Morgunblaðið - 16.08.1977, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 16.08.1977, Qupperneq 40
SKAUTUNNUSTU / SÍNA TIL BANA Mikill reykjarmökkur stóð upp úr Geysishúsinu vií AðaIstrætí I gssrkvöldi þegar slökkviliSiB kom á vettvang, en skömmu áður hafði mikil reyksprenging or8i8 I húsinu. Miklar skemmdir ur8u af vatni og reyk. Ljósmynd Mbl. Emilia VIÐ stórbruna lá í Reykjavik i gærkvöldi er eldur kom upp í verzluninni Geysi i Aðalstræti, öðru elzta verzlunarhúsnæði i borginni. Miklar skemmdir urðu á þeim hluta hússins, þar sem vefnaðarvörudeild Geysis er, önn- ur hæð og ris hússins urðu eldin- um að bráð og miklar skemmdir á verzlunarhúsnæði á fyrstu hæð af völdum vatns og reyks. Upptök eldsins munu vera þau að unnið var við að leggja pappa á syllu fyrir ofan verzlunarhæðina og hefur eldur úr gaslampa, sem til þessa var notaður, komizt i ein- angrun í vegg og valdið reyk- sprengingu. Slökkviliðið var kallað á vett- vang klukkan 20.30 en vaktmaður Geysis varð eldsins var skömmu eftir að hann kom til starfa kl. 20. Er hann kom upp á aðra hæð hússins kom reykjarmökkur á móti honum. Sjónarvottur, sem fyrir utan stóð, sagði að þakið Framhald á bls. 26 Hafsteinn Björns- son miðill látinn HAFSTEINN Björnsson miðill, varð bráðkvaddur um miðjan dag f gær, þar sem hann var við hey- skap í Hafnarfirði. Hafsteinn var rétt tæplega 63 ja ára að aldri. Hafsteinn fæddist 30. október Lögreglumaður á harðahlaupum með eina Geysisgfnuna úr elds- voðanum. Ljósmynd Mbl. Frið- þjófur. Er í betra jafnvægi og við betri heilsu — segir Spassky og telur það ástæðuna fyrir árangri sínum „ ÉG tel að ég eigi bættri heilsu minni það að þakka, sem mér hefur tekizt til þessa", sag8i Boris Spassky I samtali vi8 Mbl. I gær, er hann svaraSi spurningu um þa8. hverju hann þakkaSi árangur- inn I einvlginu viS Portisch. Ekki vildi Spassky spá neinu um úrslit- in. „Ég stefni a8 þvi a8 Ijúka þessu einvigi á sómasamlegan hátt", var þa8 eina, sem hann vildi segja um framtlSina. Spassky sagði, að álagið væri nú orðið gífurlega mikið i þessu mara- þoneinvlgi og því væri það fyrst og fremst spurningin um úthald kepp- enda. sem gæti svarað þvl, hvor færi með sigur af hólmi. „Ég held mér við með tennis". sagði Spassky. „en ég er dauðþreyttur eftir hverja skák. Ef til vill er Portisch orðinn þreyttari en ég". Þegar Mbl spurði Spassky hvort hann væri ánægður með talf- mennsku sina I einviginu, svaraði hann „Ég veit ekki hvað segja skal. Ef til vill hefur mér tekizt betur upp hér I Genf en I einvlginu við Hort I Reykjavlk Að minnsta kosti hefur sjálfstraust mitt vaxið og það kann að hafa sitt að segja" Mbl. spurði Spassky þvi næst, hvort mikil reynsla hans af einvigj- um hefði komið honum að sérstök- um notum. „Það held ég ekki", svaraði Spassky „Slik reynsla er ekki einhlit eins og sjá má af þvl, að Framhald á bls. 26 1914 að Syðri-Hofdölum i Við- víkurhreppi i Skagafirði, og voru foreldrar hans Björn Skúlason, bóndi þar og kona hans Ingibjörg Jósafatsdóttir. Liðlega tvítugur réðst hann til starfa hjá Eski- hlíðarbúinu í Reykjavík, og