Morgunblaðið - 13.10.1977, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. OKTÖBER 1977
t
Maðurmn minn og faðir
JÓHANNESÞÓRÐARSON.
vélstjóri,
Brávallagötu 18,
andaðist 1 2. þ m í Landspítalanum
Jóhanna Martinsdóttir.
Þórður Jóhannesson.
+ Maðurinn minn
ÓLAFUR VETURLIÐI ODDSSON
bifreiðarstjóri
Jórufelli 12
andaðist i Borgarspitalanum 1 1 október Fyrir hönd aðstandenda, Sóley Halldórsdóttir
t
Móðir okkar,
HALLDÓRA FINNBJÖRNSDÓTTIR
frá Hnífsdal,
lézt að Hrafnistu 1 1 október s I
Baldvin Þ. Kristjánsson, Kristin Kristjánsdóttir,
Elias Kristjánsson, Ásgeir Þorvaldsson,
Finnbjöm Þorvaldsson.
t
Hjartkær bróðir okkar,
KJARTAN R. GUÐMUNDSSON.
læknir,
lést að heimili sínu miðvikudaginn 5 október Útförin hefur farið fram í
kyrrþey Þökkum auðsýnda samúð
Katrín Guðmundsdóttir,
Guðbjörg Guðmundsdóttir,
Bárður Guðmundsson.
Útför föður okkar, + ÁSGRÍMS RAGNARS.
fulltrúa.
fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 14 október kl 10 30
Ólafur Ragnars,
Ragnar Ragnars, Gunnar Örn Ragnars.
t
Fósturmóðir okkar
JÓNÍNA ODDSDÓTTIR
frá Ormskoti, FljótshliB
er andaðist að Hrafnistu 5 október, verður jarðsett frá Breiðabólstaðar-
kirkju laugardaginn 1 5 október kl 14
Laufey Þorgrímsdóttir, óskar Kristjánsson
Garðar Óskarsson
t
Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma
MAGNÚSÍNA STEINUNN BÓÐVARSDÓTTIR
frá Sámstöðum.
verður jarðsett frá Hjarðarholtskirkju laugardaginn 15 október kl 2
e h
Fyrir hönd aðstandenda
Jón Jósefsson.
Eiginmaður minn
ELÍAS PÁLSSON,
fyrrverandi yfirfisksmatsmaður,
Austurbrún 2,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 14 október kl
1 5.00. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hins
látna er bent á Krabbameinsfélag íslands
Fyrir hönd vandamanna
Margrét Halldórsdóttir.
t
Kveðjuathöfn um fósturmóður mína og systur okkar,
GUÐLAUGU SIGURÐARDÓTTUR.
frá Hofsnesi, Öræfum,
Laugarnesvegi 85,
fer fram frá Fossvogskirkju, föstudaginn 1 4 október kl 1 3 30
Útförin fer fram frá Hofi í Öræfum, laugardaginn 1 5 október kl 1 4
Guðgeir Ásgeirsson,
Steinunn Sigurðardóttir,
Halldóra Sigurðardóttir,
Bjarni Sigurðsson.
Valgerður Sigtryggs-
dóttir - Minningarorð
F. 8. júlí 1926.
D. 5. október 1977.
Dáin, horfin, hvers vegna?
Þannig verður okkur oft á að
spyrja, þegar einhver vinur eða
vandamaður er skyndilega burt
kallaður úr þessum heimi, oft fyr-
ir aldur fram.
Þannig varð mér einmitt innan-
brjósts, þegar tengdamóðir Braga
sonar míns lézt eftir stutta sjúk-
dómslegu, aðeins 51 árs að aldri.
Hún sem alltaf var svo sterk að
lífsorkan geislaði af henni, hvort
sem hún var í starfi eða leik.
Duglegri og kappsamari mann-
eskju var vart hægt að hugsa sér.
Metnaðurinn var slíkur og afköst-
in, að hvar sem hún starfaði var
hún yfirleitt fremst í flokki og
orðlögð fyrir samvizkusemi.
Mig langar með fáeinum orðum,
að minnast þessarar konu sem
verður til moldar borin í dag.
Valgerður Sigtryggsdóttir var
fædd 8. júlí 1926 í Kumlavík á
Langanesi. Foreldrar hennar
voru Sigtryggur Helgason og Guð-
björg Friðriksdóttir. Kornung eða
aðeins 17 ára gömul, trúlofaðist
hún Helga Kristinssyni, frá Þóru-
stöðum í Ölfusi og stofnuðu þau
heimili í Reykjavík. Þeim varð
fimm dætra auðið,.en misstu eina
þeirra nýfædda.
Hinar dæturnar 4 eru: Freyja,
gift Hreini Guðlaugssyni; Heiður,
búsett í Sviþjóð; Sjöfn, gift Braga
Gunnarssyni; og Drífa, gift Guð-
brandi Kristvinssyni.
Þau Valgerður og Helgi slitu
samvistum eftir nokkurra ára
sambúð; hann lézt fyrir fáum ár-
um.
Valgerður vann síðan baki
brotnu til að reyna að sjá heimil-
inu farborða og tók þá alla vinnu
sem bauðst og hún gat af hendi
leyst með heimilinu. Þó fór svo,
að hún neyddist til að láta allar
litlu dæturnar í fóstur til vanda-
lausra og mun það hafa verið
henni þung raun. Aðstoð við ein-
stæðar mæður var lítil sem engin
á þessum árum og því fárra kosta
völ fyrir konu í hennar aðstöðu.
En dætur hennar eignuðust allar
góða fósturforeldra, sem reyndust
þeim frábærlega vel.
