Morgunblaðið - 11.10.1977, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 1977
29
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Munið sérverzlunina
með ódýran fatnað.
Verðlistinn Laugarnesvegi
82, s. 31330.
Garður
Til sölu fokhelt einbýlishús.
Skipti á 2ja —3ja herb. íbúð
i Keflavík æskileg. Fasteigna-
sala Vilhjálms, Vatnsnesvegi
20, Keflavík, sími 1263 og
2890.
Myntir og peninga-
seðlar
til sölu. Sendið eftir ókeypis
bæklingi. Möntstuen, Studie-
stræde 47, DK—1455
Köbenhavn K, sími 01- 13-
21-11.
Kápur til sölu
í stærðum 36—50 ódýrar
kápur í litlum númerum.
Kápusaumastofan Dína, Mið-
túni 78, simi 18481.
Sandgerði
til sölu 5 herb. efri hæð í
tvibýlishúsi. Skipti á minni
íbúð koma til greina.
Keflavik
til sölu nýleg 2ja herb. íbúð.
Losnar fljótlega.
Fasteignasalan Hafnargötu
27, Keflavik, simi 1420.
Keflavík
Til sölu raðhús við Faxabraut.
3ja herb. íbúðir óskast á
söluskrá. Fasteignasala
Vilhjálms Vatnsnesvegi 20,
Keflavik, sími 1263 og
2890
íbúð i Kópavogi —
Skipti
Hef 3ja herb. íbúð i Kópavogi
óska eftir skiptum á ibúð eða
einbýlishúsi á Akranesi. Til-
boð leggist inn á augld. Mbl.
merkt: ..Skipti — 4146."
Keflavík
Til sölu byrjunarfram
kvæmdir á raðhúsi i Heiða
byggð. Hagstætt verð.
Fasteignasalan Hafnargötu
27. Keflavik. Simi: 1420.
Brotamálmur
er fluttur að Ármúla 28, simi
37033. Kaupi allan brota-
málm langhæsta verði. Stað-
greiðsla.
r\lKí 1.Y SIN«ASÍMINN EK:
22480
JRarfltmbTatiiti
□ EDDA 5977101 1 7 — 1
K.F.U.K. AD.
I kvöld kl. 8.30 verður kvöld-
vaka sem Hlíðarstjórn ann-
ast. Allar konur hjartanlega
velkomnar.
Kvenfélag Keflavíkur
Fundur i Tjarnarlundi i kvöld
kl. 8.30. Gestur frá Linunni
kemur í heimsókn. Rætt um
vetrarstarfið.
Stjórnin.
Félagið Anglia tilkynnir að
n.k. fimmtudag 13. okt. kl.
8.30., verður kaffikvöld og
myndasýning að Aragötu 1 4.
Anglia-félagar fjölmennið.
Stjórnin.
Fíladelfía
Almenn samkoma i kvöld kl.
20.30. Ræðumaður Alvin
Watkins frá Bandaríkjunum.
Kvenfélag
Neskirkju
Aðalfundur félagsins verður
haldinn fimmtudaginn 13.
okt. kl. 8.30 í félagsheimil-
inu. Venjuleg aðalfundar-
störf. Skemmtiatriði og kaffi.
Stjórnin.
Þá vantar
röskar hend-
ur á Skóla-
vörðuhæð
Frá byggingarnefnd Hallgrfms-
kirkju hefur blaðinu borist eftir-
farandi:
Hallgrímskirkju í Reykjavik
berast stöðugt góðar gjafir.
Öldruð kona í Reykjavík, sem
ekki óskar eftir að láta nafns sins
getið afhenti nýverið 100 þús.
króna gjöf til kirkjubyggingar-
innar í minningu látins eigin-
manns „er hefði nú i sept. s.l.
orðið 85 ára hefði líf hans enzt svo
lengi“, eins og segir i bréfi með
gjöfinni. Önnur kona í Keflavík
sendi í sept. s.l. 100 þús. króna
gjöf til kirkjunnar i minningu
móður sinnar. Fjölmargar minni
gjafir til kirkjunnar hafa verið að
berast að unanförnu frá ónefnd-
um gefendum víðsvegar.
