Morgunblaðið - 20.09.1977, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 1977
Sprengingin
á Akranesi
Elsa Ingvarsdóttir, Hjarðarholti 3. Elsa stendur á þeim stað f eldhúsinu, þar sem hún var, þegar
sprengingin varð. „Ég heyri hvin og svo háan hvell,“ sagði Elsa. „Mér varð hugsað til barnanna og er
komin fram að fsskápnum, þegar glerbrotin komu á hæla mér“. 1 Ijós kom að rörhné hafði þeytzt inn
um eldhúsgluggann, sem byrgður er á myndinni, og f vegginn andspænis Elsu. Þaðan kastaðist hnéð
svo út f horn. „Það var snertings heitt, þegar við reyndum að taka á þvf,“ sagði Elsa. A minni myndinni
sést hnéð og farið eftir það f veernum.
Myndin til hægri.
Ofninn úr Flugeldagerð-
inni sem sveif yfir tvö
hús og skall á vegg
Hjarðarholts 5. Farið eft-
ir ofninn sést á veggnum
milli glugganna. i
Myndin til vinstri.
Dúi Jónasson, Esjubraut
8, með hurðarlæsinguna
og fleiri hluti sem skullu
á þaki hússins af sliku
afli að göt komu af.
ÞRÖSTUR Stefánsson og Guðmunda Ölafsdóttir við hús sitt Esjubraut 5. Þar brotnuðu 9 rúður og
loftklæðning gekk til. t samtali við Mbl. f gær sagði Guðmunda: „Ég var ein f húsinu með tveimur
dætrum mfnum og vinkonu þeirra. Ég lá upp f rúmi og mókti, þegar ég hrökk allt í einu upp við
ofsaleg læti, rúðurnar brotnuðu, gluggatjöldin sviptust til og eiginlega gerði ég mér enga grein fyrir
þvf hver ósköpin gengju á. Ég fór strax til telpnanna og við hlupum f gegn um húsið og út á
náttfötunum. Það var allt f glerbrotum og mér fannst eins og allt húsið væri að fara f rúst. Eftir á er ég
mest hissa á því, að við skyldum ekkert meiða ok'kur á glerbrotunum svona berfættar.“
Flugeldastöðin hf.
I) verksmiðjuhús 2) birgðageymsla 3) hús Sigurðar G. Sigurðsson-
ar 4) hús þrastar Stefánssonar 5) hús Helga Guðmundssonar 6) Á
þaki þessa húss lentu hurðarlaésing og fleiri hlutir svo að göt komu
af 7) Á vegg þessa húss lenti ofn úr Flugeldagerðinni milli tveggja
glugga 8) Inn um eldhússglugga þessa húss þeyttist rörhné úr
Flugeldagerðinni. 9) Verkstæði þeirra Þorgeirs og Helga 10) Verk-
stæðið, sem Skarphéðinn Arnason var staddur f 11) Hér stóð Ölafur
Guðjónsson, er hann sá sprenginguna. Þess skal getið að bflskúrinn
sem teiknaður er inn á kortið f sjónlínu Ölafs er ekki risinn, eins og
sjá má af myndinni, sem tekinn var af Olafi á þessum stað.
LJósmyndir !VIhl.: Fridþjófur.
RAGNIIILDUR Theodórsdóttir og Halldór Jónsson, Esjubraut 9, i
eldhúsinu, þar sem þau höfðu skotið stoðum undir loftklæðning-
una. I þeirra húsi bortnuðu 13 rúður og öll loft slöknuðu eitthvað
við sprenginguna. „Ég var fram í kyndingu að hleypa kisu út,“ sagði
Ragnhildur f samtali við Mbl. í gær. „Ég heyrði aðallega stóra
dúndrið og óskaplegan þyt með, alveg voðalegan þyt. Ég hélt fyrst
að kyndingin væri farin, en þegar ég sáað allt var í lagi með okkar
kyndingu, þá hélt ég að sprenging hefði orðið f kyndingu næsta
húss. En þegar ég kom fram í stofu sá ég flakandi gluggatjöldin og
glerhrotin út um allt og út um opinn gluggann sá ég að það hafði
kviknað í Flugeldagerðinni."
BUXUR
KSKAGFjqpfl If.