Morgunblaðið - 16.08.1977, Side 30

Morgunblaðið - 16.08.1977, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. AGUST 1977 t Móðtr okkar. tengdamóðir og amma KRISTÍN SVEINBJÖRNSDÓTTIR húsfreyja, Hrafnabjörgum, AmarfirBi andaðist i Borgarspitalanum iaugardag 13 þessa mánaðar Systkinin frá Hrafnabjörgum og aðrir vandamenn. t Dóttlr mln og móðir okkar. MARGRÉT BJARNADÓTTIR. tés' 1 Landspltalanum föstudaginn 12 ágúst Salóme Jónsdóttir Dúa Björnsdóttir Herdls Bjömsdóttir Bima Bjömsdóttir Edda Bragadóttir t Konan mín GUÐRÚN SVEINSDÓTTIR I Eyhildarholti, andaðist að heimili okkar laugardaginn 1 3. þ m Gísli Magnússon. t Útför eiginmanns mins og föður okkar HJARTAR HALLDÓRSSONAR f.v. menntaskólakennara, ferframfrá Fossvogskirkju miðvikudaginn 1 7 ágúst kl 10:30. Unnur Ámadóttir og synir. t Jaðarför sonar okkar, unnusta, föður og bróðurs ÍVARSANDRÉSSONAR vélstjóra, Hvassaleiti 33 fer fram frá Háteigskirkju miðvikudaginn 1 7 ágúst kl 3 Ellen og Andrós Guðjónsson Gunnþóra Jónsdóttir, Andrés ívarsson, Jens Andrésson, Grímur Andrésson. t Faðir okkar, stjúpfaðir. tengdafaðír og afi JÓN GRÍMSSON verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 16 ágúst kl 13 30e h Blóm vinsamlegast afþökkuð. en þeir sem vildu minnast hans vinsam- lega láti DAS njóta þess Vigdis Ó. Jónsdóttir, Friðvin Þorbjömsson Stefán G. Jónsson, Þorbjörg Hannesdóttir Bragijónsson Ásta Hartmannsdóttir, Unnur Jónsdóttir LogiJónsson Aðalheiður Tryggvadóttir og bamaböm. Lokað vegna jarðarfarar JÓNS GRÍMSSONAR frá kl. 1 2—3 í dag. Ásbjöm Ólafsson hf. Borgartúni 33. Einar Sveinsson járn- smíðameistari—Minning I dag veröur borinn til grafar í Fossvogskirkjugaröi Einar Sveinsson, járnsmiðameistari frá Seyöisfirði. Hann lézt þar á sjúkrahúsinu laugardaginn 6. ágúst eftir stutta legu en hafði áður dvalið um hríð á Borgar- sjúkrahúsinu og verið skorinn þar upp vegna illkynjaðrar mein- semdar. Einar var fæddur í Skaftárdal á Síðu 22. mai 1903, sonur hjónanna þar, Margrétar Einarsdóttur og Sveins Steingrímssonar. Ekki er mér kunnugt um ættir þeirra hjóna, nema hvað ég veit að hinn kunni læknir, fræðimaður og ferðagarpur Sveinn Pálsson var einn af forfeðrum hans í föður- ætt. Og mátti af ýmsu marka að Einari kippti í kyn þessa frænda síns eins og síðar verður að vikið. Einar, elztur níu systkina, ólst upp með foreldrum sínum, fyrst i Skáfárdal og síðan í Langholti i Meðallandi þar sem fólk hans býr enn. Um seytján ára aldur hóf hann sjóróðra, svo sem venja var, ekki sízt tápmikilla ungiinga frá barn- mörgum heimilum, og reri frá Höfnum á Suðurnesjum. Harðsótt hefur það verið fyrir unglinga að fara fótgangandi alla þessa leið, frá Meðallandi og til Suðurnesja, eins og Einar varð að gjöra fyrstu sjómennskuár sín og kunni hann að segja frá miklum slarkferðum í því sambandi. í kringum 1930 hóf hann járn- smiðanám hjá Einari Magnússyni vélsmið í Vestmannaeyjum og vann svo við smiðju hans að námi loknu. Alls dvaldi hann tiu ár í Vestmannaeyjum. Einar bar mik- ið lof á þennan meistara sinn og batt ævitryggðum við fólk hans allt. Þessí meistari Einars Sveins- sonar lézt af slysförum á voveif- legan hátt svo að segja fast við hlið hans og ætla ég að sá atburð- ur hafi haft varanleg áhrif á Ein- ar alla tíð síðan, meðal annars í því að hann festi ekki yndi í Eyj- um eftir það. Eftir Vestmannaeyjadvölina fluttist hann til Reykjavikur og kom sér