Morgunblaðið - 11.10.1977, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÖBER 1977
39
Breti barinn til
bana í Uganda
London. 10. oklóber. Reuter.
BREZKI kaupsýslumaðurinn Bob
Scanlon, sem var handtekinn í
Uganda í júní, sakaður um njósn-
ir, var barinn til bana með
sleggju í fangelsi í Kupala í síð-
asta mánuði að sögn brezka blaðs-
ins Observer.
Blaðið segir fréttina byggða á
frásögn sjónarvotts, embættis-
manns, sem segist hafa hitt Scanl-
on daglega.
Sjónarvotturinn segir að Scanl-
on hafi verið leiddur út úr fang-
elsinu 14. september og barinn 15
til 20 sinnum.
Rúmri viku siðar sagði Uganda-
útvarpið að brezka leyniþjónust-
an, sem Scanlon hefði starfað fyr-
ir, hefði rænt honum tveimur vik-
um áður og að Uganda-stjórn bæri
því ekki ábyrgð á afdrifum hans.
Scanlon var búsettur í Uganda í
13 ár og framkvæmdastjóri bif-
reiðafyrirtækis. Hann tók sér
úgandiskan rfkisborgararétt 1975.
Litið fréttist af honum eftir hand-
tökuna og Gloria kona hans fór til
Bretlands i síðasta mánuði til að
skora opinberlega á Amin forseta
að láta hann lausan.
Verkamenn ráðast með grjóti gegn skriðdrekum á Potsdamtorgi í
Austur-Berlín 17. júní 1953.
Owen ræðir
við Brezhnev
IVIoskvu, 10. október. Reuter.
DAVID Owen, utanrikisráðherra
Breta, átti í dag 80 mínútna fund
með Leonid Brezhnev forseta og
ræddi við hann hvernig Bretar og
Rússar gætu unnið saman að af-
vopnun og siökun spennu.
Owen ræddi áður í tæpa þrjá
tíma við Andrei Gromvko utan-
ríkisráðherra. Fundur Owens og
Brezhnevs er talinn sýna að Rúss-
ar hafi mikinn áhuga á auknum
samskiptum við Breta.
Brezhnev og Gromyko. Hins vegar
sagði hann í ræðu í hádegisverði
sem Gromyko hélt honum að það
gæti komið niður á slökun spennu
ef ríkisstjórnir létu undir höfuð
leggjast að verja mannréttindi
þegna sinna.
Unglingar í A-Berlín hrópa á götum úti:
Bangsi
bjargaði Ufí
3ja óm telpu
Bcltasl. III. nktiihrr. AP.
BANGSI bjargaði lífi þriggja
ára gamallar telpu þegar liðs-
menn Irska lýðveldishersins
(IRA) myrtu nióður hennar í
svefni um helgina. Kúla árás-
armannanna stöðvaðist í
bangsanum sem telpan var
með í fanginu.
Skæruliðarnir myrtu kon-
una, Margaret Anne Ilearst.
þar sem hún lá solandi í hjól-
hýsi hjá heimili fjölskyldu
sinnar í Tynan í County
Armagh. Ungfrú Hearst var
félagi f Varnarsveit Úlster
(UDR) og Provisinal-armur
IRA hefur lýst sig ábyrgan á
morðinu.
Ungfrú Hearst er 12. fél-
aginn í í UDR sem hefur verið
myrtur á þessu ári og þar með
hafa 1.787 beðið bana siðan
óeirðirnar á Norður-lrlandi
hófust 1969.
Lögreglan er í engum vafa
um að skæruliðar hafi vitað að
það var barn sem þeir skutu á.
Áður en skæruliðarnir réðust
inn i hjólhýsið tóku þeirömmu
ungfrú Hearst og tvo bræður
hennar i gíslingu.
Foreldrar myrtu konunnar
voru i heimsókn hjá vini sem
særðist í skotbardaga fyrir
stuttu. Ungfrú Hearst er
þriðja konan úr UDR sem hef-
ur verið myrt siðan 1969.
Utsýn til Mont Blanc frá Aosta-dalnum
Viðgerðir á
flóðasvæðum
Harðast úti varð héraðið Aless-
andira þar sem vatn flæddi yfir
20 OOO hektara svæði og tjón er
metið á 125 milljónir dollara Lif er
þó að færast aftur i venjulegt horf
og athugun hefur leitt í Ijós að ekki
er ástæða til að óttast að áin Pó
flæði yfir bakka sina eins og ýmsir
hafa gert
I Campoligure, i hæðunum fyrir
ofan hafnarborgina Genúa, segja
embættismenn að skemmdir hafi
orðið á 1 000 fyrirtækjum í rigning-
unum Þeir sögðu að nauðsynleg
viðgerð á vegum brúm og öðrum
mannvirkjum mundi kosta fimm
milljónir dollara
í Borginni Novara lengra i norðri
var mörgum verksmiðjum lokað eftir
mikil flóð og embættismenn segja
að þörf sé á um 15 milljónum
dollara vegna nauðsynlegra við
gerða Tjón á einkafyrirtækjum er
talið miklu meira þótt tölur liggi ekki
fyrir
Mest rigndi á svæðmu norður frá
Alessandria um Pódalinn til Aosta i
Ölpunum Alvarlegar truflanir urðu
á umferð á þessu svæði og frá
Frakklandi og Sviss um Aostadal og
um Simplon-skarð Sums staðar
flæddi yfir hraðbrautir og ökumenn
urðu að leggja langa lykkju á leið
sina
Austur-Borlín. 10. október. Routor.