I kringum ártíðardag (dánar-
dag) sr. Hallgríms Péturssonar,
27. okt. (nú ’77 er 303. ártiðar-
dagur hans) hafa á síðari árum
borist gjafir i vaxandi mæli
víðsvegar að til kirkjúnnar á
Skólavörðuhæð....til að flýta
fyrir byggingunni”, eins og segir í
bréfum með mörgum þessara
gjafa.
Undanfarnar vikur hefur verið
unnið að mótasmíði kúppulsins
(hjálmsins) á kirkjukórnum, en
hann verður steinsteyptur. Þessu
verki hefur því miður seinkað
nokkuð vegna veikinda kirkju-
smiða. Vantar nú smið eða smiði
að kirkjunni hið bráðasta til að
ljúka kórbyggingunni.
Einnig er nú unnið að því að
múrhúða kór kirkjunnar að utan
og vinna að því verki sömu menn
og múrhúðuðu sjálfan kirkjuturn-
inn að utan á sínum tima. Kirkju-
kórinn tekur nú á sig hinn sama
ljósa granit lit og er á turninum.
Múrararnir vinna kappsamlega
og leitast við að ljúka múrhúðun
kórsins, áður en vetur og frost
taka völdin hér á norðurhveli að
þessu sinni. Sjálfboðaliðar sem
handlanga vildu efnið til
múraranna, gætu flýtt þessu
verki mjög og er nú heitið á vim
Hallgrimskirkju að gefa dagsverk
á Skólavörðuhæð á næstu dögum
meðan veður helst hagstætt.
Hjálpumst að við að fullgera
Hallgrímskirkju, margar hendur
vinna létt verk.
Reykjavik 6. okt. 1977
B.vggingarnefnd
Hallgrímskirkju
AtCI.VSINöASÍMINN Klt:
^>22480
J JRérjjunblatúb
— Afmæli
Sigurður
Framhald af bls. 11.
byggða. Ög það má segja um son
hans, Sigurð, að eplið hafi ekki
fallið langt frá eikinni, þvi að
hann er lagtækur vel og vand-
virkur i bezta lagi, þarf ekki
annað en að lita i bókaskápinn
hans til að sannfærast um, að
hann er bókbindari í fyrsta
flokki, þó að ekki hafi hann bréf
upp á það.
Þó að Sigurður Gunnarsson sé
ekki i heiminn borinn fyrr en á
öðrum áratug þessarar aldar, er
hann sannur aldamótamaður í
hefðbundinni merkingu þess
orðs. Á unglingsárum mótaðist
hann af hugsjónum ungmenna-
félaganna, bindindis- og skáta-
hreyfingunni, og þeim
hugsjónum hefur hann svo
sannarlega verið trúr til þessa
dags. Það var i samræmi við
þessar hugsjónir að hann valdi
ævistarfið — gerðist kennari.
Hann lauk kennaraprófi 1936 og
varð fyrst kennari í Borgarnesi,
siðan á Seyðisfirði, og þaðan kom
hann til Húsavikur haustið 1940
"og varð þá skólastjóri við barna-
skólann þar. Þá hófust kynni
okkar, því að ég varð þetta sama
haust kennari við skólann og und-
ir stjórn Sigurðar.
Þarna vorum við samstarfs-
menn í 3 vetur, og á ég margar
góðar minningar frá þeim árum.
Það mun ekki hafa verið vanda-
laust að verða eftirmaður hins
góðkunna og virta skólastjóra,
Benedikts Björnssonar. Og þarna
fékk Sigurður með sér lítt vana
kennara að einum undanskildum.
Ef til vill hefur það þó að sumu
leyti verið honum styrkur að hafa
með sér litið mótaða menn, þvi
auðvitað gat ekki hjá þvi farið að
hann gerði ýmsar breytingar á
skólastarfinu til samræmis við
breytta tíma. Sigurður gekk að
þessu með atorku og samvizku-
semi og sparaói hvorki tíma né
fyrirhöfn. Áður en hann geróist
skólastjóri hafði hann nokkuð
kynnzt svokallaðri starfrænni
kennslu, en ávæningur slikrar
kennsluaðferóar barst hingað til
lands um þetta leyti einkum frá
Svíþjóð m.a. með komu hins
kunna, sænska kennara L. G.
