Morgunblaðið - 20.09.1977, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 1977
43
Carter boðar hóf-
samari afstöðu til
Evrópukommúnista
Stuttgart, V-Þýzkalandi,
19. september, AP.
JIMMY Carter, Banda-
ríkjaforseti, hefur látiö
Sexburafæð-
ing í Hollandi
Leyden, Hollandi.
18. sept. Reuter.
SEXBURAFÆÐING varð i Hol-
landi í gær, þegar 28 ára gömul
kona ól fjórar telpur og tvo
drengi. Þetta er fyrsta sexbura-
fæðing í Hollandi. Móðirin hafði
tekið frjósemislyf. Sexburarnir
voru frá eínu kílói til eins og hálfs
að þyngd. Börnin komu tveimur
mánuðum fyrir timann og voru
tekin með keisaraskurði.
Fimmtán manna lækna- og hjúkr-
unarlið tók á móti sexburunum og
sagði talsmaður sjúkrahússins að
75% líkur væru á því að öll börn-
in sex héldu lífi.
þau orð falla í viðtali við
Readers Digest, að enda
þótt kommúnistar kæmust
í valdastól í Frakklandi og
á Ítalíu þyrfti það ekki
óhjákvæmilega að hafa í
för með sér að þessum
tveimur þjóðum yrði vísað
úr Atlantshafsbandalag-
inu.
í viðtali þessu, sem ný-
lega hefur verið birtur út-
dráttur úr, segir Carter
ennfremur, að hann eigi
ekki von á því að vinstri
stjórnir með aðild komm-
únista verði í þessum
tveimur aðildarrikjum
Atlantshafsbandalagsins í
náinni framtíð, en af hálfu
Bandaríkjamanna verði
ekki gerð minnsta tilraun
til að hafa áhrif á skoðanir
kjósenda í þessum löndum.
Grikkland:
Karamanlis.
Aþenu 19. sept. AP.
ALMENNAR kosningar fara
fram í Grikklandi síðari hluta
nóvembermánaðar n.k. segir f
AP-frétt frá Aþenu og er fréttin
höfð eftir George Mavros, leið-
toga stjórnarandstöðunnar.
Skýrði hann frá þessu að loknum
fundi með Karamanlis forsætis-
ráðherra. Sögusagnir höfðu verið
á kreiki um að Karamanlis hefði
hug á því að efna til kosninga í
haust. Hann er þeirrar skoðunar
að nauðsynlegt sé að kanna vilja
þjóðarinnar og fylgi hennar við
flokk hans, Nýja lýðræðisflokk-
inn, vegna mikilvægra ákvarðana
Gíraffinn Viktor í hinni kynlegu stellingu.
Rís Viktor á
fætur í dag?
Winchester, Englandi,
19. september, Reuter.
GlRAFFINN Vietor liggur enn
ósjálfbjarga með afturfæturna
I splitt eftir misheppnaðan
ástarforleik fyrir helgina. Þó
birti heldur yfir tilveru hans í
dag, þegar gæzlumenn í Mar-
well Park-dýragarðinum leiddu
á hans fund vinkonur hans
þrjár, Dómínó, Dribbles og
Arabesque, en grunur leikur á
að Viktor hafi lent í þessari
kynlegu sjálfheldu er hann var
að gera sig liklcgan við ein-
hverja þeirra.
Viktor hefur verið á lyfja-
gjöfum undanfarið, og segjast
dýralæknar vera að byggja
hann upp og styrkja, en gert er
ráð fyrir að reynt verði að að-
stoða Viktor við að risa á fætur
á morgun, þriðjudag.
Viktor hafa borizt skeyti víða
að úr heiminum með samúðar-
og hvatningaróskum.
VEÐUR
víða um
heim
Amsterdam 14 sól
Aþena 30 bjart
Berlin 29 bjart
Brússel 13 skýjaS
Barcelona 18 skýjað
Chicago 21 bjart
Frankfurt 14 rigning
Genf 17 skýjað
Helsinki 11 skýjað
Jóhannesarborg 21 sól
Lissabon 22 bjart
Los Angeles 26 bjart
Madrid 23 skýjað
Malaga 27 léttskýjað
Majorka 18 skýjað
Miami 29 bjart
Moskva 10 skýjað
Kaupmannahöfn 15 sól
Ósló 18 sól
New York 28 rigning
París 15 sól
Rómaborg 16 rigning
San Francisco 22 rigning
Stokkhólmur 9 sól
Tel Aviv 28 sól
Vancouver 20 skýjað
Dayan í W ashington:
Kynnir friðartillög-
ur ísraelsstjórnar
Kosið í nóvember
í náinni framtíð um Kýpur og
aðild að Efnahagsbandalaginu.
Flokkur Karamanlis hefur nú 216
sæti af 300 á gríska þinginu.
Stjórnmálafréttaritarar segja
að Karamanlis muni áreiðanlega
vinna auðveldan sigur í kosning-
unum, enda hafi honum tekizt að
afla sér virðingar og trausts með
þjöðinni siðan hann tók við völd-
um í júlí 1974. Tveir af fimm
stjórnarandstöðuflokkum, fylk-
ing Andreasar Papandreu og
kommúnistaflokkurinn sem fylg-
ir Moskvu eru andvigir aðild að
EBE.
Washington, 19. sept. Reuter.
MOSHE Davan, utanríkisráð-
herra Israels, lagði í dag fyrir
bandaríska ráðamenn friðartil-
lögur Israelsstjórnar i deilumál-
unum fyrir botni Miðjarðarhafs,
en hann hefur enn ekki fengizt til
að gefa neinar skýringar á
skyndilegri heimferð sinni frá
Evrópu til Israels um helgina áð-
ur en hann hélt vestur um haf til
Bandaríkjanna.
