Morgunblaðið - 23.09.1977, Síða 32
M.YKINt;ASIMINN KK:
22480
jRloraimblnbií)
m&mí&lábVb
FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1977
Metsala Gunnars SU í Þýzkalandi:
Fékk 159,06 kr. í
meðalskiptaverð
— Brúttóverð á kíló 224 kr.
VÉLSKIIMO (íunnar SU 139, fókk
í Rær hæsta fiskverð sem ;>ri'>tt
hefur verið í Þý/kalandi er hátur-
inn seldi þar í «ær. Meðalverð á
hVert kíló reyndist vera kr. 224,03
oj» meðalskiptaverð kr. 159,00.
Cunnar seldi 04.0 lestir í Brem-
erhaven í f'ærmorf'un ofi fékk fyr-
ir alfann 103,015 mork eða tæp-
lc/;a 14,5 milljónir króna.
Ingi Tryggvason:
Trúnaðarbrot
gagnvart Alþingi
að láta skýrsl-
unaaf hendi
„Fjárveitinganefnd er þing-
nefnd ofr á sem slík fyrst Of>
fremst að standa skil gagnvart
Alþíngi. Það væri því trúnað-
arbrot gagnvart alþingi, ef við
færum nú að láta fjölmiðlum i
té þessa skýrslu," sagði Ingi
Tryggvason, formaður fjár-
veitinganefndar, er Mbl. falað-
ist eftir þvi í gær að fá hjá
fjárveitinganefnd skýrslu um
könnun á ástandi Víðishússins
og kostnaði við að koma þvi i
nothæft ástand fyrir mennta-
málaráðuneyti og skyldar
stofnanir. „Hins vegar geri ég
ráð fyrir að þetta mál komi
upp á Alþingi mjög fljótlega
og þá ætti ekkert að vera í
veginum fyrir því, að fjölmiðl-
ar fái þær upplýsingar, sem
þeir óska eftir," sagðí Ingi
Tryggvason.
Fiskurinn, sem (íunnar var
með, var allt stór ufsi, en mikil
eftirspurn er nú eftir stórum ufsa
í V-Þý/.kalandi.
Agúst Einarsson hjá Landssam-
bandi islenzkra útvegsmanna
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær, að framvegis myndi L.I.Ú.
gefa upp meðalskiptaverð pr.
kíló, sem fengist fyrir fisk, sem
íslenzk skip seidu í erlendri höfn.
Með því fengist raunhæfur sam-
anburður á því verði, sem fengist
erlendis og á þvi sem greitt væri
hér á landi.
Benti Agúst á, að kostnaður við
löndun erlendis væri miklum
mun meiri en við löndun hérlend-
is. Meðalskiptaverð fengist út,
þegar búið væri að draga frá fast-
an erlendan kostnað, stofnfjár-
sjóðsgjald og 4,5% útflutnings-
gjald.
Þessa mynd tók Ijósm. Mbl. ÓI.K.M. f Arbæjaarsafni f Reykjavfk f gær, en þar var opnuð iðnminjasýning
sem þáttur f Iðnkynningu í Reykjavfk. Sjást hér m.a. Birgir Isleifur Gunnarsson borgarstjóri, dr.
Kristján Eldjárn forseti Islands og Albert Guðmundsson formaður iðnkynningarnefndar f Reykjavfk
skoða bás og handverk skógerðarmanna.
Mikil eftirspurn eftir físki í Bandaríkjunum:
Iceland products seldi fyrir
1650 milli. kr. í ágústmánuði
„HIO HAA fiskverð sem nú er
hér í Bandaríkjunum getum við
fyrst og fremst þakkað, að s.l.
5—10 ár hefur áhugi fyrir fisk-
réttum aukist gífurlega. Það eru
nú miklu fleiri veitingastaðir,
sem telja að nauðsynlegt sé að
hafa fiskrétti á boðstólum og eft-
irspurnin eftir góðum fiski er
orðin það mikil, að það tjóar ekki
fyrir fiskkaupendur að hlaupa á
milli seljenda í von um lægra
verð,“ sagði Guðjón B. Olafsson
framkvæmdast jóri Ieeland
produets fyrirtækis Sambandsins
í Bandaríkjunum, þegar Morgun-
blaðið ræddi við hann í gær.
Það kom fram hjá Guðjóni þeg-
ar hann ræddi við Morgunblaðið,
að í þau 26 ár, sem fyrirtækið
Miðstjórn A.S.Í.:
Stemma verður stigu
við offramleiðslu
landbúnaðarafurða
Verðlækkanirnar núna má rekja til kaup-
hækkana í sumar segir Ingi Tryggvason
MIÐSTJORN Aiþýðusambands
íslands samþykkti á fundi í gær
að vara mjög alvarlega við þeirri
þróun, sem nú er að markast í
verðlagsmálum landbúnaðarins.