Sjöholm, sem kom hingað á fjórða
áratugnum. Þegar eftir fyrsta
kennsluvetur okkar á Húsavík út-
vegaði Sigurður Aðalstein Sig-
mundsson, kennara í Reykjavík,
til þess að hafa námskeið með
okkur Húsvíkingunum og
nágrannakennurum í þessum
kennsluaóferðum. Mér eru þessir
10 námskeiðsdagar i fersku
minni. Þá var nú ekki dregið af
sér, unnið frá morgni til kvölds og
auðvitað kauplaust bæði af
kennara og nemendum. Eftir
þetta féll hinn starfræni þáttur
kennslunnar aldrei niður í skóla
Sigurðar Gunnarssonar. En hann
átti eftir að kynna sér þessar
kennsluaðferðir betur, er hann
dvaldi við ýmsa skóla á Norður-
löndum í starfsorlofi sínu og
raunar oftar. Og hér á við að geta
þess, að þegar hann hætti skóla-
stjórn og kennslu á Húsavík árið
1960, eftir 20 ára starf þar, bauðst
honum kennarastarf við æfinga-
deild Kennaraskóla tslands.
Telur hann sjálfur, að það hafi
einkum verið vegna áhuga hans á
þessum kennsluháttum og
reynslu. Þar notaði hann auðvitað
aðstöðu sína til þess að kynna
verðandi kennurum sínar
kennsluaðferðir, enda til þess
ætlazt. En ekki nóg með það.
Hann kom oft á námskeið víðs
vegar út um land til þess að fræða
um þessi efni.
Sigurður er nú hættur kennslu,
sagði starfinu lausu haustið 1976
en kenndi þó mikið s.l. vetur í
forföllum. Nú mun hann ekki
gera það. Hins vegar er hann ekki
seztur í helgan stein. Enn er hann
fullvinnandi og slær ekki slöku
við fremur en fyrri daginn. Hann
hefur nú tekið að sér að vinna við
útgáfu nýs kennaratals,
framhalds af hinu fyrra, þar sem
Ólafur Þ. Kristjánsson verður rit-
stjóri sem fyrr. Þetta mun verða
mikið verk, og hygg ég Sigurð
réttan mann í slíkt nákvæmnis- og
þolinmæðisstarf. En þetta er ekki
eina viðfangsefnið. Sigurður
hefur alla tíð verið mikill félags-
hyggjumaður og er enn virkur
starfsmaður í mörgum félögum. I
þágu bindindisstarfsins hefur
hann varið miklum tíma og fyrir-
höfn m.a. farið margar feróir um
landið, enda stórgæzlumaður
unglingastarfs I.O.G.T. um skeið.
Hann hefur einnig oft verið
sendur á fundi og ráðstefnur
erlendis, þar sem bindindismál
voru á dagskrá. Hann stofnaði og
starfrækti öfluga barnastúku á
Húsavikurárunum, og eftir að
hann settist að i Reykjavík, stofn-
aði hann barnastúku innan Lang-
holtssafnaðar og veitti henni for-
stöðu i 10 ár.
Það yrði langur listi, ef greina
ætti öll þau félög, sem Sigurður
hefur verið skráður í og veitt
liðsinni, en það eru eingöngu
félög, sem stefna að menningu
fólksins. Kirkjan hefur notið
starfskrafta Sigurðar, hann hefur
m.a. sungið í kirkjukórum bæði á
Húsavik og við Langholtskirkju
Ekkki get ég lokið þessari grein
án þess að minnast á Sigurð
Gunnarsson sem rithöfund. Hann
hefur að vísu ekki frumsamið
margar bækur, en hann er
tvímælalaust afkastamesti barna-
bókaþýðandi hér á landi. Lang-
flestar bækurnar eru þýddar úr
norsku, munu þær vera 46 að tölu
og eftir 16 höfunda. Ur öðrum
Norðurlandamálum hefur hann
þýtt uni 20 bækur og eina (þá
fyrstu) úr ensku. Flestar þessar
bækur eru um 100 blaðsíður, en
sumar meira. Auk barnabókanna
hefur Sigurður þýtt kennslu- og
leiðbeiningabækur, sumar einn
en aðrar í samvinnu við annan. I
mörg ár hefur hann ásamt tveim
öðrum séð um efní i litla bók, sem
Unglingaregla I.O.G.T. gefur út
árlega og heitir Vorblómið.
