Morgunblaðið - 11.10.1977, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 11.10.1977, Blaðsíða 36
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÖBER 1977 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTOBER 1977 21 Einn leikmanna Fy Ikislidsins felur sig á bak við vörn Leiknis og skvtur siðan að marki. Fylkirvann Leikni naumt Fylkir sigraði Leikni 21:20 í 2. deildinni á sunnudagskvöldið í vægast sagt einkennilegum leik. Fylkir hafði algera yfirburði í fyrri hálfieik og var staðan 14:6 Fylki í vil í hálfteiknum. En í seinni hálfleik voru það Leiknis- menn, sem voru mun betri, sér- staklega þó undir lokin og þegar flautað var til leiksloka skildi að- eins eitt mark liðin. Hörður Sigmarsson þjálfari og leikmaður Leiknis lék nú sinn fyrsta leik með nýja félaginu. Fylkismenn þekktu vel til Harðar þvi þeir tóku hann úr umferð alveg frá fyrstu mínútu leiksins. Tókst þeim að halda Herði mjög i skefjum í fyrri hálfleik en í þeim seinni iosnaði nokkuð um hann. En þetta sýnir vel að ekki dugir fyrir liö að byggja á einum leik- manni. andstæðingurinn á alltaf það svar að taka hann úr urnferð og það verður vafalaust þannig meö Hörð í öllum leikjum 2. deild- ar i vetur. Fylkir lék mjög sannfærandi í fyrri hálfleik og liðið iék oft á tiðum góðan handknattleik með þá Einar Agústsson og Haildór Sigurðsson sem beztu menn. Leiknislióið virðist ekki komið i góða æfingu ennþá og aukakilóin leyna sér ekki á nokkrum leik- mönnum. Annars er helzti galli liðsins sá, að leikmenn þess eru upp til hópa mjög skotglaðir. Mörk Fylkis: Einar Agústsson 6, Halldór Sigurðsson é (3 v), Einar Einarsson 3, Gunnar Baldursson 3, Stefán Hjálmarsson 2 og Jóhann Jakobsson 1. Mörk Leiknis: Hörður Sigmars- son 8 (4 v), Hafliði Kristinsson 4, Hafliði Pétursson 4, Arni Jóhannesson 2. Asmundur Frið- riksson og Finnbjörn Finnbjörns- son 1. Ölafur Steingrimsson og Gunn- ar Kjartansson dæmdu leikinn sérlega vel. — ss. Naumt tap nýlið- anna gegn Þrótti Handknattleiksfélag Kópavogs, HK, kom vissulega á óvart I sínum fyrsta leik í 2. deild. Liðió lék á laugardaginn gegn Þrótti, liðinu, s'em féll úr 1. deild sfðastiiðið vor. Unnu Þróttarar að vfsu sigur í leiknum. en munurinn varð ekki nema eitt mark, 21:20, og segir undirrituðum svo hugur að HK eigi eftir að gera það gott f 2. deiidinni í ár. 1 upphafi ieiks Þróttar og HK þessu sinni voru Konráð Jónsson, var jafnræði með liðunum, en er leið á fyrri hálfleikinn náði Þrótt- ur undirtökunum og góðri for- ystu. Munaði 5 mörkum á liðun- um í leikhléi, staðan var 13:8 HK minnkaði þann mun strax f byrj- un seinni háifleiksins, sáust tölur eins og 15:14 og sfðan 17:16 á markatöflunni. Þá náði Þróttur aftur góðuni leikkafla og þriggja marka forystu, 19:16, og 21:18. Þann mun náði HK ekki að vinna upp, en tvö sfðustu mörk leiksins voru Kópvæginganna. Leiknum lauk 21:20 eins og áður sagði. Þróttarliðið virkaði þungt f þessum leik, auk þess sem þeir hafa talið HK-mennina auðvelda bráð. Sigur liðsins var þó fylli- lega sanngjarn, en bráðræði í sókninni hafði nær orðið þeini dýrkeypt. Beztu menn Þróttar að einkum T fyrri hálfleiknum, en Sveinn Sveinsson var einnig drjúgur og var ekki sískjótandi eins og sumir félagar hans í Þrótti. Tveir menn voru f sérflokki f HK-liðinu að þessu sinni, Björn Blöndal, spretthlaupari m.m. úr KR, og Stefán Halldórsson. Skor- uðu þeir hróðurpartinn af mörk- um liðsins. 