Morgunblaðið - 20.09.1977, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 1977
Þrennt slasad-
ist í árekstri
á Akranesi
ALVARLEGT umferðarslys varð
á veginum skamml fyrir ofan
Akranes klukkan 14.30 á laugar-
dag. Lentu þar í árekstri fólksbif-
reið af Skoda-gerð og viirubifreið.
Slasaðist þrennt í fölksbifreið-
inni og var flutt á sjúkrahús, sfð-
Leiðrétting
Þau leiðu mistök urðu í Mbl. sl.
föstudag i frétt um banaslys á
Skagastrandarvégi, að sagt var að
ungur maður, sem var i bilnum
auk ungu konunnar, sem lézt,
hefði ekið bifreiðinni. Ilér mun
ekki hafa verið faríð rétt með og
biðst Morgunblaðið velvirðingar á
mistökunum.
Harður
árekstur við
Hamraborg
í Kópavogi
LAUST fyrir hádegið i gær varð
allharður árekstur við Hamra-
borg í Köpavogi og rákust þar á
tveir bilar. Varð áreksturinn á
Hamraborg, vestan megin, þar
sem tengibraut er við nyrðri
brúna yfir gjána en þar hefur
nýlega verið breytt umferðarrétti
að sögn lögreglunnar i Kópavogi.
I öðrum bilnum voru tvær konur
með þrjú börn og í hinum maður
með barn og skarst fullorðna fólk-
ið nokkuð og hlaut áverka í and-
liti og var flutt á slysadeild til
aðgerða. Að sögn lögreglunnar i
Kópavogi eru þetta slæm gatna-
mót og sem fyrr segir var breytt
umferðarrétti þar hinn 1. septem-
ber s.l. og því ástæða til að aka
þarna með varúð.
INNLENT
degis á laugardag var sfðan kona
úr fólksbifreiöinni flutt með
þyrlu frá Varnarliðinu til
Reykjavíkur. Var hún meöal ann-
ars brotin á báum fótum og meira
slösuð.
Areksturinn varð á mótum
gamla og nýja vegarins fyrir ofan
Akranes og hafði merki um stöðv-
unarskyldu á nýja veginum verið
tekið niður deginum áður af
Vegagerðinni. Þar sem merkið
hafði áður verið gilti nú hægri
varúð, gji það var vörubifreiðin,
sem ók eftir nýja veginum. Valt
vörubifreiðin út af veginum við
áreksturinn og för á hliðina.
Skemmdist vörubifreiðin tals-
vert, en fólksbifreiðin mun vera
önýt.
Lögreglan á Akranesi. sagði í
gær, að það væri mjög alvarlegt
mál hve fáliðaðir lögregluþjónar
á Akranesi væru. Þannig væru
aðeins sjö fastráðnir lögreglu-
þjónar á staðnum, sem stöðugt
færi vaxandi, og hefðu þeir að
auki með sjúkraflutninga að gera.
Var haldinn borgarafundur á
Akranesi um þetta mál í fyrra-
haust, en úrbætur hefðu enn ekki
fengizt.
„Alcopley
íJapan”
í kvöld kl. 20.30 verður sýnd kvik-
myndin „Alcopley í Japan“ sem
er gerð af japanska myndlistar-
manninum Shiryo Morita, í fund-
arsal Kjarvalsstaða. Fram í henni
koma m.a. Nína Tryggvadóttir og
aðrir listamenn. Myndin er um 25
mínútna löng og án texta, en
Alcopley mun sjálfur segja frá.
Tónleikar
MANUELA Wiesler flautuleikari
heldur tónleika í Bústaðakirkju á
morgun kl. 20.30. A efnisskránni
eru verk eftir Carl Philipp
Emanuel Bach, Edgard Varese,
Jacques Ibert, Þorkel Sigur-
björnsson og Vagn Holmboe. Að-
göngumiðar fást við innganginn.
Séð yfir salinn i Laugardalshöllinni í fyrradag.
A
J
Björn O. Thorstensen, Norðurlandameistari í hárgreiðslu, ásamt
stúlkunni sem hann greiddi í keppninni.
Niels Schou, Norðurlandameistari í hárskurði, og maðurinn sem
hann klippti í keppninni.
Norður-
landameist-
arar í hár-
skurði
og hár-
greiðslu
SÍÐAST liðinn sunnudag
fór fram Norðurlanda-
keppni 1977 í hárgreiðslu
og hárskurði í Laugar-
dalshöllinni í Reykjavík.