Leiðsögn í átthagafræói samdi
hann ásamt undirrituðum, og
mestan þátt hygg ég hann hafi átt
í nýlega útkominni Handbók í
bindindisfræðum. Ekki munu hér
öll kurl komin til grafar, en þetta
nægir til að gefa hugmynd um
feikilega starfsorku mannsins.
Við þetta má þó bæta því, sem
öllum er kunnugt, að Sigurður
hefur lesið sumt af bókum sínum
í útvarp og raunar meira, þvi að
hann á frumsamið barnaefni í
handriti sem hann einnig hefur
lesið nokkuð af.
Mér er sannast að segja lítt
skiljanlegt, hvernig þessi vinur
minn hefur getað afkastað þessu
öllu jafnhliða fullu starfi, sem
hann aldrei hefur vanrækt.
Sigurður Gunnarsson hefur átt
þvi láni að fagna að vera heilsu-
góður, en hann hefur ekki heldur
gert sér leik að því að spilla heilsu
sinni með neins konar óreglu.
Þarna er nokkur skýring á vinnu-
þreki hans og miklum afköstum.
Ég hef aldrei heyrt hann kvarta
undan vinnuálagi og minnist þess
varla að hafa séð á honum þreytu-
merki. Hann fer jafnan snemma á
fætur (er aldrei timbraður) og
sezt við vinnu, ef hann þarf ekki
strax í skólann. Þangað fór hann
oftast gangandi. Oft fer hann
langar gönguferðir, jafnvel á fjöll
upp. Þannig bætir hann sér upp
seturnar við skrifborðið, sem
stundum hljóta að vera nokkuð
langar. Hann hefur aldrei eignazt
bíl og er það ef til vill gæfa hans.
En Siguröur er ekki aðeins
mikill starfsmaður, hann er
maður trúr, ráðvandur og traust-
ur, og þessir eiginleikar gera
hann vinfastan. Þá hlið hans
þekki ég vel allt frá fyrstu
kynnum.
Eiginkona Sigurðar er Guðrún,
dóttir hins þekkta skólamanns,
Karls Finnbogasonar, skólastjóra
á Seyðisfirði og konu hans,
Vilhelminu Ingimundardóttur.
Guðrún er kona gervileg, vel að
sér og listræn. Þess vil ég geta
hér, að hún átti sextugsafmæli á
hvitasunnudag s.l. Eg mun ekki
iiafa sent henni afmæliskveðju.
enda þá farverandi. Ég nota því
þetta tækifæri og sendi henni
kærar kveðjur og þakkir fyrir
löng og góð kynni. Þau Sigurður
munu hafa kynnzt á Seyðisfirði
en giftust ekki fyrr en sumarið
1941, er Sigurður var fluttur til
Húsavíkur. Þau eiga þrjá syni:
Karl, Gunnar og Vilhjálm. Þeir
eru allir greindir menn og fjöl-
hæfir.
Ég læt nú lokið þessari afmælis-
grein — vona að ekki sé margt úr
lagi fært. Hitt veit ég vel að ýmis-
legt fleira hefði mátt segja. En
þetta eru ekki eftirmæli. Flest
bendir til þess, að Sigurður eigi
enn ógengin mörg ár ævi sinnar
hér, og er þá ekki að efa, að
eftirmælin vérða lengri en þetta
spjall og skrifuð af öðrum en mér.
Eg óska þér, vinur, góðs það
sem eftir er ævinnar og þakka allt
gott á langri samleið.
Eiríkur Stefánsson.
EF ÞAÐ ER
FRÉTTNÆMT
ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐENU
AlKiLÝSINKiA-
SIMINN ER:
22480
HÚSBYGGEJNDUR-Einangrunarplast
Afgreiðum einangrunarplast á
Stór-Reykjavíkursvæðið frá
mánudegi-föstudags.
Afhendum vöruna á byggingar-
staö, viöskiptamönnum
að kostnaðarlausu.
Hagkvæmt verð
og greiðsluskilmálar
viö flestra hæfi
Borqarplast
Borgarnetl
kvUM 09 belyarsiml »3-735»