Morgunblaðið - 20.09.1977, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 1977
11
Sjálfstæðisflokkurinn á Vestfjörðum:
Árangur í byggðamálum
hvatning til frekari sóknar
Morgunblaðinu hefur borizt
eftirfarandi Stjórnmálaályktun
aðalfundar Kjördæmisráðs Sjálf-
stæðisflokksins í Vestfjarðakjör-
dæmi:
Aðalfundur Kjördæmisráðs
Sjálfstæðisflokksins í Vestfjarð-
arkjördæmi, haldinn 4. septem-
ber 1977 í Hnífsdal. fagnar þeim
árangri sem núverandi ríkis-
stjórn hefur náð.
A því kjörtimabili sem nú fer
senn á ljúka hefur ríkisstjórnin
unnið markvisst starf i efnahags-
málunum. Stjórnin tók við þrota-
búi vinstri stjórnar. Verðbólgan
var í algleymingi, fjárfestingar-
sjóðir tómir, en ráðleysi vinstri
stjórnarinnar algjört.
Þótt ekki hafi náðst sá árangur
sem að var stefnt í viðureigninni
við verðbólguna er ljóst að horfur
i efnahagsmálum þjóðarinnar eru
nú miklum mun bjartari en í upp-
hafi kjörtimabilsins.
Verðbólgan hefur leikið Islend-
inga grátt á undanförnum áratug-
um. Ruglað verðmætaskyn. ónógt
sparifé og erfiðleika í atvinnu-
rekstri má til hennar rekja.
Nú verandi ríkisstjórn hefur
sýnt vilja í verki til að takast á við
verðbólguvandann. Ljóst er þó að
betur má ef duga skal. Höfuð-
verkefni rikisstjórnarinnar á
komandi mánuðum hlýtur því að
vera að berjast við verðbólguna.
Útfærsla landhelginnar í 200
milur sem framkvæmd var undir
forystu ríkisstjórnar Geirs Hall-
grímssonar er einn mesti stjórn-
málasigur Islendinga á þessari
öld. Þær friðunaraðgerðir sem
gerðar hafa verið undir forystu
Matthiasar Bjarnasonar sjávarút-
vegsráðherra í kjölfar út-
færslunnar hafa verið til góðs.
Jákvæður árangur þeirra er nú
sem óðast að koma i ljós i aukinni
fiskgengd og betri fiski.
Magnús L. Sveinsson:
Höfðabakki og
Bíldshöfði mal-
bikaðir á næstunni
— SVR þá ekkert að vanbúnaði
Kristján Benediktsson (F) flutti
tillögu um strætisvagnaþjónustu
við Ártúnshöfðasvæðið á fundi
borgarstjórnar 15. sept. Rakti
hann nokkuð umræður málsins
sem fram hefðu farið i blöðum, og
sagði siðan að ef ástæðan fyrir því
að SVR gæti ekki ekið um Ártúns-
höfða væri að torfærubifreið
vantaði ætti ekki að verða erfitt
að útvega hana, nú þegar hópferð-
um sumarsins lyki.
Hins vegar, þegar málin væru
íhuguð alvarlega, þá væri það ein-
sýnt, að koma yrði hverfinu í sam-
band við strætisvagnakerfi borg-
arinnar sem allra fyrst. Við gerð
fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár
yrði síðan hugað meira að lagfær-
ingu gatna að auki við það sem
þegar er ákveðið.
Magnús L. Sveinsson (S) tók næst
til máls og sagði borgina hafa haft
forystu og hafa lagt áherslu á
frágang gatna á byggingarsvæð-
um meöal sveitarfélaga. Hér væri
hins vegar úm undantekningu að
ræða. Svæði þetta hefði verið
lengi í byggingu og frágangur
húsa mislangt á veg kominn.
Hann sagðist geta upplýst, að á
næstunni væri gert ráð fyrir að
malbika Höfðabakka og Bilds-
höfða og þá væri SVR ekkert að
vanbúnaði að aka langt inn i
hverfið. Göturnar sem þá verða
eknar eru Breiðhöfði, Bíldshöfði
og Höfðabakki. Það yrði leið 10,
Hlemmur-Selás, sem það myndi
gera.
Magnús sagði það ekki rétt sem
fram hefði komið að engin þjón-
lEinbýlishúsl
Höfum kaupanda að stóru og góðu einbýlishúsi
með mörgum herb.
sölustj
Sverrir Krist/ánsson
vidskfr.
Krist/án Þorsteinsson.
Austurstræti 7
síma 20424 — 14120
Aðalfundur Kjördæmisráðs
Sjálfstæðisflokksins i Vestfjarða-
kjördæmi itrekar þá stefnu Sjálf-
stæðisflokksins sem mótuð var á
landsfundi flokksins siðast liðið
vor að okkur beri að efla og við-
halda jafnvægi i byggð landsins.