þar upp eigin vélsmiðju og varð skjótt eftirsóttur til vandasamrar járnsmíði. Þegar svo hinn víðkunni hug- vits- og athafnamaður, Gisli Hall- dórsson vélaverkfræðingur, stofn- ar Vélsmiðjuna Jötunn 1942, lét Einar undan þrábeiðni hans og réði sig til starfa í hinni full- komnu verksmiðju, þar voru líka verkfæri sem Einari var hugleik- ið að handleika. Gísli var Skaft- fellingur að ætt og þekkti orð- sporið sem fór af þessum samsýsl- ung, ef um vandasama járnsmiði var að ræða. Heimili sitt stofnaði Einar hinn 6. júní 1942, er hann gekk að eiga Þórunni Sigurþórsdóttur mat- sveins Sigurðssonar og Ingibjarg- ar Halldórsdóttur frá Stokkseyri af hinnu kunnu Bergsætt. Þórunn var kona glæsileg eins og hún átti kyn til og vel mennt- uð. Sambúð þeirra varð skamm- vinn því Þórunn deyr fjórum ár- um síðar, í maí 1946. Eina dóttur höfðu þau Þórunn og Einar eign- azt, fæddist hún I maí 1943 og var þessi litla stúlka nefnd Ingibjörg eftir ömmu sinni. Eftir missi konu sinnar fer að losna um Einar í Reykjavík og flyzt hann þá með dóttur sinni í Eiða til Sigrúnar mágkonu sinnar og Þórarins Þórarinssonar skóla- stjóra þar, var þetta árið 1946. Dvaldi Einar á Eiðum með dóttur sinni næstu ellefu árin á heimili skólastjórahjónanna. Ólst dóttirin þar upp sem eitt af börnum þeirra allt til þess að hún stofnaði sitt eigið heimili. Á Eiðum starfaði Einar að véla- og eldstæðagæzlu, meðal annars gætti hann rafstöðvar skólans. Eitt árið er hann dvaldi á Eiðum annaðist hann verknámskennslu í skólanum. A Eiðum reyndist Ein- ar sá „allt mulig mand“ sem slika staði dreymir um, vegna hins mikla viðhalds á vélum, húsum og munum sem fylgir jafnan heima- vistaskólum með viðhaldsfé af skornum skammti. Þótt störf Einars á Eiðum væru hin margvislegustu voru fæst af þeim innan verkahrings vélsmiðs þar sem verklægni Einars naut sín bezt og því er það að hann ræðst til Vélsmiðju Seyðisfjarðar 1957 og vann þar á meðan hann hafói heilsu til og þó öllu lengur, en hann kvaldist um árabil af illartaðri gigt, sem hann harkaði þó svo af sér að furðu gegndi. Mætti Einar Sveinsson nú mæla, myndi hann að leiðarlokum færa Stefáni Jóhannssyni, for- stjóra vélsmiðjunnar, og vinnufél- ögum slnum innilegar þakkir fyrir samveru og samstarf, svo mjög sem hann lét af því í mín eyru. Eftir að Ingibjörg, dóttir Einars, giftist til Seyðisfjarðar, en maður hennar er Jóhann Grét- ar Einarsson ritsímavarðstjóri, átti hann hjá þeim athvarf og naut þar heimilisyndis. Dóttir hans sýndi honum frábæra um- hyggju, Jóhann Grétar reyndist honum einstakur tengdasonur og dætur þeirra þrjár urðu honu mikill yndisauki. Hér að framan hefur verið rak- in hin ytri lífssaga Einars Sveins- sonar þóttt stiklað hafi verið á stóru. Erfiðara er um vik. með hina innri sögu, þar veit hugur einn hvað hjarta er næst og allar ályktanir hljóta þvi að vera dregnar af viðmóti og kynningu við þann sem eftir er mælt, og því með ýmsu móti eftir því hver mælir og hver samskiptin hafa verið. Hygg ég þó, að allir sem Einar þekktu muni ljúka upp um það einum munni að drengslund og trúmennska I starfi hafi ein- kennt dagfar hans allt, að ógleymdri húsbóndahollustunni, ef manni leyfist enn að nota þetta gamla lofsyrði. Já, ég sagði „leyf- ist“ því áður en varir kunna göm- ul íslenzk orð, þó til'lofs séu sögð, aó varða við lög, ef þau minna á yfirmenn og undirgefna. Einar var sérlega verkhagur