Norðurlandameistari í
hárgreiðslu varð Björn
O. Thorstensen frá
Noregi og sigurvegari í
hárskurði var Niels
Schou frá Danmörku. í
miðvikudagsblaói Morg-
unblaósins verður greint
frekar frá þessari keppni
hárskurðar- og hár-
greiðslumeistara á Norð-
urlöndum, og birtar
myndir frá keppninni.
Eyðing laxaseiðanna
í Laxalóni hafin
og fer hvert seiði um hendur ann-
aðhvort Arna eða Brynjólfs.
Þessu næst eru seiðin sett í plast-
brúsa og þau flutt að Keldum, þar
sem sýni úr þeim eru valin af
handahófi og greind en að síðustu
eru seiðin brennd í þar til gerðum
ofni á Keldum. Tveir menn vinna
með Brynjólfi og Arna að deyf-
ingu og talningu seiðanna í Laxa-
ARDEGIS í gær var hafi/.t handa
við að eyða laxasciðum í Laxeldis-
stöðinni í Laxalóni en landbúnað-
arráðuneytið ákvað sem kunnugt
er að öllum laxaseiðum f stöðinni
skyldi eytt vegna nýrnaveiki i
þeim. Það eru þeir Brynjólfur
Sandholt dýralæknir og Árni
Isaksson fiskifræðingur, sem ann-
ast eyðingu seiðanna ásamt
starfsmönnum Tilraunastöðinni á
Keldum. Að sögn Arna Isaksson-
ar var rúmlega 23 þúsund seiðum
eytt í gær og gerði hann ráð fyrir
að það tæki þrjá til fjóra daga að
farga öllum seiðunum en ekki
vildi hann segja ákveðið um hvað
mörg seiði væru í stöðinni. Við
rannsóknir á seiðum, sem tekin
voru í Laxalóni og rannsökuð á
Keldum fundust greinileg ein-
kenni um nýrnaveiki Í36%, vafa-
söm sjúkdómseinkenni sáust í
6% og 58% voru án einkenna um
nýrnaveiki.
Laxaseiðunum er eytt með þeim
hætti að fyrst er þeim safnað í
sérstakt ker og gefið deyfilyf en
þessu næst eru þau talin á borði
EYÐING LAXASEIÐANNA IIAFIN — Brynjólfur Sandholt telur sciðin, Arni Isaksson, skráir niður
fjölda seiðanna og Skúli Pálsson á Laxalóni fylgist með. Ljósm. Mbl. t.g.
lóni en á Keldum sjá 3 menn um
greiningu þeirra og brennslu. —
Þetta er ekki skemmtilegt verk og
allra sizt vegna allra þeirra blaða-
skrifa, sem orðið hafa út af þessu
máli. Það er alltaf skemmtilegra
að halda lífi í fiski en þetta er
gert af illri nauðsyn, sagði Árni.
Guðmundur Pétursson, for-
stöðumaður Tilraunastöðvarinnar
á Keldum, sagði í samtali við blað-
ið, að þeir á Keldum hefðu tekið
sýni úr öllum kerjunum, sem eytt
var úr í gær og hefðu þessi seiði
verið valin af handahófi og hefðu
einkenni nýrnaveiki fundizt i allt
frá fjórðungi seiða í hverju keri
og upp í helming. — Þetta er
meira en við áttum von á, þegar
seiðin eru valin af handahófi. Við
vissum reyndar ekki hversu mik-
8ð sjúkdómurinn var útbreiddur,
því fyrri sýni voru helzt tekin úr
fiskum, sem grunsamlegir þóttu,
sagði Guðmundur.
I stöðinni i Laxalóni er einnig
regnbogasilungur og ákvað land-
búnaðarráðuneytið að honum
skyldi hlíft. Fisksjúkdómanefnd
lagði í tillögum sinum til ráðu-
neytisins til að öllum fiski í Laxa-
lóni yrði eytt, þá bæði laxaseiðum
og regnbogasilungi, en hafði áöur
bent á að reyna mætti þá leið að
bíða með að lóga regnbogasil-
ungnum þar til alinn hefði verið
upp nýr fiskur af sótthreinsuðum
eggjum. Ráðuneytið hefur ekki
enn tekið ákvörðun um hvað gert
verður við regnbogasilunginn.