Valgerður hélt alltaf sambandi
við dætur sínar og þegar þær voru
orðnar stálpaðar voru þær oft hjá
móður sinni.
Fyrir 5 árum kynntist Valgerð-
ur eftirlifandi eiginmanni sínum
Núma Þorbergssyni, af borgfirzk-
um ættum og gengu þau i hjóna-
band 17. ágúst 1973. Má segja að
nýr þáttur í lífi þeirra beggja hafi
þá hafist.
Þau eignuðust yndislegt heim-
ili, og mörg áhugamál áttu þau
sameiginleg. Má þar nefna ferða-
lög og útivist, sem þau stunduðu á
sumrin. Ánægja og gagnkvæm
virðing þeirra hvors fyrir öðru
duldist engum sem sá þau saman.
Börn þeirra beggja eru öll
uppkomin og barnabörnin orðin
mörg. Eftir því sem ég bezt veit,
voru barnabörnin í miklu dálæti
hjá „ömmu og afa“ og höfðu þau
mikla ánægju af að gleðja börnin
sín á jólum og afmælum.
Veit ég með vissu að Völlu
ömmu er sárt saknað af þeim öll-
um.
Dætrum sínuru og tengdasonum
reyndist hún stoð og stytta, eink-
um þegar eitthvað bjátaði á. Bragi
sonur minn stóð i ómældri
þakkarskuld við hana þegar
yngsta barn þeirra hjóna fæddist
og senda þurfti konu hans til út-
landa til að barnið mætti fæðast
lifandi.
Valgerður fékk þá fri úr vinnu
sinni og fór út til dóttur sinnar og
þá sem endranær reyndist hún sú
sterka stoð sem aldrei lét bugast.
Þá taldi hún kjark i dóttur sína og
tengdason og allt blessaðist með
Guðs hjálp og góðra manna.
Nú er hún horfin til æðri
heima, en minningin um góða og
gjörvilega konu lifir í hugum
okkar allra, sem áttum þess kost
að kynnast henni.
Innilega samúð votta ég eigin-
manni hennar sem sér nú á bak
þeim lífsförunaut sem hann hugð-
ist eyða ævikvöldinu með, en var
svo skjótt burt kallaður.
Sömuleiðis öllum öðrum ást-
vinum hennar votta ég mína
dýpstu samúð og bið guð að blessa
og styrkja þau öll.
Þuríður Kristjánsdóttir.
VINAR —
KVEÐJA
Föstudaginn 30. september
andaðist á sjúkrahúsi á Spáni,
Sævar Pálmason Langagerði 22
Sævar fæddist 17. febrúar 1958
i Reykjavík og var þvi aðeins 19
ára gamall, þegar maðurinn með
Ijáinn kom að vitja hans.
Sævar var næstelstur fjögurra
barna hjónanna Þóreyjar
Haraldsdóttur og Pálma
Kárasonar.
Sævar var hjálplegur og góður
drengur og hvers manns hugljúfi
og verður skarð hans því vand-
fyllt í okkar stóra vinahöpi.
Að loknu gagnfræðanámi
stundaði hann sjómennsku á
Norðursjó ásamt föður sínum, og
sýndi hann þar dugnað og sam-
viskusemi, við þau erfiðu störf.
Síðustu mánuði ævi hans
starfaði hann hjá fóður-
blöndunarstöð SÍS Korngarði við
Sundahöfn.
Við sendum foreldrum hans,
systkinum og öðrum vandamönn-
um okkar dýpstu samúðar-
kveðjur.
SVAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM
Nágranni minn segist vera meðal leiðtoganna í
söfnuði sínum, en hann hlunnfer nábúa sína aftur
og aftur og gerir þeim gramt i geði á allan hátt.
Hvers konar kristindómur er þetta?
Því miður hefur svo verið allt frá því Drottinn
gekk utn þessa jörð, að kristindómurinn hefur mátt
þola menn, sem sögðust aðhyllast hann, sem sýndu
engin merki þess, að þeir væru einlægir. Eitt er að
játa, og annað að láta, sbr. Júdas Iskaríot. Sumir
hafa hátt um kristna trú sína, en staðfesta ekki orð
sín með því að ganga með Kristi.
Biblían segir: „Eins og þér hafið tekið á móti
Kristi, Drottni Jesú, svo skuluð þór lifa í honum.“
(Kóloss. 2,6). Breytni okkar þarf að vera í samræmi
við orðin. Kristna trú einstaklinga skal ekki meta
eftir því, hversu hátt þeir hrópa eða segja mikið,
heldur eftir því, hvers konar lífi þeir lifa meðal
meðbræða sinna. Páll orðaði bezt, hvernig sönn
kristin trú er, þegar hann sagði: „Lífið er mér
Kristur." Biblían kennir svo skýrt, að ekki er um að
villast, að sá, sem lifir ekki kristindóminn, á hann
ekki.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur hluttekningu og veittu
okkur aðstoð við andlát og útför sonar okkar, bróður og mágs,
SÆVARS PÁLMASONAR,
Langagerði 22.
Sérstakar þakkir færum við starfsfóiki ferðaskrifstofunnar Útsýnar og
frú Marin Gísladóttur ræðismanni
þórey Haraldsdóttir
Sigurður Pálmason
Jónína Pálmadóttir
Pálmi Kárason
Inga Amadóttir
Vigdís Pálmadóttir
Lokaö
verður eftir hádegið í dag vegna jarðarfarar.
H.ÓIafsson & Bernhöft,
Bergstaðastræti 13.
Vlnir: