Morgunblaðið - 16.08.1977, Blaðsíða 28
28
MOKGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUK 16. ÁGtjST 1977
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Hellissandur
Umboðsmaður óskast til að annast dreif-
ingu og innheimtu fyrir Morgunblaðið.
Uppl. hjá umboðsmanni í síma 6741 og
afgreiðslumanni í Reykjavík, sími 10100.
fWiOrjjitinMafríifo
Saumastörf.
Verksmiðja vor óskar eftir starfskröftum til
saumastarfa. Góð vinnuaðstaða. Uppl. á
staðnum. Ekki í síma.
Dúkur h/f
Skeifan 13.
Hárskera-
meistarar
Ungur og reglusamur hárskeri óskar eftir
að komast að sem sveinn á rakarastofu
hið fyrsta, má vera úti á landi.
Upplýsingar í síma 75641 eftir kl. 8 í
kvöld og annað kvöld.
Breskur
einkaritari
óskar eftir heils eða hálfs dags vinnu.
Vélritunar og hraðritunarkunnátta. Með-
mæli. Getur eingöngu talað ensku.
Tilboð sendist Mbl. fyrir 23. ágúst merkt:
E—4342.
Heilsuverndar
stöð Reykjavíkur
óskar að ráða:
Hjúkrunarfræðinga
við heilsugæzlu í skólum (m.a. Breiðholt)
og í heimahjúkrun.
Ljósmóður
við mæðradeild.
Upplýsingar gefur hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri.
Kennarar
Kennara vantar að Víghólaskóla í Kópa-
vogi, kennslugreinar: Enska og danska.
Einnig vantar kennara í hálft starf handa
6 — 7 ára börnum í Digranesskóla.
Upplýsingar hjá viðkomandi skólastjórum
og í skólaskrifstofunni að Digranesvegi
10, sími: 41863.
Skó/afu/ltrúinn.
Stærðfræði-
kennara vantar
að Grunnskóla Siglufjarðar 7 — 9 bekk og
framhaldsdeild.
Húsnæði er fyrir hendi.
Upplýsingar veitir skólastjóri í síma 96-
71310 og 96-71321 og formaður skóla-
nefndar í síma 96-71 485.
Skólanefndin Siglufirði.
Sundlaugar
Við óskum eftir að komast í samband við
fyrirtæki sem vill taka að sér dreifingu á
vörum okkar á íslandi.
Pah/ens Fabriken AB,
Bos 507,
19400 Upp/ands Vásby, Sverige,
sími 0760—84155.
Maður óskast
til starfa á smurstöð.
Upplýsingar á staðnum.
Smurstöðin
Laugavegi 180.
Matsveinar
Viljum ráða matsveina nú þegar eða eftir
samkomulagi.
Upplýsingar veita yfirmatreiðslumaður og
hótelstjóri.
Skrifstofustarf
Starfskraftur óskast til símavörslu og al-
hliða skrifstofustarfa. Góð laun. Uppl. um
fyrri störf sendist Mbl. fyrir 24. þ.m.
merkt: „Skrifstofustarf — 4343".
Heimilishjálp
óskast í London
Fæði og húsnæði gegn heimilishjálp hjá
íslenzkri fjölskyldu í London.
Tilvalið fyrir námsmanneskju.
Upplýsingar í síma 75884.
Flugvirkjar
ARNARFLUG
óskar að ráða 2 — 3 flugvirkja sem fyrst.
Upplýsingar veittar á skrifstofu félagsins
Síðumúla 34 Reykjavík sími 82122.
Starfskraftur
óskast
til starfa við matreiðslu, á hóteli úti á
landi, og til að sjá um hótelrekstur í
afleysingum.
Þarf að vera ábyggilegur og reglusamur.
Upplýsingar'síma 26899.
Skrifstofustarf
með húsnæði í boði
Stórt iðnfyrirtæki á norðurlandi óskar eftir
að ráða starfskraft til skrifstofustarfa.
Starfið felst aðallega í bélritun, skýrslu-
gerð, símavörslu, færslu á bókhaldsvél
o.fl.
Góð vélritunar- og enskukunnátta æski-
leg, auk reynslu í skrifstofustörfum.
Húsnæði í boði. Með umsókn verður farið
sem trúnaðarmál. Tilboð sendist til Mbl.
merkt: „M — 6805".
— Mataræði
og krans-
æðasjúkdómar
Framhald af bls. 14
að áhættuþáttum, heldur yrði
einnig að veita þessum ein-
staklingum ráðgjöf. Ef sú ráðgjöf
ætti að vera einstaklingsbundin,
þá er hætt við, að slíkt krefðist
svo mikils heilsugæzluiiðs og yrði
svo kostnaðarsamt, að það kæmi
niður á öðrum og engu síður
nauðsynlegum þáttum heilsu-
gæzlunnar.
Því er af flestum álitið að eina
framkvæmanlega ráðið til þess að
ná til þessa stóra hóps sé með
almennum heilsugæzluráð-
leggingum og helzt þyrftu slíkar
ráðleggingar að komast til skila á
skólaaldri áður en skaðinn er
skeður. Einn liöurinn af mörgum
í sjíkum ráðleggingum til aimenn-
ings er ráðgjöf um mataræðis-
venjur, sem stuðla að lækkuðu
kólesteróli í blóði. Kaðgjafanefnd-
ir a.m.k. 7 vestrænna þjóða um
þessi mál hafa talið rökin fyrir
siíkri matarráðgjöf til almennings
nægilega sterka og hafa gefið út
ráðleggingar þaraðlútandi til al-
mennings og yfirvalda. Höfum
við efni á að standa aðgerðalaus
og horfa á? Það mætti líkja slíkri
matarráðgjöf við notkun sætis-
belta til að draga úr afleiðingum
bifreiðaslysa. Einungis fáir af öll-
um fjöldanum, sem notar þau,
lenda i umferðarslysum. Samt er
það svo, að notkun þeirra er nú
orðin almenn og þykir sjálfsögð.
Skynsamlegt mataræði kemur
heldur ekki til með að hjálpa
nema hluta þess hóps, sem þess
neytir. Hvaða einstaklingum það
kemur til með að hjálpa er erfitt
að spá fyrír um, þar sem krans-
æðasjúkdómar leggjast aðeins á
suma einstaklinga, en láta aðra
einstaklinga í friði, jafnvel þótt
þeir hafi svipaða áhættuþætti.
Þessar æskilegu matarráðlegging-
ar til almennings verða ekki frek-
ar raktar hér að sinni (reyndar
hafa aðrir rakið þær að nokkru
leyti hér í Mbl. fyrr), en ég vildi
taka fram, að hér er ekki verið að
ráðleggja neitt „sjúkrafæði",
heldur aðeins skynsamlega hóf-
semi í neyzlu mettaðrar fitu og að
forðast ofát hvérs konar. Til þess
að auðvelda slíka hófsemi í matar-
æði þyrftu landbúnaðurinn og
stjórnvöld að koma til móts við
neytenúur og stuðla að fram-
leiðslu búvöru, sem samrýmdist
bezt slíku hollustufæði. En jafn-
framt þyrfti að stuðla að aukinni
neyzlu sjávarafurða, sem of langt
yrði að ræða um hér. Afurðir
þessa lands eru vissulega slíkar,
að með skynsamlegri nýtingu
þeirra gæti íslenzkt mataræði ver-
ið með því kjarnmesta og hollasta
sem býðst.
— Óeirðir
Framhald af bls. 38
séu óhjákvæmilegur fylgikvilli
frelsisins.
Innanríkisráðherrann brezki,
Melvin Rees, hefur ekki viljaðtjá
sig um aðgerðirnar að öðru leyti
en því, að hann styðji stefnu lög-
reglunnar I þessu máli. Koger
Godsiff, borgarstjóri I Lewisham,
hefur á hinn bóginn ráðizt harka-
lega að yfirmanni lögreglunnar
fyrir meðhöndlunina á þessu
máli, og segir að hann hljóti einn
að bera ábyrgðina á því hvernig
fór.
— Verkamanna-
bústaðir
Framhald af bls. 16
1978—’79 og kostnaður við
framkvæmdirnar er lauslega
áætlaður 2.5 milljarðar króna.
Borgarstjóri sagði í ávarpi
stnu að mjög gott samstarf
hefði verið milli borgarstjórnar
og stjórnar verkamannabústað-
anna en það hefði einkum verið
með þrennum hætti. Borgin
hefði veitt þeim lóðir og árlega
legði borgin fram töluvert fé til
þessara framkvæmda en í fjár-
hagsáætlun þessa árs væri gert
ráð fyrir að 150 milljónum yrði
varið til smíðar verkamannabú-
staða og það gæti hækkað eitt-
hvað með hækkun byggingar-
vísitölu. Þá hefði borgin haft
íhlutunarrétt við ráðstöfun á
hluta af íbúðunum. I fyrsta
áfanga hefði þetta verið 10% af
íbúðunum og hefði sú aðferð
reynzt vel. Þannig væri hægt að
leysa vanda fólks, sem búið
hefði í leiguhúsnæði hjá borg-
inni eða í húsnæði, sem þyrfti
að rýma vegna annarra bygg-
inga. Að lokum ítrekaði borgar-
stjóri heillaóskir sínar og sagð-
ist vonast til að framkvæmdir
við þann áfanga, sem nú væri
að fara af stað, gengju eins vel
og við fyrsta áfangann.
AlJOI.VsiNOASIMINN ER:
^22480
J IWorDtmblníiib