Morgunblaðið - 20.09.1977, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 20.09.1977, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 1977 Billy Bremner, fyrirliði Leeds- liðsins 1972. A hann hafa verið bornar þungar sakir. Enskir knattspymumenn vlja komast til meginlandsliðanna AUan Simonsen — fer í einkaþotu til Póllands. ENSKI knattspyrnumaðurinn Gordon Hill, leikmaður með bikarmeistaraliði Manchester United, lýsti þvi nýlega yfir í blaðaviðtali að hann hefði mik- inn hug að þvi að’fylgja i fót- spor Kevin Keegarí og fara ,að leika með liði á meginlandinu. Sagði Gordon Hill I nefndu blaðaviðtali, að samningur Keegans við Hamburger SV í Vestur-Þýzkalandi hefði komið róti á hug margra knattspyrnu- manna í Englandi og mætti telja fullvist að á næstu árum myndu margir freista þess að fá samning við lið á meginland- inu. Gallinn væri bara sá að enskir knattspyrnumenn væru yfirleitt ekki hátt skrifaðir, og þvi ótrúlegt að þeir hefðu mikla möguleika í þeim löndum þar sem hæst laun eru greidd fyrir knattspyrnu þ.e. á Spáni, Vest- ur-Þýzkalandi, Hollandi og Belgíu. — Þegar Kevin Keegan fór til Þýzkalands fylgdu honum margs konar glósur, sagði Hill, — menn sögðu hann vera hug- lausan flóttamann sem væri að yfirgefa sökkvandi skip. Ég er algjörlega á öndverðum meiði. Mér finnst það eðlilegt að ensk- ir knattspyrnumenn hafi hug á fé og frama í öðrum löndum og það ber líka að taka með í reikninginn að skattpiningin í Bretlandi er nú orðin þannig að það er nánast ómögulegt fyrir þá sem eru í knattspyrnu að lifa sæmilega góðu lífi af launum sínum. Ég vil behda á að þetta gildir raunar ekki aðeins um knattspyrnumenn, heldur og aðra þá sem möguleika hafa á að afla sér mikilla tekna. Lækn- ar, verkfræðingar og margir aðrir hafa farið frá Englandi í stórum hópum undanfarin ár og leitað fyrir sér annars stað- ar. — Ég vonast sannarlega til að lið á meginlandinu geri mér tilboð, sagði Hill i blaðaviðtal- inu. Mætti ég velja mér félag yrði belgíska liðið Anderlecht fyrir valinu, eða þá vestur- þýzka liðið Borussia Mönchen- gladbach. Þetta eru min uppá- haldslið — lið sem skipuð eru frábærum knattspyrnumönn- um, sem leika knattspyrnu eins og ég tel að hún geti bezt orðið. GRUNNT ÁÞVÍGÓÐA MILLI NORÐMANNA OG SVIA JUGÓSLAVINN Miljanis hefur nú sagt stöðu sinni. sem þjálfari spánska liðsins Keal Madrid. lausri. Hefur Luis Molowny verið ráðinn til félagsins i hans stað en Molowny var á sínum tíma einn bezti knattspyrnumaður Spánar. Mikil óánægja hefur verið í riið-' um Real Madrid að undanförnu með Miljanie, enda komst Real Madrid ekki i neina Evrópubikar- keppni að þessu sinni, — í f.vrsta sinn i langan tima. Bremmer sakaður um að hafa boðið mútur meira var, þá var leikur þessi liður í undankeppni heims- meistarakeppninnar i knatt- spyrnu, og eftir hann eru Sviar alls ekki vissir að komast i loka- keppnina i Argentínu. Norð- menn þurfa að vinna Svisslend- inga í siðasta leiknum í riðlin- um til þess að standa jafnfætis Svium að stigum, og ræður þá markatala hvort liðið kemst áfram. Er talið mjög liklegt að Norðmenn vinni Sviss, sem hingað til hefur ekkert stig hlotið í riðlinum. Svíar voru mjög sárir að tapa landsleiknum á Ullevalaleik- vanginum í Osló, og skrifuðu margt í blöð sín daginn eftir leikinn, sem Norðmönnum þótti ekki viðurkvæmilegt, eins og t.d. þessi klausa sem birtist í Expressen: „Munið þið hvernig það var einu sinni, þegar hinum megin við Vermaland bjó skrýtin þjóð sem gekk jafnan um með poka á bakinu og lyktaði af fiski og mysuosti? Þjóð sem skammað- ist sín fyrir að geta ekki spark- að knetti yfir nokkrar Volvo- bifreiðir? Ef þið eruð búin að gleyma þessum tima má rifja upp að hjá þessari þjóð er leik- vangur sem þeir kalla Ullevala, og þar beið Svíþjóð ósigur i gærkvöldi 1—2.