Segir f ályktun frá fundinum að
sá vítahringur sem nú hafi
skapast verði tæpast rofinn með
öðrum ráðum en þeim að stemma
stigu við offramleiðslu til út-
flutnings á þann hátt að framleið-
endur landbúnaðarafurða verði
látnir sæta sömu kjörum og allir
aðrir framleiðendur útflutnings,
þ.e. að bera sjálfir fulla ábyrgð á
útflutningi sínum á markaðs-
verði. Segir í ályktun miðstjórnar
A.S.Í. að nýorðnar verðhækkanir
á landbúnaðarafurðum valdi
3,7% hækkun framfærslukostn-
aðar. Ingi Tryggvason fram-
vkæmdastjóri Framleiðsluráðs
landbúnaðarins sagði í gærkvöldi.
að hækkun landbúnaðarafurða
nú starfaði að langmestu leyti af
kauphækkunum í júní sumar,
bændur væru nú fyrst að fá sína
kauphækkun. Þá hefði allur
kostnaður við vinnslu land-
búnaðarvara stórhækkað vegna
þeirra kauphækkana, sem orðið
hefðu í júní.
Miðstjórn Alþýðusambands
tslands varar mjög alvarlega við
þeirri þróun, sem nú er að
markast í verðlagsmálum land-
búnaðarins. Með síðustu verð-
ákvörðun 6 manna nefndar
hækka kjötvörur um og yfir 30%,
en fyrir skömmu hækkuðu
mjólkurvörur um 20%. Þessar
hækkanir valda 3,7% hækkun
framfærslukostnaðar, og enn
munu öll kurl ekki vera komin tii
grafar og virðist hugsanlegt að
enn verði hækkanir að fáum vik-
um liðnum, þannig hefst ályktun-
in sem samþykkt var samhljóða á
miðstjórnarfundi ASt í gærdag.
Annars er ályktunin svohljóð-
andi.
Miðstjórnin álítur, að með slíkri
verðlagsþróun sé svo nærri
gengið kaupgetu alls almennings
að ekki verði við unað og að jafn-
framt séu hagsmunir þorra
bændastéttarinnar lagðir i stór-
fellda hættu. Hinar óhæfilegu og
snöggu verðhækkanir hljóta
þegar í stað að leiða til minnkandi
sölu landbúnaðarafurða og þá sér-
staklega á kjöti og smjöri en slík
sölurýrnun leiöir aftur af sér vax-
andi útflutning og vaxandi skatt-
heimtu af almenningi i út-
flutningsbætur á offramleiðslu,
sem sáralítið verð fæst fyrir.
Miðstjórnin telur að þessi víta-
hringur verði tæpast rofinn með
öðrum ráðum en þeim að stemma
stigu við offramleiðslu til út-
flutnings á þann hátt að fram-
Framhald á bls. 18
Mikill
skortur á
öllum blóð-
flokkum
99
— „Virðist vera
O-tungl núna
MIKILL skortur er nú á öllum
blóðflokkum í blóðbankanum.
Að sögn starfsfólks blóðbank-
ans, er þó sérstaklega mikill
skortur á O-ílokki um þessar
mundir, „það er eins og það sé
O-tungl núna“, sagði forstöðu-
maóur Blóðbankans, og kvað
það einkennilegt að stundum
virtist eingöngu þörf á einum
ákveðnum blóðflokki i sam-
bandi við slys og aðgerðir.
Blóðbankinn biður fólk að
koma til liðs ef það mögulega
getur, en opið er til kl. 16 í dag
og síðan eftir helgina.
hefur starfað í Bandaríkjunum
hefur sala þessa aldrei verið
meiri en í ágústmánuðu s.l. Þá
seldi Iceland products fyrir 8
milljónir dollara eða um 1650
milljónir króna. „September virð-
ist ætla að verða svipaður, enda
eigum við nú fullt í fangi með að
Framhald á bls. 18
Púðrið flutt
í sprengi-
efnageymslu
PÚÐRIÐ, sem var í púður-
geymslu Flugeldagerðarinnar á
Akranesi, helfur nú verið flutt í
sprengiefnageymslu á Akranesi.
Rannsókn sprengislyssins heldur
áfram og I gær fóru efnaverk-
fræðingur öryggiseftirlits ríkis-
ins og rannsóknarlögreglumaður
til Akraness.
Að sögn Björgvins Bjarnasonar,
bæjarfógeta á Akranesi, hafði i
gær ekki verið gengið frá skýrsl-
ifm um tjón það, sem varð af
völdum sprengingarinnar.
Ágústmánuður:
Vöruskiptajöfnuðurinn hag-
stæður um 847 millj. krónur
Vöruskiptajöfnuður lands-
manna var hagstæður um 847,6
milljónir króna í ágústmánuði, og
er vöruskiplajöfnuðurinn þá
óhagstæður um 6.290,2 milljónir
króna fyrstu álla mánuði ársins. 1
ágúst voru fluttar út vörur fyrir
10.615 milljónir króna, en inn
fyrir 9.767,6 millj. kr.
I ágústmánuði á s.l. ári varð
vöruskiptajöfnuöurinn óhagstæð-
ur um 3.277,3 millj. kr. og var þá
óhagstæður fyrstu átta mánuði
ársins um 6.082,8 millj. kr.
Það sem af er þessu ári hafa
verið fluttar út vörur fyrir
67.192,2 millj. kr. en inn fyrir
73.482,4 millj. kr. Ál og álmeimi
hafa verið flutt út fyrir 10.488,4
millj. kr. Hins vegar hafa verið
fluttar inn vörur til íslenzka járn-
blendifélagsins fyrir 117,2 millj.
kr„ til Landsvirkjunar fyrir 479,3
millj. kr„ til Kröfluvirkjunar fyr-
ir 378 millj. kr. og til Islenzka
álfélagsins fyrir 5.085,8 millj. kr.