Morgunblaðið - 20.09.1977, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 1977
17
Jón stóðst ekki freist-
inguna og þáði jafnteflið
Rússarnir fyrstir til að óska Jóni til
hamingju með heimsmeistaratitilinn
Cagnes, Frakkalndi, 19. september. Frá Margeiri Péturssyni.
JÓN L. Arnason tryggði sér heimsmeistaratitilinn í skák yngri manna
en 17 ára þegar hann samdi um jafntefli við Chilebúann Morovic í 11.
og síðustu umferðinni. Hlaut Jón þar með 9 vinninga af 11 möguleg-
um. 1 öðru sæti varð Bandaríkjamaðurinn YVhitehead með S'á vinning
og í þriðja sæti kom unglingameistari Sovétríkjanna, Kasparov, með 8
vinninga. Skák Jóns og Morovic var aðeins 8 leikir, þá bauð Chilehúinn
jafntefli, sem Jón þáði, þar eð jafnteflið dugði honum til sigurs.
í 10. umferð, sem tefld var á
laugardag, tefldi Jón við Frakk-
ann Santo Roman. Jón hafði hvítt
og fékk rýmra tafl út úr byrjun-
inni. Siðan urðu Frakkanum á
mistök i miðtaflinu og Jón jók
yfirburði sína með hverjum leik.
Frakkinn gafst siðan upp í 37.
leik, þá búinn að leika af sér
manni. I þessari umferð gerðu
hættulegustu keppinautar Jóns,
þeir Kasparov og Whitehead, báð-
ir jafntefli. Kasparov stóð lengi
höllum fæti fyrir Skotanum Mc-
Nab, en tókst að ná jafntefli með
heppni. Skák þeirra Whiteheads
og Morovics frá Chile var spenn-
andi og með leikfléttu tókst þess-
um 14 ára gamla Chilebúa að fá
betri stöðu og þegar kom út í
endataflið var hann með peð yfír.
Þá tefldi hann hins vegar ekki
nógu nákvæmt og Bandaríkja-
manninum tókst að klóra í bakk-
ann og ná jafntefli.
Eftir þessa umferð þótti mönn-
um sýnt að Jóni L. Arnasyni tæk-
ist að ná sigri i mótinu, þar sem
hann var kominn með vinnings
forskot á Kasparov og Whitehead
og nægði því jafntefli í síðustu
umferðinni til að hljóta hinn eft-
irsótta titil.
í siðustu umferðinni tefldi Jón
við Morovic frá Chile og bauð
Chilebúinn jafntefli eftir átta
leiki. Jafnteflisboðið var eðlilega
mikil freisting fyrir Jón og þáði
hann jafnteflið og var þar með
orðinn heimsmeistari. S: sem
varð fyrstur til að óska Jóni til
hamingju var Bikovski, aðstoðar-
maður Kasparovs, en hann er
frægur unglingaþjálfari og þetta
sýndi, að Rússar kunna líka að
taka ósigri, en Kasparov var tal-
inn sigurstranglegastur fyrir mót-
ið, og þó hann sé aðeins 14 ára að
aldrei er hann þegar unglinga-
meistari Sovétríkjanna yngri
manna en tvítugra. Vissulega var
fögnuður okkar Jóns mikill og ég
var annar í röðinni til að óska
honum til hamingju.
Einar Benediktsson, sendiherra
Islands í París, er væntanlegur
hingað til Cagnes í dag og verður
hann viðstaddur verðlaunaaf-
hendinguna í kvöld.
1 síðustu umferðinni gerði
Kasparov jafntefli við Santo Rom-
an frá Frakklandi. Kasporov
missti af vinningi og eftir það var
skákin dautt jafntefli. Þá sigraði
Whitehead Sedur frá Tyrklandi
mjög naumlega í langri skák.
Lokastaðan varð þvi sú, að Jón er
með 9 vinninga, Whitehead 8‘á, 3.