komst upp úr því í kynni við Einar Kvar- an, rithöfund, sem hvatti hann mjög til að rækta miðilsgáfuna, er snemma hafði tekið að bera á hjá Hafsteini. Hafsteinn var því mið- ill í Reykjavík í liðlega 40 ár, og varð mjög nafnkunnur á þvi sviði. Má meðal annars geta þess að Framhald á bls. 26 Hafsteinn Björnsson. TUTTUGU og tveggja ára Reykvíkingur skaut jafn- aldra unnustu sína til bana f gær og særði sjálfan sig. Hann var fluttur á slysa- deild Borgarspítalans og þaðan f gjörgæzlu, en var í gærkvöldi ekki talinn í lífshættu. Maðurinn viður- kenndi verknaðinn við frumyfirheyrslu á gjör- gæzludeildinni í gærkvöldi og hvaðst hafa ætlað að stytta sér aldur á eftir, en að sögn rannsóknarlög- reglu ríkisins hafði hann ekki þá skýrt frá aðdrag- andanum að verknaðinum. Vopnið, sem maðurinn not- aði, var rússneskur riffill, 22 kaliber, með sex skota „magasfni". Það var laust eftir klukkan 17:30 í gær, að fólk, sem átti leið að Rauðhólum kom að kyrrstæð- um bfl f fyrsta hliðinu að Rauð- hólasvæðinu frá Suðurlandsvegi. Snéri bfllinn að Suðurlandsvegin- um. Fólkið fór að athuga málið og talaði við ökumanninn, sem kvaðst hafa skotið sig, og sagðist hann ekki hafa treyst sér til að keyra bflinn lengra. Hann var með fullri rænu að þvf er bezt varð séð. Strax kom þarna að ann- Eldsvoði í verzluninni Geysi í gær: ar bfll og sá þriðji, en ökumaður hans fór og lét lögregluna f Ar- bæjarhverfi vita, en fólkið úr hin- um bflunum fór að aðstoða öku- mann kyrrstæða bflsins og stúlku, sem var f sætinu við hlið hans, en hún virtist látin. Lögregla og sjúkraliðar komu svo á staðinn og var þá staðfest að stúlkan væri látin, en pilturinn var fluttur á slysadeild, sem fyrr segir. Þegar rannsóknarlögregla rfk- isins kom á vettvang var búið að flytja manninn og Ifk stúlkunnar á burt. Að utan bar bfllinn engin skotmerki, en að sögn rann- sóknarlögreglu rfkisins f gær- kvöldi var þá ekki búið að kanna, hvort ummerki um skot væru inni f bílnum. Að beiðni rannsóknarlögreglu rfkisins er ekki skýrt frá nöfnum viðkomandi né bflsins nánar get- ið, en hann var eign mannsins og á erlendum númerum, en líkur benda til að maðurinn hafi komið til landsins að utan á laugardag- inn. Að sögn rannsóknarlögreglu rfkisins var f gærkvöldi ekki ijóst um ferðir bflsins innan Rauðhóla- svæðisins, né heldur áður en þangað var komið, og heldur ekki Ijóst hvort verknaðurinn var framinn þar eða annars staðar. Konan, sem lézt, hafði hlotið nokkur skotsár, en ekki fengust f gærkvöldi nánari fregnir af þvf, hversu mörgum skotum maður- inn hafði skotið að henni, né hvar. Sjálfan sig skaut maðurinn hins vegar f brjóstið vinstra meg- in neðarlega og gekk kúlan f gegn um hann án þess að særa hann Iffshættuiega. Rannsóknarlög- regla rfkisins neitaði í gærkvöldi að skýra frá því, hvort einhver skot hefðu verið í rifflinum, þeg- ar hann var tekinn úr bflnum. Þessa mynd af rifflinum tók ljós- myndari Mbl. Friðþjófur á tækni- deild rannsóknarlögreglu ríkisins í gærkvöldi. Miklar skemmdir eftir vatnselg og

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.