Cyrus Vance, utanrikisráðherra
Bandaríkjanna, tók á móti Dayan
i dag, og sagði við það tækifæri,
að þeir myndu ræða friðarhorf-
urnar i Austurlöndum nær á
breiðum grundvelli. Síðar í dag
átti Dayan að eiga fund með Cart-
er Bandaríkjaforseta. ísraelskir
embættismenn lýsa friðartillög-
um Israelsmanna þannig, að þær
feli i sér mjög itarlegar áætlanir
um framtíðarsamninga milli
Arabaríkjanna og Israelsrikis.
Dayan hefur ekki viljað gefa
neinar skýringar á hinni skyndi-
legu brottför sinni frá París um
helgina til Israels, þar sem hann
átti viðræður við Begin, forsætis-
ráðherra, en fyrirfram hafði verið
gert ráð fyrir að Dayan færi beint
frá Evrópu til Bandaríkjanna. í
samtali við fréttamenn í Washing-
ton í dag sagði Dayan aðeins, að
hann hefði snúið heim til Israels
til að gefa Begin skýrslu um
mikilvægar viðræður, sem hann
hefði átt i París, en vildi ekki
skýra frá því við hvern eða hverja
hann hefði þar rætt.
Grikkir taka þátt í
heræfingum NATO
Aþenu 19. sept. AP.
GRtSKI flotinn mun taka þátt I
heræfingum Atlantshafsbanda-
lagsins sem hef jast við Gibraltar í
dag og hafa Grikkir ekki tekið
þátt í slíkum æfingum síðan árið
1974, er þeir slitu hernaðarsam-
starfi við bandalagið. Heræfing-
arnar eru kallaðar „Display
determination" og verða þær
Ætlaði
Oswald
að drepa
Nixon?
New York, 18. sept. Reuter.
MARINA Oswald, sem var gift
L. II. Oswald, grunuðum bana-
manni Kennedys fyrrv. Banda-
ríkjaforseta, segir í bök sem er
að koma á markaðinn, að hún
hafi einu sinni læst eiginmann
sinn inni á baðherbergi til að
koma í veg fyrir að hann gerði
tilraun til að drepa Richard
Nixon, og gerðist þetta að henn-
ar sögn sjö mánuðum áður en
Kennedy var myrtur.
Kaflar úr bók Marinu eru
birtir í októberhefti Home
Journal og segir þar að þetta
hafi gerzt hinn 21. apríl eða um
það bil tveimur vikum eftir að
Oswald sagðist hafa reynt að
drepa Edwin Walker hershöfð-
ingja.
Marina segir að Lee Harvey
Oswald hafi ákveðið að skjöta
Nixon eftir að hann hefði lesið
að Nixon krefðist þess að Rúss-
ar færu brott af Kúbu. Þegar
hann hafði séð þetta greip hann
byssu sína og bjóst til brottfar-
ar. Þegar Marina segist hafa
spurt hvert hann ætlaði sagði
hann: „Nixon er að koma til
borgarinnar. Ég ætla að athuga
málið."
Marina Oswald kveðst ekki
hafa haft hugmynd um hver
Nixon var, en vitað að líf var í
hættu. Tókst henni með brögð-
um að fá Oswald til að fara inn
á baðherbergið og loka hann
inni. Þegar hann æpti hástöfum
til hennar að hún skyldi opna
neitaði hún og sagði: „Hvernig
gaztu skrökvað að mér. . . þú
varst búinn að gefa mér loforð
um að þú skyldir aldrei skjóta
neinn aftur og nú ertu að byrja
á þessu aftur."
Segist hún hafa hótað honum
að fara til lögreglunnar og
segja það sem hún vissi um
skotárásina á Walker. Hún
kveðst líka hafa sagt að hún
gæti átt á hættu að rnissa barn-
ið sem hún gekk með ef hann
gerði þetta. Hefði orðaskak
þeirra staðið nokkra hríð en
siðan hefði Oswald lofað að
hætta við allt saman.
haldnar á eystri hluta Eyjahafs
milli Grikklands og Tryklands.
Astæðan fyrir því að Grikkir
hættu hernaðarlegu samstarfi við
NATO-rikin var að þeir vildu með
þvi mótmæla innrás Tyrkja á
Kýpur. Siðan hefur gríska ríkis-
stjórnin unnið að því eftir megni
að draga úr spennu milli Grikk-
lands og Tryklands. Næðist sam-
komulag um Kýpur kynni að vera
að Grikkir féllust á að hefja form-
lega þátttöku aftur í hernaðar-
samslarfi bandalagsins.
Italía:
Forsetinn féllst
á afsögn varnar-
málaráðherrans
Rómaborg, 19. sept. Reuter.
LEONE Italíuforseti féllst um
helgina á afsögn varnarmálaráð-
herra landsins Vito Latlanzio, en
hann hefur sa>tt geysilegri gagn-
rýni siðan stríðsglæpamaðurinn
Herbert Kappler. komst úr it-
ölsku hersjúkrahúsi fyrir nokkr-
um vikum. I tilkynningu Leones
segir þó að Lattanzio verði áfram
i ríkisstjórn Andreottis og gegni
embætti samgönguráðherra. Því
embætti gegndi áður Attilo Ruff-
ino og hafa þeir nú skipti á emb-
ættum, þar sem Ruffino tekur við
starfi varnarmálaráðherra.