Kasparov með 8, 4. Kappe, V-
Þýzkalandi, 7V4, 5. Morovic, Chile,
og Negulescou, Rúmeniu, 7 og
7.—8. urðu Santo Roman, Frakk-
landi, og Pajak, Kanada, með 6V4
vinning. Það sýnir bezt hvað Jón
varð að hafa mikið fyrir titlinum,
að hann tefldi við alla þessa
menn.
Eftir átta umferðir var staðan í
mótinu mjög tvísýn, en Jón ger-
sigraði andstæðinga sina á loka-
sprettinum og má jafnvel segja að
hann hafi verið búinn að tryggja
sér sigur fyrir siðustu umferðina.
„Jón er afbragðs
nrím Qmnfinr - segirGuömundur
M M wfJMM l'vwl/M Arnlaugsson rektor
Ljósm. Mbl.r Kristínn
tslcnzki fáninn var við hún fyrir framan Mcnntaskólann í Ilamrahlfð f gær í tilcfni dagsins.
„VIÐ HÖFUM haft fána
við hún hér við Mennta-
skólann í Hamrahlíð í til-
efni dagsins," sagði Guð-
mundur Arnlaugsson
rektor þegar Morgun-
hlaðið leitaði álits hans á
árangri Jóns L. Árnason-
ar, en eins og fram kem-
ur hér á síðunni er Jón
nemandi við MH, sem og
margir af heztu skák-
mönnum þjóðarinnar af
yngri k.vnslóðinni.
„Það hefur skapazt
skemmtileg skákhefð hér
við skólann á þeim árum,
sem hann hefur starfað.
Fyrsta árið sem skölinn
starfaði stofnuðum við
skákklúbb og sögðu
kennarar nemendum til
fyrsta veturinn. Kenn-
araliðið vann piltana í
fyrstu, en fljótt kom að
því að nemendaliðinu óx
fiskur um hrygg og vann
kennara í keppni. Skák-
liðið héðan hefur unnið
skákmöt framhaldsskóla-
nema og það vann
Norðurlandamót skóla-
nema með gífurlegum
Guðmundur Arnlaugsson
yfirburðum síðast þegar
það var haldið,“ sagði
Guðmundur.
Jón L. Árnason er
feiknalegt skákmanns-
efni og vonandi á hann
eftir að halda áfram á
sömu braut. Samhliða
skákiðkun sinni er Jón
afbragðs námsmaður.
Hann hefur nú stundað
nám við skólann i eitt ár
og hefur lokið 43 eining-
um, en meðalafköstin eru
30-einingar. Þá má benda
á, að Jón stundar einnig
nám við Tónlistarskólann
og stendur sig einnig vel
þar. Námið virðist hon-
um auðvelt og opið og í
ofanálag hefur hann sótt
skólann mjög vel,“ sagði
Guðmundur Arnlaugsson
að lokum.
Ur borðsal mötuncytis, cn á hcimavist cru 80 ncmcndur og hún
fullskipuð en yfir 100 manns cru í fæði f mötuneytinu.
Mikil aðsókn að Mennta-
skólanum á ísafirði
ATTUNDA starfsár Mcnntaskól-
ans á tsafirði hófst mánudaginn
12. september er Jón Bladvin
Hannibalsson, skólameistari,
setti skólann, en hann hefur verið
í ársleyfi sem hann varði til fram-
haldsnáms við Harward-háskóla í
Bandaríkjunum.
Skólameistari gat þess að öll
fyrri aðsóknarmet að skölanum
hefðu nú verið slegin, en alger
metaðsókn væri i ár. Nýir nem-
endur eru nú 80, þar af 70 í fyrsta
bekk, en hann er nú í þrernur
bekkjardeildum i fyrsta sinn. I
öðrum bekk eru 37 nemendur, 29
i þriðja og 27 stúdentsefni i fjóðra
bekk og á öðru til fjórða ári eru 42
nemendur í félagsfræðikjörsviði,
en 51 á raungreinakjörsviði. Alls
eru nemendur 163, 92 stúlkur og
71 piltur. Frá ísafirði eru 68 nem-.
endur, 34 annars staðar að af
Vestfjörðum og 61 víðs vegar að
af landinu.
í frétt frá M.Í. kemur fram, að
hlé hefur verið á byggingarfram-
kvæmdum s.l. tvö ár þar eð fjár-
veiting hefur ekki fengizt.