1 liðinu eru einnig aðrir athyglisverðir leikmenn, sumir ungir og efnilegir, aðrir leikreyndir mjög eins og Karl Jóhannsson, sem varla telst þó lengur efnilegur. MÖRK ÞROTTAR: Konráð Jónsson 10, Sveinn Sveinsson 5, Jóhann Frfmannsson 3. Halldór Bragason 2, Sævar Ragnarsson 1. MÖRK IIK: Björn Blöndal 10, Stefán Halldórsson 8, Kristinn Olafsson 1, Jón Einarsson 1. KR-ingar eiga eftir að spjara sig í 1. deildinni KR-INGAR stóðu sig vel f sínum fyrsta Ieik í 1. deildinni er þeir mættu Val á laugardaginn. Valsliðið sem af mörgum er talið líklegt til að berjast á toppi 1. deildarinnar ásamt Víkingum, þurfti að hafa fyrir hverri einustu mfnútu gegn Vesturbæjarliðinu og sigur þeirra varð ekki nema 2 mörk, 19:17. Var leikur félaganna ágætlega leikinn og skemmtilegur fyrir áhorfendur og KR-liðið á ábyggilega eftir að komast vel frá keppninni í 1. deild í ár. Valsmenn náðu fljótlega for- ystu í leiknum á laugardaginn og var munurinn þrjú til fjögur mörk allan fyrri hálfleikinn og allt þar til um 10 mínútur lifðu af leiktímanum. Var staðan 17:14 er Björn Pétursson átti vítaskot innan á stöng og útaf og í næstu sókn á eftir fékk Kristinn Ingason knöttinn dauðafrír á miðri línunni, en skot hans fór sömu leið og hjá Birní. Tvö dauðafæri þar með í súginn og þó Haukur og Jóhannes minnkuðu muninn i eitt mark, 17:16, þá voru þessi mistök liðinu of dýr og Valur gerði 2 mörk gegn 1 á síðustu mínútun- um. Urslitin 19:17 fyrir Val. Töluverð harka var í þessum leik og strax í upphafi leiksins fékk Jón Pétur Jónsson slæman skurð á ennið. Hann kom þó aftur inn á í seinni hálfleiknum og var liði sínu drjúgur í þessum leik. Jón Karlsson var einnig sterkur að þessu sinni, en bezti maður liðsins var Brynjar Kvaran, mark- vörðurinn ungi, sem í sumar gekk úr Stjörnunni yfir í Val, greini- lega mikið efni. Valsliðið er mikið þungavigtarlið og greinilegt að sumir landsliðsmenn liðsins eru alls ekki komnir í æfingu ennþá. Hafði einhver á orði að Valsliðið þyrfti að léttast um eins og 100 kíló áður en það yrði virkilega gott. Af KR-ingunum var Jóhannes Stefánsson i sérflokki og hafði hann greinilega mikið gaman af að leika gegn sfnum gömlu félög- um í Val. Var Jóhannes inni á allan timann, klettur í vörninni og drýgri en nokkru sinni i sókn- inni. Gerði hann sjálfur 5 mörk af línunni og fékk fjögur vítaköst. Haukur Ottesen er sá maður í KR-liðinu, sem allt spil byggist á og stóð Haukur vel fyrir sínu á laugardaginn. Simon Unndórsson hélt KR-ingunum á floti á tímabili í leiknum, en gerði sig einnig sekan um ljót mistök í leiknum. Örn Guðmundsson, fyrrum IR- ingur, stóð í KR-markinu nær allan tímann og varði vel. Dómarar voru þeir Sigurður Hannesson og Haukur Þorvalds- son. SIuppu þeir allvel frá sínu þegar á heildina er litið. — áij Framarar sluppu með skrekkinn FRAMARAR gátú nagað sig í handahökin eftir leikinn gegn Haukum í Laugardalshöllinni á Gunnar markvörð verja hjá sér vitaköst. Pétur var aftur á móti sallarólegur og hann skoraði sunnudagskvöldið. Þegar eftir öruggléga. Frömurum létti voru 15 mínútur af leiknum höfðu Framarar örugga forystu, 16:12, en þeir