Fundurinn fagnar þeim árangri
sem náðst hefur i þeim efnunt.
Þessi árangur í byggðamálunum
ætti að verða okkur hvatning til
frekari sóknar.
Valddreifing er að aðalsmerki
Sjálfstæðisflokksins. Á hana bera
að leggja áherslu. Stofnun Orku-
bús Vestfjarða er stórt skref í þá
átt.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
allt frá stofnun barist fyrir efl-
ingu einstaklingsfrelsis og einka-
framtaks i landinu. Kjördæmis-
ráð Sjálfstæðisflokksins i Vest-
fjarðakjördæmi telur þvi eitt
brýnasta viðfangsefni núve'randi
rikisstjórnar vera það að kanna
möguleika á markvissum niður-
skurði ríkisbáknsins og koma
ríkisfyrirtækjum í hendur ein-
staklinga svo sem kostur er.
Útþensla ríkisbáknsins á und-
anförnum áratugum hefur haft
margt illt i för með sér og leitt til
margs konar ranglætis. Barátta
Sjálfstæðisflokksins fyrir ein-
staklingafrelsinu er því um leið
barátta fyrir betra og ráttlátara
þjóðfélagi.
Hin nýju húsakynni Iðunnar.
Iðunn í nýtt húsnæði
STARFSEMI bókaútgafunnar Ið-
unnar hefur verið flutt að
Bræðraborgarstíg 16, þar sem áð-
ur var brauðgerðarhús Jóns
Símonarsonar, en þau húsakynni
hafa verið endurbætt og löguð.
Var bækistöð Iðunnar áður að
Skeggjagötu, en útgáfan hefur
húið við mikil þrengsl undanfar-
in ár.
Iðunn hóf starfsemi sina árið
1945 og hefur því starfað i 32 ár.
Á sjöunda áratugnun voru bóka-
útgáfurnar Hlaðbúö og Skálholt
sameinaðar Iðunni. Útgáfubæk-
urnar eru orðnar yfir eitt þúsund
og eru þær margvíslegar að efni
og innihaldi.
Fyrir rúmum áratug hófst nýr
þáttur í starfsemi forlagsins, þ.e.
útgáfa námsbóka og sérstakra
skólaútgáfna, en upphaf þessa má
rekja til Skálholts, sem hafði gef-
ið út skólaútgáfur. Núna í haust
konta út tvær skáldsögur í skóla-
útgáfum, Atómstöðin eftir Hall-
dór Laxness og Punktur, punktur
komma strik eftir Pétur Gunnars-
son, og eru þær 10. og 11. bókin i
þessum flokki. Námsbókaútgáfan
og skólaútgáfur islenzkra bók-
mennta er nú orðinn snar þáttur i
starfsemi Iðunnar.
A síðasta ári gaf Iðunn út sina
fyrstu hljómplötu þar sem fluttir
voru textar úr Vísnabókinni, og
nú í haust koma út tvær hljórn-
plötur, önnur með textum úr
Vísnabókinni en á hinni flytur
Megas ný lög og texta með aðstoó
Spilverks Þjóðanna.
Samtímis flutningi forlagsins
koma út Bókatíðindi Iðunnar og
er þar að finna skrá yfir allar
fáanlegar bækur útgáfunnar.
usta væri við Artúnshöfðahverfið.
Leið 10 æki jafnan urn suðurjaðar
þess og kl. 07,40 og 07,55 að
morgni væri ekið frá Hlemmi inn
i hverfið og svo færu vagnar frá
Selási kl. 16.30 ot 18.30 inn í
hverfið. Magnús L. Sveinsson
flutti síðan breytingartillögu sem
hljóðar á þann veg, að borgar-
stjórn samþykkti að fela forstjóra
SVR að bæta strætisvagnaferðir
við iðnaðarhverfið á Ártúnshöfða
í samráði við forystumenn Ár-
túnshöfðasamtakanna. Magnús
sagði aðeins dagaspursmál hve-
nær málið leystist. Tillaga
Magnúsar L. Sveinssonar var
samþykkt.
Lærið að dansa
án hjálpar
óvelkominna
meðala
Eðlilegur þáttur í uppeldi
hvers barns ætti að
vera að læra að dansa
Kennslustaðir
Reykjavík
Brautarholti 4,
Drafnarfell 4,
Félagsh. Fylkis
(Árbæ)
Kópavogur
Hamraborg 1,
Kársnesskóli
Seltjarnarnes
Félagsheimilið
Hafnafjörður
Gúttó
INNRITUN 0G UPPLYSINGAR
KL. 10-12 0G 13-19
SÍMAR' 20345 — 76624 — 381 26
24959 — 74444 — 21589
RSIUniDSSOnRR