“ I Aftonblaðinu birtist einnig teiknimynd með texta sem fór afskaplega i taugarnar á Norð- mönnum. Myndin var af birni sem var að blása upp blöðru og textinn sem fylgdi var eitthvað á þá leið að Noregur væri skrýt- ið land, og að Norðmenn ætu ekkert annað en þorsk. I fjöll- unum héldu heimsku tröllin sig, og því miður hefði dómari landsleiksins verið á þeirra stigi. MIKK) SKAL TILMIKILSVINNA KOMIÐ ER upp mikið hávaðamál í ensku knallspyrnunni, sem ekki er séð fvrir endann á. Danny Hegan. f.vrrverandi knattspyrnu- maður með liði Wolverhamptun Wanderes, hefur sakað Billy Bremner, fyrrum fyrirliða Leeds United, að hafa hoðið sér mútur í leik milli þessara liða, er fram fór undir lok ensku 1. deildar keppn- innar árið 1972, en Leeds United þurfti að ná jafntefli eða að sigra i þeim leik til þess að hreppa enska meistaratitilinn það ár. „Give us að penalty and 1*11 give you a grand" á Bremner að hafa sagt við Hegan í leik þessum, og til nánari skýringa hefur Hegan sagt að Bremner hafi boðið sér eitt þúsund pund, ef hann bryti þannig af sér inni í vítateig, að dæmd yrði vítaspvrna. — Sparkaðu okkur niður inni í vitatoignum, sagði Bremner tvi- vegis í leiknum, — láttu okkur fá vítaspyrnu. þú munt ekki sjá eftir þvi. segir Ilegan að Bremner hafi sagt tvivegis við sig i leiknum, er þeir voru að berjast um knöttinn. Hegan hefur einnig skýrt frá þvi, að fyrir leik þennan hafi framkvæmdastjóri Ulfanna. Bill McGarry, komið til leikmanna liðsins og beðið þá sérstaklega að gæta sin — vel gæti farið svo að reynt yrði að múta þeim. Segir Hegan að framkvæmdastjórinn hafi sérstaklega talað við David Wagstaff. leikmann með Ulfun- um. og staðfesti Wagstaff þetta raunar í blaðaviðtali sem birlist 22. SEPTEMBER n.k. leika Danir og Pólverjar landsleik I knatt- spyrnu i Póllandi og er sá leikur liður í undankeppni heimsmeist- arakeppninnar. Sem kunnugt er leika flestir beztu knattspyrnu- menn Danmerkur með liðum i Hollandi, Belgiu og Vestur- Þýzkalandi. en horfur eru é að flestir þeirra muni leika i danska landsliðinu á móti Pólverjum, enda gifurlega mikið i húfi fyrir Dani að standa sig vel i þeim leik. Meðal þeirra leikmanna sem danska knattspyrnusambandið leggur mikla áherzlu á að fá i leikinn er hinn lágvaxni leikmaður með Borussia Mönchengladbach, Allan Simonsen. En þegar til átti að taka kom hins vegar bobb i bátinn. Simonsen gat fengið fri hjá Borussia til leiksins. en hann vildi hins vegar umfram allt vera viðstaddur silfurbrúðkaup foreldra sinna. sem er daginn fyrir leikinn. Greip danska knattspyrnusam- bandið til þess ráðs að leigja einkaþotu, sem mun flytja Simon- sen frá Kaupmannahöfn til Pól- lands daginn sem leikurinn fer fram. Mikið skal til mikils vinna. Allar llkur benda til að Pólverjar geti teflt fram slnu sterkasta liði I leiknum við Danmörku. en þeir tveit leikmenn sem þótt hafa bezt- ir I pólska landsliðinu. Lubanski og Kaspertjak, hafa átt við meiðsli að striða i allt sumar, og litið getað verið með. Lét pólski lands- liðsþjálfarinn nýlega hafa eftir sér. að tap Pólverja i landsleik við Sovétmenn nýlega 1—4, hefði verið staðfesting á þvi hversu nauðsynlegir menn þeir Lubanski og Kaspertjak væru fyrir liðið. — Verði þeir ekki með er ég ekki alitof bjartsýnn á að við vinnum Danina. sagði þjálfarinn. Miljanic hættir árið 1972. — Þá sagði Wagstaff að hann hefði oft heyrt kallað frá hliðarlínunni til sín, og sér hefði verið sagt að ,,taka það rólega. það myndi borga sig fyrir hann." Umræddur leikur Leeds og Wolverhampton var mikill baráttuleikur og lauk honum með sigri Wolverhampton 2—1. og varð Leeds Utd. þar með af meistaratitlinum. Mjög mikið hefur verið ritað um mál þetta i ensku blöðin að undanförnu, og hefur þar m.a. borið ágóma að Don Revie, þáver- andi framkvæmdastjörí Leeds en síðar enskur knattspyrnulands- liðseinvaldur, hafi staðið fyrir því að bjnú leikur með 2. deildar tið- inu Hull City. hefur neitað harð- lega ásökunum Hegans, og segir ummæli hans vera uppspuna frá rótum. — Ég veit satt að segja ekki hvaðan á mig stendur veðrið, eða hvaða tilgangi svona sögu- burður þjónar, sagði Bremner, og spáði þvi að Ulfarnir ættu eftir að hitta sjálfa sig fyrir í máli þessu. OFT hefur verið grunnt á þvi góða milli Svía annars vegar og Norðmanna og Dana hins veg- ar, þegar íþróttir eiga í hlut. Bæði Norðmenn og Danir vilja leggja allt f sölurnar til þess að sigra SvSa I íþróttum og Svíum finnst það herfiieg niðurlæging ef þeir tapa fyrir þessum þjóð- um. Eins og skýrt hefur verið frá í Morgunblaðinu unnu Norð- menn Svía í knattspyrnulands- leik á dögunum, og það sem Norðmenn nutu sannarlega sigursins yfir Svíunt, svo sem sjá má af mynd þessari sem birtist I norska Dagblaðinu. Maður í norska landsliðsbún- ingnum er að vakna í himna- sæng heimsmeistarakeppdinn- ar, en vofa Sviss er þó ekki langt undan. í Danny Hcíían: Mcr var satft a(> taka það rólega og éí» átti aó fá 1000 pund fyrir aó „útvesa" Leeds víta- spvrnu. L_________

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.