glopruðu henni nið- ur á lokamínútunum og þegar upp var staðið máttu þeir teljast heppnir að halda öðru stiginu því Pétur Johannesson jafnaði metin fyrir Fram úr vítakasti þegar að- eins voru 15 sekúndur til leiks- loka. Jafntefli 21:21 eftir að Fram hafði haft yfir 10:8 í hálf- leik og er það athugunarefni fyrir Framara hvernig þeir hafa sprungið á endasprettinum bæði í þessum leik og í leiknum gegn FH í Hafnarfirði á dögunum. Framarar voru lengst af betra liðið i leiknum og með þvi að halda betur á spöðunum undir lokin hefðu þeir átt að krækja í sinn fyrsta sigur i mótinu. En Framararnir gáfu höggstað á sér undir lokin og það notfærðu Haukarnir sér vel. Þeirra drýgst- ur á lokamínútunum var Elías Jónasson. Haukarnir höfðu á 8 mínútum breytt stöðunni úr 16:12 Fram i hag í 18:18 og tvisvar komust Haukarnir yfir á siðustu minútum leiksins. Þegar aðeins voru eftir 40 sekúndur af leiknum skoraði Guðmundur Haraldsson gott mark og kom Haukum yfir 21:20. Framarar sóttu í örvænt- ingu og fengu dæmt víti þegar 15 sekúndur voru til eftir. Pétur Jóhannesson fékk það hlutverk aó taka vítakastió en félagar hans Arnar Guðlaugsson og Gústaf Björnsson höfðu áður látið augsjáanlega því miðað við gang leiksins hefði verið gremjulegt fyrir þá að tapa. Það virðist augljóst að Fram- arar eiga harðan vetur fyrir hönd- um í 1. deild enda hefur ekkert lið misst jafn marga menn og Fram. Er sérstaklega áberandi vöntun á skyttum í stað þeirra Pálma Pálmasonar og Andrésar Bridde. Arnar Guðlaugsson og Guðjón Marteinsson hafa tekið við hlutverkum þeirra og gerði Arnar því hlutverki góð skil í leiknum en Guðjóni voru mjög mislagðar hendur. Sigurbergur Sigsteinsson er kominn til leiks á ný og er liðinu greinilegur styrk- ur og markvarzla Einars Birgis- sonar var lengst af mjög góð. Haukarnir voru ákaflega daufir lengi vel og það var ekki fyrr en undir Iokin að þeir vöknuðu virki- lega til lífsins. Þeir hafa misst markakóng sinn Hörð Sigmarsson og er greinilegt að skarð hans verður vandfyllt. Beztu menn Hauka í þessum leik voru Elías Jónasson og Andres Kristjánsson, ungur piltur, sem Haukarnir fengu frá FH. Er þar greinilega góður leikmaður á ferðinni. Þá átti Árni Hermannsson ennfrem- ur göðan leik. Gunnar Einarsson átti misjafnan dag í markinu en í vítaköstum var hann frábær, varði þrjú vítaköst. Kjartan Steinback og Kristján Örn Ingibergsson dæmdu leikinn Stefán „tætari“ Jónsson I baráttu við Framvörnina, en Andrés Krist jánsson (nr. 2) er viðbúinn að taka við kenttinum. Björgvin Björgvinsson svitur inn i leig vaismanna og skorar eitt marka sinna, án þess að Jón Breiðf jörð komi við vörnum. Víkinqurhafði bet- ur í leik risanna RISARNIR í íslenzkum handknattleik um þessar mundir, Vfkingur og Valur, mættust í Islandsmótinu á sunnudagskvöldið. Eins og vænta mátti var um hörkubaráttu að ræða og á endanum stóð Víkingur uppi sem sigurvegari en naumt var það, lokatölurnar urðu 19:18 eftir að staðan hafði verið 10:7 í hálfleik Víkingi í vil. Um tíma leit út fyrir að Víkingur ætlaði að vinna stórt, staðan var orðin 16:10 Víkingi f vil en þá fóru þeir að taka Iffinu með fullmikilli ró. Slfkt tækifæri létu fslandsmeistarar Vals sér ekki úr greipum ganga og áður en menn höfðu átta ð sig höfðu þeir skorað fimm