Morgunblaðið - 20.09.1977, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 1977
Tommy Docherty með forystumönnum Lilleström, Svein Skoglund og Ivar Hoff, eftir að samningur hafði
verið undirritaður.
DOCHERTY TIL DERBY OG LÆTUR
SIG LILLESTRÖM ENGU VARÐA
Athugasemd frá Þrótti
TOMMY Docherty, fyrrverandi
framkvæmdastjóri ensku hikar-
meistaranna, Manchester United,
gekk á laugardaginn frá samningi
við Derby County, og mun hann
innan tíðar taka við fram-
kvæmdastjórn hjá liðinu. Gerði
Docherty þriggja ára samning við
Derby, en ekki er vitað hver laun
hans verða. Þegar Derby reyndi
að kaupa Docherty frá Manchest-
er United í fyrra varð ekki af
samningum, þar sem Docherty
krafðist 120 þúsund punda fyrir
samninginn, sem þá átti að gilda
til fimm ára.
Docherty tekur við fram-
kvæmdastjórn hjá Derby af Colin
Murphy sem verið hefur fram-
kvæmdastjóri liðsins s.l. 10 mán-
uði, en þvi hefur ekki vegnað sem
skyldi undir hans stjórn og er nú í
næst neðsta sætinu i 1. deild.
Docherty þótti vinna mjög gott
starf hjá Manchester United og
var almenn ánægja ríkjandi með
hann þar, sérstaklega hjá leik-
mönnunum, unz upp komst í sum-
ar að hann hafði haft ástarsam-
band við konu nuddara félagsins.
Þótti forráðamönnum Manchest-
er-liðsins þjálfarinn ekki sýna
gott fordæmi með slíku og ráku
hann umsvifalaust.
Ekki skorti Docherty atvinnu-
tilboð, en að lokum ákvað hann að
ganga til samninga við norska 1.
deildar liðið Lilleström, sem vak-
ið hefur mikla athygli að undan-
förnu undir stjórn Joe Hooley.
Mun Docherty ekki hafa hikað við
að rifta samningi sínum við
norska liðið er honum bauðst
staða hjá Derby, og sagði hann við
fréttamenn að Lilleström hefði
gefið sér samninginn eftir, og árn-
að honum heilla í starfi. Ivar
Hoff, formaður Lilleström, var
hins vegar á öðru máli er frétta-
menn ræddu við hann. —
Docherty tók í höndina á mér á
föstudagskvöldið og þakkaði fyrir
samninginn við Lilleström, sagði
Hof, — en á laugardaginn frétt-
um við svo að hann væri kominn
til Englands, og orðinn fram-
kvæmdastjóri Derby. Hann
ráðgaðist ekki um þetta við neinn
forystumann í félagi okkar, og við
höfum ekki um annað að ræða en
að fá lögfræðingi okkar samning-
inn í hendur, og láta hann ráða
hver framvinda mála af okkar
hálfu verður.
Strax og samningar höfðu tekist
milli Docherty og Derby, lýsti
Docherty þvi yfir að hann hefði
mikinn hug á því að fá Colin
Murphy til starfa með sér hjá
félaginu, en ólíklegt þykir að
Murphy sé fús til þess samstarfs
eftir sparkið.
FIMMTUDAGINN 15. september
s.l. birtist grein á iþróttasiðu
Morgunblaðsins frá fararstjórum
Reynis, Sandgerði. Er grein þessi
öll hin furðulegasta og varla
svaraverð en þó er ég tilneyddur
að gera smá athugasemd.
Fararstjórar segja orðrétt:
,,Þeir höfðu verið sendi nauðugir
í leikinn af mótanefnd KSI að
kröfu Þróttar . . .“ Athugum stað-
reyndir. Laugardaginn 27. ágúst
átti leikur Þróttar og Reynis að
fara fram i Neskaupstað.
Áætlunarvél frá Flugfélagi Is-
lands lenti í Neskaupstað rúm-
lega 9 um morguninn í ágætis
veðri en engir Sandgerðingar
voru með þeirri vél. Ætluðu þeir
að koma með flugfélaginu Vængj-
um, en vegna óhagstæðrar veður-
spár treystu Vængir sér ekki til
að fjúga til Neskaupstaðar og
klukkan hálf tvö sendi mótanefnd
KSI skeyti og frestaði leik Þróttar
og Reynis til miðvikudagsins 31.
ágúst kl. 19.30. Seinnipart þriðju-
dags fór undirritaður að kanna
hvernig Reynismenn ætluðu að
koma til Neskaupstaðar. Kom þá í
ljós að þeir ætluðu að koma með
Vængjum, sem þá voru í verkfalli
og engar likur á það verkfall yrði
leyst fyrir miðvikudag. Var Reyn-
ismönnum og starfsmanni KSl
bent á flug til Egilsstaða seinni
hluta miðvikudags og til Reykja-
víkur aftur morguninn eftir ef
Reynismenn ætluðu sér að ná í
leikinn. Leikurinn er síðan
auglýstur en þá kemur skeyti frá
mótanefnd KSÍ þess efnis, að
leiknum sé frestað og nú um
óákveðinn tíma.
Það sem gerðist næst í þessu
máli er að leikurinn er settur á
mánudaginn 12. september kl.
18.00 í Neskaupstað. Fór Þróttur
fram á að leikurinn yrði á þessum
tíma vegna þess að hluti liðs-
manna Þróttar er farinn í nám
syðra og komu þeir til Neskaup-
staðar til að leika gegn Þrótti R,
laugardaginn 10. september. Vild-
um við þvi spila leikinn á mánu-
deginum svo ekki þyrfti að kosta
þá austur til Neskaupstaðar aftur,
er leikið yrði við Reyni S. Reynis-
menn neituðu að leika á mánu-
deginum og viti menn: Mótanefnd
KSl festaði enn leiknum og skyldi
hann nú leikinn þriðjudaginn 13.
september kl. 18.00.Og þá fór
þessi sögulegi leikur fram.
