Morgunblaðið - 20.09.1977, Side 12

Morgunblaðið - 20.09.1977, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 1977 Menn urðu að hafa gætur á þessum. Bolli trillar frá á fullu. Handtökin voru oftast svo hröð að bæði skurður. . . . . og niðurröðun virtust vél- ræn Salta til að drýgja heimilis tekjurnar, sagði Valdís Þóris dóttir. Jón M. Jónsson sér um að hver tunna fái sinn skammt af sild og salti. alltaf nóg af sild en svo var í það skipti sem dvalist var í söltunar- stöðinni. Þeir byrjuðu að salta síld fyrir viku f söltunarstöðinni á Höfn, en þó var þetta ekki nema ffmmti söltunardagurinn þar sem bræla hafði gert bátunum ókleift að komast á sjóinn hvern dag. Áður en lagt var til atlögu við verk- stjórann og hans leyfi fengið til að tefja nokkrar söltunarstúlk- urnar og karlana í kringum þær, þá renndi bim. augum yfir gang mála þarna innandyra í söltunar- stöðinni. Öneitanlega staðnæmd- ist maður svolítið við að horfa á stúlkurnar skera síldina og Ieggja hana niður í tunnurnar þvi þar voru sérlega snör handtök við- höfð. Það olli næstum því störu að horfa á skurðinn hjá sumum stúlkunum, því þær hjuggu haus- ana af hvern af öðrum og hraðinn var svo mikill að næstum virtist um vélræna sjálfvirkni að ræða. Sumir segja að þegar svo sé komið hætti stúlkurnar að horfa á hnif- inn og síldina og geti auðveldlega skorið djúpt sár í fingur ef þeir renna eitthvað til á hálli síldinni. Erilsamt aö stjórna síldarsöitun Það var auðvitað sjálfsögð kurteisi að spjalla fyrst við verk- stjórann, því stúlkurnar voru hans. Fljótt kom maður auga á stóran, þéttan mann, gráan fyrir hærum, og af fasi hans og fram- komu þarna í húsinu fór ekkert á milli mála að þar var verkstjórinn á ferð. Guðmundur Finnbogason kvaðst hann heita, ljúfur í við- móti þótt skipanir hans væru með festu og af öryggi. Guðmundur sagði að heita mætti að söltun væri komin í fullan gang hjá þeim þótt enn væri langt í háannatím- ann ef vertiðin yrði svípuð og í fyrra. Guðmundur sagði að þá hefði nóvember verið erilsamur, vart hefði verið tími lil að halla höfði. í fyrra voru saltaðar 25 þúsund og 400 tunnur í stöðinni, en þennan daginn kvaðst Guðmundur reikna með að saltað yrði í tvö þúsundustu tunnuna. Þennan daginn var byrjað að salta upp í samning sem gerður var við niðursuðuverksmið ju Kristjáns Jónssonar á Akureyri, en sá samningur hljöðar upp á 15 þúsund tunnur. Sagði Guðmund- ur að verkið gengi ennþá örlítið hægar en þegar bezt væri, því sildin væri enn ósköp misjöfn. Guðmundur sagði að vinnuaflið væri ekki allt fengið af Höfn, þarna væri einnig aðkomufólk, allt saman prýðiskraftur, að því, er hann sagði. Sjálfur kom hann til Hafnar árið 1975, en hefur þó verið áratugi við sildarverkun. Sagði Guðmundur að starf verk- stjórans á söltunarstöð væri að jafnaði mjög erilsamt, i mörg horn væri að Iíta og sjá þyrfti um að allir yndu vel við sitt. Þjénustan ágæt Það gafst ekki mikið tóm til að spjalia við Guðmund verkstjóra því hann þurfti mörgu að sinna. Það var þvi ekki um annað að ræða en að vinda sér að hinu starfsfóikinu og taka það tali. Og hvað var eðlilegra en að vinda sér fyrst að kvenfólkinu og ræða við það. Það var reyndar nóg af því þarna, alls voru 59 söltun- arstúlkur í húsinu aó sögn verk- stjórans. Mig bar fyrst þar að sem voru tvær bráðhuggulegar stúlk- ur, Rósa Guðmundsdóttir og Birna Ingólfsdóttir, báðar frá Höfn. — Við vinnum saman, sögðu jþær, það gefur jafnari afköst. Við erum að klára aðra tunnuna núna en alls erum við búnar að hafa 21 þúsund hvor þessa fjóra eða fimm Það var sannkölluð síldar- stemmning i söltunarstöð Fiski- mjölsverksmiðjunnar og Kaup- félagsins á Höfn þegar blm. Morgunblaðsins var þar á ferð í síðustu viku. Þær voru nýbyrjað- ar, stúlkurnar, að skera og salta síldina sem bátarnir lönduðu fyr- ir hádegið. Hraðinn var mjög mik- ill að ég mátti halda mig heldur betur við efnið. Það þýddi ekki annað en að vera vakandi og vel á verði því annars var auðvelt að verða fyrir tunnutrillurum, salt- kerrum, tunnurúllurum og öðrum sem urðu að hafa hraðar hendur á hlutunum. Þarna kepptust menn og konur sem sagt við að bjarga verðmætum, silfur hafsins, sem barst á iand eftir’síðasta túr, var skorið, flokkað og saltað i tunnur. Svo var að sjá senj margt væri um manninn þarna í húsiiu, raun- ar virtist sem alltof margt fólk væri að vinna að aflanum. Hlut- unum var þó skipulega og hagan- lega komið fyrir og sjálfsagt hef- ur þessi fjöldi verið nauðsynlegur til að halda eðlilegum og miklum vinnuhraða. Það getur alla veg- ana vart verið mikill gróði þegar hlutirnir ganga hægt og tafsam- Iega fyrir sig, en að sjálfsögðu miðast afköstin við hraða söltunarstúlknanna, ef þær þá fá i i Mats- og eftir litsmenn bera saman bækur sínar. Sigurbergur skammtar af bandinu. ÞARF KVENFOLKIÐ EKKERT AÐ GALA... I síldarfans á Homafirði / / texti og myndir Agúst Asgeirsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.