mörk og breytt stöðunni f 16:15. En Víkingarnir lumuðu á góðum endaspretti og tryggðu sér tvö afar dýrmæt stig í baráttunni um Islandsmeistaratitilinn, sem líklega mun fyrst og fremst standa milli þessara tveggja liða. vel. —SS Gárungarnir kölluðu ieikinn á sunnudagskvöldið landsliðs- æfingu enda ekki færri en 12 núverandi landsliðsmenn í þessum tveimur liðum og eigi færri en 18 af 24 leikmönnum beggja liða hafa einhvern tíma leikió i landsliði. Sýnir þetta vel hinn mikla styrkleika þessara tveggja liða. Víkingarnir byrjuðu leikinn af miklum krafti og komust I 4:0. Þessar fyrstu mínútur voru Vals- menn ákaflega ráðvilltir bæði í vörn og sókn en þeir áttuðu sig þó fljótlega og komu í veg fyrir aó Víkingarnir hreinlega kaffærðu þá. Leikurinn jafnaðist og munur- inn var þetta 2—4 mörk. Víkingarnir byrjuðu seinni hálf- leikinn einnig vel og um miðjan seinni hálfleik var staðan orðin 16:10 Víkingi í vil og stórsigur blasti við. En á þessum puntki breyttist leikurinn heldur betur. Víkingarnir töldu leikinn greini- lega unninn og þeir hreinlega hættu að taka á þótt eftir væru 15 mínútur af leiknum. Valsmennirnir með alla sína leik- reynslu gengu á lagið og byrjuðu að skora og skora. Jón Pétur Jóns- son var þar fremstur í flokki en hann var þá búinn að hrista af sér eitthvert slen, sem hafði verið yfir honum mestan hluta leiksins. Þegar sjö mínútur voru eftir var Lélegt úthald hjá Ármenningum og Víkingar unnu með helmings mun VtKINGAR unnu auðveldan sisur á Ármenningum á laugardaginn, helmingsmunur var á liðunum þegar upp var staðið, 24:12. Hafði Víkingur yfirburði á flestum sviðum í þessum leik, en lokaúrsiitin segja þó ekki alla söguna. Þannig 'munaði aðeins einu marki á liðunum er nokkrar mfnútur voru eftir af fyrri hálfleiknum, en þrjú Víkingsmörk í lok hálfleiksins breyttu stöðunni í 10:6 í leikhiéi. Greinilegt úthaldsleysi hjá Ármenningum, sem þó kom enn greinilegar í sjós í lok leiksins, en Víkingar gerðu 7 sfðustu mörk leiksins og bre.vttu stöðunni úr 17:12 í 24:12. Oþarfi er að hafa mörg orð um þennan leik. Armannsliðið lék mun verr en liðið gerði í 2. deild- inni f fyrra og það hefur engan veginn verið þægilegt fyrir þá að mæta Vfkingunum í sfnum fyrsta leik. Þá vantaði liðið Pétur Ingólfsson f þennan leik, en sá bráðefnilegi leikmaður meiddist á síðustu æfingunni fyrir Víkingsleikinn. Með meiri úthaldsæfingu og fleiri leikjum ætti Ármannsliðið að geta náð sér á strik og sýnt það sem í leik- mönnum býr. Beztur f liði Ar- manns að þessu sinni var Jón Vignir Sigurðsson, en aðrir leik- menn iiðsins náðu sér aldrei á strik. Af Víkingunum var Viggó Sigurðsson sterkastur að þessu sinni og fór oft illa með Armanns- vörnina með snerpu sinni og hraða. Þá átti hann fallegar línu- sendingar á Björgvin, sem gáfu mörk. Annars verður Vikingsliðið ekki dæmt af þessum leik, mót- staðan var engan veginn nógu mikil. Menn eins og Björgvin og Arni bregðast aldrei og það er ábyggilega ár og dagur síðan Vfk- ingur hefur aðeins fengið á sig 12 mörk f leik. Olafur Einarsson var drjúgur við skorunina eins og venjulega og markverðirnir báðir skiluðu sfnum hlutverkum vel. Aðeins einn leikmaður Víkings oili vonbrigðum f leiknum, Páll Björgvinsson. Hann er greinilega ekki kominn f æfingu, en er