Morgunblaðið - 20.09.1977, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÖJUDAGUR 20. SEPTEMBER 1977
37
Fann
höfuð
elskhuga
síns í
frysti-
hólfinu
+ Fyrrverandi þjónn
Amins hinn 34 ára gamli
Moses Aloga sem nú hef-
ur flúiö til Kenya hefur
sagt frá því að harðstjór-
inn í Uganda, Idi Amin,
geymi hluta af líkum í
frystihólfi sínu. Moses
Alogas vann við ræsting-
ar hjá Amin og hafði því
lykla að herbergi því
sem frystihólfið er í. Dag
einn kom kona Amins
Sarah óvænt inn í her-
bergiö er Moses Aloga
var staddur þar og krafð-
ist hún þess að fá að sjá
hvað geymt væri í hólf-
inu. Moses var tregur til
að opna það en Sarah
bauð honum peninga og
lofaði að segja engum
frá. Þegar hann svo opn-
aói frystihólfið blöstu
tvö mannshöfuð við.
Annað þeirra var af
fyrrverandi elskhuga
Söruh, hljómsveitar-
stjóra, en Sarah hafði
Idi Amin notaði sverð til að skera brúðkaupstertuna með þegar
hann kvæntist Söhru árið 1975.
dansað og sungið með
hljómsveit hans áður en
hún hitti Amin. Hitt höf-
uðið var af ungri stúlki
sem Amin hafði átt vin-
gott við en hann grunaði
hana um að vera sér
ótrú. Söhru varð að von-
um mikið um þessa sjón
sem blasti við henni og
það leið yfir hana. Þrem
dögum síðar fannst
Moses Aloga ráðlegast
að flýja og hann fékk
flutningabílstjóra til að
aka sér og konu sinni til
landamæra Kenya.
Moses sagði einnig frá
þVí að Amin léti gjarnan
færa sér likamshluta
manna sem dæmdir
hefðu verið til dauða til
að fullvissa sig um að
dómnum hefði verið full-
nægt. Þessir líkamshlut-
ar væru þá settir í frysti-
hólfið en sjaldan geymd-
irþarlengi.
fÓIK í
fréttum
Ekki á vogarskálum!
+ Margt er skrýtið í kýrhausnum! — Á meðan íslendingar eru í harðri baráttu við
aukakílóin eru aðrar þjóðir með fegurðarsamkeppni fyrir kvenfólk í yfirþunga-
vigt. Þessar föngulegu meyjar sem hér sjást tóku nýlega þátt i einni slíkri í Manila
á Filipseyjum og allir hljóta að vera sammála um að þær hafi ýmislegt að sýna!
— Minning
Ottó
Framhald af bls. 32.
Snæfellsness og hafði viðað að sér
miklu efni á þvi sviði, hann sagði
vel frá og naut þess að miðla
öðrum af söguþekkingu sinni,
þeir eru margir i þessu landi, sem
heyrt hafa Ottó Árnason segja frá
t.d. sögu Ölafsvíkur.
Eftirminnilegur maður er fall-
inn frá, maður sem setti svip á
daglegt líf i litlu sjávarþorpi, ævi
hans hefur verið viðburðarík, lit-
auðug minning hans mun lifa.
Ég vil fyrir hönd byggðarlags-
ins þakka af alhug öll þau marg-
vislegu störf sem hann vann fyrir
Ölafsvík, hans örvandi félags-
málaáhuga, sem seint mun fyrn-
ast.
Ég flyt eftirlifandi eiginkonu
hans, börnum og venslafólki inni-
legar samúðarkveðjur.
Ólafsvík, 7. september.
Alexander Stefánsson.
— Minning
Guðjón
Framhald af bls. 34.
var varaformaður Múrarafélags
Reykjavikur 1935—1936 og for-
maður þess 1936—1940 og
1946—1949, svo að nokkuð sé tal-
ið. Þá var hann forseti Sveinasam-
bands byggingamanna
1937—1938 og forseti Landssam-
bands islenzkra stéttarfélaga
1939—1940. Eru þá ótalin mörg
önnur trúnaðarstörf hans i þágu
vekrkalýðssámtakanna, einkum i
samtökum múrara. Var því sann-
arlega vel til fundið af Múrarafél-
agi Reykjavíkur að gera hann að
heiðursfélaga sínum.
1 einkalífi sinu var Guðjón
gæfumaður. Hann var kvæntur
hinni ágætustu konu, Kristínu
Guðmundsdóttur frá Tungu í
Gaulverjabæjarhreppi, er lézt
fyrr á þessu ári. Þá áttu saman
einn son, er lézt i blóma aldurs
sins og var þeim mikill harm-
dauði. Guðjón gekk i föður stað
börnum Kristínar af fyrra hjóna-
bandi, þeim Kristinu, Davið og
Hannesi Kr., er ung misstu Davið
föður sinn í sjóslysi.
Þegar leiðir skilja nú er mér
efst í huga góðsemi sú og velvild,
sem mér þótti ætið einkenna
Guðjón heitinn i svo rikum mæli.
Alltaf lagði hann gott eitt til mála
og gerði ætíð gott úr öilu. Slíkir
menn eru ómetanlegir á hverjum
vinnustað. Hann varður okkur
samstarfsmönnum sínum
ógleymanlegur og minninguna
um hann munum við ætíð geyma i
huga okkar og sál. Ættingjum
hans og skyldmennum vottum við
einlæga samúð okkar og biðjum
sál hans blessunar á ómælisleið-
um.
Sigurður E. Guðmundsson.
.. '
SKIIMNASALAN
Höfum úrval af loðjökkum og
loðkápum á boðstólum
Verð á jökkum kr 42 040. — , 44.513 —
45.337.-.
Verð á loðkápum kr 65.944 — 65.945 —
70.066.-.
Auk þess framleiðum við eftir pöntunum húfur,
trefla, loðsjöl (capes), loðjakka og loðkápur úr
alls konar skinnum.
LAUFASVEGUR19
sími 1 5644, 2. hæð til hægri.