maður og var það með ólíkindum hversu þrautseigur hann var að dytta svo að gömlum hlutum að þeir urð.u nothæfir á ný. Þessi, núorðið , sjaidgæfi hæfileiki olli því sjálfsagt að hann átti jafnan erfitt með að varpa á glæ nokkr- um þeim hlut eða vélarhluta sem hugsanlega mætti gera nothæfan á ný eða nýta til viðgerðar á öðr- um hlutum. Nýtnin var á sínum tíma þjóðar- dyggð og stuðlaði meðal annars að Islendingum tókst að brjótast úr fátækt til bjargálna. Mörgum eldri manninum sem enn man þessa tíma endist ekki ævin til að átta sig á gerbreyttum viðhorfum allsnægta þjóðfélags- ins þar sem hagþróunin virðist byggjast á þvi að nýjir hlutir verði sem fyrst að rusli svo hægt sé að kaupa nýja. Þrátt fyrir takmarkaða skóla- göngu, var Einar býsna fróður á ýmsum sviðum og víðlesinn, enda eðlisgreindur. Einkum var það þó I þeim greinum er snertu starf hans sem járnsmiðs eðlis- og efna- fræði. Aðrar áhugagreinar hans voru á sviði landafræði og hvers konar náttúruskoðunar. Hann hafði og mikinn áhuga á að ferð- ast um ókunnar slóðir og til marks um þann áhuga hafði hann mælzt til þess við kunningja er heimsóttu hann á sjúkrahúsið syðra í sumar, að fá að verða þeim samferða yfir hálendið, er hann kæmi á fætur, en þessir kunningj- ar hans höfðu þá sagt honum að slik ferð stæði til innan tiðar. Eins og fyrr sagði, er ekki ólíklegt að Einar hafi sótt þennan áhuga til Sveins Pálssonar læknis, for- föður sins. Þá hafði hann mikið yndi af veðurfræði, sem hann lagði mikla rækt við að afla sér sem fyllstra upplýsinga um, bæði af bókum og máli gamalla manna, jafnvel hindurvitnum, sem, reynslan hefir sýnt að oft hafa sannleik að geyma. Þá var Einar fróður um við- burði nútima sögu og hafði á þeim sinar skýringar sem ekki fóru alltaf saman við þær viður- kenndu. Við, sem Einari Sveinssyni urðu samferða á lífsleiðinni um lengri eða skemmri tíma, minn- umst hans sem sérstæðs manns. Lengi fram eftir árum var hann gallhraustur og hinn gjörvilegasti maður að vallarsýn með kynborið andlitsfar. Þegar liða tók á ævi hans fór gigtin að ásækja hann og gerði hann að lokum að stafkarli þótt hann sjálfur væri bjartsýnn á bata, ekki sízt eftir dvöl á Heilsu- hælinu i Hveragerði, en þangað leitaði hann árlega hin síðari ár. Þótt við sem með honum höfum ekki alltaf getað verið honum sammála, er ég þess fullviss að öll höfum við ýmsilegt af honum lært. Trúmennska hans og heiðar- leiki urðu öllum ljós þegar í upp- hafi kynningar og vart veit ég aðra mannkosti sem íslenzka þjóð vanhagar meira um í dag, á greftrunardegi þessa ágæta og eftirminnanlega Skaftfellings. Um leið og við þökkum honum samfylgdina og allt það sem hann fyrir okkur gerði og vildi gera, biðjum við honum belssunar guðs á þeim nýju og ókunnu stigum sem hann nú fer i stað þeirra er hugur hans stóð til að fara, yfir hálendi Islands. Blessuð sé minning hans. Þórarinn Þórarinsson frá Eiðum Birting afmælis- og minning- argreina ATHYGLI skal vakin á þvl, afmælis- og minningargreinai' verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verð- ur grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast 1 sfð- asta lagi fyrir hádegi á mánu- dag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu lfnubili. EF ÞAÐ ER FRÉTTNÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐINU U (iLVSINíi \ SÍ.MINN KK: 22480

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.