sjálf- sagður landsliðsmaður þegar hann nær upp úthaldi og snerpu. I Leikinn dæmdu þeir Gunn- laugur Hjálmarsson og Valur Benediktsson. Dæmdu þeir leik- inn ágætlega, en Gunnlaugur er þó heizt til of fljótur að ftauta á stundum. — Valur kannski of seinn. staðan 15:16 fyrir Víking og Valsmenn brunuðu upp i hraðaupphlaupi en Kristján markvörður Vikings gerði sér litið fyrir og varði skot Þorbjörns Guðmundsonar. Víkingar skor- uðu nú sitt fyrsta mark í 10 mínútur og aftur var Kristján þeim drjúgur þvi nú varði hann vitakast Jóns Karlssonar. Mörk Páls Björgvinssonar og Árna Indriðasonar, hans fyrsta mark fyrir Víking, tveimur mínútum fyrir Ieikslok tryggðu Víkingi ; sigur en sitt siðasta mark skorðu Valsmenn á lokasekúndunum. Eins og nærri má geta voru siðustu minútur leiksins mjög spennandi og áhorfendur vel með á nótunum en það kom töluvert á óvart að aðeins skyldi vera rúm- lega hálft hús enda þótt topp- leikur fyrri umferðarinnar færi fram. Um leikinn sjálfan er það að segja að hann bar þess merki að mikið var i húfi, það var hart barizt og hjá báðum liðum brá fyrir fallegum handknattleik, sér- staklega þó hjá Vikingunum þegar þeir voru að ná því mikla forskoti, sem þeir höfðu um tima í fyrri hálfleik. Islenzkt félagslið hefur ekki í langan tíma haft á sinum snærum jafn marga góða einstaklinga og eru i Vikingsliinu um þessar mundir. Galdurinn er sá fyrir þjálfarann að láta þessa leikmenn vinna saman sem heild og manrii sýnist að Karl Benediktsson sé þar á réttri leið. Bezti maður Vikings í þessum leik var Kristján Sigmundsson mark- vörður. Hann varði mjög vel allan leikinn og aldrei betur en þegar mest á reyndi i lokin. Kristján hefur þó einn áberandi veikleika, hann tekur oft of mikla áhættu og var hann stundum víðsfjarri þegar viðráðanleg skot komu á markið. Vörn liðsins hefur batnað mikið frá i fyrra og munar mest um að fá Árna Indriðason í vörn- ina. Viggó Sigurðsson var nú ekki eins góóur og í leiknum gegn Armanni en Páll Björgvinsson kom nú betur út en i fyrri leiknum. Þá voru þeir Björgvin Björgvinsson og Ölafur Einarsson að vanda hættulegir í sóknar- aðgerðum sínum og tóku Valsmenn það ráð i seinni hálf- leik að setja sérstakan gæzlu- mann á Ólaf. Þá er nafni hans Jónsson mjög vaxandi leikmaður bæði í sókn og þá -ekki síður í vörn. Valsliðið var ekki sann- færandi í leik sínum lengi vel og ef Víkingarnir hefóu barizt af grimmd til leiksloka og ekki slappað af i lokin hefði Valur getað tapað stórt. Svo viróist sem sumir leikmanna séu ekki í sem beztri æfingu og má þar til nefna Jón Karlsson og Þorbjörn Guðmundsson. Jón Pétur var daufur framan af en hann sótti sig r.ijög í lokin. Stefán Gunnars- son var sterkur að vanda og Bjarni Guðmundsson var illviðráðanlegur Vikingunum með sinn mikla hraða og fiskaði hann mörg vítaköst. Bjarni Jóns- son er Iiðinu greinilegur styrkur, sérstaklega i vörn. Þá virðist hinn ungi markvörður Brynjar Kvaran ætla að standa sig vel i 1. deild, en hann kom til Vals frá Stjörnunni. Dómarar voru Hannes Þ. Sig- urðsson og Karl Jóhannsson. Þeir höfðu góð tök á erfiðum leik en ekki fannst undirrituðum leikur- inn svo harður að réttlætti að leikmenn væru reknir af velli niu sinnum. — SS.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.