UM 600 austur-þýzkir
unglingar hrópuðu andso-
vézk vígorð í átökum við
Iögreglu í Austur-Berlín
um helgina.
Unglingarnir hrópuðu
„Burtu með Rússa“ þegar
lögregla hafði lokað svæði
í miðborginni, veitinga-
húsi og næturklúbb.
Atburðurinn fylgir í
kjölfar opinberra hátíða-
halda í tilefni 28 ára af-
mælis austur-þýzka ríkis-
ins og er hinn annar sinnar
tegundar í Austur-Berlín á
nokkrum mánuðum.
Fréttastofan ADN sagði
að skríll hefði hindrað lög-
reglu við björgun unglinga
sem hefðu dottið niður í
ræsi á Potsdam-torgi og
nokkrir hefðu verið hand-
teknir.
Fyrr í ár brenndu nokkur
hundruð unglingar bláar ein-
kennisskyrtur austur-þýzka æsku-
lýðssambandsins við hátíðarhöld í
Pankow-hverfi í Austur-Berlín
samkvæmt áreiðanlegum heimild-
um.
I mótmælaaðgerðunum um
Frá Aosta
helgina var einnig lýst yfir stuðn-
ingi við vísnasöngvarann Wolf
Biermann sem var visað úr landi í
návember i fyrra. Brottvisun
Biermanns hefur leitt til ólgu
meðal austur-þýzkra mennta-
manna og orðið til þess að ýmsir
hafa flutzt úr landi.
Genúa, 10. okt. AP Reuter.
VIOGERÐIR hófust á flóðasvæð-
unum á Norður-ítaliu í dag og
starfsfólk í verksmiðjum var sagt
að mæta ekki til vinnu i nokkrar
vikur.
Að minnsta kosti 15 manns
hafa farizt i flóðunum sem náðu
yfir stórt svæði og tjónið er metið
á 1 50 milljónir dollara.
Þúsundir manna hafi hafið við-
gerðir á húsum sem hafa skemmzt
og viðgerð er einnig hafin á vatns-
leiðslum og holræsum Haft var eftir
háttsettum embættismanni að
ástandið gæti versnað þar sem spáð
væri áframhaldandi vondu veðri
Harðir bardagar
við Dire Dawa
Nairobi, 10. oklóbor. Ruuter. AP.
SOMALSKIR skæruliðar og
eþóípskir hermenn háðu harða
bardaga umhverfis jarrnbrautar-
bæinn og herslöðina Dire Dawa í
síðustu viku samkvæmt fréttum
frá báðum stríðsaðilum.
Utvarpið í Mogadishu sagói að
800 Eþióþíumenn hefðu verið
felldir í tveimur bardögum um-
hverfis Dire Dawa. Sómalir hafa
hrakið stjórnarhermenn frá stór-
um hlutum Ogaden-
eyðimerkurinnar og i nokkrar
vikur hefur verið búizt við nteiri-
háttar sókn til Dire Dawa og
fjallavigsins Harar sem er
skammt frá.
í Eritreu sögðu uppreisnar-
menn i dag að þeir hefðu eyðilagt
brú á veginum frá Addis Ababa
til hafnarborgarinnar Assah við
Rauðahaf.
Diplómatar í Addis Ababa segja
Franthald á bls. 26
„Burt með Rússa”
ETA játar
á sig morð
Bilbao. 10. októbur. AP.
AÐSKILNAÐARSAMTÖKIN
ETA í Baskahéruðunum hafa lýst
sig áb.vrg á vigi Augusto l'nceta
Barrenechea, forseta f.vlkis-
stjórnarinnar í Vizca.va. og
iveggja lífvarða lians í Guernica á
laugardaginn.
Stjórnin i Madrid og helztu
stjórnmálaflokkar Spánar hafa
fot'dæmt morðin og kallað þau
„villimannlega atlögu gegn lýð-
ræði ".
ETA sagði i yfirlýsingu að árás-
in „getur ekki grafið undan lýð-
ræði því ekkert iýðræði er á
Spúni". Samtökin segjast munu
halda áfram árásunt gegn fulltrú-
um Madrid-stjórnarinnar i Baska-
héruðunum.
Eftir fundinn fylgdi Brezhnev
Owen til undirritunar samnings
Breta og Rússa um samstarf til að
koma í veg fyrir kjarnorkustrið.
Owen sagði að viðræðurnar við
Brezhnev hefðu verið einkar hlý-
legar og einkennzt af skilningi.
Tass tók ekki svo djúpt i árinni og
kvað viðræðurnar hafa verið mál-
éfnalegar og jákvæðar.
Owen hefur nýlega gagnrýnt af-
stöðu kommúnistarikja í mann-
réttindamálum en mun ekki hafa
rætt þau sérstaklega við
ERLENT