Næsti byggingaráfangi er nýtt
kennsluhúsnæði sem er áætlað að
kosti 434 m.kr. Bæjarstjórn Ísa-
fjarðar hefur nú hafið eignar-
námsmál vegna byggingarlóðar
skólans og standa vonir til að skól-
inn fái fullan yfirráðarétt á bygg-
ingarlóð á þessu hausti. Þá er og
ráðgert að teikningar verði full-
gerðar í haust, en þær hafa verið
endurskoðaðar með þarfir fjöl-
brautarskóla i huga.
Nýja kjötverðið á miðvikudag:
Sláturkostnaður
ákveðinn 200 krón-
ur á kjötkílóið
RÍKISSTJÓRNIN fjallar á fundi
sínum í dag unt nýtt verð á sauð-
fjárafurðum og verða þar lagðar
fram tillögur sexmannanefndar
unt vcrðákvörðunina. Ekki var í
gæc hægt að fá upplýsingar um
hvcrjar væru tillögur nefndarinn-
ar en eins og áður hefur komið
fram í Morgunblaðinu er gert ráð
fyrir að ha'kkun á vcrði kinda-
kjötsins í smásölu verði rúmlega
30%. Þetta er þó miðað við að
rikisstjórnin geri engar breyting-
ar á niðurgrciðslum og ga'rur og
ull hækki jafnt og kindakjötið
samkvæmt ha'kkun verðlags-
grundvallarins. Gert er ráð fyrir
að nýja verðið taki gildi á mið-
vikudag.
Sexmannanefnd náði um helg-
ina samkomulagi um hækkun á
slátur- og heildsölukostnaði og
var samþykkt að hann yrði í haust
200 krónur á hvert kílö kjöts en
146 krónur á hvert kiló af gærum.
1 fyrrahaust var slátur- og heild-
sölukostnaður 139 krónur á hvert
kiló af kjöti en 100 krónur á kílóið
af gærunum. Nemur hækkun slát-
ur- og heildsölukostnaðar kjötsins
því um 44% frá sl. hausti. Sé gert
ráð fyrir að bændur fái í haust um
9.500 krónur fyrir kjöt af 15 kílóa
dilk, sem hafnar i fyrsta verð-
flokki, nemur slátur- og heildsölu-
kostnaður kjötsins 3000 krónum.
Af 15 kilóa dilk er áætlað að bónd-
inn fái 3 kíló af gærum og fyrir
þau fær hann rúmlega 740 krónur
Framhald á bls. 28.
SUS-þing:
Ríkisstjórnin
birti skýrslu
um Víðishúsið
ÞING Sambands ungra sjálf-
stæðismanna, sem haldið var í
Vestmannaeyjum um helgina,
samþykkti ályktun um kaup rikis-
ins á húsi Trésmiðjunnar Viðis
við Laugaveg. I ályktuninni segir,
að þar sem ýmislegt bendi til, að
kaup ríkisins á húseign Víðis
verði að teljast í meira lagi vafa-
söm ráðstöfun auk þess, sem það
sé í ósamræmi við reglur stjórn-
arfars í landinu, að ríkisstjórn
taki ákvarðanir unt stórfelld út-
gjöld ríkissjóðs án þess að fyrir
liggi samþykki fjárveitingavalds-
hafa. Orðrétt scgir i ályktuninni:
„Því skorar 24. þing SUS á ríkis-
stjórn að gera opinberlega grein
fyrir þeirri úttekt, sem kunnugt
er að frant fór á húsinu, þannig að
tækifa'ri gefist til að meta rétt-
ma-ti þcssara húsakaupa."
Tölverðar umræður urðu um
ályktun þessa og var i þeim bent
á, að þaö væri lögmál ríkisstofn-
ana að fjölga starfsmönnum með-
an húsrúm leyfði. Þá var vitnað
til þeirrar stefnu SUS að draga úr
ríkisumsvifum og bent á. að
réttara væri að draga úr eða
leggja niður starfsemi stofnana á
borð við Ríkisútgáfu námsbóka.