennuna,
sem fylgdi þeim köppunum og
áhorfendaskarann, sem rölti með
þeim brautirnar 18. Hafa ekki
undir 200 manns fylgst með allan
timann úti á velli á laugardag,
auk stórs hóps, sem fylgdist með
úr skála GR, en þangað bárust
upplýsingar greiðlega um gengi
keppenda.
Aður var minnst á Svan Frið-
geirsson, en hann var i forystu
eftir fyrsta dag. Þótti það góður
árangur hjá þessum liðlega fimm-
tuga kylfingi og fékk hann lækk-
un í forgjöf fyrir frammistöðu
sína fyrsta keppnisdaginn. Skaut
Svan Geir syni sínum ref fyrir
rass á mótinu, kom inn á einu
höggi betra en sonurinn, en hvor-
ugur þeirra varð þó í fremstu
viglínu að þessu sinni.
Eftir að leiknar höfðu verið 54
holur hafði Björgvin leikið á 227
höggum, en Ragnar á 228 högg-
um. Ragnar jafnaði þann mun á
annarri holu á laugardag, er hann
lék á 3 höggun, en Björgvin var á
— LANAÐU MER PUTTERINN ÞINN — Ragnar Ólafsson hefur
greinilega áhuga á pútter Björgvins Þorsteinssonar og virðist vilja
vöruskipti.
BJÖRGVIN athugar púttlínuna og það sama gera þeii
landsmeistari á 306 höggum,
Ragnar með 307.
Auk þess að vera óumdeilan-
lega beztir islenzkra kylfinga eru
þeir Björgvin og Ragnar miklir
íþróttamenn í leik sínum. Til að
mynda dæmdi Ragnar viti á sjálf-
an sig þriðja keppnisdaginn fyrir
að hreyfa bolta sem lá utan braut-
ar. Mun boltinn hafa runnið til
um nokkra sentimetra. Var eng-
inn nálægur Ragnari er þetta
gerðist, en hann dæmdi aukahögg
á sig fyrir þetta óhapp. Björgvin
hefði eflaust gert hið sama og
hefur gert oftsinnis við svipuð
tækifæri.
Þriðji í íslandsmótinu að þessu
sinni varð Sigurður Thorarenssen
úr Keili á 314 höggum, en hann
missti af lestinni þriðja dag
keppninnar er hann lék á 84 högg-
um. Varð Sigurður einnig þriðji í
Islandsmótinu i fyrra, þannig að
með sanni má segja að fastir liðir
séu eins og venjulega hjá kylfing-
um. Jafnir í 4 sæti urðu þeir Óttar
Yngvason og Sveinn Sigurbergs-
son, annars vegar gamall jaxl í
iþróttinni, hins vegar einn af okk-
ar efnilegutu kylfingum, en
Sveinn er ekki nema 16 ára gam-
all.
Ungir kylfingar og eldri eru í
bland í efstu sætum landsmótsins
og er t.d. athyglisvert að sjá
árangur manna eins og Óttars og
Jóhanns Benediktssonar í þessu
móti. Af þeim 11 kylfingum, sem
fengu stig í þessu landsmóti áttu
allir stærstu golfklúbbarnir sina
fulltrúa, GA 1, GR 2, Keilir 3, GS
2 og Nesklúbburinn 3 menn. Gaf
landsmótið alls 290 stig.
ÖRUGGUR
SIGUR HELGA
Helgi Hólm sigraði örugglega í
1. flokki karla, en hann lék á 334
höggum. Gylfi Kristinsson, einnig
GS, lék á 339 höggum. Eftir fyrsta
daginn hafði Sveinbjörn Björns-
son forystu, en Helgi tók síðan
fyrsta sætið af honum og hélt
henni til loka keppninnar. Voru
55 keppendur i 2. flokki og var
það fjölmennasti flokkurinn.
Komiðuppí
aðverða f2.
— ÞAÐ ER orðið hálfgerður vani
hjá mér að verða í 2. sæti, svo
vonbrigðin eru ef til vili ekki eins
mikil nú og áður, sagði Ragnar
Ólafsson er við ræddum við hann
að landsmótinu loknu. Ragnar
varð nú í 5. skipti í 2. sæti í
landsmóti í golfi, nú og { fyrra í
meistaraflokki, tvívegis í
drengjaflokki og einu sinni í
sveinaflokki, en aldrei hefur hon-
um tekist að sigra á fslandsmóti.
— I fyrra vann Björgvin mig
með tveimur höggum, nú með
einu höggi, þannig að allt virðist
stefna í það að við verðum jafnir
næsta ár og bráðabana þurfi til að
útkljá Islandsmótið, sagði Ragn-
ar.
— Ég er sæmilega ánægður
með skorið i mótinu, það er ekki
auðvelt að leika miklu betur eins
og aðstæðurnar voru. Það er þó
alltaf ein og ein hola sem ekki
Góðurárangur,en hefði
orðið enn betri ef veð-
ur hef ði verið skaplegt
— Ég held að ekki verði annað
sagt en þetta mót hafi farið vel
fram, tfmaáætlun stóðst mjög vel,
nema einn dag, en þá urðu nokkr-
ar tafir vegna veðurs. Það er kom-
ið gott skipulag á mót eins og
þetta og meiri festa en áður. Þá er
keppnisfólkið orðið agaðra en
áður og veit hverjar reglurnar
eru.
Þannig mælti Konráð Bjarna-
son, ritari Golfsambands Islands,
að landsmótinu loknu. Konráð
hefur haft veg og vanda af móts-
stjórn á landsmótunum síðan
1971 — eða frá því að Björgvin
varð fyrst íslandsmeistari í golfi á
Jaðarsvellinum 1971 eftir hörku-
keppni við Björgvin Hólm. Kon-
ráð rifjar þá keppni upp fyrir
okkur.
— Einvígi Björgvins og
Ragnars núna er mest spennandi
úppgjör •» landsmóti í golfi síðan
1971 að Björgvin Þorsteinsson
vann nafna sinn Hólm. Þegar 4
holur voru eftir þurfti Björgvin
Þorsteinsson að sækja 3 högg og
það tókst honum. A 18 holunni
setti hann niður langt ,,pútt“ og
tryggði sér umleik, sem hann
síðan vann á þrióju holu. Þetta
var fyrsta landsmótið sem ég
stýrði.
— Arið 1972 tók Loftur Ólafs-
son Islandsmeistaratitilinn af
Björgvini eftir mikla keppni.
Björgvin missti forystuna á 15. og
16. braut, en hann hafði þangað
til notað 3 höggum minna. Loftur
komst höggi framfyrir og lék af
öryggi síðustu 2 brautirnar