Eina krafa Þróttar til móta-
nefndar KSt var sú, að leikurinn
yrði leikinn áður en keppnistíma-
bilinu lyki 17. sept. Allar helgar
eru uppteknar og því ekki um
annað að ræða en að spila leikinn
á virkum degi. Þvi má skjóta hér
inn í að Þróttur lék við Víking í
bikarkeppni KSI í miðrí viku.
Hluti Þróttarliðsins varð þá að
dvelja um nótt í Reykjavík. Þá
misstu menn vinnu en ekki var
það talið eftir því menn verða að
legga töluvert á sig i áhuga-
mennskunni.
Reynismenn tala um erfitt og
dýrt ferðalag. 1 því er ég þeim
fyllilega sammála. En var þetta
nauðsynlégt? Hefðu nú Reynis-
menn farið með áætlunarvélum
hefði ferðin kostað þá um 200
þús. krónur rstað á fjórða hundr-
að þúsund.
Þannig er hægt að spara, ef vilji
er fyrir hendi.
Það hefur verið siður hjá okkur
Þrótturum að bjóða öllum 2.
deildarliðum í kaffiveizlu að lokn-
um leikjum i Neskaupsstað. Hafa
öll þau lið sem komið hafa til
Neskaupstaðar þegið boð okkar,
nema Sandgerðingar sem komu
boðum austur þess efnis að þeir
hefðu ekki tima til að þiggja góð-
gerðir. Því er það engum nema
Reynismönnum sjálfum að kenna
að þeir fengu ekki matarbita i
hinni erfiðu ferð.
önnur atriði í grein fararstjór-
:nna eru þess efhis að þau eru
ekki svaraverð. Og er ég undrandi
á slikum skrifum forystumanna
Reynis. — En e.t.v. má skilja sár-
indi forystumanna, hverjir yrðu
ekki sárir að sjá lið sitt horfa
undan og gera ekki neitt á meðan
boltinn er á leið í mark.
Guðmundur Bjarnason
formaður knattspyrnuráðs Þrótt-
ar.
adidas
á öll toppliöin
Landsliðið
Akranes — Valur — Fram
notið adidas skó og búninga
Umboö: Heildsölulager:
Björgvin Schram, Heildverzlun Austurbakki h.f.
Vanhugsuð stóryrði
I GREIN, sem Reynismenn skrifa
í Morgunblaðið í síðustu viku er
veitzt harkalega að vini mínum
Óla í’ossberg knattspyrnudóm-
ara, með meiru, frá Eskifirði. Þar
sem fleiri en einn og fleiri en
tveir hafa haft samband við und-
irritaðan vegna þessarar ritsmíð-
ar sé ég, mig knúinn til að setja
nokkrar línur á blað til svara
fyrir Öla Fossberg.
Ekki ætla ég mér að bera í
bætifláka vegna dómgæzlu Óla að
öðru leyti en því, að sjónarvottar
hafa tjáð mér, að Reýnismenn
hafi spyrnt knettinum fram fyrir
miðlínu í lok leiks þeirra við
Norðfirðinga síðastliðinn þriðju-
dag, er vindurinn bar knöttinn
rakleiðis yfir hálfan völl og í
mark Reynis á nýjan leik. Um
þetta get ég að sjálfsögðu ekki
dæmt þar sem ég sá ekki leikinn.
Hins vegar sárnar mér víð
Reynismenn vegna stóryrða sem
þeir nota í lok greinar sinnar er
þeir segja eitthvað á þá leið, að
það væri greiði við íslenzka knatt-
spyrnu að Óli hætti að dæma
knattspyrnuleiki. 1 sumar hefur
Öli dæmt fjölmarga leiki, eins og
hans er venja. Þegar f jallað hefur
verið um frammistöðu Óla i blöð-
um hefur hann yfirleitt fengið
góða dóma fyrir frammistöðuna.
Sjálfur veit ég aó Óli er hvorki
betri né verri en flestir aðrir is-
lenzkir knattspyrnudómarar, en
hann leggur sig allan fram og
dæmir af samvizkusemi. Gerir að
sjálfsöðgu sin mannlegu mistök
og er örugglega dómari i meðal-
lagi, um það get ég dæmt af eigin
reynslu.
Það eru stórir peningar, sem Óli
Fossberg hefur sparað austfirzk-
um knattspyrnuliðum undanfarin
ár og andstæðingum þeirra eystra
með óeigingjörnu starfi sínu.
Hann hefur fórnað flestum helg-
um og mörgum kvöldum hvert
einasta sumar í mörg herrans ár i
ferðalög á milli staða með flaut-
una i farangri sínum. An hans og
félaga hans í dómarastétt væri
austfirzk knattspyrna ekki það
sem hún er í dag. Austfirðingar
eiga þö altént orðið tvö lið i 2.
deildinni í knattspyrnu og er þaö
meira en mörg fjölmennari
byggðarlög geta státað af. Auk
þess hefur Óli verið drjúgur við
félagsleg störf fyrir Austra á
Eskifirði og á skilið lof en ekki
last fyrir fórnfýsi sína og dugnað
— þó honum geti vitanlega orðið
á i messunni eins og öðrum.
Ágúst I. Jónsson blaðaniaður.
Þjálfari óskast
Ungmennafélag Grindavíkur óskar að
ráða strax handknattleiksþjálfara fyrir
meistaraflokk kvenna í handknattleik.
Uppl. í síma 92-81 88.
Ungmennafélag Grindavíkur.